Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!"
# $$#%% KÖLD og vætusöm tíð á landinu upp
úr miðjum maí tók að mestu fyrir
alla frjódreifingu samkvæmt frjó-
mælingu Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands í Reykjavík og á Akureyri í
maí, en frjókorn dreifast jafnan best
í þurrviðri.
Sunnanlands hafa lyng- og víðifrjó
verið í loftinu frá maíbyrjun, en mæl-
ingar í Reykjavík hófust 1.maí og
fyrstu asparfrjóanna varð vart 6.
maí.
Köld tíð veldur því að frjótölur
eru lægri í ár en í fyrra
Birkifrjó mældust stopult frá 10.
til 25. maí, en eftir það mældust þau
stöðugt þó svo að frjótölur hafi verið
lágar. Meðallengd frjótíma birkis er
tæpar þrjár vikur og samkvæmt því
ætti frjódreifingu birkis að vera lok-
ið nú fyrir miðjan mánuðinn á
Reykjavíkursvæðinu. Á Akureyri
hlýnaði skyndilega í byrjun maí og
voru lyng-, víði- og asparfrjó komin í
loftið þegar mælingar hófust þann 9.
maí.
Fyrstu birkifrjóin mældust 11.
maí en duttu niður þegar kuldakast-
ið gerði um miðjan mánuðinn og hef-
ur köld tíð undanfarið orðið til þess
að frjótölur í ár eru mun lægri en í
fyrra.
Birkifrjó helsti ofnæmisvaldur í
nágrannalöndum
Birkifrjó eru aftur á móti helsti of-
næmisvaldurinn á hinum Norður-
löndunum.
Þó að hér á landi séu það grasfrjó
sem eru skæðust. Frjótölur þeirra
eru hæstar í júlí og ágúst og geta
frjóin þá valdið þeim sem haldnir eru
ofnæmi fyrir grasfrjói vanlíðan, ef
ekki er gripið til viðeigandi lyfjameð-
ferðar.
Grasfrjó skæð-
asti ofnæmis-
valdurinn
Frjómælingar Náttúrufræðistofn-
unar í Reykjavík og á Akureyri
HÁLENDISVEGIR hafa margir
verið opnaðir en nú er orðið fært
yfir Kjalveg, Þorskafjarðarheiði,
Dómadalsleið, Sigöldu, Fjallabaks-
leið nyrðri, Tröllatunguheiði,
Steinadalsheiði, Arnarvatnsheiði og
þar að auki voru Kaldidalur og
Uxahryggir opnaðir fyrir umferð í
gær, samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni.
Að sögn starfsmanns Vegagerð-
arinnar eru hálendisvegir opnaðir
heldur fyrr núna en oft hefur verið,
en ennþá eru margir vegir lokaðir
þó flestir séu þeir fremur fáfarnir.
Meðal leiða sem enn eru lokaðar
eru Sprengisandsleið sem og allar
leiðir norðan Vatnajökuls.
Margir
hálendis-
vegir opnir
!
"# $
#
%
$
$
&'''!"#$
%$
HINN tíræði Skógstrendingur,
Guðmundur Daðason, er nú
staddur í Danmörku sem er ekki
í frásögur færandi nema sakir
þess að hann hefur aldrei áður út
fyrir landsteina komið.
Guðmundur notaði gærdaginn
til að ganga um Íslendingaslóðir í
Kaupmannahöfn undir leiðsögn
Guðlaugs Arasonar, rithöfundar
og leiðsögumans hjá Islands Cen-
ter. Þegar blaðamaður náði tali
af Guðmundi í gær var hann
staddur fjallhress í íslenska
sendiráðinu í Kaupmannahöfn
þar sem hann þáði veitingar.
„Ég valdi Danmörku fram yfir
önnur lönd vegna þess að hér á
dóttursonur minn, Þorri Þráins-
son, og fjölskylda heima en ég
dvel hjá þeim þennan vikutíma
sem ég verð hér,“ segir Guð-
mundur.
Aðspurður af hverju hann hefði
tekið upp á því að fara til útlanda
í fyrsta skipti á þessum aldri
sagði hann ómögulegt að deyja
ósigldur á þessari nýju öld. Þá
hefði hann fengið mikla hvatn-
ingu frá fjölskyldunni og ætlaði
að fara aftur til Danmerkur þeg-
ar jarðarberin væru orðin þrosk-
uð. Þessi fyrsta ferð til útlanda
væri því bara byrjunin.
Guðmundur er búsettur í
Garðabæ og fer daglega í göngu-
ferðir. Tæplega fjögurra tíma
gönguferð í Kaupmannahöfn
fannst honum því ekkert tiltöku-
mál en hann gat þess þó að nóg
væri af góðum áningarstöðum
enda væri það nauðsynlegt.
Gönguferðin byrjaði við járn-
brautarstöðina og hafði hann
m.a. gengið fram hjá tívolíinu
sem honum fannst mikið til koma.
Þá hlakkaði hann til að skoða
Jónshús en þangað lá leiðin m.a.
eftir áningu í sendiráðinu.
Í fyrstu utanlandsferðinni á 101. aldursári
Ljósmynd/Francis Dean
Guðmundur og afkomendur í þrjá ættliði nutu leiðsagnar Guðlaugs Arasonar.
Ætlar aftur út þegar
jarðarberin verða þroskuð
Guðmundur heilsar upp á Helga Ágústsson sendiherra og
konu hans Hervöru Jónasdóttur.