Morgunblaðið - 15.06.2001, Síða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 21
Á SÍÐASTA fundi hreppsnefndar
Fljótsdalshrepps sagði oddvitinn Jó-
hann F. Þórhallsson sagði starfinu
lausu og hyggst hverfa aftur til fyrri
starfa hjá Héraðsskógum.
Við oddvitastarfinu tekur Gunn-
þórunn Ingólfsdóttir, Víðivöllum
fremri.Vegna undirbúnings Kára-
hnjúkavirkjunar hafa verið mikil og
margþætt umsvif hér í sveit á und-
anförnum mánuðum.
Síðastliðinn vetur var hafinn und-
irbúningur að byggingu brúar yfir
Jökulsá í Fljótsdal við Gilsáreyrar,
sem er mikið mannvirki og hafa
steyptir staurar, sem eiga að bera
hana uppi, þegar verið reknir niður.
Auk þess er unnið að byggingu nýrra
brúa yfir Bessastaðaá og Hengifossá
og áætlað er að brúa Gilsá einnig.
Oddvita-
skipti
í Fljótsdal
Fljótsdalur
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Brúargerð við Hengifossá.
BÖRNIN á Tjarnarlandi fóru um
daginn í skrúðgöngu frá leikskól-
anum sínum og að íþróttaleikvangi
Egilsstaða. Þar fóru fram Tjarn-
arlandsleikarnir sem voru eins kon-
ar upphitun fyrir Landsmót UMFÍ á
Egilsstöðum í sumar. Eftir teygjur
og beygjur, fettur og brettur til að
hita upp litla kroppa var farið í
ýmsar þrautir þar sem hver gerði
eftir bestu getu og hlutu allir þátt-
tökuverðlaun að móti loknu.
Leikskólabörn taka
forskot á Landsmót
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Tápmiklir keppendur á Tjarnarlandsleikum sem fram fóru á íþrótta-
leikvangi Egilsstaðabæjar fyrir skemmstu.
Börnin á leikskólanum Tjarnarlandi gengu fylktu liði að íþróttaleik-
vanginum á Egilsstöðum, þar sem háðir voru Tjarnarlandsleikar.
ANDRÉS Sigmundsson, ritstjóri og
ábyrgðarmaður Nýja Eyjamanns-
ins, er mjög ósáttur við ummæli
sem höfð voru eftir Guðjóni Hjör-
leifssyni, bæjarstjóra í Vestmanna-
eyjum, í Morgunblaðinu á miðviku-
dag varðandi tilgang skrifa
Andrésar.
„Hann ýjar að því að ég sé að
setja blaðið fram til að spilla fyrir
fyrirtæki sem hugsanlega er á leið
til Vestmannaeyja,“ segir Andrés.
Andrés segir að hefði hann fengið
að ráða hefði blaðið verið viku til tíu
dögum fyrr á ferðinni, en útgáfa
þess hafi tafist í prentsmiðjunni.
„Þá er fulltrúi þessa fyrirtækis
sem á í samningum í Vestmanna-
eyjum bróðurdóttir mín og að láta
sér detta það í hug að ég sé að
reyna að spilla fyrir henni og henn-
ar fyrirtæki er bara af og frá.“ Auk-
inheldur segir Andrés að komi til
reksturs umrædds fyrirtækis í
Vestmannaeyjum verði það staðsett
við hlið hans eigin fyrirtækis og
myndi eflaust verða til að styrkja
það. „Mér finnst sárt að sitja undir
því þegar menn búa svona nokkuð
til,“ segir Andrés.
Hann segir skrifin um skulda-
stöðu bæjarins í Nýja Eyjamann-
inum í ætt við þá sem sjálfstæð-
ismenn í Reykjavík hafa haldið á
lofti um skuldir borgarinnar. Að
öðru leyti vill hann ekki tjá sig um
ummæl Guðjóns Hjörleifssonar.
Sárt að
sitja undir
slíkum
tilbúningi
Vestmannaeyjar