Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.06.2001, Blaðsíða 39
hafa þær nú báðar lokið á þessu ári með látleysi og sæmd. Það eru því miklar breytingar sem hin nýbyrjaða öld hefur fært tveimur ungum piltum. Höggvið hefur verið óþyrmilega inn í raðir nánustu fjölskyldumeðlima. Þeirra er nú beggja sárt saknað, bæði ömmu Rúnu og ömmu Siggu, og þær báðar kvaddar með aðeins fjögurra mánaða millibili. Og Ditta kveður nú móður sína og nánasta vin. Það var alltaf mjög sérstakt samband þeirra í milli, sterkt og einlægt, svo leitun var að. Innilegar samúðarkveðjur, Ditta mín. Einnig til Mumma og Völu og fjölskyldu, en missir þeirra er einnig mikill. Rúna mín. Ég fékk þér víst aldrei fullþakkað í þessu lífi allt það sem þú gafst af þér mér til stuðnings og mínum. Fyrir mér ertu ein af stærstu persónum sem ég hef kynnst í lífinu og þakkarorð mín verða alltaf hjóm eitt miðað við það sem ég naut frá þér. Þín er saknað, en vissan um þá frelsun sem nú tekur við í nýju ferðalagi er jafnframt gleðitilefni. Minningin lifir áfram og vonandi getum við öll lært af þér og tileinkað okkur þann umvefjandi kærleika sem þú sýndir okkur í verki. Hafðu hjart- ans þökk fyrir allt. Einar Kristinn. Það eru mikil forréttindi fyrir börn sem alast upp í samfélagi hraða og tímaleysis að fá fóstru sem hefur hæfileika til að umgang- ast þau með virðingu, tala við þau sem jafningja og gefa sér tíma til að útskýra hluti fyrir þeim á ein- faldan hátt. Þannig fóstra var ástkær vin- kona okkar Kristrún Guðmunds- dóttir sem við nú kveðjum eftir erfið veikindi. Fyrir tæpum 3 ár- um tók Rúna að sér að gæta barna okkar, Þórunnar og Björns. Hann var á fyrsta ári og myndaðist strax óvanalega traust vináttusamband á milli þeirra og Þórunn eignaðist sína trúnaðarvinkonu. Á meðan Þórunn var í leikskól- anum þá voru Rúna og Bjössi með sinn leikskóla heima. Bjössi undi því vel að hafa fóstruna sína út af fyrir sig þar sem þau gátu lesið sögur og leikið saman. Þá voru þau dugleg að fara út að skoða umhverfið og heilsa upp á kisur og hunda í næstu görðum. Hún tók slíku ástfóstri við börn- in að þau nánast biðu við dyrnar á morgnana eftir að Rúna kæmi. Oftar en ekki var spurt „er ekki Rúna okkar að fara að koma“. Sömuleiðis í lok dagsins gaf hún sér alltaf tíma til að segja frá ævintýrum þeirra þann daginn. Þegar við foreldrarnir fórum til útlanda þá var það auðsótt mál að Björn gisti hjá Rúnu vinkonu sinni í Espigerðinu. Síðan var heimili Rúnu vinsæll viðkomustaður barnanna þar sem alltaf voru til pönnukökur eða annað heimabak- að meðlæti. Þegar Björn hafði aldur til þá fór hann í leikskóla á morgnana. Umhyggjusemi Rúnu var slík að alltaf var hún komin áður en há- degismat var lokið til að fylgjast með hvernig matarlyst hans var þann daginn. Ef lystin var ekki góð þá var eldaður hafragrautur þegar heim var komið. Auk þess að sinna um börnin þá sá Rúna um ýmis heimilisstörf. Þau verk vann hún að einstakri natni eins og allt sem hún tók sér fyrir hendur. Það var sama hvað fór úrskeiðis á heimilinu hvort það var gat á sokk eða snuð hafði verið bitið í sundur þá var viðkvæðið hjá Bjössa „Rúna mín verður að sauma þetta“. Börnin okkar hafa misst bestu vinkonu sína. Söknuðurinn er sár en huggun harmi gegn að nú er Rúna engill á himnum sem vakir yfir þeim. Söknuðurinn er þó enn sárari fyrir börn hennar og barna- börn. Við sendum þeim okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Arndís Björnsdóttir, Sigurður Einarsson og börn. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 39 ✝ GuðbrandurGuðmundsson fæddist að Stóru- Drageyri í Skorradal í Borgarfirði þann 22. október 1934. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Blönduósi þann 4. júní 2001. Útför hans fer fram frá Búðstaðakirkju í dag fimmtudag kl. 15.00 Foreldrar Guð- brandar voru Guð- mundur Guðbrands- son, f. 20.06.1889, d. 29.12.1975 og Guð- rún Vernharðsdóttir, f. 15. 12. 1893, d. 15.06.1981. Systkini Guð- brandar eru Þuríður, Halldóra, Guðbjörg Vernharður, Kristófer og Guðrún sem er látin. Þann 6.desember 1959 kvænt- ist Guðbrandur Elínu Sigrúnu Aðalsteindóttur, f. 10.06.1938, d. 28.11.1985, foreldrar hennar voru þau Aðalsteinn Hólm Þor- steinsson vélstjóri, f. 22.08.1914, d. 06.05.1961 og Helga Guðbjörg Kristjánsdóttir húsmóðir, f. 29.04.1919, d. 09.12.1943. Þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík, fyrst að Frakkastíg 21 og svo Írabakka 8. Þau eignuðust sex börn og barnabörnin eru orðin 17 talsins. 1) Guðmundur, vélamaður og bóndi, maki Sigþrúður Friðriksdóttir, börn þeirra er Erla Rún og Friðrún Fanný, barn Guðmundar er Lárus Kristinn. 2) Sigríður, mat- reiðslumeistari, maki Konráð R. Konráðsson, barn þeirra er Dagbjört Karlotta. 3) Björk, matvælaiðnfræðing- ur, maki Sveinn M. Sveinsson, börn þeirra eru Katrín Sigurbjörg, Sigrún Tinna og Sveinn Guð- berg. 4) Vigdís Edda, húsmóðir, maki Guðmundur Sigfússon, börn þeirra eru Sigfús Krist- mann og Karen Ósk, barn Vigdís- ar er Elín Ósk. 5) Aðalsteinn Hólm, vélfræðingur, maki Birg- itta Benediktsdóttir, barn þeirra er Alexandra, börn Aðalsteins eru Dóra Björk og Guðjón Örn, og sonur Birgittu er Benedikt Þór. 6) Þuríður Helga, matar- tæknir, maki Steingrímur Páls- son, börn þeirra eru Eyþór Ingi og Sigríður Esther, barn Þuríðar er Sandra Dögg. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag kl. 15:00. Guðbrandur flytur frá Drageyri til Reykjavíkur um tvítugt, þar kynnist hann Elínu Sigrúnu Að- alsteinsdóttir, sem síðar varð eig- inkona hans og hans besti vinur. Þau gengu í hjónaband 6. desemb- er 1959. Mestan sinn búskap bjuggu þau að Írabakka 8, eða þar til Elín lést 28. nóv. 1985. Þau eignuðust sex börn og barnabörnin eru orðin 17 talsins. Af þeim störfum sem Guðbrand- ur innti af hendi og var honum einna eftirminnilegast, var er hann vann á vegum Varnarliðsins við byggingu Ratsjárstöðvar á Straumnesfjalli í Aðalvík. Enda sagði hann okkur krökkunum oft skemmtilegar sögur af dvöl sinni þar. Lengst af vann hann hjá ýmsum heildsölum, þar sem hann ferðaðist um landið og seldi vörur til versl- ana. Mikið yndi hafði hann af þess- um ferðalögum og lenti hann í hin- um ýmsustu ævintýrum, enda oft um torfarnar leiðir að fara þar sem vegagerðin var ekki eins góð þá og nú. Einnig fór hann mikið í inn- kaupaferðir til hinna ýmsu landa í evrópu með Lárusi Ingimarssyni heildsala. Guðbrandur var mikill Sjálfstæð- ismaður, og vann sem ungur maður að ýmsum félagsmálum og var hann einnig liðtækur við að skrifa greinar í Morgunblaðið. Þegar pabbi varð fyrir því áfalli að missa eiginkonu sína, mömmu okkar, missti hann ekki eingöngu eiginkonu heldur einnig lífsakkeri sitt. Fljótlega eftir þetta mikla áfall fór heilsufari hans að hraka og gekkst hann m.a. undir stóra lungnaaðgerð á Landspítalanum 1994, og eftir það sinnti hann að- eins léttum störfum, og gaf upp öll sín ferðalög. Síðasta hálft annað ár dvaldist hann á Sjúkrahúsi Blönduóss, og þar var hann í góðu yfirlæti góðs starfsfólks þar til yfir lauk. Elsku pabbi, við söknum þín mikið en við vitum jafnframt að mamma hefur tekið vel á móti þér. Kveðja frá börnum. Elsku pabbi minn Nú eru þjáningarnar þínar á enda, og þú ert komin á þann stað sem þú varst búinn að bíða lengi eftir, jú til hennar mömmu sem hvarf frá okkur alltof snemma. Pabbi var rólyndismaður og aldrei man ég eftir því að hann skipti skapi, hann var þolinmæðin upp- máluð. Pabbi var sölumaður af guðs náð, það var nú gaman þegar hann kom heim með sýnishornin af fatnaði, já þá var gaman að máta fram og til baka, en þegar kom að því að raða ofan í töskurnar aftur, þá kom babb í bátinn, aðeins helm- ingurinn komst ofan í og þá var taskan full en pabbi reddaði mál- unum. Pabbi ferðaðist mikið um landið og utan þess vegna sölu- starfsins, ég hef heyrt að sölu- mönnunum var alltaf líkt við lóuna, jú þeir voru vorboðarnir. Pabbi gekk að eiga hana mömmu 6. des. 1959 og eignuðst þau 6 börn og nú í dag eiga þau 17 barnabörn. Þegar mamma dó í nóvember 1985, missti pabbi ekki bara eiginkonuna sína, líka besta vininn og mikið af lífs- viljanum, það var mikill missir. Heilsu pabba hrakaði örfáum ár- um eftir að mamma dó. Frá og með árinu 1994 eftir stóru lungna- aðgerðina fór heilsan hratt niður á við, og um áramótin 9́9 fluttist pabbi til okkar í Drápuhlíðina og dvaldist hjá okkur um nokkurra mánaða skeið og fluttist hann þá í Vesturbergið til Bjarkar og fjöl- skyldu. En heilsan kallaði á meiri ummönnun en við gátum veitt hon- um, og var hann þeirrar gæfu að- njótandi að komast á Sjúkrahúsið á Blönduósi þar sem hann naut góðr- ar umönnunar hjá úrvalsgóðu starfsfólki og vil ég senda þeim mínar bestu þakkir fyrir að hugsa vel um hann pabba minn. Þegar ég flutti til Reykjavíkur með hana Söndru mína ársgamla fluttum við til afa á Író og bjuggum við hjá honum um langt skeið. Alltaf var pabbi til í að passa fyrir mig, og mikið þótti Söndru gott að vera hjá honum Gumma afa. Elsku pabbi minn, nú veit ég að þú ert í góðum höndum og nú getur þú andað létt- ar og faðmaðu hana mömmu frá mér, mikið sakna ég ykkar sárt. Mín huggun er sú að nú eruð þið loks saman eftir rúmlega 15 ára viðskilnað. Þín dóttir Þuríður Helga. Að kveðja vini og ættingja er ekki auðvelt. Við Guðbrandur Guð- mundsson vorum samferða í þessu jarðlífi í tæp 20 ár og fyrir þau langar mig að þakka. Ekki aðeins voru hann og Elín Aðalsteinsdóttir kona hans foreldrar konu minnar Bjarkar, heldur einnig vinir, félag- ar og ómetanleg stoð okkar er við stigum okkar fyrstu skref í átt að sjálfstæði okkar og sköpun okkar eigin fjölskyldu. Því miður naut Elínar ekki lengi við en hún lést árið 1985 langt um aldur fram. Engu að síður náði hún að setja mark sitt á okkar framtíð með ör- læti og manngæsku sem var langt umfram það venjulega. Guðbrand- ar höfum við fengið að njóta fram að þessu en hann lést nú þann 4. júní. Þegar ég lít yfir þann tíma sem við höfum átt saman í jarðvist- inni koma margar minningar upp í hugann. Minningar sem er allt of langt mál að tíunda í grein sem þessari en sem eru mér sem nesti á minni lífsgöngu. Minningar um óreyndan sveitastrák sem fór með tengdapabba tilvonandi niður á Bílaþjónustu að gera við Lettann fyrir næstu stóru söluferð og hlust- aði opinmynntur á sögur af svað- ilförum í Aðalvíkinni og úr ótelj- andi hringferðum um landið. Minningar um hógværan hlátur, hlýtt handtak og lítillátt þel. Bestu þakkir fyrir samfylgdina Guðbrandur. Sveinn Mikael Sveinsson. Elsku Guðbrandur. Okkur langar í fáeinum orðum að þakka þér fyrir samverustund- irnar á liðnum árum. Efst í huga okkar tveggja eru samverustund- irnar í Kolaportinu þar sem við stóðum margar stundirnar saman. Þar undir þú þér vel. Sölumennska var líf þitt og yndi en oft höfðum við það á orði að þú værir eiginlega alltof góður til að stunda sölu- mennsku. Hugmynd okkar um sölumann var einhver sem er mjög harður í horn að taka, sá sem hvik- ar ekki frá uppsettu verði og gefur ekkert eftir. Það var ekki sú mynd sem við fengum þegar við kynnt- umst þér. Þú máttir hvergi sjá auman blett á fólki, þá varstu bú- inn að rétta fram báðar hendurnar til hjálpar. Minnisstæðast er atvik þegar kona kom til að versla, þú kannaðist við hana og lést hana fá vörurnar á alltof lágu verði. Þú sást það nú víst á okkur að við vor- um ekkert ánægðar með þessi við- skipti og þegar konan var farin hvíslaðir þú svo enginn heyrði, „hún á svolítið bágt núna“. Þá viss- ir þú að þessi kona hafði ekki alltof mikið fé á milli handanna, jólin að koma og þig langaði til að hjálpa til. Þrátt fyrir það fékkstu kannski lítið þakklæti, kannski örlítið bros en einhvern veginn erum við þess fullvissar að hjarta þitt fylltist enn meiri hlýju fyrir vikið. Þau fyrstu lýsingarorð sem koma upp í hug- ann þegar við hugsum til þín eru góður, yndislegur og jákvæður. Stundum var lítið að gera og flestir sölumennirnir gengu um, hálfgrétu yfir því hversu illa gekk. En það var einn maður sem stóð alltaf uppréttur og það varst þú. Þú fannst alltaf eitthverjar skýringar á þessu, annaðhvort var bara of gott veður eða bara of vont veður. Þú brostir bara út í annað, þetta var ekki svo mikið vandamál. Elsku Guðbrandur. Minningarnar um þig eru fjölmargar og allar góðar. Þú verður ávallt í hjörtum okkar minning um yndislega góðan mann. Að lokum viljum við votta að- standendum öllum okkar innileg- ustu samúð. Dagbjört og Sólveig Skaftadætur. Það kom okkur sem þekktum Guðbrand ekki á óvart að hans tími skyldi vera kominn. Brandur eins og við kölluðum hann var búinn að vera sjúklingur undanfarin ár og síðasta hálft annað árið var hann á sjúkrahúsinu á Blönduósi. Ég man nú ekki hvenær ég hitti Brand fyrst en ætli það hafi ekki verið um 1976 þegar hann byrjaði að selja fyrir föður minn úti á landsbyggð- inni, en starfið hans Brands var að selja vörur fyrir heildsala hringinn í kringum landið. Ég kynntist svo þessum manni betur er ég hóf störf hjá Heildverslun Páls Páls- sonar og síðar hjá Brek hf. en þá sá ég um að finna sýnishorn og setja í töskur svo að Brandur gæti tekið með sér í hringferð. Brandur ók lengi á gömlum GMC Suburban bílum sem voru annaðhvort fyrr- verandi lögreglu eða sjúkrabílar. Svo síðustu árin hans ók hann á appelsínugulum Moskovitch sem allir tóku eftir. Árið 1983 kynntist ég svo yngri syni Brands, Alla, og komum við vinirnir oft saman á heimili þeirra á Írabakka 8, þar var oft margt um mannin, en það var líka þannig að ef maður var vinur eins þá var maður vinur allra barnanna, enda áttu þau Brandur og Elín kona hans sex börn og fylgdi þeim krökkum mikill vina- hópur og var hann ávallt velkom- inn á heimili þeirra hjóna. Það var svo dóttir Brands sem kynnti mig fyrir konunni sem ég er búinn að vera giftur í 10 ár þannig að ég á þessari fjölskyldu margt að þakka. Elín eiginkona Brands lést 1985 langt fyrir aldur fram aðeins 47 ára, var það mikið áfall fyrir Brand og börnin þeirra því þessi fjöl- skylda hefur alla tíð þótt mjög samhent og þótti Elín hin mesta kjarnakona. Síðustu árin seldi Brandur í Kolaportinu og átti það vel við hann, en vegna veikinda varð hann að hætta. Okkur Heiðu langar að senda börnum, tengda- börnum og barnabörnum Brands innilegar samúðarkveðjur. Valur Stefánsson. Ég kveð þig kæri vinur með ljóði vinar okkar beggja, Tómasar Guð- mundssonar, Aladdín, því í því birtist lífshlaup þitt. Það endist þér eins lengi og þú lifir hið ljúfa ævintýr. Það lagði þér á tungu orð, sem yfir þeim undramætti býr að fella rúbínglit á mýri og móa. Þú mældir grýtta jörð við pálmaskóga. Því töfraorðið, það var æskan þín, og þú varst sjálfur lítill Aladdín. Og þegar haustið hvíldi yfir bænum og húm á landið seig, í morgundýrð úr safírbláum sænum þín sólskinsveröld steig. Þar risu bjartir turnar hvítra halla frá himinbláum grunni demantsfjalla. En langt að baki lá þín gamla jörð með lokuð sund og ís um strönd og fjörð. Þig henti raunar seinna að verða að vakna, ó, veslings Aladdín. Og erfitt fannst þér oft að þrá og sakna þess alls, er hvarf þér sýn. Þú skildir ei, hví týndist tungu þinni það töfraorð, sem lá þér dýpst í minni, er dó í fjarska draums þíns rúbínglóð og dimmt og autt var þar sem höll þín stóð. Og þó skal engum dýrðardraumi glatað, sem dreymdi þína önd. Í auðmýkt hjartans ennþá færðu ratað í óska þinna lönd. Því minningin um morgunlandið bjarta um myrka vegu lýsir þínu hjarta í veröld þá, sem ósýnileg er, en Aladdín í minni sínu ber. Þinn vinur Stanley. GUÐBRANDUR GUÐMUNDSSON virkum dögum fyrir birting- ardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skila- frests. EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstu- dag. Í miðvikudags-, fimmtu- dags-, föstudags- og laugar- dagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur Skilafrestur minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.