Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 29
SLAGURINN um leiðtogaembættið
í breska Íhaldsflokknum hófst fyrir
alvöru í gær, þegar Michael Portillo,
talsmaður flokksins í ríkisfjármálum
og fyrrverandi varnarmálaráðherra,
varð fyrstur til að lýsa yfir framboði.
Sagði Portillo nauðsynlegt að aðlaga
Íhaldsflokkinn breyttum tímum,
ætti hann að eiga möguleika á að
vinna aftur hylli kjósenda.
Framboðs Portillos hafði verið
vænst allt frá því að William Hague,
fyrrverandi leiðtogi, sagði af sér sl.
föstudag í kjölfar ófara Íhalds-
flokksins í þingkosningunum daginn
áður. Portillo er almennt talinn sig-
urstranglegastur, en meðal annarra
sem sagðir eru íhuga framboð eru
Kenneth Clarke, Evrópusinni og
fyrrverandi fjármálaráðherra, Ann
Widdecombe, talsmaður Íhalds-
flokksins í innanríkismálum, og Iain
Duncan Smith, talsmaður í varnar-
málum sem er af mörgum talinn
leiðtogi hægriarmsins í flokknum.
Hörð barátta
í uppsiglingu
Portillo sagði í yfirlýsingu sinni í
gær að Íhaldsflokkurinn hefði fengið
„hræðilega“ útreið í þingkosningun-
um og að þörf væri á víðtækri upp-
stokkun, bæði hvað varðar stefnu og
ímynd flokksins. „Við þurfum að
sýna kjósendum að við séum venju-
legt fólk, að við deilum áhyggjum
þeirra. Við þurfum að taka upp hóf-
saman og skilningsríkan tón,“ sagði
Portillo þegar hann tilkynnti um
framboð sitt fyrir framan skrifstofu-
byggingu breska þingsins í London í
gærmorgun. „Flokkurinn verður að
höfða til allra þeirra ólíku hópa sem
byggja Bretland; til beggja kynja,
allra aldurshópa og þeirra sem eiga
ættir að rekja til annarra landa.“
Evrópumálin hafa reynst íhalds-
mönnum þung í skauti og djúp gjá
aðskilur Evrópusinna og Evrópu-
andstæðinga í flokknum. Portillo
reyndi að höfða til beggja fylkinga
er hann kvaðst myndu taka upp „al-
þjóðlegri“ stefnu en forveri sinn,
þótt hann væri mótfallinn evruaðild
að svo stöddu.
Tveir þriðju hlutar skuggaráðu-
neytis Íhaldsflokksins lýstu strax yf-
ir stuðningi við Portillo, þar á meðal
Francis Maude, talsmaður í utanrík-
ismálum sem stýrir kosningabaráttu
hans.
Veðbankar voru ekki seinir á sér
að lýsa Portillo sigurstranglegastan.
Iain Duncan Smith kom næstur, en
taldist langtum ólíklegri, þá Kenn-
eth Clarke og Ann Widdecombe.
Aðrir þóttu eiga mun minni mögu-
leika.
Ýmsir hafa gert því skóna að Por-
tillo og Clarke hafi gert með sér
leynilegan samning, þess efnis að
Clarke styðji Portillo í leiðtogastöð-
una gegn því að hann taki upp já-
kvæðari stefnu gagnvart Evrópu.
Hvorugur hefur viljað staðfesta
þetta.
Ef Widdecombe eða aðrir úr
hægri arminum bjóða sig fram gegn
Portillo þykir ljóst að hörð valdabar-
átta milli frjálslyndari og íhaldssam-
ari fylkinga flokksins sé í uppsigl-
ingu.
Ann Widdecombe gaf forsmekk-
inn að því sem vænta má í kosninga-
baráttunni er hún réðst að Portillo í
gærmorgun, áður en hann lýsti yfir
framboði sínu. Í viðtali á einni út-
varpsstöðva BBC sagði Widde-
combe að hún myndi sýna Portillo
hollustu ef hann næði kjöri, en dró í
efa að hún myndi kæra sig um að
starfa með honum. „Ég gæti einfald-
lega ekki [tekið sæti í skuggaráðu-
neyti] undir stjórn Portillos,“ sagði
Widdocombe svo í viðtali síðar um
daginn.
Þá skaut Tebbit lávarður, fyrrver-
andi flokksformaður, óbeint á Por-
tillo fyrr í vikunni. Kvaðst hann
fremur vilja sjá Duncan Smith í leið-
togastöðunni, þar sem hann væri
„venjulegur fjölskyldufaðir“ og vís-
aði til þess að Portillo hefur viður-
kennt að hafa átt kynlífsreynslu með
karlmönnum á skólaárum sínum.
Thatcheristinn
sem mildaðist
Michael Portillo fæddist í London
árið 1953, en spænska ættarnafnið
hefur hann frá föður sínum, Luis,
sem hafði flúið borgarastríðið á
Spáni tveimur áratugum áður. Hann
lagði stund á sagnfræði í Cambridge
og kvæntist síðar vinkonu sinni úr
háskólanum, Carolyn.
Portillo hóf að starfa fyrir Íhalds-
flokkinn árið 1976 og átta árum síðar
var hann kosinn á þing fyrir kjör-
dæmið Enfield Southgate. Hann tók
sæti í ríkisstjórn Margrétar Thatch-
er árið 1986 og gegndi í fyrstu ýms-
um embættum aðstoðarráðherra, en
var skipaður varnarmálaráðherra í
ríkisstjórn Johns Majors árið 1995.
Portillo var í uppáhaldi hjá
Thatcher og tilheyrði lengi vel armi
Thatcherista í flokknum. En síðan
hann missti sæti sitt á þingi í kosn-
ingunum 1997 hefur hann færst nær
miðju og gerst einn helsti talsmaður
frjálslyndra viðhorfa í flokknum.
Portillo var aftur kjörinn á þing í
aukakosningum árið 1999 fyrir
Kensington og Chelsea, eitt örugg-
asta kjördæmi íhaldsmanna, og tók
sæti í skuggaráðuneyti Íhalds-
flokksins ári síðar. Sem talsmaður í
ríkisfjármálum hefur hann horfið frá
ýmsum fyrri stefnumálum flokksins,
svo sem andstöðu við lögbundin lág-
markslaun og því að skattar yrðu
ófrávíkjanlega lækkaðir, kæmist
flokkurinn til valda.
Flókið kosningaferli
Leiðtogakjörið getur ekki farið
fram fyrr en samtök óbreyttra þing-
manna Íhaldsflokksins, kennd við
1922, kjósa sér nýjan formann 27.
þessa mánaðar, en hann mun hafa
umsjón með framkvæmdinni. Búist
er við að framboðsfrestur renni út
nokkrum dögum síðar.
Allir þingmenn Íhaldsflokksins
geta sóst eftir leiðtogastöðunni og
þurfa aðeins tvo meðmælendur. Ef
fleiri en tveir gefa kost á sér fer
fram leynileg atkvæðagreiðsla innan
þingflokksins og sá sem fær fæst at-
kvæði dettur úr leik. Tveimur dög-
um síðar er kosið aftur milli þeirra
sem eftir eru og svo heldur fram þar
til tveir standa uppi. Það er ekki fyrr
en þá sem almennir flokksmenn fá
tækifæri til að velja á milli frambjóð-
endanna, en það er gert með póst-
kosningu allra skráðra meðlima
Íhaldsflokksins sem greitt hafa
félagsgjöld.
Skýrar reglur gilda um fjármögn-
un kosningabaráttunnar. Kostnað-
urinn má ekki vera meiri en 100 þús-
und pund, eða um 14,5 milljónir
króna, og skal allur gefinn upp.
Frambjóðendur mega ekki greiða
hann úr eigin vasa, heldur skal bar-
áttan vera fjármögnuð með frjálsum
framlögum. Frambjóðendum er
heimilt að auglýsa í fjölmiðlum, svo
fremi sem þeir greiða fullt gjald fyr-
ir og nota ekki tækifærið til að vega
að keppinautum sínum.
Portillo fyrst-
ur til að gefa
kost á sér
Framundan er spennandi barátta um leið-
togastöðuna í breska Íhaldsflokknum.
Eins og fram kemur í grein Aðalheiðar
Ingu Þorsteinsdóttur þykir Michael
Portillo sigurstranglegastur.
AP
Michael Portillo tilkynnir um framboð sitt til leiðtogaembættis Íhalds-
flokksins fyrir utan skrifstofubyggingu breska þingsins í gær.
London. AFP, AP, The Daily Telegraph.
Slagurinn um leiðtogastöðuna í breska Íhaldsflokknum eftir afsögn Hagues
Ryðfríar
Blómagrindur
fríar
Blómagrindur
með hengi
Tilboðsverð
kr. 2.900
áður kr. 3,595
Klapparstíg 44
Sími 562 3614