Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 27
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 27
FJARÐARKAUP
Gildir til 16. júní nú kr. áður kr. mælie.
BBQ kjúklingalæri 599 898 599 kg
Hrásalat 350gr 119 145 340 kg
Grill lambakótilettur 1.149 1.625 1.149 kg
Rúllupylsa 1.198 1.599 1.198 kg
Lambakæfa 598 789 598 kg
Pampers prem. 2xpk. 20% kaupauki 1.849 2.118 1.849 kg
BKI luxus kaffi 500gr 298 322 596 kg
HAGKAUP
Gildir til 17. júní nú kr. áður kr. mælie.
Rauðvínslegnar svínakótilettur 899 1.339 899 kg
Kjarnafæðis gráðostsósa, 200 g 120 164 600 kg
Kjarnafæðis grill piparsósa, 200 g 120 164 600 kg
Grillkartöflur 149 229 149 kg
HRAÐBÚÐIR Essó
Gildir til 30. júní nú kr. áður kr. mælie.
Orville-örbylgjupopp, 298 g 159 185 540 kg
Mentos fruit/mint, töflur 40 g 59 75 1.480 kg
Bounty-súkkulaði, 57 g 55 70 965 kg
Stórt Twix-súkkulaði, 85 g 79 105 916 kg
Mozart-kúlur, 17 g 45 59 2.647 kg
MS Djæf ísp./möndl./súkkul./capp. 129 152 1.843 kg
1944 Stroganoff, 450 g 359 409 798 kg
Pepsí, 0,5 ltr. plast 109 130 218 ltr
KÁ verslanir
Gildir til 17. júní nú kr. áður kr. mælie.
Svínahnakkasneiðar úrb. 958 1.198 958 kg
Svínabógur hringskorinn 398 569 398 kg
Prince Póló 3 í pk., 120 g 119 179 991 kg
Marmaraostakaka, 800 g 798 929 998 kg
Gullostur, 250 g 359 449 1.436 kg
Búri 38% 973 1.145 973 kg
Dan Cake marmarakaka, 300 g 139 198 463 kg
Dan Cake Lemon/súkkul., 300 g 139 198 463 kg
NÓATÚNSVERSLANIR
Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie.
Dane Cake luxus kökur, 300 g 129 189 430 kg
Daloon-kjötréttir, 350 g 219 399 626 kg
O&S sveppasósa, 300 g 178 225 594 kg
O&S gráðostasósa, 300 g 178 225 594 kg
Nóa Kropp, 200 g 199 256 995 kg
Campino jarðarb.brjóstsykur, 140 g 159 nýtt 1.136 kg
NÝKAUP
Gildir til 20. júní nú kr. áður kr mælie.
UN grillborgari, 140 g 99 159 707 kg
VSOP-helgarsteik 958 1.198 958 kg
VSOP-koníakslegnar lærissn., 2. fl. 958 1.198 958 kg
Ali Mexíkósvínakótilettur 1.046 1.395 1.046 kg
BKI kaffi luxus, 500 g 299 399 598 kg
Sun lolly, 10 st., 5 bragðteg. 169 239 17 st.
Tholstrup blár kastalaostur, 150 g 229 299 1.527 kg
Vestfirskur harðfiskur, roðlaus ýsa 3.126 4.168 3.126 kg
Hel
garTILBOÐIN SAMKAUPGildir til 17. júní nú kr. áður kr. mælie.
Goða Bayonneskinka 1.095 1.368 1.095 kg
Ekta krakkabollur 758 948 758 kg
Merrild-kaffi 103, 500 g 299 349 598 kg
Emmess hversdagsís, 2 ltr 399 549 200 ltr
ÍM reyktur/grafinn lax 1.698 2.358 1.698 kg
Kjúklingalæri frosin 398 699 398 kg
Myllu heimilisbrauð, 770 g 159 225 206 kg
Ali svínakótilettur reyktar 1.123 1.498 1.123 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 27. júní nú kr. áður kr. mælie.
Bahlsen saltkringlur 200 g 119 149 595 kg
Prins polo XXL 69 90
Marabou-súkkulaðirúllur, 3 teg. 99 120
Billy’s pan pizzur, 3 teg 110 220
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Júnítilboð nú kr áður kr. mælie.
Lion Bar-súkkulaði, 4 í pakka 280 320 280 pk.
Kit Kat-súkkulaði 3 í pakka 190 225 190 pk.
Mix, 0,5 ltr. plast 110 130 220 ltr
Appelsínusvali, 3 x 1/4 ltr 148 180 196 ltr
Eplasvali, 3 x 1/4 ltr 148 180 196 ltr
ÞÍN VERSLUN
Gildir til 20. júní nú kr. áður kr. mælie.
Púrtvíns helgarsteik 1.279 1.599 1.279 kg
Marabou-súkkulaði 100 g 79 89 790 kg
Skyr.is 170 g 70 78 406 kg
Villiköttur 2 saman 139 178 458 kg
irleitt á sambærilegu verði og nám-
skeið ÍTR.
Hulda Guðrún Bragadóttir hjá
Útilífsskóla skáta í Grafarvogi segir
aðsóknina vera mjög góða í sumar,
fullt er í júní en eitthvað laust í júlí og
ágúst. 7.500 krónur kostar á hálfs-
mánaðarnámskeið virka daga frá kl.
10-16 og um 150 börn á aldrinum 7-11
ára hafa skráð sig til þátttöku í sum-
ar.
Námskeiðin enda með einnar næt-
ur útilegu.
Aðsókn hefur einnig verið góð í
Knattspyrnu-, leikja- og íþróttaskóla
Víkings, að sögn Þrándar Sigurðs-
sonar skólastjóra. „Um 120 börn á
aldrinum 5-13 ára eru á námskeiðum
hjá okkur núna en ekki hefur verið
bókað eins mikið á seinni námskeið.
Um 20-30 börn eru yfirleitt saman í
hóp ásamt þjálfara og aðstoðar-
manni. Hálfsmánaðarnámskeið kost-
ar 4.000 kr. en kennt er frá klukkan 9-
12.“
Aðsókn hefur aukist gífurlega í
golfkennslu á vegum Golfklúbbs
Reykjavíkur, segir Vilborg Auðuns-
dóttir. Aðeins er laust í örfá námskeið
sumarsins en þátttakendur í hverju
eru 24 og er þátttökugjald 15.000 fyr-
ir tíu daga námskeið, hálfan daginn.
Á vegum Neskirkju, Dómkirkju og
fleiri kirkna hafa verið haldin leikja-
og ævintýranámskeið með kristilegu
ívafi undanfarin sumur
Námskeiðin í Dómkirkjunni,
Kirkja og börn í borg, eru vinsæl að
sögn Bolla Bollasonar, og nánast er
fullt á þau öll. Í boði eru vikunám-
skeið í fjórar klukkustundir á dag ,
ýmist fyrir eða eftir hádegi. Gjaldið
er 1.500 kr en afsláttur er veittur hafi
börn sótt kirkjuskóla Dómkirkjunn-
ar.
Rúnar Reynisson skrifstofustjóri
Neskirkju telur líklegt að bráðlega
verði uppselt á leikja- og ævintýra-
námskeið sumarsins. Þau standa frá
kl. 13-17 virka daga í eina viku og
gjaldið er 2.500 krónur og er nesti
innifalið.
Laust á tungumála-
námskeið af ýmsum toga
Mímir Tómstundaskólinn býður
ýmis tungumálanámskeið í sumar
auk mynd- og leiklistarkennslu. Ingi-
björg Guðmundsdóttir skólastjóri
segir alla komast að sem vilja því
bætt er við námskeiðum séu þau eft-
irsótt. „Vinsælust í sumar eru ensku
og myndlistarnámskeiðin en aðsókn-
in er svipuð og í fyrra og því útlitið
gott.“
Námskeiðin standa í þrjár klukku-
stundir fyrir hádegi og kosta 8.900
krónur“
Laust er einnig á námskeið
Spænskumiðstöðvarinnar í sumar, að
sögn Helenar Garðarsdóttur. Námið
fléttast saman við útileiki af ýmsum
toga sem tengjast spænskunni og
fara fram á lóð Háskóla Íslands.
Töluvert er um bókanir fyrri hluta
sumars en enn laust seinni hluta sum-
ar.
Námskeið kostar 18.500 kr, en
kennt er fjóra tíma á dag í hálfan
mánuð.
Uppselt hjá Heimilis-
iðnaðarskólanum
Fullt er á öll handverksnámskeið
Heimilisiðnaðarskólans í sumar
nema nokkur pláss eru enn laus í
jurtalitun en það námskeið hófst fyrr
í vikunni.
Námskeiðin eru ætluð börnum á
aldrinum 8-14 ára og gjaldið er 8.000
kr. fyrir fimm daga kennslu en kennt
er frá kl. 13-17. Meðal annars er unnt
að læra tálgun og trésmíði, vefnað,
dúkkufatasaum og listsköpun í gleri.
Um 60 börn munu taka þátt í þessum
námskeiðum sem standa aðeins í júní,
segir Steinunn Ásgeirsdóttir skóla-
stjórnandi.
Laust á ljósmynda-
og kvikmyndanámskeið
Myndatökuskóli Marteins hefur í
sumar boðið í fyrsta sinn ljósmynda-
og kvikmyndanámskeið fyrir börn
fædd 1988 – 1990. Miðstöð nám-
skeiðsins er í Réttarholtsskóla og enn
eru laus sæti, segir Marteinn Sigur-
geirsson.
Leiklistarnámskeið í Borg-
arleikhúsinu nánast uppseld
Nýtt af nálinni er einnig námskeið í
Leiklistarskólanum en um 350 börn á
aldrinum 7-15 ára eru skráð í skólann
en hann er samvinnuverkefni Borg-
arleikhúss og Kvikmyndaskóla Ís-
lands. Hálfsmánaðarnámskeið, fjórar
klukkustundir á dag, kosta 28.000
krónur. Biðlistar eru á júnínámskeið
en ekki alveg fullt í ágúst, segir Lísa
Ingólfsdóttir starfsmaður. „Nám-
skeiðin eru dýr því mjög mikið er lagt
í þau, meðal annars kenna atvinnu-
leikarar og tæknifólk. Ólíkt ýmsum
öðrum sumarnámskeiðum fyrir börn
eru þessi ekki hugsuð sem geymslu-
staður fyrir börnin á meðan foreldr-
arnir eru í vinnunni.“
Söngur og leiklist
fyrir 16.000 kr.
Sönglist s.f. býður annað árið í röð
söng- og leiklistarnámskeið fyrir
börn á aldrinum 6-12 ára, Fyrsta
námskeiðið sem nú stendur yfir er
mjög vel sótt og mikið er um bókanir
á seinni námskeið en þó er eitthvað
laust á sum námskeiðanna segir
Ragnheiður Hall. Verð fyrir tveggja
vikna námskeið er 16.000 krónur en
kennt er þrjá tíma á dag.
Reiðnámskeið
á 19.800 kr.
Bjarni Eiríkur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri segir reiðnámskeiðin
hjá Þyrli vera afar vinsæl og allt er
fullbókað í júní en eitthvað um laust
pláss seinna í sumar. „Óhætt að segja
að starfsemin gangi vel, við bjóðum
byrjendanámskeið og framhalds-
námskeið fyrir 7-14 ára, þar sem dag-
ur í sveit er innifalinn í verði, en auk
þess er sérstök deild fyrir sex ára, og
gangskiptingarnámskeið.“
Byrjenda- og framhaldsnámskeið í
þrjár klukkustsundir daglega í tíu
daga kosta 19.800 krónur.
Vinsæl námskeið
hjá Rauða krossinum
Ungmennahreyfing Rauða kross
Íslands heldur eins og undanfarin ár
námskeið þar sem áhersla er lögð á
jákvæð mannleg samskipti, ólíka
menningu og umhverfi. Þátttakendur
eru börn á aldrinum 9-11 ára og upp-
selt er á öll námskeið nema það síð-
asta í byrjun júlí.
Kr. 8.000 kostar á vikunámskeið en
kennt er frá kl. 9-16, að sögn sjálf-
boðaliða á skrifstofu ungmenna-
hreyfingarinnar.
NOKKUÐ hefur borið á því að not-
endur Tal GSM nái ekki reikisam-
bandi við dreifikerfi Símans GSM
þegar þeir eru utan þjónustusvæð-
is Tals. Anna Huld Óskarsdóttir,
framkvæmdastjóri viðskiptatengsla
Tals, vildi af þeim sökum koma því
á framfæri að í slíkum tilfellum
þurfi að stilla Tal GSM símann
þannig að hann finni dreifikerfi
Símans GSM með réttum hætti.
„Viðskiptavinir Tals geta verið í
reikisambandi í dreifikerfi Símans
þegar þeir eru utan þjónustusvæð-
is Tals. Fyrirtækin gerðu samning
um slíka reikiþjónustu á Vestfjörð-
um utan Ísafjarðar, Norðurlandi
utan Eyjafjarðarsvæðisins og
Húsavíkur, svo og á austan- og
sunnanverðu landinu að Vík í Mýr-
dal.
Í valglugga Tal GSM símans
þarf að finna stillingar fyrir dreifi-
kerfi (Network) og stilla þar hand-
virkt á dreifikerfi Símans GSM.
Þetta þarf að gera þegar Tal-not-
andinn er staddur inni á þjónustu-
svæði Símans GSM þar sem reiki-
samningurinn gildir. Þegar þessu
er lokið þarf að stilla aftur á sjálf-
virka (automatic) leit að dreifikerfi.
Eftir það eiga engin vandkvæði að
koma upp þótt fólk fari á milli
GSM kerfa Tals og Símans. Still-
ingarnar þarf aðeins að fram-
kvæma í þetta eina skipti. Eftir
það leitar GSM síminn sjálfkrafa
að því dreifikerfi sem stendur til
boða hverju sinni.
Nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðu Tals – www.tal.is – og einn-
ig munu allar upplýsingar veittar í
þjónustuveri fyrirtækisins í gjald-
frjálsu númeri 1414.
Þess má geta að símtöl milli
tveggja Tal GSM síma kosta alltaf
10 kr. á mínútu, óháð því hvort við-
skiptavinurinn er staddur innan
þjónustusvæðis Tals eða dreifikerf-
is Símans GSM.“
Notkun Tal GSM síma
í dreifikerfi Símans GSM
Réttar stillingar
mikilvægar
VERÐMERKINGAR á vörum
eru bindandi og auglýst verð og
kjör skulu gilda í versluninni.
Þetta eru niðurstöður tveggja
lögfræðinga á sviði neytenda-
réttar sem hafa tekið til skoð-
unar ýmis álitaefni er varða
ábyrgð auglýsenda gagnvart al-
menningi. Rannsóknin og
skýrslan var unnin af prófessor
Kai Krüger við háskólann í
Bergen og prófessor Peter Mø-
gelvang-Hansen við Við-
skiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn, að beiðni Norrænu
ráðherranefndarinnar.
Þar sem ágengar auglýsingar
verða æ algengari í sjónvarpi og
öðrum fjölmiðlum þarf ábyrgð
framleiðenda og auglýsenda að
vera skýrari að mati lögfræðing-
anna. Þó að nýlegar reglugerðir
frá ESB hafi skerpt á þeirri
ábyrgð undanfarið eru enn
nokkur atriði óljós í sambandi
við framkvæmdina. Rannsóknin
leiddi í ljós að sem viðskipta-
maður seljanda á viðskiptavin-
urinn ekki að bera skaða vegna
útgjalda og ófjárhagslegs tjóns
ef hann hefur eytt tíma og pen-
ingum vegna auglýsingar sem
verslunin vill síðan hlaupast
undan að standa við. Þó ber að
taka fram að þetta er einungis
álit lögfræðinganna sem unnu
rannsóknina og þeir benda á að
þetta þurfi að festa skýrum
stöfum í lög. Einnig þarf að
þeirra mati að setja skýrari
reglur um skuldbindingargildi
auglýsinga og samræma nor-
ræna löggjöf um málið.
Úrskurðaraðilar á sviði neyt-
endamála hafa að mati rannsak-
endanna ekki gengið nógu langt
í því að gera athugasemdir við
rangar og villandi auglýsingar.
Það segja þeir hafa mikla þýð-
ingu í framkvæmd enda varða
kvartanir og kröfur í slíkum
málum oftast smáum fjárhæðum
og koma af þeim sökum sjaldan
eða aldrei til kasta dómstóla.
Auglýst verð
skal gilda
EKKI hafa allir foreldrar fjár-
hagslegt bolmagn til þess að
senda börnin sín á námskeið yfir
sumartímann, að mati Önnu
Margrétar Stefánsdóttur, for-
manns Heimila og Skóla, lands-
samtaka foreldrafélaga.
„Við heyrum af fólki í vandræð-
um, sérstaklega í barnmörgum
fjölskyldum sem ekki hafa ráð á
að senda öll börnin á reið-
námskeið í nokkrar vikur eða eitt-
hvert annað námskeið. Í öðrum til-
fellum kvarta foreldar yfir að
koma ekki börnum sínum að á
námskeiðum. Sumarið á að vera
ánægjulegur tími sem fjölskyldan
á að njóta í samvistum en margir
foreldrar þurfa að taka sumarfríið
í sitthvoru lagi til þess að skilja
ekki börnin eftir ein allan daginn.
Ekki er forsvaranlegt að börn,
jafnvel sex ára gömul, séu ein á
ferð með lykil um hálsinn allan
daginn því það bjóðast engin úr-
ræði fyrir þau.“
Heimili og skóli lýsa því yfir
áhyggjum af lausagöngu barna yf-
ir sumartímann og vilja stuðning
yfirvalda, atvinnulífs og skóla við
foreldra sem eru að vinna þjóð-
félaginu gagn í sínum störfum, að
sögn Önnu Margrétar. „Þjóðfélag-
ið er að breytast og við þurfum að
gera okkur betur grein fyrir
breyttum aðstæðum.“
Ekki forsvaranlegt að
börnin gangi sjálfala