Morgunblaðið - 14.06.2001, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 59
DAGBÓK
LÝÐVELDISDAGAR
Í FLASH
Laugavegi 54 - s. 552 5201
Hörskokkar frá kr. 3.990
Silkiskokkar kr. 3.990
Gallaskokkar kr. 2.990.
Stærðir 36-46
Klapparstíg 27,
sími 552 2522.
Ef þú kaupir Maxi Cosi (0–13 kg) barnabílstól þessa helgi,
færðu pokann á 950 kr., (fullt verð 3.950)
Þjóðhátíðartilboð
Ítölsk sumarföt í úrvalií i
NÝTT KORTATÍMABIL
Skólavörðustíg 10, sími 551 1222
Bébécar AT barnavagnar,
Reider AT kerrur og
Easybob bílstólar,
sem passa á
vagnagrindur og kerrur.
Nýir litir
Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 564 6610,
verslun.strik.is/allirkrakkar
AMERÍSKIR LÚXUS NUDDPOTTAR
Glæsilegir nuddpottar í sedrus
viðargrind. Innifalið í verði:
Vatnsnudd og loftnudd.
Einangrunarlok, ozone
bakteríuvörn, höfuðpúðar, ljós,
vetraryfirbreiðsla, trappa o.fl.
Engar leiðslur, nema rafm. 16
amp. Verð frá aðeins kr. 490
þús. stgr.
Tilbúnir til afhendingar.
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi.
Símar 554 6171 og 898 4154.
LJÓÐABROT
HÁFJÖLLIN
Þú, bláfjalla geimur með heiðjöklahring,
um hásumar flý ég þér að hjarta.
Ó, tak mig í faðm. Minn söknuð burt ég syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.
Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristals dagga.
Und miðsumars himni sé hvílan mín.
Hér skaltu, Ísland, barni þínu vagga.
Hér andar guðs blær, og hér verð ég svo frjáls,
í hæðir ég berst til ljóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum himinbáls,
unz leiðist ég í sólu fegri drauma.
Steingrímur Thorsteinsson
NS eru engir kjánar og þeir
hafa meldað upp í sex hjörtu
fyrir eigin vélarafli – eða
réttara sagt suður sem á
firna góð spil. Lesandinn
ætti nú að tylla sér í vestur
og velja útspil, fordómalaust.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D106
♥ 653
♦ G652
♣ KD7
Vestur Austur
♠ G953 ♠ 874
♥ G82 ♥ 4
♦ 3 ♦ D1098
♣ÁG864 ♣109532
Suður
♠ ÁK2
♥ ÁKD1097
♦ ÁK74
♣--
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 2 lauf *
Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Finnst þér koma til greina
að spila út einspilinu í tígli?
Er það ekki hrottalegt van-
mat á mótherjunum að
sækja stungu í slemmu með
ás á hendinni? Allt annað en
tígull kemur til greina og
tromp virðist raunar best.
Spilið er úr bók eftir
Andrew Diosy og Lindu Lee
frá 1998 og heitir „You Have
To See This“. Þetta er ekki
slæm bók en greiningin er
stundum gölluð. Í þessu spili
er stefið kunnuglegt. Út
kemur tígull og sagnhafi tek-
ur með ás og síðan þrisvar
tromp. Prófar svo tígulkóng
og sér leguna. Nú segja höf-
undar réttilega að aðeins
einn vinningsmöguleiki sé til
– taka spaðaás, svína spaða-
tíu, spila laufkóng og henda
spaðakóng heima! Vestur
lendir inni á laufás og verður
að spila blindum inn á svarta
drottningu, en þá hverfur
hinn tígultaparinn í lauf-
drottningu.
Allt rétt, nema það að ef
vestur kemur út með einspil
í tígli getur hann ekki átt
laufásinn. Túlki sagnhafi tíg-
ulþristinn sem einspil á hann
hins vegar betri leið. Hann
tekur fyrst ÁK í trompi. Ef
hjörtun falla 2-2 er nóg að
spila spaða þrisvar og enda í
borði, spila svo laufkóng og
henda tígli í „lesinn“ ás aust-
urs. Þá verður austur að
spila: 1) tígli frá drottningu,
2) spaða út í tvöfalda eyðu, 3)
laufi á drottninguna. Ef
trompið er hins vegar 3-1 er
sennilega best að taka þrisv-
ar tromp, síðan þrisvar
hjarta og spila laufhámanni
og henda tígli þegar austur
kemur með ásinn. Þá er allt í
góðu lagi ef austur á ekki síð-
asta spaðann.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarsson
Árnað heilla
Hlutavelta
50 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 18. júní,
verður fimmtugur Júlíus
Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri og borgar-
fulltrúi. Af því tilefni taka
Júlíus Vífill og Svanhildur
Blöndal, eiginkona hans, á
móti gestum á morgun,
föstudaginn 15. júní, kl.
18-20 í húsakynnum Ing-
vars Helgasonar hf. á
Sævarhöfða 2, Reykjavík.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14.
júní, verður sjötug Þuríður
Skarphéðinsdóttir, Vestur-
götu 148, Akranesi. Af því
tilefni væntir hún þess að
laugardaginn 16. júní komi
ættingjar og vinir og geri
sér glaðan dag með henni og
fjölskyldu hennar í Jónsbúð,
Akranesi (Akursbraut 13).
Húsið verður opnað kl.
18.30.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 14.
júní, verður áttræður Þór-
hallur Kristinn Árnason,
fyrrverandi skipstjóri frá
Kolbeinsvík í Árneshreppi
á Ströndum, nú til heimilis í
Gullsmára 11, Kópavogi.
Eiginkona hans er Guð-
björg Sigrún Björnsdóttir.
Þau verða að heiman á af-
mælisdaginn.
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands og söfnuðu 8.200 kr. Krakk-
arnir heita Steinar Ólafsson, Hinrik Viðar Bjarkason,
Hrafnhildur Ósk Halldórsdóttir og Guðlaugur Halldór
Einarsson.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
27.Hh3 bxa3+ 28.Bb3
Dxd4 og hvítur gafst upp.
Skákin tefldist í heild
sinni: 1.d4 Rf6 2.Bg5 d5
3.e3 c6 4.Bd3 Rbd7 5.Rd2
g6 6.f4 Bg7
7.Df3 Db6 8.O-
O-O c5 9.c3
Da5 10.Kb1 c4
11.Bc2 O-O
12.Rh3 b5 13.a3
Dc7 14.e4 dxe4
15.Rxe4 Bb7
16.Hhe1 a5
17.Bxf6 Rxf6
18.Rxf6+ Bxf6
19.Df2 b4
20.Rg5 Hab8
21.Dh4 Bxg5
22.Dxg5 bxc3
23.He3 Db6
24.Hxc3 o.s.frv.
Staða efstu
manna eftir tvö
mót í helgar-
skákmótasyrpu SÍ er þessi:
1. Arnar Gunnarsson 24,50
stig 2. Helgi Ólafsson 18 3.
Sævar Bjarnason 14,50 4.
Helgi Áss Grétarsson 13,50
5. Jón Viktor Gunnarsson
11 6. Gylfi Þórhallsson 10
7. Ólafur Kristjánsson 9 8.
Þorsteinn Þorsteinsson 8.
STAÐAN kom upp á helg-
arskákmótinu á Akureyri
er lauk fyrir skömmu.
Svart hafði Ólafur Krist-
jánsson(2215) gegn Davíð
Kjartanssyni (2205).
24...Bf3! 25.b4 Svartur
mátar eftir 25.gxf3 Dxb2#.
25...Bxd1 26.Bxd1 axb4
Svartur á leik.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert fróðleiksfús með
afbrigðum og kannt að nota
þér vitneskju þína sjálfum
þér til hagsbóta.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er eins og þú eigir erfitt
með að sjá hlutina í skíru ljósi.
En þú ert ekki einn um þetta.
Eina ráðið er að bíða rólegur
þar til þokunni léttir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að viðra hugmyndir
þínar við vinnufélagana og sjá
hvaða viðbrögð þær fá. Af
þeim getur þú lært og lag-
fært, ef þér sýnist svo.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert undir smásjánni hjá
öðrum svo þú skalt haga
gjörðum þínum svo að þú gef-
ir engan höggstað á þér.
Fyrstu kynni geta haft afger-
andi áhrif.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt oft sé gaman að láta hug-
ann reika, verður þér lítið úr
verki á meðan. Reyndu því að
halda þig að verki og láta þig
dreyma þegar tími er til.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er ekki nóg að heyra það
sem fólk segir heldur líka
nauðsynlegt að taka eftir því
hvernig það segir hlutina. Því
af látbragðinu má margt ráða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er nauðsynlegt að þú get-
ir greint á milli staðreyndar
og staðleysu og sért snöggur
að því. Annars nærðu litlum
eða engum árangri í starfi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Meiriháttar atburðir eru í
gangi í kringum þig svo þú átt
erfitt með að standa í fæt-
urna. Því ríður á að þú haldir
ró þinni meðan ósköpin ganga
yfir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinnufélagi þinn setur þig í
vanda með því að kunna ekki
að gera greinarmun á draumi
og veruleika. Það kostar þig
átak að kippa málunum í lið-
inn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ýmsar minningar skjóta upp
kollinum og vekja þér löngun
til þess að leita til löngu lið-
inna daga. Gættu þess bara að
eiga afturkvæmt úr því ferða-
lagi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hentu hógværðinni og gerðu
þér sem mestan mat úr þeim
tækifærum sem þér bjóðast.
Þetta eru þínir sjensar og það
eiga engir aðrir að geta hrifs-
að þá frá þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er skynsamlegt að
staldra við öðru hverju og
velta hlutunum fyrir sér því
oft koma þá upp atriði sem
þér hafa yfirsést í erli dagsins.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að geta lagað þig að
breyttum aðstæðum og þótt
þér finnist það erfitt er ekki
um annað að ræða. Byrjaðu
strax því annars geturðu
misst af strætisvagninum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.