Morgunblaðið - 15.06.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Peningagreiðslur í Meistaradeild
Evrópu í handknattleik / B1
Toppliðin í kröppum dansi
í bikarkeppni KSÍ / B2
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
BRÁTT verða 100 ár síðan fyrsta
bílnum var ekið um á Íslandi. Í til-
efni af því sýndi Sverrir Andrésson
eftirsmíð sína af þessum fyrsta bíl
sem oft hefur verið kallaður Thom-
sensbíllinn af gerðinni Cudell.
Þessir bílar voru framleiddir í
Þýskalandi á árunum 1898–1908
og smíðaðir fyrstu árin eftir fyr-
irmynd og með leyfi De Dion í
Frakklandi. Því var Thomsensbíll-
inn franskrar ættar þótt hann væri
smíðaður í Þýskalandi. Það var svo
30. júní 1904 að Detlev Thomsen,
kaupmaður í Reykjavík, kom til
landsins með gufuskipinu Kong
Tryggve og hafði meðferðis bif-
reiðina sem hann festi kaup á í
Danmörku, hún var þá 3ja ára
gömul og töluvert slitin. Thomsen
hafði þá fengið styrk frá Alþingi
að upphæð kr 2000 til að kaupa
mótorvagn til reynslu á Íslandi.
Bíllinn reyndist frekar illa, enda
kraftlítill, sjö hestöfl og vegir
vondir, aðallega hestvagnabrautir.
Thomsensbíllinn var því sendur
aftur út til Danmerkur, sennilega
1905.
„Við smíði þessa bíls hef ég
reynt að gera hann sem líkastan
því sem hann var nýr. Það voru til
dæmis engin ljós á Thomsens-
bílnum, hafa sennilega verið tekin
af í flutningi. Eftir því sem ég hef
séð á myndum voru ljós á Cudel-
bílum þegar þeir voru framleiddir,
að vísu olíuljós,“ sagði Sverrir
Andrésson, bílasali á Selfossi,
áhugamaður um fornbíla og hag-
leiksmaður.
Áhersla lögð á
að hafa bílinn eins
Hann segir margt í undirvagni
bílsins, það sem ekki sést, öðruvísi
en var í Thomsensbílnum. „En ég
hef lagt mesta áherslu á að útlitið
væri það sama. Margir ágætir
menn hafa rétt mér hjálparhönd
við smíði og gerð þessa sérstæða
bíls,“ sagði Sverrir er hann kynnti
bílinn á Bílasölu Selfoss. En hann
og Bragi sonur hans eru með
skemmu í smíðum þar sem verður
safn fornbíla til sýnis fyrir ferða-
fólk og er áformað að það verði
opnað vorið 2002.
Bíllinn var sprautaður hjá Bíla-
málun Suðurlands og Seglagerðin
Ægir saumaði blæjurnar. Sverrir
sagði Þór Vigfússon hafa veitt
mikla aðstoð við að afla upplýsinga
um bílinn með bréfaskriftum við
aðila í Þýskalandi, sendiráðið og
fleiri aðila.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Fyrsti bíllinn á Íslandi hefur verið endurgerður á Selfossi. Við stýrið er Sverrir Andrésson og við hlið hans
Finnbogi Eyjólfsson. Í aftursætinu sitja Þór Vigfússon og Sigurður Hreiðar Hreiðarsson aftan við bílstjórann.
Thomsensbíln-
um ekið um
götur Selfoss
Selfossi. Morgunblaðið.
TÓNLISTARKENNARAR fluttu í
gær hljóðlaust tónverk í húsnæði
ríkissáttasemjara, auk þess sem þeir
afhentu áskorun frá Félagi tónlistar-
skólakennara og Félagi íslenskra
hljómlistarmanna, þar sem lýst er
yfir „megnri óánægju með vinnu-
brögð og áhugaleysi samninga-
nefndar launanefndar sveitarfélaga í
yfirstandandi samingaviðræðum við
tónlistarskólakennara“, eins og seg-
ir í áskoruninni. Þar ítreka tónlistar-
kennarar jafnframt þá kröfu að
„störf þeirra og menntun verði met-
in að verðleikum og grunnlaun
hækkuð til samræmis við laun ann-
arra kennara í landinu“.
Á fundi FT og FÍH í gær var svo
samþykkt að hvetja tónlistarkenn-
ara til að taka ekki þátt í tónlist-
arflutningi 17. júní.
Fluttu hljóðlaust verk
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, pí-
anóleikari og tónlistarkennari, segir
í samtali við Morgunblaðið að áskor-
unin hafi verið lögð fram í gær í upp-
hafi samningsfundar, til að sýna
samningsfulltrúum tónlistarkennara
stuðning.
„Í tilefni dagsins fluttum við hljóð-
laust verk undir stjórn Bernharðs
Wilkinsonar fyrir launanefndina og
má segja að þetta tónverk sé for-
smekkurinn að því hvernig tónlist-
arflutningur framtíðarinnar kæmi til
með að hljóma, ef svo illa færi að
tónlistarkennara nyti ekki lengur
við,“ segir Steinunn Birna. „Það er
þrálátur orðrómur um að tónlistar-
flutningur sé byggður á fullsköpuð-
um meðfæddum hæfileikum og þann
orðróm er okkur mikið í mun að
kveða niður. Raunin er sú að þetta
er þrotlaus þjálfun og langt og
strangt nám og á því byggjum við
okkar launakröfur.“
Tónlistarkennarar taki ekki
þátt í tónlistarflutningi 17. júní
Í gær samþykktu félagsmenn FT
og FÍH á fundi sínum, að hvetja tón-
listarkennara til að taka ekki þátt í
tónlistarflutningi 17. júní.
„Mörg okkar sem voru á fundin-
um hafa þegar aflýst sínum tónlist-
arflutningi, en 17. júní er einn af
þessum dögum þar sem tónlistar-
flutningur er hvað mest áberandi.
Það myndi muna mjög miklu ef ekki
hljómaði tónlist á þjóðhátíðardaginn
og þarna er aftur verið að gefa for-
smekkinn að því sem yrði ef enginn
kynni að spila á hljóðfæri,“ segir
Steinunn Birna.
Ekki ljóst hversu
víðtæk áhrifin verða
Hún segir að ekki sé komið í ljós
hversu víðtæk áhrif þessa verði, en
ljóst sé að tónlistarflutningur á
þjóðhátíðardaginn muni raskast að
einhverju leyti. Steinunn Birna segir
að tónlistarkennarar nýti sér aðferð-
ir sem þessar til að vekja athygli á
málstað sínum þar sem þeir séu í
annarri aðstöðu en aðrir kennarar.
Það valdi ekki sama usla í þjóðfélag-
inu ef tónlistarkennarar legðu niður
kennslu, en afleiðingar þess yrðu
hins vegar mjög alvarlegar þegar til
langtíma væri litið.
„Fólk gerir sér ekki endilega
grein fyrir því hvað tónlist er sterk-
ur og mikilvægur þáttur og það er
kannski ekki fyrr en hún þagnar að
það heyrir að eitthvað vantar,“ segir
Steinunn Birna.
Tónlistarkennarar flytji
ekki tónlist 17. júní
Morgunblaðið/Billi
Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari afhendir Þóri Einarssyni
ríkissáttasemjara áskorun frá Félagi tónlistarskólakennara.
Félag tónlistarskólakennara lýsir óánægju með gang samningaviðræðna
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Bergþóru Guðmundsdóttur í 12
ára fangelsi fyrir að hafa orðið
Hallgrími Elíssyni að bana í
íbúð á Leifsgötu 10 í Reykjavík
hinn 23. júlí í fyrra. Til frádrátt-
ar kemur samfellt gæsluvarð-
hald hennar frá 24. júní í fyrra.
Henni er einnig gert að greiða
allan áfrýjunarkostnað, þar með
talin málsvarnarlaun verjanda
síns fyrir Hæstarétti. Héraðs-
dómur dæmdi Bergþóru í 14 ára
fangelsi 30. mars síðastliðinn.
Bergþóra var ákærð fyrir
manndráp með því að hafa ráð-
ist á Hallgrím þar sem hann lá á
dýnu á gólfi, sest klofvega ofan á
hann og þrengt að hálsi hans þar
til hann lést. Atvikið átti sér stað
þar sem þau sátu ásamt fleira
fólki við drykkju og voru allir
undir verulegum áhrifum áfeng-
is eða vímuefna.
Ekki öðrum til að dreifa
Hæstiréttur taldi fram komið,
svo að ekki yrði véfengt með
skynsamlegum rökum, að Berg-
þóra hefði veitt Hallgrími þá
áverka sem ollu bana hans og að
ekki hefði þar öðrum verið til að
dreifa. Hæstiréttur féllst á það
með héraðsdómi, að í upphafi
hefði það ekki verið ásetningur
Bergþóru að verða Hallgrími að
bana. Hún var talin sakhæf og
að fullu fær um að stjórna gerð-
um sínum þótt hún hafi verið
undir miklum áhrifum fíkniefna,
áfengis og róandi lyfja. Við
ákvörðun refsingar var höfð
hliðsjón af sakarferli ákærðu, en
hún hefur hlotið átta refsidóma.
12 ára
fangelsi
fyrir
manndráp