Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 19
SÝNING á 66 Akureyrarljós-
myndum Gísla Ólafssonar
verður opnuð í Minjasafninu
á Akureyri sunnudaginn 17.
júní kl. 15. Gísli starfaði um
árabil sem lögregluþjónn og
síðan yfirlögregluþjónn á Ak-
ureyri. Hann kynntist vel
mannlífinu í bænum og lifði
þær þjóðfélagsbreytingar og
uppbyggingu sem varð á ára-
tugunum eftir stríð og vann
íslensku samfélagi mikið gagn
með því að festa þá sögu á
ljósmyndir sem nú eru í
vörslu Minjasafnsins á Akur-
eyri. Á sýningunni eru 66
ljósmyndir sem er aðeins lítið
brot af myndasafni Gísla.
Myndirnar á sýningunni
tengjast flestar á einhvern
hátt sögu
Akureyrar frá umræddum
tíma. Á þeim má sjá fólk að
störfum, börn í námi og leik
og ýmis atvik úr þróunarsögu
bæjarins. Myndir frá hvers-
dagslegum atburðum og tylli-
dögum.
Sýningin verður opin fram
á haust og í sumar verður
Minjasafnið á Akureyri opið
alla daga frá klukkan 11.00 –
17.00.
Sýning á
ljósmynd-
um Gísla
Ólafssonar
Minjasafnið
á Akureyri
KÖNNUN á vegum Akureyrarbæj-
ar á atvinnuhorfum skólafólks, 17
ára og eldra leiddi í ljós að enn eru 47
einstaklingar án vinnu í sumar. Nið-
urstaða könnunarinnar var kynnt á
fundi bæjarráðs í gær
Bæjarráð samþykkti á þeim fundi
að gefa þeim einstaklingum sem um
ræðir kost á 6 vikna vinnu í sumar.
Áætlaður kostnaður ef allir þeir sem
skráðir eru nýta það tilboð er 7,2
milljónir króna. Fjármögnun er vís-
að til endurskoðunar fjárhagsáætl-
unar.
47 enn ekki fengið vinnu
Atvinnuhorfur skólafólks
SUMARTÓNLEIKAR verða
haldnir í Laugaborg í Eyja-
fjarðarsveit á morgun, laugar-
daginn 16. júní, kl. 15.
Þar koma fram þær Gerður
Bolladóttir sópransöngkona og
Júlíana Rún Indriðadóttir
píanóleikari. Á efnisskrá eru
verk eftir Samuel Barber, þar á
meðal „Knoxville: Summer of
1915“, sem er þekktasta verk
þessa dáða bandaríska tón-
skálds, og sex sönglög eftir Jór-
unni Viðar. Þær eiga báðar
rætur að rekja til Eyjafjarðar.
Gerður ólst upp á Laufási en
Júlíana er ættuð frá Ólafsfirði.
Gerður lauk burtfararprófi
undir handleiðslu Sigurðar De-
metz Franssonar árið 1995.
Frá árinu 1995 til ársloka 2000
stundaði hún nám í Bandaríkj-
unum við Indiana University,
School of Music, Bloomington,
þar sem aðalleiðbeinandi henn-
ar var Klara Barlow.
Júlíana Indriðadóttir lauk
einleikaraprófi árið 1989 frá
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar þar sem aðalkennari
hennar var Brynja Guttorms-
dóttir. Á árunum 1989–94
stundaði hún framhaldsnám í
Berlín undir leiðsögn prófess-
ors Georg Sava. Eftir tveggja
ára dvöl hérlendis hélt Júlíana
til náms við Indiana University,
School of Music, Bloomington.
Þar var hún undir handleiðslu
Jeremy Denk og Edward Auer
og lauk meistaragráðu árið
1998. Júlíana vinnur við
kennslu undirleik og kórstjórn í
Reykjavík. Árið 1995 hlaut
Júlíana Tónvakaverðlaun Rík-
isútvarpsins.
Sumartón-
leikar í
Laugaborg
„GRASIÐ er vel sprottið og þétt,
þannig að það er ekki yfir neinu
að kvarta,“ sagði Viðar Þor-
steinsson bóndi á Brakanda í
Hörgárdal, en hann hóf slátt á
þriðjudag, fyrstur manna í Eyja-
firði.
Hann var ásamt heimafólki að
slá spildu norðan við bæinn í gær-
morgun og sagði að þar væri svo-
nefnt háliðagras, en það sprytti
hratt og fljótt á vorin og því þyrfti
að slá það snemma. „Það verður
að slá þetta gras snemma, svo fóð-
urgildið haldist fyrir skepnurnar.
Það má ekki spretta um of ef það
á að vera nógu gott fyrir mjólk-
urkýrnar,“ sagði Viðar.
Hann sagði að lofthitinn mætti
vera meiri, er fremur kalt hefði
verið í veðri nánast allt vorið og
fram á sumar. „Hefði þessi góði
kafli ekki komið í byrjun maí vær-
um við ekki að slá núna,“ sagði
Viðar, en sá óvenjulegi atburður
átti sér stað eftir fyrsta sláttudag-
inn að grasið var hvítt af hélu þeg-
ar hefjast átti handa að morgni
dags. „Ég man ekki til þess að
slíkt hafi gerst áður,“ sagði Viðar.
Hann taldi að bændur myndu úr
þessu hefja slátt hver af öðrum.
Oft hefðu menn viljað fá góða
sprettu, en „en menn mega ekki
bara hugsa um magnið, það eru
gæðin sem skipta mestu,“ sagði
Viðar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Viðar Þorsteinsson bóndi á Brakanda í Hörgárdal grípur til hrífunnar í gær þegar hey var tekið saman á túni
hans í gær. Viðar er fyrstur í Eyjafirði til að slá þetta sumarið.
Sláttur hófst í vikunni á Brakanda í Hörgárdal
Gæðin mikilvægari en magnið
Hörgárbyggð
AÐALFUNDUR Lífeyris-
sjóðs Norðurlands sem hald-
inn var nýlega samþykkti
ályktun um að kostir og gall-
ar aldurstengdrar réttindaá-
vinnslu yrðu kannaðir.
Fram til þessa hafa áunnin
réttindi verið jöfn hjá lífeyr-
issjóðum á Íslandi, þ.e. ungur
greiðandi fær sömu réttindi
og gamall greiðandi fyrir
sama iðgjald, þó iðgjald unga
greiðandans eigi eftir að
ávaxtast mun lengur. Þetta
kemur fram á heimasíðu
sjóðsins.
Þar segir ennfremur að
gagnrýnisraddir hafi heyrst
um að þetta leiði m.a. til þess,
að efnameiri einstaklingar
geti lagt mikla fjármuni inn í
sjóðina á síðustu árum starfs-
ævinnar og þannig notið mun
meiri lífeyrisréttinda en rétt-
mætt sé og yngri greiðend-
urnir standi undir kostnaðin-
um. Af þessum ástæðum eru
einstaka sjóðir farnir að
bjóða upp á áunnin aldurs-
tengd réttindi í sérstökum
deildum.
Aldurs-
tengd rétt-
indaöflun
til skoðunar
Lífeyrissjóður
Norðurlands
HILMAR Kristjánsson, sjómaður,
gaf á dögunum Náttúrugripasafninu
í Ólafsfirði svokallaðan töskukrabba.
Það er dýrategund sem finnst neð-
ansjávar! Hilmar hefur átt þetta ein-
tak í tæp tuttugu ár en ákvað nú að
gefa það safninu vegna plássleysis
heimafyrir. Nú er um að gera fyrir
fólk að leggja leið sína í Náttúru-
gripasafnið og berja þennan krabba
augum, en þar er margt forvitnilegt
að sjá, t.a.m. uppstoppaður ísbjörn
og margar tegundir fugla.
Náttúru-
gripasafnið
fær tösku-
krabba
Hilmar Kristjánsson afhendir
Öldu M. Traustadóttur gjöfina.
Ólafsfjörður