Morgunblaðið - 15.06.2001, Qupperneq 23
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 23
annars vegar til það sem nefnt er hér
að ofan um tilkynningu á eignarhlut
Jóns Ólafssonar og hins vegar það að
27. mars síðastliðinn seldi Íslands-
banki 9,93% eignarhlut.
Jón Ólafsson og co. sf. en ekki Jón
Ólafsson var kaupandi bréfanna
Í gær birtist á Verðbréfaþingi bréf
frá Hilmari S. Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra Jóns Ólafssonar og co.
sf., þar sem hann segir fyrrnefndar
tilkynningar um kaup Jóns rangar.
Jón eigi ekki persónulega neitt í Ís-
lenskum aðalverktökum og þau bréf
sem fjallað var um í tilkynningunum
tveimur hafi Jón Ólafsson og co. sf.
keypt en ekki Jón sjálfur. Í bréfi
Hilmars segir meðal annars:
„Það staðfestist hér með að Jón
FRAMKVÆMDASTJÓRI Jóns
Ólafssonar og co sf., Hilmar S. Sig-
urðsson, hefur sent Verðbréfaþingi
Íslands bréf þar sem fram kemur að
Jón Ólafsson, stjórnarmaður í Ís-
lenskum aðalverktökum og stjórnar-
formaður Norðurljósa, eigi persónu-
lega engan hlut í Íslenskum
aðalverktökum en áður höfðu birst
fréttir á Verðbréfaþingi um að eign-
arhlutur Jóns væri 8,83%.
Áður en ríkið hóf sölu á hlut sínum
í Íslenskum aðalverktökum haustið
1998 setti utanríkisráðuneytið þá
reglu, að enginn hluthafi, að ríkinu
undanskildu, skyldi eiga meira en 7%
hlutafjár í félaginu. Var þetta skilyrði
fyrir tilnefningu Íslenskra aðalverk-
taka til verktöku fyrir Varnarliðið, en
sú verktaka er stór þáttur í starfsemi
félagsins þó verktaka fyrir aðra hafi
farið vaxandi.
Samkvæmt fréttum á Verðbréfa-
þingi Íslands hf. að undanförnu virð-
ist þessi regla um 7% hámarkseign-
araðild hafa verið brotin, þar kemur
Ólafsson á ekki persónulega neinn
eignarhlut í Íslenskum aðalverktök-
um.
Það óskast hér með að Verðbréfa-
þing Íslands birti leiðréttingu á til-
kynningum dagsettum 25.05. 2001 og
08.06. 2001 frá verðbréfafyrirtæki
um að hann persónulega hafi keypt
nafnverð hlutafjár kr. 9.000.000
25.05.2001 og kr. 626.191 08.06. 2001.
Staðreyndin er sú að það var félag að
hluta til í hans eigu, Jón Ólafsson og
co sf sem keypti þessi hlutabréf og á
það félag nú 0.69% í Íslenskum að-
alverktökum.“
Í bréfinu er einnig staðfest að tvö
önnur félög, sem Jón Ólafsson hafi
stofnað ásamt fleiri fjárfestum, eigi
einnig hlut í Íslenskum aðalverktök-
um. Þetta séu Nasalar Consultancy
Limited, sem eigi 2,93%, og Jamieton
International Limited, sem eigi 7%.
Íslandsbanki fór yfir mörkin
Jón Sveinsson, stjórnarformaður
Íslenskra aðalverktaka, sagði í gær-
kvöld að félagið hafi í fyrradag sent
bréf til Jóns Ólafssonar til að leita
upplýsinga, en ekkert svar hefði enn
borist.
Jón Sveinsson sagði aðspurður að
það væri rétt að Íslandsbanki hafi á
ákveðnum tíma farið yfir 7% mörkin,
eins og nefnt er hér að ofan. Íslenskir
aðalverktakar hafi séð þetta á hlut-
hafalista sínum og hafi að fyrra
bragði gert athugasemdir við það.
Hann sagði að þeirri eign hafi í fram-
haldi af athugasemdunum verið skipt
upp og meðal annars lent í sjóðum á
vegum bankans. Ekki lægi fyrir
hvernig túlka bæri regluna þegar
eign væri skipt upp með slíkum
hætti, en félagið gerði ekki athuga-
semdir nema einn lögaðili færi yfir
7% eignarhlut.
Reglur um hámarkseign í Íslenskum
aðalverktökum hafa verið brotnar
Framkvæmdastjóri Jóns Ólafssonar
og co. sf. segir rangt að Jón Ólafsson
hafi farið yfir mörk um hámarkseign
Búnaðarbankinn
kaupir Fóðurblönduna
BÚNAÐARBANKI Íslands hf. hef-
ur keypt Fóðurblönduna hf.,
stærsta fóðurvöruframleiðanda
landsins en Eignarhaldsfélagið GB
fóður eignaðist nær allt hlutafé í
Fóðurblöndunni hf. í ágúst í fyrra.
Skrifað var undir samninga vegna
kaupa Búnaðarbankans í gær. Í til-
kynningu til Verðbréfaþingsins
kemur fram að kaupverð sé trún-
aðarmál og að engar breytingar séu
fyrirhugaðar á starfsemi Fóður-
blöndunnar af hálfu Búnaðarbank-
ans.
Spurður um tilganginn með kaup-
unum segir Guðmundur Guðmunds-
son, forstöðumaður fyrirtækjaráð-
gjafar Búnaðarbankans Verðbréfa,
að bankinn sjái ákveðin tækifæri í
þessari grein og sé að athuga hvaða
möguleikar kunni að leynast í stöð-
unni. „Okkur bauðst að kaupa félag-
ið og eftir að hafa skoðað það mál
ákváðum við að slá til.“
Fóðurblandan velti um 1.100
milljónum króna í fyrra og mark-
aðshlutdeild fyrirtækisins er á
bilinu 35 til 40%.
Guðmundur segir að fjórir aðilar
séu starfandi á þessum markaði,
Fóðurblandan, Mjólkurfélag
Reykjavíkur, Búland sem er í eigu
KEA og Kaupfélag Skagfirðinga.
Bjarni Pálsson, framkvæmda-
stjóri Fóðurblöndunnar og einn af
seljendum, segir ástæðu sölunnar
að viðunandi tilboð hafi borist. Hann
segist ekki gera ráð fyrir að starfa
áfram hjá félaginu.
Forsaga þessara kaupa nú er að
GB fóður og Kaupþing hf. keyptu
fyrir rúmu ári mestallt hlutafé í
Fóðurblöndunni hf. af Gunnari og
Sigurði Garðari Jóhannssyni og fjöl-
skyldum þeirra. GB fóður, sem er í
eigu feðganna Páls Ólafssonar og
Bjarna Pálssonar frá Brautarholti á
Kjalarnesi, eignaðist síðastliðið
haust 96,7% í félaginu og voru bréf
félagsins í framhaldi af því tekin af
skrá Verðbréfaþings. Í apríl keypti
Fóðurblandan svo Reykjagarð hf.