Morgunblaðið - 15.06.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
–
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
utanríkisráðuneytisins um áhrif af
stækkun Evrópusambandsins á
stöðu Íslands innan Evrópska efna-
hagssvæðisins.
Með fyrirhugaðri stækkun ESB
fjölgar aðildarlöndum sambandsins
úr 15 í 27. Í skýrslu utanríkisráðu-
neytisins er einungis fjallað um
stækkunina út frá samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið. Var leit-
að sjónarmiða hinna ýmsu ráðuneyta
Stjórnarráðsins um áhrif stækkunar
ESB á þá málaflokka EES-samn-
ingsins sem undir þau heyra. Meg-
inniðurstaða skýrsluhöfunda er sú,
að útlit sé fyrir að stækkun ESB
muni hafa frekar jákvæð áhrif fyrir
Ísland og íslenska atvinnustarfsemi,
þó með þeirri undantekningu sem
snýr að tollfrelsi fyrir vissar sjávar-
afurðir. Fram kemur í skýrslunni að
viðskipti Íslands við umsóknarlöndin
eru lítil og nánast hverfandi miðað
við viðskiptin við ESB en skýrsluhöf-
undar benda á að þessi umsóknar-
lönd í Mið- og Austur-Evrópu séu
mjög áhugaverður markaður fyrir
sjávarafurðir og þegar fram í sækir
muni þau væntanlega verða stór og
góður markaður fyrir fisk og fiskaf-
urðir.
Við aðild þeirra að ESB munu
ýmsir vöruflokkar sjávarfangs, sem
njóta nú tollfrelsis, bera tolla. „Mest-
ur er munurinn á síld, makríl, hörpu-
diski, humar og unnum laxaafurðum,
en tollar í þessum vöruflokkum eru
yfirleitt á bilinu 12 til 20%, og allt
upp í 25%. Þó nokkrir tollar eru enn-
fremur á nokkrum öðrum vöruflokk-
um svo sem flökum af karfa, túnfiski,
ýmsum flatfisktegundum og steinbít
og er þá ekki allt talið. Hér eru því á
VIÐ stækkun Evrópusambandsins
munu fríverslunarsamningar sjávar-
afurða sem Ísland hefur við flest um-
sóknarlandanna falla úr gildi og aðild
þeirra að ESB hafa í för með sér
verri viðskiptakjör í viðskiptum við
þessi lönd. Ástæðan er sú að ýmsir
vöruflokkar sjávarfangs, sem njóta í
dag tollfrelsis í útflutningi til þessara
umsóknarlanda í Mið- og Austur-
Evrópu, munu bera tolla eftir að þau
verða aðilar að ESB skv. samningum
Íslands við bandalagið.
ferðinni verulega verri viðskipta-
kjör. Sem stendur hefur Ísland betri
markaðskjör en aðildarlönd ESB,
sem ekki njóta tollfrelsis með þeim
hætti sem fríverslunarsamningar
EFTA veita okkur. Eftir aðild mun
þetta snúast gjörsamlega við, því að
þá munu núverandi aðildarlönd ESB
ekki þurfa að greiða tolla af sölu
sinni til þessara landa, sem eru þá
orðin hluti af innri markaðnum, en
Íslendingar mæta þeim tollum sem
áður eru raktir og gilda í viðskiptum
okkar við ESB.
Þegar Finnland, Svíþjóð og Aust-
urríki gerðust aðilar að ESB samdi
Ísland um bætur fyrir skerta frí-
verslun með fisk við ESB. Þessir
samningar miðuðust við útflutning
Íslands til þessara þriggja landa á
næstliðnum þremur árum og var
ákveðinn innflutningskvóti með eng-
um tolli, sem samsvaraði meðalút-
flutningi á nefndu árabili fyrir þær
fiskafurðir, sem höfðu verið toll-
frjálsar en lentu nú í tolli. Þetta geta
ekki talist fullar bætur, því að ekki er
gert ráð fyrir mögulegum vexti
markaðarins. Ennfremur eru kvóta-
kerfin í sjálfu sér viðskiptahindrun,
því að þau flækja viðskiptin og gera
þau óaðgengilegri. Svona niðurstaða
er enn fjær því að teljast fullnægj-
andi varðandi viðskiptin við þau lönd,
sem nú eru á leiðinni inn í ESB,
vegna þess að augljóslega eiga þessir
markaðir eftir að vaxa ört með batn-
andi lífskjörum,“ segir í skýrslunni.
Sækja verulegar viðbætur í
markaðsaðgangi
„ Að öllu samanlögðu verður Ís-
land að sækja mjög verulegar við-
bætur í markaðsaðgangi fyrir sjáv-
arafurðir í hinu stækkaða ESB. Mun
þá alls ekki duga að bjóða sömu
formúlu og notuð var þegar síðasta
stækkun ESB átti sér stað. Svíþjóð,
Finnland og Austurríki voru með vel
þróuð og öflug hagkerfi og markað
fyrir sjávarafurðir sem var fullmót-
aður og stöðugur. Hin nýju aðildar-
lönd hafa undanfarið og eru enn að
ganga í gegnum kreppu aðlögunar
og stefna í mikinn hagvöxt. Sá mark-
aður sem ekki hefur verið fyrir hendi
og skýrir lítinn útflutning til um-
sóknarlandanna mun aukast og efl-
ast á komandi árum og verða sífellt
mikilvægari. Aðildin mun væntan-
lega flýta fyrir þeirri þróun, en þró-
unin mundi hafa átt sér stað þótt
ekki kæmi til aðildar. Endurbætur í
markaðsaðgangi fyrir sjávarafurðir í
hinu stækkaða ESB verða að taka
mið af þessum vexti, en ekki vera á
fortíðargrunni eins og við síðustu
stækkun ESB. Það væri bæði ósann-
gjarnt og óviðunandi. Utanríkisráð-
herra og utanríkisþjónustan hafa
kappkostað að koma þessum sjónar-
miðum Íslands á framfæri við fram-
kvæmdastjórn ESB og ríkisstjórnir
bæði aðildarlandanna og umsóknar-
landa,“ segir í samandreginni niður-
stöðu skýrslunnar.
Líklegt að rekstur EES-
samnings verði erfiðari
Þá kemur fram í umfjölluninni að
líklegt sé að stækkun ESB muni
gera rekstur EES-samningsins erf-
iðari og EFTA-ríkin þurfi meira á sig
að leggja til þess að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri og hafa
þann aðgang að nefndastarfi og öðr-
um málatilbúnaði sem nauðsynlegur
sé.
Skýrsla um áhrif stækkunar ESB á stöðu Íslands innan EES
Viðskiptakjör við umsókn-
arlöndin versna að óbreyttu
KARLMAÐUR var í gær dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir pen-
ingaþvætti. Héraðsdómur Reykjavík-
ur fann hann sekan um að hafa tekið
við og geymt yfir fimm milljónir
króna fyrir einn höfuðpaura í stóra
fíkniefnamálinu svokallaða. Maðurinn
hafi vitað að peningarnir væru af-
rakstur fíkniefnaviðskipta. Refsingin
er skilorðsbundin í tvö ár.
Samkvæmt ákæru, sem efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra gaf út,
framdi maðurinn brot sín á árunum
1997 til 1999. Maðurinn neitaði að
hafa vitað að féð væri ávinningur
fíkniefnaviðskipta. Við aðalmeðferð
málsins sagðist hann hafa talið að
peningarnir væru gróði af fasteigna-
viðskiptum Sverris Þórs Gunnarsson-
ar, sem hlaut einn þyngsta dóminn
fyrir aðild sína að stóra fíkniefnamál-
inu. Í rauninni hafi hann þó ekki hugs-
að mikið út í það.
Geymdir í bankahólfi
Maðurinn játaði hins vegar að hafa
tekið við peningunum sem hann
geymdi í bankahólfi í Íslandsbanka í
Kópavogi. Sverrir Þór lét hann fá
peningana í ógagnsæjum plastpokum
og umslögum. Maðurinn sagðist
aldrei hafa talið peningana og ekki
vitað hvað þetta voru miklar fjárhæð-
ir. Í niðurstöðu dómsins segir að mað-
urinn hafi farið fjölmargar ferðir í
bankahólfið fyrir Sverri Þór. Féð sem
þar var geymt var sannanlega ávinn-
ingur af fíkniefnsölu. Við meðferð
málsins og við yfirheyrslur lögreglu
hafi maðurinn orðið tvísaga um hvort
hann hafi vitað að féð var ávinningur
af fíkniefnasölu. Hjá lögreglu og við
þingfestingu málsins sagði hann að
um vorið hefði hann verið farið að
gruna að ekki væri allt með felldu
með þessa peninga. Við aðalmeðferð-
ina breytti hann framburði sínum og
sagðist hafa orðið áhyggjufullur eftir
að Sverrir Þór var handtekinn.
Dómnum þótti þessi skýring hans
ekki trúverðug né heldur að hann
hefði talið féð vera ávinning fast-
eignaviðskipta. Í ljósi hinna háu upp-
hæða og tortryggilegs geymslumáta
væri heldur ekki trúverðugt að hann
hafi talið féð vera undanskot frá skatti
eða vegna gjaldþrots. Maðurinn gæti
ekki komist undan refsingu þótt hann
hafi ekki leitað upplýsinga um hvaðan
féð hefði verið komið. Maðurinn var
því dæmdur í fjögurra mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til að greiða
verjanda sínum, Helga Birgissyni
hrl., 170.000 krónur í málsvarnarlaun.
Jón H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
sótti málið. Hjördís Hákonardóttir
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Geymdi fimm milljónir
króna af fíkniefnagróða
FLÓASTELKUR (Tringa glaerola)
sást út um gluggann hjá fuglaskoð-
aranum Hlyni Óskarssyni á Stokks-
eyri nú í vikunni. Þar dvaldi hann
við litla lífríka tjörn ásamt fjölda
annarra vaðfugla. Er ljósmyndari
kom á staðinn til að mynda fuglinn
hafði annar flækingsvaðfugl, spóa-
títa (Calidris ferruginea), bæst í
hópinn. Spóatítan var ekki í rauð-
um sumarskrúða eins og við hefði
mátt búast heldur í gráleitum vetr-
arbúningi. Flóastelkur einkennist
af mjóslegnu vaxtarlagi, hvítri
brúnarrák og gulgrænum fótum.
Spóatítu má þekkja á löngu bognu
nefi og hvítum gumpi. Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Flækingar á
Stokkseyri
Óð reyk
á hóteli í
Toronto
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
þurfti að yfirgefa hótel sitt í Toronto
í Kanada í skyndingu aðfaranótt
sunnudags, þar sem brunavarna-
kerfi fór í gang. Að sögn Halldórs
Haukssonar, eins kórfélaga, var um
minniháttar bruna að ræða og sakaði
engan.
„Menn höfðu ekki nema rétt fest
blund þegar brunavarnakerfi hótels-
ins fór í gang. Ferðaþreyttir og
svefndrukknir kórfélagar þustu
ásamt öðrum hótelgestum niður
brunastigana og óðu reyk á neðstu
hæðunum til að komast út á götu.
Þar biðu menn í óvissu nokkra stund
og reyndu að gera sér grein fyrir því
hvort einhvern úr hópnum vantaði,“
sagði Halldór.
Ekki stórbruni
„Til allrar hamingju kom fljótlega
í ljós að ekki var um stórbruna að
ræða. Að því er best verður komist
hafði verið kveikt í rusli fyrir utan
hótelið. Hitinn sprengdi rúður í
þvottahúsi hótelsins og þannig barst
reykur inn í bygginguna. Þegar
gengið hafði verið úr skugga um að
allt væri með felldu var hótelgestum
hleypt í herbergi sín á ný.“
Kórfélagar létu þetta óskemmti-
lega næturbrölt ekki á sig fá og skil-
uðu sínu, að sögn Halldórs, með
sóma á tónleikum í St. James-dóm-
kirkjunni daginn eftir.
Mótettukórinn er í tveggja vikna
tónleikaferðalagi um Kanada um
þessar mundir.
Mótettukór
Hallgrímskirkju
Sólveig Pét-
ursdóttir til
Litháen
SÓLVEIG Pétursdóttir dóms-
málaráðherra hélt í gær til
Litháen þar sem hún mun
sækja ráðstefnu um konur og
lýðræði. Er hún framhald af
ráðstefnunni Konur og lýðræði
við árþúsundamót sem haldin
var hér á landi í október árið
1999.
Um 500 manns frá 13 ríkjum
hefur verið boðið að taka þátt í
ráðstefnunni. Mun dómsmála-
ráðherra stýra vinnuhópi á ráð-
stefnunni, um konur og leið-
togahlutverkið, og tekur hún
þátt í pallborðsumræðum um
verslun með konur ásamt ráð-
herrum frá hinum Norðurlönd-
unum og Eystrasaltsríkjunum.