Morgunblaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 57
DAGBÓK
LÝÐVELDISDAGAR
Í FLASH
Laugavegi 54 - s. 552 5201
Síðir jakkar kr. 6.990
Stuttir jakkar kr. 5.990
Gallajakkar kr. 4.990.
LJÓÐABROT
GÍGJAN
Um undrageim í himinveldi háu
nú hverfur sól og kveður jarðarglaum.
Á fegra landi gróa blómin bláu
í bjartri dögg við lífsins helgan straum.
Þar dvelur mey hjá dimmu fossa tali
og drauma vekur purpurans í blæ,
og norðurljósið hylur helga sali,
þar hnígur máninn aldrei niðr í sæ.
Þar rísa bjartar hallir, sem ei hrynja,
og hreimur sætur fyllir bogagöng.
En langt í fjarska foldarþrumur drynja
með fimbulbassa undir helgum söng.
Og gullin strengur gígju veldur hljóði
og glitrar títt um eilíft sumarkvöld.
Þar roðnar aldrei sverð af banablóði,
þar byggir gyðjan mín sín himintjöld.
Benedikt Gröndal.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun laugardag-
inn 16. júní verður sjötug
Guðrún Jónsdóttir félags-
ráðgjafi. Hún og eigin-
maður hennar, Ólafur
Thorlacius, taka á móti
gestum í tilefni dagsins í
sumarbústað fjölskyld-
unnar við Deildará í Mýr-
dal frá kl. 19.
50 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 19. júní,
verður fimmtugur Konráð
Ásgrímsson. Af því tilefni
ætla Konráð og Elín Sig-
geirsdóttir, húsfreyja
hans, að gleðjast með vin-
um sínum, opna hús sitt og
garð að Huldubraut 16,
Kópavogi, laugardaginn
16. júní milli kl. 17–19.
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 16. júní, verður níræð-
ur Sigurður Gíslason,
Suðurgötu 15-17, Kefla-
vík. Eiginkona hans er
Sigurlaug Anna Hall-
mannsdóttir. Þau hjónin
munu taka á móti gestum í
félagsheimilinu Mána-
grund v/Sandgerðisveg á
afmælisdaginn kl. 15–19.
Árnað heilla
ÞEGAR annar spilarinn í
parinu liggur með öll spilin
ber honum að axla þá ábyrgð
að melda kröftuglega. Það er
fráleitt að gefa sagnir undir
geimi, sem strangt tekið eru
kröfur, og ætlast til að makk-
er haldi sögnum á lífi með
engin spil. Betra er að fara
alla leið sjálfur.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♠ K654
♥ 873
♦ 963
♣ G93
Vestur Austur
♠ 1098 ♠ ÁDG32
♥ 962 ♥ G4
♦ 542 ♦ 1087
♣D1082 ♣Á65
Suður
♠ 7
♥ ÁKD105
♦ ÁKDG
♣K74
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 spaði Dobl
Pass 1 grand Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Þetta eru slappar sagnir.
Eftir grandsvar makkers á
suður einfaldlega að stökkva
beint í þrjú grönd og hlífa
makker við óþarfa sálarkvöl-
um. En það afsakar hins veg-
ar ekki sagnir norðurs. Hann
á einn kóng og G9 í ómeld-
uðum lit. Engin ósköp og
þegar tillit er tekið til þess að
spaðakóngurinn er „dauður“
í blindum í hjartasamningi,
fer hækkun hans í fjögur
hjörtu í flokkinn „gróf yfir-
melding“. Pass við þremur
hjörtum hefði verið skiljan-
leg uppgjöf en þrjú grönd
betri sögn því þá er alla vega
gagn af spaðakónginum.
En nóg um sagnir. Suður
fær út spaðatíu, dúkkar, aft-
ur spaða og trompar. Hann
tekur trompin í þremur um-
ferðum, en hvað svo?
Slagirnir eru níu og það
eru góðar horfur á því að fría
slag á lauf. En það gengur
ekki að spila smáu laufi að
blindum. Vestur rýkur upp
með drottninguna og sendir
spaða í gengum Kx. Þá fer
síðasta tromp suðurs og aust-
ur getur tekið fríslag á spaða
þegar hann kemst inn á lauf-
ás.
Opnun austurs segir þá
sögu að hann eigi a.m.k. lauf-
ás og því er mikilvægt að
gefa honum fyrsta laufslag-
inn. Suður á því að spila lauf-
kóng strax – og þá verður
spaðakóngurinn þrátt fyrir
allt virkur. Austur getur ekki
sótt að spaðanum og sagn-
hafi þarf nú aðeins að hitta í
laufið næst til að fá tíu slagi.
Þetta er gamla sagan:
Kosturinn við slæmar sagnir
eru skemmtilegir samningar.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarsson
Staðan kom upp á helg-
arskákmótinu á Akureyri
er lauk fyrir skömmu.
Heimamaðurinn, Gylfi Þór-
hallsson (2150), tók forseta
S.Í., Hrannar B. Arnarsson
(1895), í kennslustund.
Reyndar er Gylfi ekki
óvanur því hlutverki enda
kunnur fyrir kynngimagn-
aðar fléttur. 20.Rxg6!
Svartur kemur engum
vörnum við eftir þetta.
Framhaldið varð: 20...hxg6
21.Bxg6 Dg7
22.Hh6 Re7
23.Dh5 Rf5+
23...Hd8 væri
svarað með
24.Bf7+ og hvít-
ur vinnur.
24.Bxf5 Hxf5
25.Hh1 Dxh6
26.Dxh6 og
svartur gafst
upp. Lokadagur
Evrópumóts ein-
staklinga, sem
haldið er í Ohrid í
Makedóníu, er í
dag, 15.júní. Þá
ræðst hvaða 46
skákmenn tryggja sér þátt-
tökurétt á næsta Heims-
meistaramót FIDE. Ný-
kjörin stjórn S.Í. sýndi
mikinn stórhug og sendi
fjóra íslenska þátttakendur
á mótið. Nánari upplýsing-
ar um mótið er að finna á
skak.is.
Hvítur á leik.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert fyndinn og félags-
lyndur og því upplagður til
að stjórna skemmtunum og
flytja tækifærisræður.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert í miklum ham þessa
dagana og fátt fær staðist
atorku þína. Gættu þess bara
að ganga ekki of nærri þér,
andlega eða líkamlega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú veist vel að það gerist ekk-
ert ef þú situr bara með hend-
ur í skauti.Brettu upp erm-
arnar og láttu ganga undan
þér. Hreint borð er fögur sjón!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að þiggja óvænt boð,
sem þér berst, en vertu samt á
varðbergi. Þú ert alveg maður
fyrir þinn hatt og getur bægt
frá þér annarlegum óskum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver leitar til þín í dag
vegna persónulegra erfiðleika
og þú mátt reikna með að
þurfa gefa honum drjúgan
tíma. En honum verður vel
varið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt þú lendir í einhverju mót-
læti um skeið máttu ekki láta
það á þig fá. Lífið er enginn
leikur og þolinmæðin er
þrautagóð. Öll él styttir upp
um síðir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að finna þér einhvern
farveg fyrir þá aukaorku, sem
þú býrð yfir. Útivist og íþrótt-
ir eru kjörnar til þessa og
munu veita þér ánægju.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Allir eru að biðja þig um eitt-
hvað og þú hefur ekki tíma til
þess að sinna kvabbinu. Það
þýðir ekkert að skipuleggja.
Þú verður að segja nei.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að berjast fyrir mál-
stað þínum af meiri krafti. Það
þýðir ekkert að láta hugfallast
þótt erfiðlega gangi að ná eyr-
um fólks. Talaðu hærra!
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er alltaf spurningin um að
vera réttur maður, á réttum
stað á réttum tíma. Ekki vera
óþolinmóður því þitt tækifæri
kemur fyrr en varir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er tíminn til þess að ganga
í þá hluti sem þú hefur látið
sitja á hakanum og þú verður
að ráðast í því annars geta
þeir farið úr böndunum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt öllum líki ekki málflutn-
ingur þinn þýðir það ekki að
þú eigir að þegja. Settu því
skoðanir þínar fram með
glöggum og greinargóðum
hætti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Margar hendur vinna létt
verk en stundum getur ring-
ulreiðin orðið einum of mikil.
Skipulagning er lykilorðið og
þú ættir að taka hana að þér
til að tryggja árangur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar
Rauða krossi Íslands og söfnuðu kr. 1.967. Þær heita
Halla Kristjánsdóttir og Ellen Kristjánsdóttir.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Emilía