Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UPPHAFLEGA var speglunartækn-
in þróuð til að hjálpa læknum við að
sjúkdómsgreina sjúklinga, og byggist
tæknin á að grönn slanga sem tengist
sjónvarpi er þrædd inn í meltingar-
veginn. Þannig er hægt að skoða
meltingarveginn innan frá án þess að
skera sjúklinginn upp.
Christopher Gostout er yfirmaður
speglunardeildar á Mayo-sjúkrahús-
inu í Minnesota í Bandaríkjunum og
yfirmaður deildar þar sem ný spegl-
unartækni er þróuð. Hann hélt fyr-
irlestur á nýafstöðnu þingi norrænna
meltingarsérfræðinga um framtíðina
í speglunarlækningum. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Gostout að nýj-
ustu speglunartækin væru aðeins um
2 cm að lengd og 1 cm að breidd og að
sjúklingarnir kyngdu þessu tæki eða
hylki eins og pillu.
Sjúklingurinn þarf því ef til vill ekki
í framtíðinni að vera á sjúkrahúsi eða
lækningastofu meðan speglunarað-
gerðin fer fram, hann getur í raun
verið hvar sem er í heiminum meðan
læknirinn fylgist með myndunum
sem speglunartækið tekur í gegnum
tölvutengingu annaðhvort á skrif-
stofu sinni, heima hjá sér, eða jafnvel í
bílnum sínum. Tækið gefur upp stað-
setningu, eins konar landfræðileg
hnit um hvar það er staðsett, til að
hjálpa læknum við að staðsetja mein-
semdir sem tækið finnur. Einnig er
hægt að setja skynjara á hylkið sem
greina efnin í meltingarveginum eins
og t.d. blóð sem kemur frá sárum eða
æxlum. Tækið mun einnig geta þegar
fram líða stundir tekið frumusýni,
brennt saman æðar og fleira.
Hefðbundin speglunartæki eru um
10 mm í þvermál, en einnig eru til
tæki sem eru ekki nema 5–6 mm í
þvermál. Með hylkjunum verður ekki
lengur þörf á að gefa sjúklinginum
kæruleysislyf í æð meðan á speglun
stendur og þarf hann ekki að taka frí.
Gostout telur að mörkin milli spegl-
unaraðgerða sem framkvæmdar eru
innan frá og kviðarholsaðgerða
skurðlæka muni skarast meira í fram-
tíðinni. Ástæðuna segir Gostout vera
að speglunarlæknar séu farnir að
sinna verkefnum sem áður þurfti að
leysa með skurðaðgerð. Hann segir
að fyrir áratug hafi 20% sjúklinga
sem hafi fengið speglun þurft að
gangast undir skurðaðgerð, en að nú
sé hlutfallið aðeins 1–2% þar sem sí-
fellt fleiri aðgerðir séu gerðar í spegl-
uninni.
Vélindabakflæði hefur verið mikið í
umræðunni hér á landi, en fari sýra
óhóflega upp í vélinda geta frumu-
breytingar hafist í slímhúðinni, sem
getur verið forstig krabbameins. „Við
erum búin að útbúa aðferð þar sem
hægt er að flysja af slímhúðina þar
sem frumubreytingarnar eiga sér
stað í heilu lagi með speglunartækinu.
Við munum hefja prófanir á þessu
síðla næsta haust,“ segir Gastout.
Saumar, heftir,
sker og brennir
Hann segir margar fleiri tækninýj-
ungar vera í burðarliðnum. „Við erum
t.d. að þróa aðferð til að lækna sýru-
bakflæði með því að sauma í slappt og
vítt efra magaop. Þá er lítilli saumavél
sem er um 2 cm löng og 1 sm breið
komið fyrir á speglunartækinu. Í
saumavélinni er nál og er henni
stjórnað með handfangi utan frá.
Tækið sogar slímhúðina inn í holrúm
á tækinu og þá er hægt að sauma
saman.“
Margs konar aðgerðir eru gerðar
með speglunartækjum. Í fyrsta lagi
eru það að sögn Gostouts, aðgerðir
sem tengjast myndun æxla og sepa í
meltingarveginum. Þá er æxlið t.d.
brennt með leysigeisla og sé ekki
hægt að fjarlægja það algjörlega, er
mögulegt að koma í veg fyrir að æxlið
stífli meltingarveginn með því að
skera á hluta þess. Gostout segir að í
framtíðinni verði hægt að skera heilu
æxlin í burtu, án skurðaðgerðar og
fjarlægja þau úr líkamanum með
speglunartækjunum, annaðhvort í
gegnum munn eða endaþarm. Einnig
er hægt að nota vírnetsrör til að opna
meltingarveginn þar sem hann hefur
stíflast, en rörin eru þannig hönnuð
að þau opnast smám saman, eftir að
þeim hefur verið komið fyrir.
Tekst að stöðva blæðingu í
meltingarvegi í 90% tilfella
Speglunartæknin hefur einnig nýst
vel við að finna blæðingu í melting-
arvegi og stöðva hana að sögn Gost-
outs. „Margar aðferðir eru notaðar til
að stöðva blæðingu, t.d. að sprauta
alkóhóli eða adrenalíni í meinið,
brenna fyrir blæðandi æð eða klípa
sárabarmana saman og hefta sárið
saman til að loka því.“ Gostout segir
að þessar aðferðir hafi verið mjög
árangursríkar.
„Í 90% tilfella þar sem speglun er
notuð til að finna blæðingu í melting-
arvegi, næst að stöðva hana. Hjá
þessum tíunda hluta tekst það hjá
90% þeirra í næstu tilraun.“ Sérstakt
blæðingateymi er starfrækt á Mayo-
sjúkrahúsinu þar sem Gostout starfar
og segir hann að hlutfall sjúklinga á
gjörgæslu sem látast vegna blæðinga
í meltingarvegi hafi fallið úr 8–9% nið-
ur í 1–2% frá því að blæðingateymið
byrjaði að starfa fyrir nokkrum árum.
Ýmsar nýjungar voru kynntar á þingi norrænna meltingarsérfræðinga á Íslandi
Örar fram-
farir í spegl-
unartækni
Speglunartækninni hefur fleygt fram síð-
ustu ár og sífellt er hægt að gera fleiri og
flóknari aðgerðir með hjálp speglunar-
tækja. Nína Björk Jónsdóttir kynnti sér
helstu nýjungar á þessu sviði.
Með þessu litla hylki sem sjúk-
lingur er látinn gleypa er unnt
að mynda meltingarveginn eða
greina efni þar og mun tækið
þegar fram líða stundir einnig
geta tekið sýni.
Christopher Gostout
ninabjork@mbl.is
NÝJUNGAR í meðferð æðakölkun-
ar og ný tækni í innæðaaðgerðum
voru meginviðfangsefni á norrænu
þingi æðaskurðlækna, sem fram fór
í Reykjavík um síðustu helgi. Um
140 manns sóttu þingið og nokkrir
af færustu sérfræðingum æðaskurð-
lækninga fluttu þar erindi. Meðal
helstu fyrirlesara voru prófessor
Amman Bolia frá háskólanum í
Leichester á Bretlandi, prófessor
Bauer Sumpio frá Yale-háskóla í
Bandaríkjunum og prófessor David
Bergqvist frá Akademíska sjúkra-
húsinu í Uppsölum.
Dr. Amman Bolia er frumkvöðull
í ákveðinni tækni sem hefur rutt sér
til rúms við aðgerðir á æðakölkun-
arsjúkdómum. Að sögn Bolia felst
tæknin í því að gerðar eru svokall-
aðar innæðaaðgerðir þar sem
röntgentækni er nýtt til að þræða
æðar með leiðurum. Æðar sem
lokast hafa vegna æðakölkunar eru
opnaðar á annan hátt en fyrr með
því að fara milli laga æðaveggjarins,
í stað þess að ráðast að vandamálinu
í miðju æðarinnar. Þannig er skap-
aður nýr farvegur fyrir blóðflæði
framhjá kölkunarsjúkdómnum og
æðin hreinsuð frá æðaveggnum í
stað miðju æðar áður. Þessi aðferð
getur verið varanlegri en hefðbund-
in skurðaðgerð í völdum tilfellum.
Það var árið 1987 sem Bolia hóf að
gera slíkar aðgerðir. „Í fyrstu höfðu
ekki margir trú á þessari aðferð, en
nú hefur hún sannað sig og er að
verða æ útbreiddari þar sem hún á
við,“ segir Amman Bolia.
Þess má geta að nú eru um 45%
allra æðaaðgerða á útlimum Íslandi
gerðar með innæðatækni. Þessi
tækni hefur reynst vel á sjúklingum
sem þola illa opnar skurðaðgerðir,
svo sem aldraðir og mjög veikt fólk.
Lifnaðarhættir segja
ekki alla söguna
Dr. Bauer fjallaði um framþróun í
meðferð og rannsóknum á æðakölk-
un. „Að undanförnu hafa komið
fram ýmsar hugmyndir um hvað
valdi æðakölkun. Menn hafa velt því
fyrir sér hvort ákveðnir þjóðfélags-
hópar séu líklegri til að fá alvarlegri
stig sjúkdómsins. Ýmsir áhættuhóp-
ar eru vel þekktir svo sem reyk-
ingamenn, sykursýkissjúklingar,
fólk með of háan blóðþrýsting og
hátt magn kólesteróls í blóði. Menn
eru sífellt að glöggva sig betur á
samverkan erfðaþátta og lifnaðar-
hátta og rannsóknir standa yfir á
því hvernig þessir þættir stuðla að
æðakölkun og hvað sé hægt að gera
til að minnka líkurnar á sjúkdómn-
um,“ segir Bauer.
Hann hefur rannsakað tengsl
blóðþrýstings og æðakölkunar. „Það
er athyglisvert að sumt fólk hefur
tilhneigingu til æðakölkunar í ríkara
mæli en aðrir við svipaðar aðstæður,
svo lifnaðarhættir virðast ekki segja
alla söguna.“
Við Yale-háskóla hefur verið kom-
ið á fót rannsóknarstofu til að skoða
af hverju sumt fólk hefur tilhneig-
ingu til æðakölkunar fremur en ann-
að og er í því skyni horft til erfða-
fræðilegra þátta. Á Íslandi eiga sér
stað rannsóknir á þessu sviði í sam-
starfi Æðaskurðlæknafélags Íslands
og Íslenskrar erfðagreiningar. Á
þinginu var kynnt rannsókn sem
staðfestir að ætt og uppruni einn og
sér getur verið sjálfstæður áhættu-
þáttur fyrir æðakölkun.
Bauer bendir á að þó miklar
framfarir hafi átt sér stað í meðferð
æðakölkunarsjúkdóma og einkenn-
um þeirra, til dæmis með lyfjagjöf
og nýjum aðferðum við að hreinsa
æðar án þess að opna þær með upp-
skurði, sé enn mikið starf óunnið.
„Ég tel mjög mikilvægt að almenn-
ingur sé meðvitaður um heilsu sína
og leggi líf sitt ekki algerlega í
hendur lækna. Því meðvitaðra sem
fólk er um líkama sinn, því líklegra
er það til að stunda holla lifnaðar-
hætti og draga þannig úr líkum á
hinum ýmsu sjúkdómum.“
Dr. David Bergqvist lagði einnig
áherslu á mikilvægi þess að almenn-
ingur sé uppfræddur um áhættu-
þætti æðasjúkdóma. Bergqvist sem
starfað hefur á sviði æðaskurðlækn-
inga í yfir 20 ár fjallaði á þinginu um
notkun nýrra lyfja varðandi æða-
kölkun og flókið samspil storkuþátta
og birtingu æðasjúkdóma.
Að sögn Bergqvist hafa á starfs-
ævi hans orðið miklar framfarir í
notkun lyfja á sviði blóðstorku sem
geta haft fyrirbyggjandi gildi við
æðasjúkdóma og afleiðingar þeirra
sem og gera beina meðferð auðveld-
ari og áhrifaríkari. Þetta hafi einnig
gjörbreytt þeim möguleikum sem
fyrir hendi eru við skurðaðgerðir og
innæðameðferð æðasjúkdóma.
Í tengslum við ráðstefnuna var
haldið námskeið fyrir verðandi æða-
skurðlækna en umsjón með því
hafði meðal annars Georg Stein-
þórsson, æðaskurðlæknir á Land-
spítala – Háskólasjúkrahúsi í Foss-
vogi. Námskeiðið var liður í að
reyna að glæða áhuga á þessari sér-
grein, en að sögn Stefáns E. Matthí-
assonar, formanns Æðaskurðlækna-
félags Íslands, er mikill skortur á
sérfræðingum í greininni á Norð-
urlöndunum.
Að undanförnu hefur starfsað-
staða fyrir lækningar á þessu sviði
batnað til muna hér á landi með
bættu skipulagi og sameiningu æða-
skurðlækningadeilda í Fossvogi og
með uppbyggingu aðstöðu þar. Stef-
án segir þetta vekja vonir um að
þessum málaflokki verði vel borgið
hér á næstu árum.
Fjölmörg erindi flutt á norrænu þingi og námskeiði æðaskurðlækna í Reykjavík
Miklar tæknifram-
farir á síðustu árum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestir á þingi æðaskurðlækna í Odda um síðustu helgi.