Morgunblaðið - 14.06.2001, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á
www.postur.is
Veit Pósturinn hvar þú býrð
VÍSITALA neysluverðs hækkaði um 1,5% frá
fyrra mánuði og eru ekki dæmi um meiri hækk-
un vísitölunnar í einum mánuði síðan í febrúar
1990. Þessi hækkun milli mánaða veldur því að
verðtryggð lán heimilanna í landinu hækka um
um það bil 7,5 milljarða króna, skv. upplýs-
ingum Más Guðmundssonar, aðalhagfræðings
Seðlabankans.
Eftir þessa síðustu hækkun er verðbólga síð-
ustu tólf mánaða er 6,8% samkvæmt nýjustu
mælingum Hagstofunnar.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að
tveir þriðju af verðhækkununum núna séu
vegna lækkunar gengis. Geir segir að eins mán-
aðar hækkun kalli ekki á sérstök viðbrögð af
hálfu ríkissjóðs. Síðustu þrjá mánuðina hafi
orðið mikil gengislækkun og það hafi komið
fram í hækkun á verðbólgu. Geir segir að hann
telji líklegra að gengið hækki frekar en lækki.
Mikilvægast sé að menn haldi ró sinni, bæði
yfir verðbólgutölunum nú og gengislækkun
undanfarinna mánaða. Margt bendi til að þensl-
an í þjóðfélaginu fari minnkandi, veltutölur
skatta fari lækkandi og önnur merki séu á lofti
um kólnun í hagkerfinu. Aðspurður hvort stað-
an nú kalli á einhverjar aðhaldsaðgerðir hjá
ríkissjóði segir Geir að ekki sé hægt að svara
því á þessari stundu, ekkert hafi verið ákveðið í
þeim efnum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, segir að mikilvægast sé að tryggja að
verðbólga síðustu mánaða verði einungis tíma-
bundið verðbólguskot. Í því sambandi sé mik-
ilvægt að tryggja að hagstjórn verði markviss.
Ríkið þurfi að gæta aðhalds í fjármálum til að
missa ekki verðbólguþróunina úr böndunum.
Þjóðhagsstofnun mun leggja fram endurskoð-
aða þjóðhagsspá á mánudag.
Markaðsverð á húsnæði
lækkaði um 0,5%
Af einstaka hækkunum á vísitölunni má
nefna að verð á nýjum bílum hækkaði um 4,1%,
verð á eldsneyti um 3% og á mat og drykkjar-
vörum um 1,6%. Markaðsverð á húsnæði lækk-
aði hins vegar um 0,5% frá maíbyrjun. Guðrún
Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala, seg-
ir greinileg merki um samdrátt í sölu á hús-
næði.
Verðtryggð lán heimila
hækka um 7,5 milljarða
Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,5 prósent á milli mánaðanna maí og júní
Verðbólgan komin/C1
Fjármálaráðherra segir
merki um að þenslan
fari minnkandi
SUMARSTÖRF námsmanna eru af
ýmsum toga og er því yfirleitt tek-
ið fagnandi að fá tækifæri til að líta
upp úr bókunum og fást við eitt-
hvað allt annað en lestur og skrif.
Þeir Jón V. Halldórsson, Atli Þór
Alfreðsson og Sverrir Steinn
Sverrisson hafa unnið við það und-
anfarin sumur að mála fjar-
skiptamöstur víðsvegar um landið,
á vegum loftnetadeildar Landssím-
ans. Hér sjást þeir á leið upp 40
metra hátt mastur í Klifinu í Vest-
mannaeyjum.
Sverrir Steinn segir að þeir þre-
menningar séu hæstánægðir með
sumarstarfið enda sé skemmtilegt
að vinna svona úti í náttúrunni.
Hann segir að þeir verði aldrei
lofthræddir enda sé þetta ekki
starf fyrir þá sem hafi tilhneigingu
til þess. Morgunblaðið/Sigurgeir
Ekki fyrir
lofthrædda
STJÓRNENDUR Alcan, móður-
félags Íslenska álfélagsins (ISAL)
og annars stærsta álfyrirtækis
heims, undirbúa nú ákvarðanir um
aukin umsvif í álframleiðslu. Er
stækkun álversins í Straumsvík
meðal þriggja til fjögurra kosta sem
teknir verða til ítarlegrar skoðunar á
næstu mánuðum.
Emery P. LeBlanc, forstjóri hrá-
álsframleiðslu Alcan segir í viðtali
sem birt er í Morgunblaðinu í dag að
miklir vaxtarmöguleikar séu á Ís-
landi en enn sé þó of snemmt að
svara því hvort ákveðið verði að ráð-
ast í stækkun. Niðurstöðu sé að
vænta innan 6 til 9 mánaða.
LeBlanc var staddur hér á landi í
vikunni vegna aðalfundar ISAL og
heimsótti Landsvirkjun, Orkuveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Suður-
nesja í ferð sinni.
„Allar nauðsynlegar forsendur
virðast vera til staðar hér, raforka og
vilji stjórnvalda er fyrir hendi. Það
lítur því allt sérstaklega vel út hér,
en við verðum engu að síður að ljúka
öllum hagkvæmniathugunum okkar
áður en ákvarðanir verða teknar. Því
verki er ekki lokið en við munum
ljúka því. Innan svona sex til níu
mánaða eða snemma á næsta ári
ættum við að hafa fengið góða mynd
af því hvaða vaxtartækifæri við eig-
um hér hjá ISAL,“ segir LeBlanc í
viðtalinu.
Hann segist ekki vera þeirrar
skoðunar að áætlanir um byggingu
álvers á Austfjörðum eða frekari
stækkun álversins á Grundartanga
muni hafa áhrif á mögulega stækkun
álversins í Straumsvík. Norsk Hydro
sé með hugmyndir um byggingu ál-
vers í öðrum landshluta og það úti-
loki ekki frekari uppbyggingu á suð-
vesturhorni landsins. „Það er ljóst að
ef við ráðumst í stækkun álversins í
Straumsvík þyrftum við að afla raf-
orkunnar hér á svæðinu í kring.
Landsvirkjun hefur uppi ýmsar
hugmyndir og kosti í þeim efnum.
Ég held því að þessi verkefni þurfi
ekki að hafa nein áhrif á hugsanlega
stækkun ISAL. Ég tel að það séu
næg tækifæri til staðar fyrir alla,“
segir LeBlanc.
Niðurstaða á að
liggja fyrir inn-
an 6 til 9 mánaða
Næg tækifæri/10
Alcan-álfélagið skoðar m.a. mögu-
leika á stækkun í Straumsvík
SIGURSTEINN Baldursson hjól-
reiðakappi slapp naumlega með
skrekkinn þegar grábjörn, sem
hafði þefað uppi tjald hans þar sem
hann er staddur í Alaska, lét sér
nægja að þefa og hélt svo áfram leið
sinni. Sigursteinn er nýlega lagður
af stað í tveggja ára ferðalag þar
sem ætlunin er að hjóla frá Norður-
Alaska til Suður-Argentínu.
„Ég var staddur við bæinn
Coldfoot, um 240 mílur suður af
bænum Deadhorse, þaðan sem ég
lagði af stað í síðustu viku,“ sagði
Sigursteinn í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég vaknaði við að björn-
inn var að hnusa af tjaldinu mínu og
áttaði mig á því að það eina sem
skildi okkur að var tjalddúkurinn.“
Hann sagði að vörubílstjórar sem
hann hefði hitt, teldu að þetta hefði
verið eitt af stærstu karldýrunum
þarna um slóðir. Þeir hefðu séð
björninn í grennd við tjaldstað
hans, án þess þó að hafa hugmynd
um að þar væri maður sofandi.
Hann sagði að vörubílstjórarnir
hefðu margir boðist til að lána hon-
um byssurnar sínar, en þeir séu
flestallir með skotvopn í bílunum.
„Sagan hefur spurst hratt um
veginn hérna og þegar ég mæti
fólki segir það: „Já, þú ert mað-
urinn sem slappst við björninn!“
Aðspurður segist ég bara hafa gert
það eina sem ég gat, það er að
segjalegið grafkyrr og farið með
Faðirvorið þrjú til fjögur hundruð
sinnum,“ sagði Sigursteinn.
Grábjörn gerði sig heimakominn
STEFNT er að því að fram-
kvæmdir við tónlistarhús í mið-
borg Reykjavíkur hefjist árið
2003 og standi í tvö til þrjú ár.
Þetta kom fram í máli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra í gær þegar kynnt
var hugmyndasamkeppni um
skipulag miðborgar og hafnar-
svæðis við Austurhöfn.
Útboð vegna framkvæmda
er fyrirhugað og verður fram-
lag ríkis og borgar allt að 4,5
milljörðum króna en heildar-
kostnaður er áætlaður 10 millj-
arðar.
Áformað er að tónleikasalur
muni rúma 1.500 manns og
minni tónlistarsalur allt að 450
manns. Áætlað er að notendur
tónlistarhússins verði allt að
300 þúsund á ári.
Fram-
kvæmdir við
tónlistarhús
hefjist 2003
Framkvæmdir/18