Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 28
ERLENT
28 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÉTTARHÖLD standa nú yfir í
máli Jeffrey Archer lávarðar, fyrr-
verandi borgarstjóraefnis íhalds-
manna í London. Jeffrey Archer er
þekktur rithöfundur og milljóna-
mæringur í Bretlandi. Archer er
ákærður fyrir að hafa framið mein-
særi fyrir rétti árið 1987 í meið-
yrðamáli er hann höfðaði gegn
breska dagblaðinu Daily Star.
Jeffrey Archer var árið 1999 kos-
inn frambjóðandi íhaldsmanna í
borgarstjórnarkosningunum í
London sem fóru fram vorið 2000.
Íhaldsflokkurinn dró þó umboð
hans sem frambjóðanda snögglega
til baka er upp komst að lávarð-
urinn hafði fengið þáverandi vin
sinn, Ted Francis, til að bera ljúg-
vitni í réttarhöldum er hann kærði
dagblaðið Daily Star fyrir æru-
meiðingar.
Áfall fyrir
William Hague
William Hague, þáverandi for-
maður Íhaldsflokksins, lýsti því yfir
í kjölfarið að lávarðurinn yrði gerð-
ur brottrækur úr flokknum. Síðar
úrskurðaði þó siðanefnd flokksins
að hann yrði einungis gerður brott-
rækur í fimm ár.
Úrskurðurinn þótti mikið áfall
fyrir Hague sem hafði viljað reka
Archer lávarð úr flokknum fyrir
fullt og allt. Auk þess hafði hann
skellt skollaeyrum við aðvörunum
um að Archer lávarður væri ekki
ákjósanlegt borgarstjóraefni í ljósi
vafasamrar fortíðar. Háttsettir
íhaldsmenn sögðu þetta vera alvar-
legustu dómgreindarvillu Hagues
frá því að hann tók við embætti árið
1997 auk þess sem hneykslið þótti
vera alvarlegt bakslag fyrir flokk-
inn aðeins 18 mánuðum fyrir kosn-
ingar.
Kveðst vera saklaus
Málaferlin yfir Archer lávarði
eru tilkomin vegna þess að hann
varð uppvís að því að bera fyrir sig
falska fjarvistarsönnun í meinsær-
ismálinu sem hann höfðaði gegn
Daily Star. Dagblaðið hafði birt
frétt þess efnis að Archer lávarður
hefði nýtt sér þjónustu tiltekinnar
vændiskonu. Lávarðurinn vann
málið og dagblaðið þurfti að greiða
honum sem svarar 50 milljónum ís-
lenskra króna í skaðabætur.
Nú eru komin fram vitni sem
segja að Archer hafi falsað sönn-
unargögn í málinu, hann hafi borið
ljúgvitni fyrir dómi auk þess sem
hann hafi fengið þáverandi vin sinn,
Ted Francis, til að ljúga til að hafa
fjarvistasönnun í málinu. Daily Star
hefur því höfðað mál gegn Archer
lávarði að nýju á þeirri forsendu að
hann hafi falsað sönnunargögn, log-
ið fyrir dómi og fyrir að hafa hindr-
að framgang réttvísinnar. Alls eru
ákærurnar á hendur lávarðinum sjö
en hann kveðst vera saklaus af öll-
um sakargiftum.
Laug að Thatcher
um hjákonuna
Jeffrey Archer lávarður var á ár-
um áður varaformaður Íhalds-
flokksins. Hann hefur í réttarhöld-
unum sem nú standa yfir orðið
uppvís að því að hafa átt hjákonu á
þeim árum, þrátt fyrir að hafa
sannfært þáverandi forsætisráð-
herra, Margaret Thatcher, um að
sambandinu væri lokið. Það er fyrr-
verandi ritari Archers lávarðar,
Angela Peppiat, sem hefur greint
frá þessu fyrir rétti. Hún hefur þar
að auki upplýst að Archer hafi beð-
ið sig um að falsa dagbók á skrif-
stofu hans og fjarlægja uppruna-
legu dagbókina til að þannig mætti
staðfesta fjarvistarsönnun hans.
Þá hefur Peppiat borið fyrir dómi
að hún hafi haldið skrá um
greiðslur sem lávarðurinn greiddi
milligöngumanni fyrir að greiða
vændiskonunni sem hlut átti að
máli fyrir þjónustu sína við lávarð-
inn. Segir Peppiat að Archer lá-
varður hafi fengið umræddan milli-
göngumann til að fara úr landi
meðan á réttarhöldunum árið 1987
stóð. Enn fremur kemur fram á
fréttavef BBC að ritari lávarðarins
hafi borið fyrir dómi að Archer og
kona hans hafi einungis sést saman
opinberlega á meðan á réttarhöld-
unum stóð „til að sýna umheim-
inum að þau væru par og að Jeffrey
gæti alls ekki hafa verið í neins
konar sambandi utan hjónabands“.
Ritari lávarðarins sagði einnig að
í raun hefðu þau hjónin lifað að-
skildu lífi. Eins og áður sagði hefur
Jeffrey Archer lávarður neitað öll-
um sakargiftum The Daily Star. Þá
hefur Ted Francis, vísað sakargift-
um á bug.
Réttað yfir Archer lávarði fyrrverandi borgarstjóraefni Íhaldsflokksins
Heldur
áfram fram
sakleysi sínu
London. The Daily Telegraph.
Reuters
Jeffrey Archer lávarður stillir sér upp við andlitsmyndir af Elísabetu
drottningu eftir listamanninn Andy Warhol.
FORSETI Filippseyja, Gloria
Arroyo, fordæmdi í gær
óbreytta borgara á eynni Basil-
an fyrir að
veita mann-
ræningjum
íslömsku
hermdar-
verkasam-
takanna
Abu Sayyaf
hjálp. Sagði
hún að slíku
fólki yrði
ekki hlíft.
„Þeir sem veita þessum
glæpamönnum skjól, gefa þeim
mat, vopn eða upplýsingar
skulu ekki búast við neinni mis-
kunn af okkar hálfu,“ sagði
Arroyo að loknum ríkisstjórn-
arfundi.
Embættismenn segja að ekki
hafi tekist að staðfesta hvort yf-
irlýsingar Abu Sayyaf um að
hryðjuverkamennirnir hafi tek-
ið af lífi bandarískan gísl með
því að hálshöggva hann séu
réttar. Hins vegar hafa tvö höf-
uðlaus lík Filippseyinga fundist
skammt frá staðnum sem Abu
Sayyaf tilgreindi.
Umræddur Bandaríkjamað-
ur heitir Guillermo Sobero, er
frá Kaliforníu og var staddur á
vinsælum ferðamannastað í
vesturhluta eyríkisins er hann
var tekinn í gíslingu 27. maí.
Abu Sayyaf tók þá tvo aðra
Bandaríkjamenn, trúboðana
Martin og Gracia Burnham, en
einnig hafa samtökin í haldi alls
25 Filippseyinga.
Aðstoð
við Abu
Sayyaf
fordæmd
Manila. AFP, The Daily Telegraph.
Forseti Filippseyja
Gloria
Arroyo
SEX MANNS særðust í átökum Pal-
estínumanna og Ísraela í gær þrátt
fyrir að samið hefði verið um vopna-
hlé. Forvígismenn Ísraelsstjórnar
og palestínsku heimastjórnarinnar
samþykktu á þriðjudag vopna-
hlésáætlun George Tenets, forstjóra
leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA,
með töluverðum skilyrðum þó.
Aðfaranótt miðvikudags var
grísk-kaþólskur munkur felldur af
palestínskum byssumönnum. Var
hann á leið heim þegar skotið var á
bíl hans, sem var með ísraelskum
númeraplötum. Hafa alls 608 manns
fallið á þeim átta mánuðum sem upp-
reisn Palestínumanna, Intifata, hef-
ur staðið yfir.
Skotið var á tvo óbreytta Ísraela,
unga konu og verkamann, í gær og
voru þau flutt á sjúkrahús í Tel Aviv.
Þrír Palestínumenn særðust þegar
ísraelskur skriðdreki skaut á íbúa-
byggð á Gazasvæðinu. Einnig særð-
ist ísraelskur hermaður þegar skotið
var á landamærastöð nálægt þorp-
inu Nablus á vesturbakka Jórdanár.
Óstöðugt vopnahlé
Enn er margt sem skilur að deilu-
aðila þrátt fyrir að þeir hafi sam-
þykkt skilmála Tenets. Yasser Ara-
fat, forseti palestínsku
heimastjórnarinnar, vill að Ísraelar
dragi herlið sitt tafarlaust frá þeim
svæðum sem Palestínumenn byggja
og vill einnig að opnað verði fyrir
umferð til og frá þessum svæðum.
Stuðningur við vopnahléð er lítill
meðal Palestínumanna og er ekki
líklegt að hann aukist ef Arafat getur
ekki sýnt fram á að hann hafi fengið
sínu framgengt. Herská samtök Pal-
estínumanna, þar á meðal Hamas,
hafa lýst því yfir að þau muni hafa
vopnahléð að engu.
Ísraelar krefjast þess að palest-
ínskar öryggissveitir hefji þegar í
stað leit að vopnum á heimastjórn-
arsvæðunum og geri þau upptæk.
Einnig vilja Ísraelar að öryggissveit-
irnar handtaki fjölda Palestínu-
manna sem þeir telji að beri ábyrgð
á hryðjuverkum sem framin hafa
verið á undanförnum mánuðum. Er
það síðastnefnda krafan sem hvað
harðast er deilt um, en Palestínu-
menn hafa hafnað henni.
Óttast er að vopnahléð verði ekki
langlíft. Hvor aðili um sig hefur sagt
að hann muni bíða með að uppfylla
skilmála vopnahlésins þar til hinn
hefur gert það og er því ekki víst að
vopnahléð muni bæta ástandið til
langframa. Ef herskáir Palestínu-
menn, sem Arafat hefur litla sem
enga stjórn á, láta til skarar skríða á
ný er líklegt að átökin blossi upp að
nýju.
Ísraelar og Palestínumenn samþykkja vopnahlésáætlun
Lítið lát á átökum
AP
Ísraelskir hermenn, lögreglumenn og sjúkraliðar standa yfir líki Germanos Tsibouktskais, grísks munks sem
palestínskir byssumenn myrtu seint á þriðjudag þegar hann var á leið í klaustur sitt frá Jerúsalem.
AP, AFP, The Daily Telegraph.
HERSVEITIR Talibana í Af-
ganistan vinna skipulega að því
að eyðileggja bæinn Yakawlang
eftir að þær náðu honum úr
höndum stjórnarandstæðinga í
síðustu viku. Var það haft eftir
talsmönnum andspyrnuhreyf-
ingarinnar í landinu og fulltrú-
um Sameinuðu þjóðanna í gær.
Fulltrúar SÞ segja, að þegar
barist hafi verið um Yakaw-
lang, hafi Talibanar gert miklar
loftárásir á bæinn og síðan haf-
ið að brenna öll hús til grunna
er þeir höfðu náð honum á sitt
vald. Í bænum bjuggu um
60.000 manns en flestir höfðu
flúið til fjalla áður en átökin
hófust.
Um 800.000 Afganar hafa
farið á vergang síðustu tíu mán-
uðina vegna mikilla þurrka og
stríðsátakanna í landinu. Er
óttast, að mikil hungursneyð sé
yfirvofandi.
Franska
lestafyrir-
tækið lögsótt
HÖFÐAÐ hefur verið mál í
Bandaríkjunum á hendur
franska ríkislestafyrirtækinu
SNCF fyrir að hafa hagnast á
því að flytja 72.000 gyðinga og
tugi þúsunda annarra í útrým-
ingarbúðir nasista af yfirráða-
svæðum þeirra í Frakklandi frá
mars 1942 til ágúst 1944, að
sögn New York Times í gær.
Blaðið segir að um 100 manns,
fólk sem lifði af vist í búðunum
og erfingjar fórnarlamba út-
rýmingarherferðar nasista,
höfði málið fyrir bandarískum
alríkisdómstóli.
Sækjendurnir segja að nasistar
hefðu ekki getað flutt allt þetta
fólk í útrýmingarbúðirnar án
hjálpar franska lestafyrirtæk-
isins.
Sexburar
fæðast
í Barein
36 ÁRA kona í Barein ól sex-
bura í fyrrakvöld og henni
heilsaðist vel í gær, að sögn
lækna. Börnin voru einnig við
góða heilsu. Þau fæddust
nokkrum vikum fyrir tímann og
voru 4–6 merkur að þyngd.
Læknar sögðu að konan hefði
fengið lyf við ófrjósemi fyrir
ári.
Klámrit
í bíl Breta-
drottningar
VIÐGERÐARMENN, sem
voru að gera nýja Jagúar-bif-
reið Elísabetar Bretadrottn-
ingar sprengjuhelda, fundu
klámrit og hakakross á bak við
sætisplötu í bifreiðinni, að sögn
breska blaðsins Guardian í
gær. Jaguar bað drottninguna
afsökunar og kvaðst hafa hafið
rannsókn á málinu.
Guardian segir að einn af
starfsmönnum Jaguar-verk-
smiðju í Coventry hafi viður-
kennt að hafa teiknað haka-
kross á plötuna og skilið eftir
klámrit í bílnum. Hann hafi fall-
ist á að segja af sér.
STUTT
Talibanar
brenna
bæ til
grunna