Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 61
17. JÚNÍ
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið var að
framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að
íslenskir karlmenn óski að
klæðast búningnum á
tyllidögum svo sem við
útskriftir, giftingar, á
17. júní, við opinberar
athafnir hérlendis og
erlendis og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
Hátíðarföt
með vesti úr 100%
ull, skyrta og næla
Stærðir 46— 64
98—110
25— 28
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
Se
nd
um
í
pó
st
kr
öf
u
Nýtt kortatímabil
KARLMENN
klæðumst
hátíðarfatnaðinum
á þjóðhátíðar-
daginn
Verð kr. 26.900
Þ í n f r í s t u n d - o k k a r f a g
B í l d s h ö f ð a • 1 1 0 R e y k j a v í k • s í m i 5 1 0 8 0 2 0 • w w w . i n t e r s p o r t . i s
CRAZY CREEK S 2000
Hjól: Hyper X-360 80/78A.
Legur: ABEC 5.
Dömu og herrastærðir.
Verð: 17.580,-
CRAZY CREEK S 1400
Dömu- og herrastærðir.
Hjól:76/78 A
Legur: ABEC 3.
Verð: 11.990,-
5.990
CRAZY CREEK T 900 JR
Stillanlegastærðir: 23/26
27/30 31/34 35/38
Hjól:67x24 mm/82A.
Legur: ABEC.
Verð: 6.990,-
CRAZY CREEK T 300 JR
Barnaskautar.
Hjól: 64x24 mm.
Legur: ABEC 1. St: 31-38
Verð: 3.990,-
CRAZY CREEK T 500 JR
Unglingaskautar.
Hjól: 70x24 mm/82A.
Legur: ABEC 3
St: 31-38. Verð: 5.990,-
6.990
CRAZY CREEK S 1000 JR
Stillanlegar stærðir: 31-34
og 35-38. Hjól: 70x24 mm.
Legur ABEC 1.
Verð: 7.990,-
CRAZY CREEK S 1200
Dömu og herrastærðir.
Hjól: 76/82A.
Legur: ABEC 1.
Verð: 9.990,-
ROLLERBLADE PRO 07
Dömu- og herrastærðir.
Hjól: Hyper 78mm/78A.
Legur: SKF ABEC 5.
Verð: 15.790,-
SALOMON VERSE
Dömu- og herrastærðir.
Hjól 76 mm.
Legur: ABEC 3.
Verð: 14.990,-
15.790
14.990
7.990
9.990
3.990
17.580
NÝTT KORTATÍMABIL
11.990
AÐ ÞESSU sinni frumsýnir Fil-
mundur bresku verðlaunamyndina
Some Voices frá árinu 2000, sem leik-
stýrt er af Simon Cellan Jones, en
hún verður síðan tekin til frekari sýn-
inga. Some Voices er fyrsta kvik-
myndin sem Jones leikstýrir og hefur
hann fengið mikla og verðskuldaða
athygli fyrir þessa frumraun sína,
hann var meðal annars tilnefndur til
„European Discovery of the Year“
verðlaunanna á Evrópsku kvik-
myndaverðlaunahátíðinni og „Most
Promising Newcomer in British
Film“ verðlaunanna á BAFTA verð-
launaafhendingunni.
Some Voices er byggð á samnefndu
leikriti eftir Joe Penhall, sem sýnt var
hjá Royal Court leikhúsinu í London
fyrir nokkrum árum við afar góðar
undirtektir, en Penhall er einnig höf-
undur handritsins að myndinni.
Í Some Voices segir frá bræðrun-
um Ray og Pete. Ray er nýlega út-
skrifaður af geðsjúkrahúsi og Pete
rekur kaffihús í Shepherd́s Bush.
Hann hefur mikið á sinni könnu en
þarf engu að síður að líta til með Ray
og sjá til þess að hann taki geðlyfin
sín.
Ray vinnur á kaffihúsinu og þar
kynnist hann Lauru, ungri, skoskri
konu, sem er nýskilin við mann sinn,
sem beitti hana líkamlegu ofbeldi og
hann verður ástfanginn af henni.
Smám saman fer Ray að telja sér trú
um að hann geti verið án geðlyfjanna
og í framhaldi af því tekur gjáin milli
heimsins sem hann upplifir og um-
hverfisins að breikka ískyggilega.
Daniel Craig hefur hlotið mikið lof
fyrir túlkun sína á Ray, en honum
tekst einstaklega vel að koma sjúk-
dómi Rays til skila á trúverðugan
hátt.
Það er algengt að geðsjúkdómar
séu settir fram á ýktan og uppskrúf-
aðan hátt í kvikmyndum, en í Some
Voices birtist sjúkdómur Rays á afar
raunsannan hátt
sem hluti af litrófi
samfélagsins. Það er
í raun merkilegt
hversu utangarðs
geðsjúkdómar hafa
verið í kvikmyndum,
en þó má benda á
myndir á borð við
One Flew Over the Cuckoo’s Nest og
Madness of King George sem hafa
gert þessu efni góð skil. Það virðist
sem viss þagnarskylda einkenni, enn
sem komið er, umfjöllun um geðsjúk-
dóma, en þetta er sem betur fer að
breytast.
Eins og fram hefur komið í um-
ræðunni hér á landi undanfarið, eru
geðsjúkdómar mun algengari en
margir halda og þurfa flestir að glíma
við slíka sjúkdóma einhvern tímann á
ævinni, annað hvort sjálfir eða hjá
vinum og ættingjum.
Some Voices tekur á þeim siðferð-
islegu málum sem geta komið upp,
þegar samfélaginu sjálfu er falið að
glíma við geðsjúkdóma í stað stofn-
ana og sýnir fram á að undir þeim
kringumstæðum þýðir lítið að taka á
málum með svarthvítum hætti, ekki
fremur en á öðrum sviðum mannlífs-
ins. Það má því segja að Some Voices
sé þarft innlegg í
umræðuna um for-
dóma gegn geð-
sjúkdómum. Tækn-
in er notuð til hins
ýtrasta í Some
Voices til þess að
koma sýn Rays á
heiminn til skila,
áhersla er lögð á það hvernig hann
sér og skynjar heiminn, en ekki á það
hvernig heimurinn skynjar hann, eins
og svo oft vill verða. Með aðalhlutverk
fara Daniel Craig, Kelly McDonald
og David Morrissey.
Some Voices verður frumsýnd í
kvöld á hefðbundnum Filmundar-
tíma, kl. 22:30 í Háskólabíói. Upplýs-
ingar um áframhaldandi sýningar-
tíma má finna á kvikmyndasíðum
dagblaðanna.
Ray
heyrir
raddir
Daniel Craig leikur Ray.
Filmundur sýnir breskan verðlaunafrumburð
SÖNGKONAN Svala
Björgvinsdóttir fær góða
umfjöllun á áberandi
stað, undir yfirskriftinni
„New & Noteworthy“, í
nýjasta hefti bandaríska
tónlistarblaðsins Bill-
board.
Þar er m.a. fyrsta
smáskífulagi hennar,
„The Real Me“, lýst sem
einum af meira grípandi
poppgimsteinum sem
taki þátt í vinsældakapp-
hlaupi sumarsins. Talað
er um að viðlagið sé það
grípandi að það fái hár
til að rísa á höfði og
komi til með að rugla
fólk í ríminu. Laginu er
spáð sæti á topp 40 lista
Billboards og sagt að ein
hlustun ætti að sannfæra
fólk um það.
Einnig er tekið fram að
hún sé dóttir einnar dáð-
ustu poppstjörnu Íslands,
Bo Halldorsson (sem við
þekkjum víst betur sem
Björgvin Halldórsson).
Sagt er frá því að stúlk-
an hafi hafið söngferil
sinn hér á landi 7 ára
gömul.
Eitthvað eru þeir
félagar þó að ruglast á
aldri og nafni stúlk-
unnar, í greininni er hún
kölluð Slava og hún sögð
vera 21 árs en eins og
kom fram í viðtali
Morgunblaðsins við
Svölu á dögunum er
hún nýorðin 24 ára.
Engu að síður hlýt-
ur þetta að teljast
sérstaklega gott
fyrir mark-
aðssetningu
smáskífunnar
að þessi grein
komi svona
snemma, en skífan
er ekki væntanleg í
búðir fyrr en 11. júlí.
Það er helst að
frétta af Svölu þessa
dagana að lag hennar
hefur verið tekið til út-
varpsspilunar hjá um 40
útvarpsrisum og mynd-
bandið er á leiðinni í spilun
á MTV-sjónvarpsstöðinni.
Svona leit greinin út
í Billboard.
Svala Björgvins vekur athygli
Fær hár til að
rísa á höfði