Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 32

Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 32
LISTIR 32 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudaginn 19. júní kl. 20.30 Gerður Bolladóttir sópran Júlíana Rún Indriðadóttir píanó Verk eftir Samuel Barber: Three Songs op. 2, KNOXVILLE – Sum- mer of 1915 og Four Songs op. 13, og sex verk eftir Jórunni Viðar. – – – Þriðjudaginn 26. júní kl. 20.30 Signý Sæmundsdóttir sópran Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó Frumflutningur tveggja sönglaga eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Madame Béatrice Cantoni. Sönglög eftir Ernest Chausson, Francis Poulenc og Karl O. Run- ólfsson. – – – Þriðjudaginn 3. júlí kl. 20.30 Þórunn Guðmundsdóttir sópran Ingunn Hildur Hauksdóttir pí- anó Sönglög eftir Jórunni Viðar, Samuel Barber og Gabriel Fauré. – – – Þriðjudaginn 10. júlí kl. 20.30 Ingibjörg Guðlaugsdóttir básúna Lisa Fröberg píanó Sónata í c-moll eftir Georg Phil- ipp Telemann, Choral, cadence et fugato eftir Henri Dutilleux, Fan- taisie eftir Zygismond Stojowski og Sónata eftir Paul Hindemith. – – – Þriðjudaginn 17. júlí kl. 20.30 Símon H. Ívarsson gítar Jörgen Brilling gítar Atriði úr La Clemenza di Tito eftir W.A. Mozart, Koyunbaba op. 19 eftir Carlo Comeniconi, Andante con variazioni eftir L. v. Beethoven, þrjú íslensk þjóðlög útsett af Jóni Ásgeirssyni og Hommage a Django Reinhardt og Dag skal að kvöldi lofa eftir Gunnar Reyni Sveinsson. – – – Þriðjudaginn 24. júlí kl. 20.30 Svava Kristín Ingólfsdóttir mezzósópran Lisa Fröberg píanó Frauenliebe und Leben eftir Ro- bert Schumann, verk eftir norrænu tónskáldin Sibelius, Gunnar de Frumerie, Ture Rangström, Gösta Nystroem og Jórunni Viðar. Einnig flytja þær óperuaríur. – – – Þriðjudaginn 7. ágúst kl. 20.30 Berglind María Tómasdóttir flauta Arne Jørgen Fæø píanó Le merle noir eftir Messiaen, Músíkmínútur eftir Atla Heimi Sveinsson, Sónatína eftir Dutilleux, Columbine eftir Þorkel Sigur- björnsson og Tónsmíð fyrir vinstra heilahvel – (heilafruma deyr) eftir Kolbein Einarsson frumflutningur. – – – Þriðjudaginn 14. ágúst kl. 20.30 Guðrún Ingimarsdóttir sópran Heike Matthiesen gítar Verk eftir John Dowland, Mát- yás Seiber, Jorge Morel, Jayme Ovalle, Paurillo Barroso, Heitor Villa-Lobos, Fernando Sor, Franc- isco Tarrega, Joaquin Rodrigo og Federico Garcia Lorca. – – – Þriðjudaginn 21. ágúst kl. 20.30 Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagott Jón Sigurðsson píanó Rómansa eftir Robert Schu- mann, Fagottsónata eftir Ríkarð Örn Pálsson, Sonatensatz eftir Mikhail Glinka, Rapsódía fyrir fa- gott eftir Willson Osborne og La Muerte del Angel eftir Astor Pia- zolla. – – – Þriðjudaginn 28. ágúst kl. 20.30 Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran Einar Jóhannesson klarinett Valgerður Andrésdóttir píanó Verk fyrir sópran, klarinett og píanó eftir Franz Lachner, Louis Spohr og íslensk tónskáld. Sumartón- leikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þar sem mikið er gert með flaututóna, er voru ekki alltaf jafn vel útfærðir þó á milli væru góðir sprettir. Sif er góð- ur fiðlari, er sýndi sitt besta í einleiks- sónötu op. 27, nr. 4, eftir fiðlusnilling- inn Eugène Ysafe. Þar gat vel að heyra góða tækni og oft fallega mót- aðar tónhendingar hjá Sif. Melodia eftir Gluck er ótrúlega fögur tónsmíð og lék Sif þetta einstæða lag í umritun Kreislers og þar naut sín fallegur tónn fiðlunnar og sama má segja um Poème, eftir Ernest Chausson, sem er frá upphafi til enda tónmál hinnar syngjandi fiðlu, enda í miklu dálæti hjá fiðluleikurum. Poème var sérlega fallega leikið og náðu flytjendur oft töluverðu flugi í þessu yfirrómantíska en fagra verki. Lokaverkið á efniskránni var hið fræga Tzigane eftir Ravel, verk sem hefur algjöra sérstöðu meðal verka Ravels, virtúósaverk, sem tekur til margra þátta í tækni og tónleik á fiðlu. Það hefst á löngum einleikskafla fyrir fiðluna er var mjög vel mótaður með töluverðu sígaunabragði og til- finningaþrungnum átökum. Þarna var mest umleikis fyrir píanóið og var innkoma píanósins sérlega fallega mótuð hjá Steinunni Birnu, sem átti og sinn þátt í ágætum flutningi þessa sérstæða og vinsæla verks. Sem aukalag léku Sif og Steinunn Birna hluta af næturljóði eftir Chopin (op. 37, nr.1) og var leikur Sifjar syngjandi fagur. Sif er góður fiðlu- leikari og átti víða mjög glæsilega mótaðar tónhendingar, bæði er tók til tækni og túlkunar, eins t.d. í sónöt- unni eftir Ysafe, Melodiu Glucks en sérstaklega þó í tveimur síðustu verk- unum, hinum rómantíska og syngj- andi tónleik hjá Chausson og glæsi- legum og ástríðufullum tilþrifum hjá Ravel. Steinunn Birna Ragnarsdóttir studdi vel við, en fékk helst að taka til hendi í Tzigane eftir Ravel og gerði það af öryggi, svo og í Poème, þar sem samspilið var á köflum einstak- lega fallega mótað. Náttúruvökunótt í Laugarnesinu TÓNLIST L i s t a s a f n S i g u r j ó n s Ó l a f s s o n a r Sif Tulinius og Steinunn Birna Ragnarsdóttir fluttu verk eftir Corelli, Wieniawski, Ysafe, Gluck, Chausson og Ravel. Þriðjudagurinn 12.júní, 2001. SAMLEIKUR Á FIÐLU OG PÍANÓ Í SUMARBLÍÐRI kvöldgolunni, er strýkur mjúkri hendi sinni yfir sundin og hljóðlátir seglbátar líða um hafflötinn með hvít seglin, er bifast eins og vængir á fiðrildum og kvöld- sólin bjarmar á, meðan milt húmið klæðir fjöllin náttklæðum kyrrðar- innar, birtast hin óræðu skil dags og nætur, er sér eiga vist í djúpum duld- um hinna óskilgreinanlegu tilfinn- inga. Þetta var sú stemmning sem blasti við þeim, er áttu leið út á Laug- arnes, á fyrstu sumartónleikana í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, þar sem tvær listakonur léku rómantísk tónverk, er áttu sér fang í sömu upp- sprettu fegurðarinnar og náttúru- vökunótt í Laugarnesinu. Sif Tulinius og Steinunn Birna Ragnarsdóttir hófu Sumartónleikana í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar s.l þriðjudag með La Folia eftir Arcan- gelo Corelli í rómantískri umritun Kreislers. Nafnið Folia er talið portú- galskt að uppruna og merkir glópska og/eða galsi og er fyrst þekkt á 15. öld en verður á 17. öld vinsæll sunginn dans við gítarundirleik. Mörg tón- skáld hafa notað þetta lag, sem einnig er hljómsett með ákveðnum hætti og er La Folia eftir Corelli frægasta til- brigðaverkið við þetta lag. Uppruna- lega gerð verksins er fallegri, því skrautlega útfærslan hjá Kreisler yf- irtrompar verkið, sem var að mörgu leyti vel flutt en ekki þó án hnökra hér og þar hjá fiðlaranum. Minningar frá Moskvu eftir Wieni- awski er skemmtilegt leiktækniverk, Jón Ásgeirsson Margrét H. Blöndal við eitt verka sinna. Svava Björnsdóttir vinnur að uppsetningu verks síns. Í KVÖLD verður opnuð í Henie On- stadt-listamiðstöðinni í Ósló sýn- ingin Mynd, íslensk nútímalist eftir 9 listamenn. Það er Jón Proppé listfræðingur sem hefur stjórnað uppsetningu sýningarinnar og val- ið listamennina í samráði við stjórnendur listamiðstöðvarinnar. Að sögn Jóns er þetta stærsta sýning á íslenskri nútímalist sem haldin hefur verið á Norðurlöndum og hefur undirbúningur staðið um nokkra hríð. Listamennirnir 9 eru Ómar Stefánsson, Jón Óskar Hall- dórsson, Bjarni Sigurbjörnsson, Svava Björnsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson, Anna Líndal, Birgir Andrésson, Margrét Blöndal og Guðjón Bjarnason. „Listamennirnir sem valdir hafa verið til að taka þátt í þessari sýn- ingu eru allir sömu kynslóðar en engu að síður fjölbreyttur hópur og sýna vel hversu margþætt ís- lensk nútímamyndlist er,“ segir Jón Proppé í sýningarskrá. „Þeir eru menntaðir í myndlist heima á Íslandi og luku síðan framhalds- námi erlendis; í Hollandi, Þýska- landi eða Bandaríkjunum. Myndlist þeirra á það sammerkt að þau vinna í marga miðla og treysta því að hugmyndafræðilegt samræmi skili sér í heildaráhrifum verka þeirra.“ Sýningin Mynd í Henie Onstadt Kunstsenter í Ósló stendur til 26. ágúst. Íslensk nútímalist í Ósló SUMARSTARF Listasafns Sigur- jóns Ólafssonar er að hefjast um þessar mundir. Sett hefur verið upp sérstök sumarsýning sem ber heitið Hefð og nýsköpun en þar má sjá úrval verka eftir Sigurjón Ólafsson frá þrjátíu ára tímabili, 1930–1960. Árið 1930 sýndi Sigur- jón í fyrsta sinn á viðurkenndri op- inberri sýningu: Kunstnerens Ef- terårsudstilling í Kaupmannahöfn, og sama ár var hann einnig sæmd- ur gullpeningi dönsku Listaaka- demíunnar fyrir tveggja metra háa styttu af verkamanni. Árið varð þannig upphaf að glæsilegum ferli listamannsins, þar sem hann iðu- lega kom mönnum á óvart með ný- stárlegum verkum sínum. Á sýn- ingunni eru 30 ljósmyndir og 24 skúlptúrverk, bæði raunsæ port- rett og abstraktverk, þar á meðal þrjú verk sem hafa ekki verið sýnd opinberlega í fjóra áratugi. Birgitta Spur, forstöðumaður Listasafnsins, segir það enga til- viljun að sýningunni hafi verið val- ið þetta nafn, Hefð og nýsköpun. „Sigurjón var klassískt menntaður og það kemur alltaf fram í verkum hans, ekki síst í fígúratívu mynd- unum. Helstu verk hans frá fyrstu árum ferils hans, þroskaárum hans sem listamanns er eingöngu hægt að sýna á ljósmyndum. Þessi ár voru mikilvæg; á þeim breyttist margt og Sigurjón var í mikilli sókn sem listamaður. Strax með verkamanninum var hann farinn að brjóta hefðir. Sú mynd er sósíal- realísk, en í akademíunni voru menn yfirleitt að móta styttur í grísk-rómversku hefðinni.“ Fáum árum síðar gerði Sigurjón verk sem Reykvíkingar þekkja vel, Salt- fiskstöflun, sem stendur við Sjó- mannaskólann í Reykjavík. „Þetta verk vakti mikla athygli, og það liðu heil tuttugu ár þar til það var loks sett í steinsteypu og því komið fyrir á opinberum vettvangi við Sjómannaskólann,“ segir Birgitta. Nýtt tímabil tók við í list Sigurjóns á árunum 1936–37, með einfaldari stíl og rúnnuðum formum. Hann hélt áfram í abstraksjón, en vann samtímis fjölmargar andlitsmynd- ir. „Þegar Sigurjón kom heim, árið 1945 og settist að hér í Laugarnes- inu, fór hann höggva í grjót, þá hófst grásteinstímabil hans, sem stóð í um það bil 10 ár.“ Þegar Sig- urjón Ólafsson veiktist af berklum tók við enn eitt tímabil á sköp- unarferli hans. Hann valdi sér létt- ari efni, eins og tré, og nokkur mikilvæg verk frá þessum tíma eru á sýningunni, þar á meðal verk sem ekki hafa verið sýnd opinberlega í um 40 ár. Þetta síðasta tímabil sem sýningin tekur til, spannar árin 1956–60, eða þar til Sigurjón var lagður inn á Reykjalund með berkla. Birgitta Spur segir sýninguna lýsa vel fjölbreytninni í list Sig- urjóns Ólafssonar og þann ólíka efnivið sem hann notaði. Leiðsögn verður um sýninguna í sumar fyrir þá sem óska þess, en hún stendur til 30. september. Listasafnið og kaffistofan eru opin alla daga nema mánudaga milli kl. 14 og 17. Sumarsýningin Hefð og nýsköpun í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar Leir, brons, gifs, steinn og tré Morgunblaðið/Árni Sæberg Af sumarsýningunni í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Verkið á mynd- inni heitir Glataði sonurinn, unnið í tré á árunum 1957 til 1958.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.