Morgunblaðið - 08.08.2001, Side 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 37
✝ Alma HermínaEggertsdóttir
fæddist í Keflavík 15.
mars 1905. Hún lést á
E-deild sjúkrahúss-
ins á Akranesi 30.
júlí. Foreldrar henn-
ar voru Eggert Þor-
björn Böðvarsson
trésmiður og Guð-
finna Jónsdóttir,
bæði ættuð úr Húna-
vatnssýslu. Þau
bjuggu síðar í Hafn-
arfirði.
Hinn 18. júní 1927
giftist Alma Jóhann-
esi Arngrímssyni klæðskera, f. 20.
október 1906, d. 4. júní 1972, og
áttu þau fjögur börn. Þau eru: 1)
Guðfinna (Gulla), f. 26. ágúst
1927, maki Guðmundur Jónsson,
f. 2. júlí 1927, d. 7. júlí 1983, búsett
í Hafnarfirði og eiga þau þrjú
börn. 2) Hörður, f. 30. desember
1929, maki Sesselja Jóna Helga-
dóttir, f. 3. apríl 1931, búsett á
Akranesi og eiga
þau fimm börn. 3)
Böðvar, f. 29 ágúst
1941, maki Elsa Ing-
varsdóttir, f. 10.
ágúst 1944, búsett á
Akranesi og eiga
þau þrjú börn. 4)
Sigríður, f. 2. mars
1943, maki Ólafur
Sigfússon, f. 6. janú-
ar 1944, búsett á Ak-
ureyri og eiga þau
þrjú börn. Afkom-
endur Ölmu eru
orðnir 67. Alma og
Jóhannes fluttust á
Akranes árið 1942 og bjuggu
lengst af á Skólabrautinni. Alma
flutti á Dvalarheimilið Höfða á
Akranesi árið 1988 og þaðan á
Sjúkrahúsið á Akranesi, E-deild, í
mars 1998 þar sem hún bjó til
dauðadags.
Útför Ölmu fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
…
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
(Steinn Steinarr.)
Alma amma tók að vísu ekki í nefið
en hún púaði vindil til að fá góða lykt í
húsið. Að spila á spil var hennar
helsta áhugamál. Hún hafði yndi af að
spila og henni tókst að vekja áhuga
barnabarnanna með þrotlausri þolin-
mæði sinni og áhuga. Félagsvist og
Marías voru í uppáhaldi. Ekki vantaði
að það væri gaman að spila við ömmu,
því hún sá til þess með uppátækjum
sínum og orðatiltækjum að engum
leiddist spilamennskan. Þar hitti
skrattinn ömmu sína, sagði hún oft
þegar spil hennar og meðspilarans
féllu vel saman og von var á mörgum
slögum í því spili. Ananas með þeytt-
um rjóma – og síðar bara þeyttur
rjómi eftir að mér tókst að sannfæra
ömmu um að hvort um sig væri ágætt
en ætti bara ekki vel saman. Brún-
tertan hennar ömmu – leyndardóms-
full uppskrift. Sérstök brúnterta og
ekki bara góð, heldur einnig falleg,
sérstök. Lindubuff. Allt var þetta góð
viðbót við að spila við ömmu og að fá
hrós fyrir að vinna hana í Marías.
Amma var dálítið sérstök í fasi og
framkomu. Margir muna eftir því
hvernig hún strunsaði um bæinn,
hnarreist og stolt, þannig að hún
þekktist langar leiðir. Það gustaði af
henni þegar hún tók til óspilltra mál-
anna, hvort sem það var sláturgerð,
laufabrauðið, þrif eða hvaðeina annað
sem hún tók sér fyrir hendur. Mér
finnst eins og hún hafi alltaf verið með
tuskuna á lofti og ég man vel hve erf-
itt mér fannst að leysa hana af við þrif
á sjúkrahúsinu þegar hún fór í frí.
Mér fannst eins og ég þyrfti að þrífa
alveg sérstaklega vel til að halda öllu
eins snyrtilegu og hvítþvegnu og
amma gerði.
Húsið á Skólabrautinni vekur upp
sérstakar minningar um ömmu. Hún
hefði sennilega aldrei losnað við mig
úr húsinu þegar ég kom til hennar í
heimsókn ef hún hefði leyft mér að
gramsa í hirslunum sínum. Hún átti
nefnilega svo marga leyndardóma,
svo margt fínt dót – eða svo fannst
mér. Við fórum sjaldan upp á efri
hæðina – enda var það sérstök upp-
lifun þegar ég fékk að gista hjá
ömmu. Kojurnar í fataskápnum voru
spennandi náttstaður fyrir krakka –
og þá sjaldan við fórum upp á efri
hæðina fékk ég að klappa refnum sem
amma geymdi í fataherberginu.
Tunnustafaskíði í innri kjallaranum
og barnavagninn sem pabbi svaf í sem
barn. Það var svo margt hjá ömmu
sem vakti forvitni og varð að enn
meiri leyndardómi af því að ég fékk
ekki að gramsa og skoða eins og ég
vildi. Amma sá til þess. Hjá ömmu var
alltaf svo fínt, mikið af fínu skrauti
sem ekki mátti fikta í.
Þannig koma hinir og þessir ólík-
legustu hlutir upp í hugann þegar ég
hugsa til baka um samverustundir
mínar og ömmu. Mér fannst alltaf til-
heyra að hafa ömmu með við ákveðn-
ar athafnir. Hún kom til okkar á
Hjarðarholtið á jólum, páskum, um
helgar og af ýmsum tilefnum. Það var
eitthvað sem ég gekk að sem vísu.
Dauðinn er líka leyndardómur ekki
síður en hirslurnar og hlutirnir henn-
ar ömmu minnar. Þegar ég var fimm
ára vissi ég að ég myndi einhvern tím-
ann í framtíðinni eignast lítinn kistil
sem amma og afi fengu þá að gjöf.
Hann á að fylgja Jóhönnu-nafninu.
Saklaus, forvitin og spennt yfir vitn-
eskjunni um að ég myndi einhvern
tímann eignast einn af leyndardóm-
um ömmu minnar spurði ég hana þá
strax hvenær hún ætlaði að deyja. Og
hún svaraði: Bráðum. Síðan eru liðin
þrjátíu og þrjú ár – og kistillinn sem
nú stendur á borðstofuskenknum
hennar ömmu minnar í stofunni
heima hjá mér vekur minningar um
ömmu. Hann varð að enn einum
leyndardómnum – því í kistlinum
geymdi amma ýmislegt smálegt og
geymdi vel eina lykilinn sem fylgdi.
Hin síðari ár, þegar amma var
komin á dvalarheimili á Akranesi, átt-
um við okkar sérstöku stundir á að-
fangadag þegar amma kom til okkar á
Hjarðarholtið. Meðan við biðum eftir
að jólin gengju í garð lakkaði ég negl-
urnar á ömmu. Hún sagðist ekki geta
gert það nógu vel vegna þess hve
skjálfhent hún var orðin. Þetta varð
að föstum lið hjá okkur ömmu á að-
fangadag – og stytti um leið biðina
eftir jólunum. Jólin tengjast ömmu
líka með öðrum hætti í minningunni.
Henni fannst yfirleitt óþarfi hjá okk-
ur að vera að gefa henni jólagjafir –
háaldraðri konunni sem bráðum
myndi deyja – og því man ég sérstak-
lega eftir því að einu sinni gladdist
hún mikið yfir litlu lifandi einitré sem
ég gaf henni í jólagjöf. Mikið óskap-
lega var ég stolt yfir því að hafa fund-
ið gjöf sem amma var mjög ánægð
með.
En besta gjöfin kom frá henni, hún
var amma mín og fyrir þá gjöf er ég
þakklát.
Ég veit að öll fjölskyldan er mér
sammála um að senda innilegustu
þakkir til starfsfólks e-deildar sjúkra-
húss Akraness og starfsfólks Höfða
fyrir að hugsa um ömmu.
Jóhanna Harðardóttir.
Alma frænka mín er sú síðasta af
börnum afa Eggerts Þorbjörns Böðv-
arssonar og ömmu Guðfinnu Jóns-
dóttur sem fer héðan. Stór þáttur í
æskuminningu minni er Akranes þar
sem systur pabba þær Alma og Nína
bjuggu ásamt afkomendum. Ég átti
góða daga þar er foreldrar mínir fóru
í frí, þá var ég send upp á Skaga til
Dúfu og Sverre og í ótal skólafríum.
Stór partur af því að fara á Akra-
nes var að labba til Ölmu frænku og
síðan til Nínu sem bjó neðar í bænum
og láta þær dekra við yngsta syst-
kinabarnið mig með pönnukökum og
ýmsu góðgæti sem virtist alltaf vera
til í eldhúsinu hjá þeim.
Alma bjó við aðalgötu bæjarins og
var heima að sinna börnum og búi, og
Jóhannes maður hennar var klæð-
skeri og saumaði í kjallaranum.
Pabbi var yngstur þessara átta
systkina sem komust upp og Kristó-
fer elstur en 25 ár voru á milli þeirra
og þar á milli þeirra voru systurnar
sex. Allar systurnar dekruðu við
yngsta bróður sinn og var alla tíð
mjög kært samband milli pabba og
þeirra. Alma frænka mín var glæsileg
kona og mér fannst hún aldrei verða
neitt gömul. Hún klæddi sig eftir nýj-
ustu tísku og var ávallt létt í spori, en
síðustu árin voru henni erfið þar sem
hún gat ekki tjáð sig en hún skildi allt
og fylgdist vel með öllu í kringum sig.
Alma kom oft til okkar í heimsókn og
var ákaflega kært á milli pabba og
hennar.
Síðast sá ég frænku mína fyrir ári
en pabbi og hún hittust þá í síðasta
skipti og tók hún hönd litla bróður
síns í sína og hélt í hana allan tímann
sem við stoppuðum.
Nú, að þeim systkinum liðnum, vil
ég þakka alla þá elsku sem ég fann
hjá þeim og kveð síðast frænku mína,
Ölmu, sem ég get því miður ekki fylgt
síðasta spölinn. Gullu, Siggu, Herði.
Böðvari og fjölskyldum þeirra votta
ég mína innilegustu samúð.
Sigrún Böðvarsdóttir.
ALMA
EGGERTSDÓTTIR
,: 2&0&2
2
9#7 3;
0
1 ( /
0 &$< #$ 1 8# (2(( #! ((
*(# 2(< 0 *(#
$8 - &$< #$ &
##$
7&$< #$ $< !*=(#! ((
, =( $)'&$< #$
' $ ' /
>12
9 < #;?
. @ $
# !$ % (
23 $ ' (
$
*
)
*
*
4
4
(
8 / ! ((/
,
,92
$3 #<$ (
7 <@@
$
&
' (
4
"
++ +&5,,
)'(8 3 #! ((
A '#( 3 ##$ ! ((
3 ##$ . (8 /8# ! ((
& # 3 ##$ ! / #! ((
' $#6#(7 < # +( /
$
"
> 2&
77# B
67) 87
+ 8 5 !
# !$ %
.#(8 $83#! ((
.#(8 ) ! (( 9 ##$
)' ! (( , -#,+3 !##$
' $ ' /
,.1&
12
C#(#8DE
76
+( <3 #
+16 !#?D
$
26$
%
( +, +//,
7 %
1 -
' <)' #! ((
' ( ! '
' $ ' /
&01
<-#6)
#) ' 3
0
0
F & ##$ , =( ! #! ((
& #! (( A ##$
& ##$ 1 #! ((
1 & #! ((
& #! (( & ##$
3 /& ##$ 9-#( #! ((
& #! ((
' $ #( ! !/
2
1 2C2
!8C87
87
0
0
8
(
9%$
"
++ +&,,
$ !2(( ##$ .$ - & #! ((
& < #2(( ##$ , =( )' #! ((
.$ 2(( #! (( 3 ! ! ##$
2(( #! (( !##$
- 2(( #! (( )' 9 #$
.+2(( ##$ 8, -#! ((
' $ ' /