Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 33

Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 33 Opið á fimmtudögum til kl. 21.00 SEM utangarðsmaður í myndlist- arheimi verður undirritaður blátt áfram að viðurkenna, að ekki var honum, frekar en öðrum aðvífandi tónlistarunnendum sem eins var ástatt um, með öllu ljóst ytra tilefni þess að flytja fimm tónverk Magn- úsar Blöndal Jóhannssonar sem lið í uppákomuröðinni Pólýfónía í Ný- listasafninu á Vatnsstíg á þriðju- dagskvöldið var. Ekki heyrðist manni það koma skýrt fram af munnlegum kynningum Tuma Magnússonar og spjalli hans við nærstatt tónskáldið. Né heldur var þess getið á fjölrituðum blöðum safnsins frekar en nafns kynnisins, og vantaði að auki ýmsar grundvall- arupplýsingar um verkin svo sem hljóðfæri og tímasetningar. Að vísu var fyllt í sumar eyðurnar með fyrr- nefndum kynningum, en sem kunn- ugt er vill oft ýmislegt misfarast eftir þeirri boðleið og því undir hælinn lagt að allt hafi komizt kórrétt til skila. Hvað tilefnið varðar má vitaskuld vel á það fallast, að hreyfimyndir þær sem fylgdu tveim verkum Magnúsar, Samstirni (1962) og Frostrósum (1970), hafi getað höfðað til myndlistarunnenda sérstaklega, þó að tónskáldið hafi ekki samið fyrra verkið með sjónrænni hlið í huga, enda vídeómynd Gunnars Þórs Víglundssonar, Þórdísar Guðmunds- dóttur og Kristjáns Björns Þórðar- sonar ekki komin til fyrr en aldar- fjórðungi síðar eða 1996. Svart-hvít filman af ballett Ingibjargar Björns- dottur við Frostrósir Magnúsar var á hinn bóginn myndlistarefni út af fyrir sig og mætti jafnvel kalla hrey- fiskúlptúr. En hafi þessar myndir, auk hins frjóa ímyndunarhreyfiafls í tónlist Magnúsar almennt, loks farið að skipa sér ákveðinn sess í hugum íslenzkra myndlistarmanna, hefði vissulega verið ástæða til að nefna það í prentaðri dagskrá. Þegar þar við bætast viðvaningsleg undirbún- ingsatriði eins og hversu lengi var verið að hafa uppi á síðasta atriði tónleikanna á löngu tónbandi, að óg- leymdri ærandi hárri styrkstillingu (einkum í Sonorities III) ásamt mis- miklum hljómgæðum, var ekki að sjá í fljótu bragði að sú virðing sem yngri kynslóð íslenzkra myndlistar- manna kynni að bera fyrir þessum frumkvöðli í hérlendri raftónlist hafi komið fram að sama skapi. Einkum ef borið er saman við fram- kvæmd tónlistarhátíða síðustu ára eins og ErkiTíð og ART 2000, þar sem flest var klapp- að og klárt, a.m.k. tæknilega. En þó ber að virða viljann fyrir verkið. Þar eð fjallað var um ballettinn og Samstirni í umsögn Bergþóru Jónsdóttur í fyrradag („Í stjörnumerki Magnúsar Blöndals“), skal hér aðeins ymprað á hinum verkunum þremur. Raforgelverkið Hieroglyp- hics (Helgiletur), sem heyrðist sagt vera frá árinu 1978, bar fyrir eyru undirritaðs í fyrsta skipti þetta kvöld, enda lítt verið viðrað á tón- leikum hin síðari ár. Að svo miklu leyti sem manni skildist af umsögn tónskáldsins var frumlína verksins leikin nánast af fingrum fram inn á eina segulbandsrás og síðan spunnið við inn á aðra. Blandað var á milli rása þannig að hljóðið ætti, gegnum hátalara uppstillta í sem lengstri innbyrðis fjarlægð, að upplifast líkt og á ferðalagi um salinn. Í litlum húsakynnum Nýlistasafnsins fór það rýmisflakk óhjákvæmilega fyrir lítið, en á móti vó helgiblendinn íhugunar- blær verksins sem leið hægt áfram á líðandi hljómum, að mestu í moll. Af einhverjum ástæðum er verkið ekki að finna á hljóm- diskinum sem út kom með verkum Magnúsar í vetur. Þar er hins vegar Sonorities III fyrir píanó og slagverk frá 1973. Í því er leitað nýrra leiða í píanó- flutningi með m.a. ýmsum óvenjulegum aðgerðum innan hljóm- kassans, stroki, plokki, pákusleglaslætti o.fl., auk handleggsklasahljóma á hljóm- borðið. Að sögn höfundar hefði Hall- dór Haraldsson í téðri upptöku tekið öllum öðrum píanistum fram. Óhætt er að segja að hér hafi heldur betur kveðið við nýjan tón á hvítum nótum og svörtum sem prýðisvel var fallinn til að setja flesta klassísk menntaða slaghörpuleikara samtímans úr hefðbundnum skorðum. Ekki greindi undirr. hver hefði séð um slagverkið, en eftir „latneskulegu“ danshrynum innslagskaflanna á milli púlsminni hvíldarstaða að dæma virtist um menntaðan trommuleik- ara að ræða – jafnvel þótt sá ábyrgi hafi verið höfundur sjálfur. Sviptist upplifun hlustandans skemmtilega á milli háafstraktrar tóntjáningar og einhvers sem hljómaði í bland eins og impressjón af reykmettaðri dans- búllu í vesturheimskri stórborg, og hefði sú stemmning vel komizt til skila án þess að stilla græjurnar í botn. Síðast var slegið á léttustu strengi kvöldsins – að vísu ekki fyrr en eftir alllanga leit á segulbandsspólunni að þekktasta dægurlagi Magnúsar, Sveitinni milli sanda, við samnefnda heimildamynd Óskars Knudsens sem Ellý Vilhjálms gerð frægt á sín- um tíma í löturhægum en seiðandi beguine-rytma. Að þessu sinni birt- ist öræfaarían sungin á þéttbýlis- ensku (You came and set my heart) af brezkri söngkonu, Kim Bond, sem var hér á ferð kringum 1970, hljóð- rituð á Hótel Loftleiðum um sama leyti. Lagið var flutt hátt í helmingi hraðar en upphaflega útgáfan, enda breytti það töluvert um blæ við það og ekki að öllu leyti til batnaðar, auk þess sem söngkonan hafði eðlilega annan stíl en Ellý, en án hennar óvið- jafnanlega hendingaúthalds („sust- ain“). Þrátt fyrir frísklegan söng- máta Kim Bond virtist manni því sem enn ætti eftir að lyfta arfi Ellýar frá 7. áratug svo hæfir þessari sí- grænu dægurperlu eins helzta frum- herja framsækninnar í íslenzkri list- músík. Hreyfiafl myndrænna tóna Magnús Blöndal Jóhannsson TÓNLIST N ý l i s t a s a f n i ð Magnús Blöndal Jóhannsson: Hieroglyphics; Sonorities III; Samstirni; Frostrósir; You came and set my heart (Sveitin milli sanda). Þriðjudaginn 13. júní kl. 20:30. PÓLÝFÓNÍA Ríkarður Ö. Pálsson CROWN College-kórinn frá Minneapolis heldur tónleika í Langholtskirkju á laugardag kl. 17. Kórinn er kunnur fyrir flutn- ing á tónlist frá ólíkum tímabil- um og fer árlega í tónleikaferðir um Bandaríkin, kemur fram í sjónvarpi og útvarpi og á vegum skólans. Kórinn fór í tónleika- ferð til Þýskalands og Austur- ríkis 1997 en þessi ferð er til Norðurlandanna og er Ísland fyrsti viðkomustaðurinn. Crown College er skóli sem rekinn er til að mennta nemend- ur sína til starfa innan kirkjunn- ar, s.s. kennara, presta og tón- listaruppalendur. Eftir fjögurra ára nám útskrifast nemendur með B.A.-gráðu. Innan tónlistardeildarinnar starfa, auk Crown College-kórs- ins, blásarasveit, kvennakór, kammerkór, djasssveit og kammerstrengjasveit. Stjórnandi kórsins, David W. Donelson, er prófessor við tón- listardeildina og stjórnandi kór- starfsins síðan 1990. Hann er með meistara- og doktorsgráðu í kirkjutónlist frá Ft. Lauder- dale-tónlistarháskólanum í Florida. Á efnisskrá kórsins eru m.a. verk eftir Knut Nystedt, Rachmaninov, útsetningar á negrasálmum og mótettan Lo- bet den Herrn, alle Heiden eftir J.S. Bach. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Kór frá Minneapolis í Langholts- kirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.