Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 60

Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ  ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harmon- ikkuball laugardagskvöld. Félagar úr Harmonikkufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi. Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Allir velkomnir.  BREIÐIN, Akranesi: Buttercup spila á þjóðhátíðardansleik laugar- dagskvöld.  C’EST LA VIE, Sauðárkróki: Poppsveitin Spútnik sér um dúndr- andi þjóðhátíðarstemmningu laugar- dagskvöld. Spútnik skipa þeir Krist- ján Gíslason, Bjarni Halldór Kristjánsson, Ingólfur Sigurðsson, Kristinn Gallagher og Kristinn Ein- arsson.  CAFÉ 22: Dj Johnny sér um fjörið fram undir morgun föstudagskvöld. Frítt inn til klukkan 3. Handhafar stúdentaskírteina fá frítt inn alla nóttina. Doddi litli mætir í búrið á miðnætti laugardagskvöld. Frítt inn til klukkan 3. Handhafar stúdenta- skírteina fá frítt inn alla nóttina.  CAFÉ AMSTERDAM: Eitt af sprækari ballböndum landsins, For- som, leika föstudags- og laugardags- kvöld.  CELTIC CROSS: Spilafíklarnir leika föstudags- og laugardagskvöld.  DUBLINER: Trúbadúrinn Ingvar Valgeirsson fimmtudagskvöld. Dúett- inn Okur leikur og syngur föstudags- og laugardagskvöld. Dúettinn skipa þeir Ingvar Valgeirsson söngvari og gítarleikari og Jón Kjartan Ingólfs- son bassaleikari og söngvari.  EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Einar Ágúst og Kristján Grétars föstudags- kvöld.  FÉLAGSHEIMILIÐ SUÐUREYRI: Írafár spila laugardagskvöld. 16 ára aldurstakmark.  GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveitin Ham fimmtudagskvöld. Hljómsveitin Írafár spilar föstudagskvöld. Sálin hans Jóns míns með dansleik laug- ardagskvöld. Hljómsveitin Spútnik spilar sunnudagskvöld. Úlpa, Fídel og Kuai mánudagskvöld.  GRANDROKK: Tónleikar með Heiðu og heiðingjunum föstudags- kvöld kl. 22. Aðgangseyrir er 500 krónur. Tónleikar með Fræbblunum og 3 G’s laugardagskvöld kl. 22. Að- gangseyrir er 500 krónur.  GULLÖLDIN: Heiðursmennirnir Svensen og Hallfunkel skemmta gestum föstudags- og laugardags- kvöld til kl. 3.  HEIMLAND, Rangárvallasýslu: Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar föstudagskvöld.  HÓTEL SELFOSS: Stuðmenn spila laugardagskvöld.  JÓI RISI, Breiðholti: Gulli Reynis spilar alla helgina.  KAFFI REYKJAVÍK: Papar spila föstudags- og laugardagskvöld.  KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin Basic fimmtudagskvöld kl. 22. Basic hefur aðeins verið starfandi í 6 mán- uði og spilar melódískt rokk. Hljóm- sveitina skipa: Skúli Örn, Bjarki, Matthías og Kristján. Aðgangur ókeypis. Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi föstudags- og laugardags- kvöld.  KRISTJÁN X., Hellu: Diskótekið og plötusnúðurinn Skugga-Baldur föstudagskvöld. Miðaverð 500 kr. frá miðnætti.  N1-BAR, Reykjanesbæ: Hljóm- sveitin Jagúar heldur tónleika fimmtudagskvöld kl. 22. Frumsýning bíómyndarinnar Jagúar the Movie og nýtt efni af væntanleri breiðskífu Jagúar er yfirskrift tónleikanna.  NIKKABAR, Hraunberg 4: Kol- beinn Þorsteinsson trúbador föstu- dags- og laugardagskvöld til kl. 3.  ODD-VITINN, Akureyri: Hin vin- sæla hljómsveit Þrír vinir og einn í fríi skemmta föstudagskvöld. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar laugardags- kvöld kl. 23 til 3.  PLAYERS-SPORT BAR, Kópa- vogi: Greifarnir með dansleik föstu- dagskvöld. Hljómsveitin Sixties laug- ardagskvöld.  RAUÐA LJÓNIÐ: Acustick alla helgina.  SJALLINN, Akureyri: Land og synir laugardagskvöld.  SKÚLI FÓGETI, Aðalstræti 10: Rúnar Þór leikur föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld.  ÚTHLÍÐ, Biskupstungum: Hljóm- sveitin Sólon spilar laugardagskvöld.  ÚTLAGINN, Flúðum: Diskótekið og plötusnúðurinn Skugga-Baldur laugardagskvöld. 500 kr. inn.  VALASKJÁLF, EGILSSTÖÐUM: Greifarnir spila laugardagskvöld.  VIÐ POLLINN, Akureyri: Hemmi Ara í léttum jubliantafíling fimmtu- dagskvöld. Dægurlagapönkhljóm- sveitin Húfa með tónleika og uppi- stand. Danssveitin SÍN leikur fyrir dansi að tónleikum loknum föstu- dagskvöld kl. 22. Danssveitin SÍN laugardagskvöld.  ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN: Lýðveldisdansleikur með Möggu Stínu og Hringjum laugardagskvöld. Frá A til Ö Hljómsveitin Jagúar. BILL Wyman, fyrrverandibassaleikari Rolling Stones,og Hrynjöfrar hans hafa nú sent frá sér fjórðu plötuna á jafn- mörgum árum, Double Bill – og reyndar þá fimmtu líka, því að tvær plötur leynast í umslaginu eins og glöggir menn sjá á nafninu. Minna mátti það ekki vera. Og eru þá ótald- ar tvær hljómleikaplötur. Enn sem fyrr er tónlistin blanda af djassi og hrynblús auk þess sem greina má dreifbýlistóna innan um ef grannt er hlustað. Sveitin er eins skipuð og á fyrri plötunum, þar er að finna vel þekkta, bara þekkta og minna þekkta grá- kolla og skalla úr bresku rokkhreyf- ingunni á sjöunda áratugnum. Wy- man, bráðum hálfsjötugur, plokkar bassann, Gary Brooker úr Procol Harum, Georgie Fame og Dave Hartley hamra hljómborðin, Andy Fairweather Low úr Amen Corner, Albert Lee, Terry Taylor og Martin Taylor fara fimum fingrum um gít- arhálsana og Graham Broad ber bumbur mynduglega. Sönginn sjá Brooker og Fame um að miklu leyti ásamt Beverley Skeete, söngkonu með tjáningar- og tilfinningaríka rödd og er jafnvíg á djass, blús og soul. Bakraddir og blásturshljóðfæri eru og á sínum stað. Á Double Bill sem hinum fyrri plötum sveitarinnar er að finna blöndu af eldri lögum, þekktum og lítt þekktum, og nýjum lögum úr smiðju þeirra Wymans og Terrys Taylors, sem sjá einnig um útsetn- ingar og upptökustjórn. Ekki er veikan blett að finna á plötunum og flutningur sumra lag- anna með þeim ágætum að trúlega yrði ekki betur gert. Þegar upphafs- lagið á fyrri plötunni, Long Walk to DC, tekur að hljóma, finnst vart betri lýsing á söng Beverley Skeete en klausa úr því ágæta danska ung- lingablaði á árum áður, Vi unge, þar sem danskri söngkonu var lýst svo: „Hún syngur með þvílíkum brag að fuglarnir hrynja úr trjánum.“ Og fuglarnir halda áfram að hrynja eftir því sem lengra líður á plöturnar. Leggið t.d. hlustir við unaðslegri djassballöðu, My Handy Man, þar sem röddinni fylgja ekki önnur hljóðfæri en píanó og gítar. Eitt laganna á plötunum kemur mjög við íslenska popptónlistarsögu. Það er gamli slagarinn Lonely Blue Boy, sem í árdaga léði íslensku of- ursveitinni Ðe Lónlí Blú Bojs nafn sitt. Sveitin sú flutti einnig lagið. Ekki þori ég að halda því fram, að Gary Brooker syngi betur en Eng- ilbert Jensen en hann syngur að minnsta kosti öðru vísi. Bill Wyman lét alveg vera að syngja á plötu Hrynjöfranna sem kom út í fyrra, Groovin’, og hafa lík- lega flestir grátið það þurrum tár- um, því að söngvari er hann varla nema í meðallagi. Hann hefur þó ekki getað stillt sig um að syngja ein þrjú lög á nýju plötunum. Svo tak- markaður sem hann er á þessu sviði, þá fellur söngur hans allvel að þeim lögum sem hann syngur. Sérstak- lega tekst honum vel upp í Jellyroll Fool, bráðfjörugu dreifbýlisrokki úr eigin smiðju og Terrys Taylors. Ekki er hægt að segja skilið við þessar plötur án þess að nefna eitt hreinræktað landeyjatregróf, Rollin’ & Stumblin’, þar sem heyra má grát- andi munnhörpu og vælandi flösku- hálsgítar. Adrian Byron Burns rym- ur sígildar harmatölur úr bómullartínslunni af stakri sannfær- ingu. Afbragð. Þegar gamlir kallar eins og Hryn- jöfrarnir eru að skemmta sér, er mikill siður að fá til leiks einhvern gest, sem er jafnvel enn frægari en þeir. Á fyrri plötum hafa leikið meðal annarra gítarleikararnir Mick Tay- lor, Eric Clapton og Peter Framp- ton. Þeir eru fjarverandi að þessu sinni en einn gítarleikarinn enn og varla þeirra ófrægastur kemur við sögu, Liverpool-snáðinn George Harrison. Hann fær að renna flösku- hálsi eftir gítarstrengjunum í einu lagi, Love Letters. Óþarft er að finna að frammistöðu hans. Þegar skriffinnur þessi rýndi fyrr- nefnda Groovin’ (sjá Morgunblaðið 8. júní 2000, Grænir símastaurar), fór hann fögrum orðum um bæði tónlist og flytjendur, nefndi sérstak- lega eldlegan áhuga á viðfangsefninu og leiftrandi leikgleði. Vel mætti endurtaka það allt hér og reyndar gefa nýju plötunum nokkurn veginn sömu umsögn og Groovin’ – að breyttu breytanda. Ef til vill gætu jagskjóður túlkað þessi orð svo, að hér væri bara meira af því sama; sami grautur í sömu skál; hjakkað í sama farinu. Því er til að svara, að þetta ágæta fólk er ekki að reyna að bylta tónlistinni, ekki heldur að reyna að skrifa nýjan kafla í tónlist- arsöguna. Það er fyrst og fremst að skemmta sér og öðrum. Allir sem unna sígildri dægurtón- list, ekki síst þeir sem muna sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, ættu að hafa ómælda ánægju af þeirri í senn ljúfu, fjörlegu, kröftugu, tilfinningaríku, oft og tíðum dans- vænu blöndu, sem tekist hefur að sjóða hér saman – tvöfalda ánægju. ERLENDAR P L Ö T U R Karl Emil Gunnarsson skrifar um nýjustu plötu Bill Wyman’s Rhythm Kings, Double Bill.  Tvöföld ánægja Bill Wyman. Tvöfaldur. Ókyrrð 3: Bárujárn (Turbulence 3: Heavy Metal) S p e n n u m y n d ½ Leikstjórn Jorge Montesi. Aðal- hlutverk Joe Mantegna, Craig Shef- fer. 92 mín. Bandaríkin 2000. KONUNGUR dauðarokksins, Slade Craven (Marilyn Manson skapaður af einhverjum sem ekki hefur hugmynd um út á hvað sá blessaði glysrokk- ari gengur), er bú- inn að skipuleggja frumlegustu tón- leika sögunnar; um borð í 747- breiðþotu fyrir nokkra af heitustu aðdáendunum, skrautlegum got- neskum skríl! Ekki nóg með það heldur er áformað að endurvarpa tónleikunum beint á Netinu. En þar sem þetta er Ókyrrð fer fjarri að flugferðin geti gengið snurðulaust fyrir sig. Auðvitað þurfa að vera um borð bandvitlausir flugræningjar sem yfirtaka vélina og það sem meira er þá eru þeir djöfladýrkend- ur! Ég veit ekki hvað skal segja við þá sem ekki þykir þessi flétta vera ein- hver sú vitlausasta sem fyrir hefur fundist. En þeir eru greinilega ein- hverjir. Ég mun aldrei fá skilið hvað hæfileikafólk á borð við Mantegna er að hugsa þegar það eyðir tíma sínum og mannorði í annað eins. Að end- ingu leyfi ég mér að efast stórlega um að nokkur maður geti heillast svo af hinu svokallaða dauðarokki í myndinni – allra síst gotneskur skríll. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Dauðarokk í háloftunum URSULA Andress var á dögunum valin kynþokkafyllsta James Bond- stúlkan frá upphafi af lesendum Hotdog-tímaritsins. Andress, sem er 65 ára, kom fram í fyrstu Bond-myndinni, Dr. No, fyrir þrjátíu og níu árum. Sean Connery fór þá með hlutverk James Bond, en hann tók einnig þátt í kosningunni og notaði tækifærið og lýsti yfir einlægri aðdáun sinni á Andress. Hvítu sundfötin sem Andress klæddist í myndinni virtust vera kjósendum afar minnisstæð. Þess má geta að sundfötin voru boðin upp á dögunum og voru seld fyrir tæpar sex milljónir íslenskra króna. Barbara Bach, eiginkona fyrr- verandi bítilsins Ringo Starr, þótti önnur kynþokkafyllsta Bond- stúlkan. Hún fór með hlutverk lög- reglukonunnar Önju Amasovu í The Spy Who Loved Me. Í þriðja sæti var svo kjarnorkusérfræðing- urinn Christmas Jones, sem leikin var svo eftirminnilega af Denise Richards, í nýjustu Bond-myndinni The World Is Not Enough. Kjósendur voru einnig beðnir að velja sína eftirlætis kvikmynd um njósnarann 007 og þótti Goldfinger bera af en Live And Let Die hafnaði í öðru sæti. Ursula Andress. Bondstúlka nr. 1 DILBERT mbl.is   Í HLAÐVARPANUM Fimmtudaginn 14. júní kl. 21.00 Tónleikar Tena Palmer og CRU Föstudaginn 15. júní kl. 22.00 Tónleikar Kleifabandalagið HLJÓMSVEIT FÓLKSINS... og nú syngja allir með EVA - bersögull sjálfsvarnareinleikur þri. 19. júní kl. 21.00 aukasýning              HEDWIG KL. 20 Frumsýning fös 29/6 UPPSELT lau 30/6 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda örfá sæti laus fös 6/7 Hádegisleikhús KL. 12 RÚM FYRIR EINN fös 15/6 UPPSELT fim 21/6 nokkur sæti laus FEÐGAR Á FERÐ KL. 20 mið 20/6 UPPSELT fim 21/6 nokkur sæti laus sun 24/6 nokkur sæti laus Allar sýningar hefjast kl. 20. Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:         A   B%!""  # B%$ % ! # %B%!""  #  1!B%!""  # 1B%!""   1+B%!""   1 B%!""  #  19B%!""   1;B%!""   &'( )) *   +, &   /11B%!""  # !- ./012  -3!     4 -3!    5 "  - 67 /8-!  #!  $ !   &/ "9:- 6;<6=#/< !- 6;907 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler Í KVÖLD Fim 14. júní kl. 20 - UPPSELT Fös 15. júní kl. 20 - UPPSELT Lau 16. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI Lau 16. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní, eftir sýningu flytur Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og kynlífspistlahöfundur, erindi tengt Píkusögum. ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst. SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR. SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í HAUST Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið 3. hæðin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.