Morgunblaðið - 15.06.2001, Side 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 43
ER Háskólinn á Ak-
ureyri ekki íslenzkur
skóli? Er ekki sjálfgef-
ið sem meginregla, að
kennt skuli á íslenzku í
íslenzkum skólum?
Hverju sætir, að sá fá-
ránleiki virðist settur
fram í fullri alvöru, að
öll kennsla í háskóla-
deild á Akureyri fari
fram á ensku?
Í frásögn Morgun-
blaðsins þriðjudaginn
12. júní af starfsemi
Háskólans á Akureyri
er fólgin sú frétt, að í
svonefndri upplýsinga-
tæknideild, sem sett
verður á fót í haust, muni kennsla
fara fram á ensku. ,,Sagði rektor það
í senn gera kleift að bjóða erlendum
nemendum að nema við deildina og
að auka hæfni íslenskra nemenda og
búa þá betur undir störf eða fram-
haldsnám erlendis“, svo að vitnað sé
til þessarar frásagnar.
Hvarflar ekki að þeim, er að
þessu standa, að staldra við og
gaumgæfa, hvert þeir stefni? Stund-
ar ekki erlendur stúdent nám sitt á
máli þeirrar þjóðar, er
hann gistir? Er það
ekki almenn regla, við-
tekin venja og sjálf-
sögð, að hann afli sér
viðhlítandi færni í
tungu gistiþjóðar sinn-
ar, svo að hann geti
numið þar þau fræði,
er hugur hans stendur
til? Enginn ætlast til
annars, allra sízt sá
stúdent sjálfur.
Sagt er, að þetta
auki hæfni stúdenta og
búi þá undir störf og
framhaldsnám erlend-
is. Vitaskuld eykur
þetta ekki fræðilega
færni þeirra – hún er óháð tungu-
máli. Fjarstæða er það, vitaskuld, að
kenna eigi öllum þeim á ensku, er
hyggja á framhaldsnám erlendis. Og
er það tilgangur námsins að búa
stúdenta undir störf erlendis? Er
ekki haft í huga, að þeirra kunni að
bíða að starfa hérlendis? Eiga þeir
þá ekki að fjalla um fræði sín á ís-
lenzku? Eiga þeir ekki fyrir höndum
að starfa með þjóð, er þá tungu tal-
ar?
Áleitnar spurningar hrannast upp
og svo dapurlegar, að engu tali tek-
ur. Oft er að makleikum vitnað til
skeleggrar auglýsingar Stefáns
Gunnlaugssonar, landfógeta og bæj-
arfógeta í Reykjavík, fyrir hálfri
annarri öld. Mætti ég ekki af döpru
tilefni henda á lofti fleyg orð þessa
móðurbróður langafa míns og víkja
þeim lítið eitt við: ,,Íslenzk tunga á
bezt við í íslenzkum háskóla, hvað
allir athugi!“
Enskur háskóli
á Akureyri?
Jón Ragnar
Stefánsson
Íslenska
Hvarflar ekki að þeim,
er að þessu standa,
spyr Jón Ragnar
Stefánsson, að staldra
við og gaumgæfa
hvert þeir stefni?
Höfundur er stærðfræðingur.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
B í l d s h ö f ð a • 1 1 0 R e y k j a v í k • s í m i 5 1 0 8 0 2 0 • w w w . i n t e r s p o r t . i s
FIREFLY BELICS jakki.
St. 26-44. Verð: 6.490,-.
FIREFLY BELTEXA bolur.
St. 34-42. Verð: 2.490,-.
FIREFLY BERMUDA ARONA stuttbuxur.
St. XS-XL. Verð: 3.490,-.
FIREFLY MARKS dömu- og herraskór.
St. 36-46. Litir: gráir, svartir, hvítir.
Verð: 4.990,-.
TÖSKUR Verð frá: 2.490,-.
FIREFLY BORREGO JR.
St. XS-XL. Litir: Grænn, grár,
brúnn, khaki. Verð: 1.790.
FIREFLY ALBERTO buxur.
St. XS-XL. Litir: Hvítt,
dökkblátt, olívugrænt, chilirautt.
Verð: 3.590 - 3.990,-.
NORTHBROOK vindjakki St. 120-170 sm. Litir:
rautt, svart, appelsínugult og blátt. Verð: 2.990,-.
FIREFLY GEO
PANTS JR.
buxur. St. 140-170.
Verð: 3.790,-.
FIREFLY ALPINE buxur St. XS-XL.
Litir: Ljósgrátt, chilirautt, olífugrænt.
Verð: 3.360 - 3.840,-.
5.220
NÝTT
KORT
ATÍM
ABIL!
Það er
að koma
17. júní!
FIREFLY ANXES
St. 36-44. Litir: Chilirauður.
Verð: 1.790.
NIKE CORTES
St. 36-44, fleiri litir.
Verð: 4.390 - 6.390,-.
ADIDAS
SUPERSTAR
St. 36-46, fleiri litir.
Verð: 5.220 - 7.490,-.
Mikið ú
rval af
stuttbu
xum,
fleiri liti
r.
4.390