Morgunblaðið - 14.06.2001, Side 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MA-hátíð verður haldin laugardaginn
16. júní 2001 í Íþróttahöllinni á Akureyri
• Fordrykkur kl. 18.15-18.45.
• Borðhald hefst kl. 19.00.
• Hljómsveitirnar í Svörtum fötum og Harmonikufélag
Eyjafjarðar og nágrennis leika fyrir dansi til kl. 3.
• Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna.
• Miðasala verður í Íþróttahöllinni föstudaginn 15. júní
kl. 17-20 og laugardaginn 16. júní kl. 12-17.
• Miðaverð kr. 4.700.
• Miðar á dansleikinn verða seldir við innganginn.
• Samkvæmisklæðnaður
Hátíðarnefnd.
MA-hátíð
FJÖLDI aðdáenda enska knatt-
spyrnuliðsins Liverpool, og reynd-
ar ýmissa annarra liða, lögðu leið
sína í verslunina Sportver á Gler-
ártorgi á Akureyri í gær þar sem
enska FA-bikarnum hafði verið
komið fyrir til sýnis. Liverpool sigr-
aði Arsenal í úrslitaleik í ensku bik-
arkeppninni, sem er elsta knatt-
spyrnumót heims, fyrir skömmu og
var greinilegt að mörgum fannst
spennandi að fá að hefja bikarinn á
loft eins og margur frægur fyrirlið-
inn hefur gert á Wembley í gegnum
tíðina, og Jamie Redknapp og Rob-
bie Fowler, fyrirliðar Liverpool,
gerðu í Cardiff á dögunum þegar
úrslitaleikurinn fór fram þar.
Nokkur hundruð manns létu
mynda sig með bikarinn á Akureyri
í gær og margir í Kringlunni í
Reykjavík í fyrradag en Hans Pet-
ersen og Pedró-myndir buðu upp á
það fólki að kostnaðarlausu.
Það er Englendingurinn Laurie
Good sem hefur þann starfa að gæta
bikarsins og kveðst hann ferðast
nánast stanslaust með hann um
heimsbyggðina. Hann segist kall-
aður „keeper of the Cup“ í heima-
landinu, gæslumaður bikarsins, og
allir vita við hvaða bikar er átt.
Enski bikarinn á loft
Þrír aðdáendur Liverpool í myndatöku með enska bikarinn í Sportveri á Glerártorgi á Ak-
ureyri í gær. Starfsmaður Pedro-mynda myndaði alla sem vildu, með bikarinn, og virðast að
minnsta kosti tveir þremenninganna mjög spenntir!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tíu ára aðdáandi Liverpool á Akureyri, Bjarki
Guðmundsson, hefur enska bikarinn á loft í gær.
GUÐMUNDUR Ólafur ÓF 91 hinn
nýi kom til heimahafnar nýlega og af
því tilefni var haldin móttaka og
veisla fyrir áhöfn, fjölskyldur þeirra
og raunar alla sem lögðu leið sína um
borð í skipið. Mikil gleði ríkti þessa
stund enda miklu að fagna. Nýja
skipið er stórglæsilegt í alla staði,
rúmgott og nýtískulegt. Það er stór
stund í lífi bæjarfélags þegar svona
stórt og mikilfenglegt skip bætist í
skipaflotann.
Hannes Garðarsson hélt stutta
tölu fyrir hönd fjölskyldu Garðars
Guðmundssonar og áhafnarinnar.
Hann rakti sögu fyrirtækisins, allt
frá síðari hluta 19. aldar. Hann út-
skýrði að nafn skipsins tengdist ætt-
inni órjúfanlegum böndum, bæði
Guðmunarnafnið og ekki síður Ólafs-
nafnið, það vísaði hvort tveggja til
Ólafs og Ólafar.
Þórður Jónsson, forstjóri SR-
mjöls, sem eignast hlut í Garðari
Guðmundssyni með þessum kaup-
um, hélt einnig stutta tölu. Í máli
hans kom fram að hann væri afar
ánægður með að viðræður við Garð-
ar Guðmundsson hf. hefðu tekist og
það hefði verið sigur beggja aðila.
Hér væri komið stórt skip með aukn-
um aflaheimildum sem væri frum-
skilyrði fyrir betri afkomu og
rekstri.
Síðan var gestum boðið upp á kaffi
og veitingar. Fjöldi manns lagði leið
sína til að skoða skipið.
Guðmundur Ólafur gamli liggur
við landfestar í Siglufjarðarhöfn.
Nýja skipið er stálskip, smíðað í
Noregi árið 1990, en það kom til Ís-
lands árið 1999 og hét þá Sveinn
Benediktsson SU-77. Það er 56
metra langt og 11 metra breitt, alls
1.230 brúttólestir.
Stærra skip með
meiri aflaheimildir
Nýja skipið er muna stærra en
gamli Guðmundur Ólafur, en það
sem mestu skiptir þó er að nýja skip-
inu fylgja meiri aflaheimildir og
munar þar mest um kolmunnakvót-
ann. Með tilkomu nýja skipsins verð-
ur mögulegt að vera á veiðum árið
um kring og verða þá stoppin á Guð-
mundi Ólafi úr sögunni.
„Við höfum velt þessum möguleika
lengi fyrir okkur,“ segir Barði Jak-
obsson hjá Garðari Guðmundssyn hf.
„Hins vegar kom ekki alvara í málið
fyrr en í vor. En þetta var nauðsyn-
legt til að efla rekstur fyrirtækisins.“
Barði segir að fleiri karla þurfi um
borð í nýja skipið en á Guðmundi
Ólafi gamla voru 14 í áhöfn en á
þessu nýja verða þeir 17. Guðmund-
ur Ólafur ÓF 91 hélt á veiðar á
mánudagskvöld.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Mikil gleði ríkti þegar Guðmundur Ólafur ÓF 91, sem áður hét Sveinn
Benediktsson SU-77, kom til heimahafnar í Ólafsfjarðarhöfn.
Nýtt skip í flota
Ólafsfirðinga
Ólafsfjörður
bera sama fyrra nafn var víxlað á
prófblöðunum.
„Svona atvik geta alltaf komið
fyrir og hafa komið upp áður en sem
betur fer eru þau fátíð,“ sagði Sig-
urgrímur. Hann sagði að það kerfi
sem nú væri viðhaft í þessum efnum
væri öruggara en það sem áður var
notað en aldrei yrði að fullu hægt að
koma í veg fyrir mistök. Þetta kerfi
hefur verið notað síðustu fimm ár.
Hann sagði að til væri í dæminu að
NEMANDI í 10. bekk í Brekku-
skóla á Akureyri hækkaði um 3,5 í
samræmdu prófi í ensku eftir að í
ljós kom að mistök höfðu átt sér
stað í skólanum við merkingu prófs
hans.
Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri
yfir samræmdum prófum, sagði að
fyrirkomulagið væri yfirleitt með
þeim hætti í stærri skólum að lím-
miði með nafni og kennitölu nem-
anda er límdur á prófblaðið þegar
hann hefur þreytt prófið. Úrlausnir
eru sendar frá hverjum skóla til
Námsmatsstofnunar þar sem skanni
les límmiðann.
Nöfnunum víxlað
Í umræddu tilvik urðu þau mistök
að nöfnum tveggja nemenda sem
límmiðar með nafni og kennitölu
væru settir á áður en nemandi hefur
prófið, það væri t.d. gert í nokkrum
mæli í samræmdum prófum í 7.
bekk og eins í minni skólum þar
sem rýmri tími gæfist til þess að
morgninum.
Sigurgísli sagði að nemendur
gætu fengið afrit af prófum sínum
til skoðunar og árlega bærust á
bilinu 100 til 150 slíkar beiðnir. Í
nokkrum tilfellum hefðu komið upp
mistök á borð við þau sem urðu í
Brekkuskóla síðastliðið vor.
Sömu mistökin í dönskuprófinu
Mistökin uppgötvuðust í kjölfar
þess að móður nemandans þótti
misræmi á milli skólaeinkunnar
hans í ensku og útkomunni úr sam-
ræmdu prófunum þar sem hann
fékk 3 í einkunn. Hún fékk afrit af
prófinu og kom þá í ljós hin ranga
nafnamerking þess. Eftir að mistök-
in urðu ljós fékk nemandinn rétta
einkunn, 6,5, og var að vonum mun
ánægðari með þau málalok. Sömu
mistökin voru einnig gerð hvað
varðar samræmda prófið í dönsku
en það kom ekki að sök þar sem
þessi tveir nemendur reyndust með
sömu einkunn.
Mistök áttu sér stað við skil á samræmdum prófum í Brekkuskóla
Nöfnum tveggja
nemenda víxlað
BINGÓ verður á vegum unglinga í
Hjálpræðishernum í kvöld,
fimmtudagkvöldið 14. júní, og
hefst það kl. 20. Bingóið er liður í
fjáröflun unglinganna vegna ferðar
sinnar til Danmerkur síðar í sum-
ar. Allir eru velkomnir á bingóið
og vænta unglingarnir þess að sem
flestir láti sjá sig.
Bingó
ERLINGUR Valgarðsson,
Elli, opnar myndlistarsýningu
á Café Karólínu á Akureyri á
föstudagskvöld, 15. júní.
Sýninguna kallar listamaður-
inn „Einkenni“ enda fjallar hún
um það hvernig við persónu-
gerum fólk eftir útlitseinkenn-
um.
Á sýningunni gefur að líta
ljósmyndir af nokkrum andlit-
um úr bæjarlífinu á Akureyri,
annars vegar óbreyttar og hins
vegar myndir sem Elli hefur
meðhöndlað og gefið þessu
fólki ný og afgerandi útlitsein-
kenni.
Elli er búsettur á Akureyri
og hefur fengist við myndlist
um árabil, bæði hefðbundið
málverk og hugmyndafræði-
lega myndlist. Hann á að baki
allnokkrar einkasýningar og
hefur tekið þátt í mörgum sam-
sýningum, nú síðast á sumar-
sýningu Listasafnsins á Akur-
eyri sem opnuð var um síðustu
helgi.
Ljósmyndirnar á sýningunni
tók Emil Valgarðsson.
Allir eru velkomnir á opn-
unina og búast má við bók-
menntalegu innskoti.
Einkenni
Erlings á
Karólínu
AÐALFUNDUR Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga var haldinn ný-
lega á Kópaskeri.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
voru tvö sérmál fundarins tekin
fyrir.
Fyrra málið var „Sauðfjárrækt,
framtíð hennar og tækifæri í
breyttum heimi,“ og síðara málið
var Dettifossvegur.
Á fundinum var lögð fram til-
laga sem samþykkt var samhljóða,
en þar fagnar aðalfundurinn
ákvörðun þingmanna kjördæmis-
ins um að skipa starfshóp um stað-
setningu Dettifossvegar. Jafn-
framt leggur fundurinn áherslu á
að lagningu vegarins verði hraðað
og hann verði tilbúinn eigi síðar en
árið 2005.
Fagna
ákvörðun
um Detti-
fossveg
Aðalfundur
Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga