Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðbjörg FjólaÞorkelsdóttir fæddist á Búðum í Eyrarsveit í Snæ- fellsnessýslu 27. maí 1925. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítala í Foss- vogi 31. júlí síðast- liðinn. Foreldrar Fjólu voru Þorkell Daníel Runólfsson, f. 16. desember 1894, d. 4. desember 1965, og Margrét Guðrún Gísladóttir, f. 6. mars 1891, d. 6. október 1995. Systkini Fjólu eru Runólfur, Gísli, látinn, Páll, Lilja, Hulda og uppeldissystir Danilía Guðrún . Fjóla giftist 12. apríl 1952 eft- irlifandi eiginmanni sínum, Stef- áni Halldóri Helgasyni húsa- smíðameistara, f. 19. júlí 1923. Dætur þeirra eru: 1) Drop- laug Guðbjörg hjúkrunarfræðing- ur, f. 5. janúar 1953, gift Kristni L. Matthíassyni. Synir þeirra eru Stefán Helgi, Steinar Matthías, Guðbjörn Már og Gunnlaugur Þór. 2) Margrét, f. 5. desember 1956, sambýlismaður hennar er Bjarni Árnason og er dótt- ir þeirra Hulda. Fjóla og Stefán bjuggu í Grundarfirði til ársins 1979 en fluttu þá til Reykjavíkur. Útför Fjólu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga þig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Elsku mamma, hjartans þakkir fyrir allt sem þú varst okkur og gafst okkur. Þú mátt vita það að við skul- um hugsa vel um pabba. Elsku pabbi, nú nístir sorgin sár en við vitum að Guð huggar og styrkir. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Elsku mamma við felum þig Guði að eilífu, þínar dætur. Elsku tengdamóðir mín, mig lang- ar að skrifa nokkrar línur til þín. Það var leitt til þess að vita hvað þú áttir oft erfitt um dagana vegna lang- vinnra veikinda og þá sérstaklega síðustu mánuði sem þú lifðir. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, dóttur þína og börnin okk- ar. Alltaf varst þú tilbúin að hjálpa okkur og þá minnist ég sérstaklega þegar synir okkar voru litlir, þegar þrír þeirra voru svo mikið veikir, þá voruð þið tengdapabbi tilbúin að hjálpa okkur, eins og þið hafið alltaf verið, og ég vil þakka fyrir það. Nú í seinni tíð hefði ég viljað hafa meiri tíma með þér. Ég bið Guð að varðveita þig þar sem þú ert nú og gefa tengdapabba styrk á þessum erfiða tíma. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þinn tengdasonur Kristinn Loftur. Nú hefur þú, ástkæra amma mín, kvatt þennan heim og haldið af stað í hina hinstu ferð. Ég vil þakka þér fyrir öll gleði- og ástríku árin sem ég fékk að eiga og njóta með þér. Þau munu aldrei gleymast í minningunni og þannig lifir þú áfram með mér í andanum þótt horfin sért. Blessuð sé minning þín og góða ferð til betri heims. Stefán Helgi. Elsku amma, ég þakka þér fyrir allar okkar samverustundir og allt sem þú hefur hjálpað mér í gegnum. Það eru orð að sönnu að þú varst mér alltaf hvatning í lífinu, ég man að þú kenndir mér ýmsa góða og gagnlega hluti sem hafa og munu gagnast mér vel í gegnum lífið. Ég þakka þér fyrir þá trú sem þú gafst mér. Nú umvefur faðmur Drottins þig, elsku amma mín. Elsku afi, nú er erf- itt en Drottinn umvefur þig líka. Far þú í friði, elsku amma mín. „Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum. Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú og um kærleika þinn til hinna heilögu.“ Steinar Matthías. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, elsku amma mín, og megir þú hvíla í friði. Þú hefur verið mér svo góð um ævina og fyrir það verð ég þér alltaf þakklátur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guðbjörn. Guðbjörg Fjóla Þorkelsdóttir fæddist á Búðum í Eyrarsveit í Snæ- fellsnessýslu 27. maí 1925. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítala í Foss- vogi 31. júlí síðastliðinn. Foreldrar Fjólu voru Þorkell Daníel Runólfs- son, f. 16. desember 1894, d. 4. desember 1965, og Margrét Guðrún Gísladóttir, f. 6. mars 1891, d. 6. októ- ber 1995. Systkini Fjólu eru Runólf- ur, Gísli, látinn, Páll, Lilja, Hulda og uppeldissystir Danilía Guðrún . Fjóla giftist 12. apríl 1952 eftirlif- andi eiginmanni sínum, Stefáni Hall- dóri Helgasyni húsasmíðameistara, f. 19. júlí 1923. Dætur þeirra eru: 1) Droplaug Guðbjörg hjúkrunarfræð- ingur, f. 5. janúar 1953, gift Kristni L. Matthíassyni. Synir þeirra eru Stef- án Helgi, Steinar Matthías, Guð- björn Már og Gunnlaugur Þór. 2) Margrét, f. 5. desember 1956, sam- býlismaður hennar er Bjarni Árna- son og er dóttir þeirra Hulda. Fjóla og Stefán bjuggu í Grund- arfirði til ársins 1979 en fluttu þá til Reykjavíkur. Útför Fjólu fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag og hefst athöfnin klukk- an 13.30. Elsku amma mín, ég mun sakna þín en ég verð að sætta mig við að þú ert farin til himna. Ég mun sakna þess hvað þú varst góð við mig og skemmtileg, en ég mun aldrei gleyma þér því þú varst mér svo kær. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pétursson.) Elsku afi, ég bið Guð um að styrkja þig og hugga í þínum söknuði. Elsku amma, ég bið Guð að geyma þig og segi bara gangi þér vel í himnaríki. Þinn Gunnlaugur Þór. GUÐBJÖRG FJÓLA ÞORKELSDÓTTIR Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Skreytingar við öll tækifæri Langirimi 21, Grafarvogi 587 9300 Samúðarskreytingar Samúðarvendir Kransar Kistuskreytingar Brúðarvendir ' (             "       &G&  2.1  .33 < 3D      %  $  %   6 +//, (+    #$  $@ /(+ #! (( .#( /, ((<8 ##$  , =((+ #! (( )  9 #$  #6#(7 $'33' / :   *     %  (  *   4    %  %  (  "   (       (    >,& 2 -( 3 # 6 / C  83#! (( C!8# 83#! ((    ##$  & # 83##$  .#(8 ># #! (( +    83#! (( 3##$  -    83#! (( )' .  ##$  .(  83##$ $  ' / Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. )   *       4          %       (         .> &/2 1, 63<-#6) +($77 A7   ' 3/  6 ! #! ((  & < # ! ##$  1 ##$  G7##$  3 !##$  8 ! (( *=(##$  ( ! ' $  ' /              ,: 11 1H& G  9#7 3; 67) 87 %        ;     < +//, 16) .  ##$  6 ) .  ##$  !8#& #! (( 6 .  ##$   !.  ##$  - & &- 8#! (( ( /.  #! ((    ##$          ' $    ' /         %   G .2G2   0          ' (          (   +, +&,, & 6 !C !3 #! (( G7G7##$  !   !8# ! (( 1 # G7#! (( 6 ##$  &  G7#! (( 3 ##$  C !3  G7##$  !$ G7##$  =  I$(JG7##$ $  ' /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.