Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 43 Grafískur hönnuður og myndlistamaður með mikla reynslu óskar eftir starfi. Upplýsingar veitir Steingrímur Eyfjörð í síma 869 4869. ATVINNA ÓSKASTLandsbyggðin — umboðsmenn óskast Fasteignasalan Hóll hyggst á næstu mánuðum stórauka þjónustu sína og samvinnu við lands- byggðina með því að setja upp umboðsskrif- stofur um allt land. Leitað er eftir ábyrgum aðil- um sem hafa áhuga á að taka að sér umboðs- mennsku í sinni heimabyggð. Um er að ræða milligöngu við sölu húseigna, jarða, fyrirtækja og skipa. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Hóll — umboðsmenn" eða á netfang holl@holl.is . Afgreiðsludeild Reykjavík Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða fólk til framtíðarstarfa í afgreiðsludeild félagsins að Fosshálsi 1 í Reykjavík. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins að Fosshálsi 1, Reykjavík, og í starfs- stöðvum félagsins á Hvolsvelli og Selfossi. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Stefánsson starfsmannastjóri í síma 575 6000. Nánari upplýsingar um SS er að finna á heima- síðu fyrirtækisins www.ss.is . R A Ð A U G L Ý S I N G A R TILBOÐ / ÚTBOÐ Útboð F.h. Grímsnes- og Grafningshrepps er óskað eftir tilboðum í eftirtalin verk: I. Raðhús að Borgarbraut 22, 24 og 26, Grímsnesi. Um er að ræða fullbúnar íbúðir, ein íbúð 85 m2 og tvær íbúðir 66 m2 að grunn- flatarmáli. Burðarvirki er úr timbri. Verklok: 1. apríl 2002. Opnun tilboða: Þriðjudaginn 14. ágúst kl. 11.00 á Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf., Austurvegi 44, Selfossi. II. Vatnsveita að sumarhúsum í landi Klausturhóla, Grímsnesi. Um er að ræða vatnsveitu, um 4,6 km. af 65 mm og 50 mm leiðslum, er tengist inn á vatnslögn við Borg. Verklok: 1. des. 2001. Opnun tilboða: Þriðjudaginn 14. ágúst kl. 10.00 á Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf., Austurvegi 44, Selfossi. Útboðsgögn fyrir ofangreind útboðsverk fást á Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf., Austurvegi 44, Selfossi, gegn kr. 10.000.- skila- gjaldi. Grímsnes- og Grafningshrepp- ur. Heimilisiðnaðar- safnið á Blönduósi Viðbygging - stækkun Stjórn Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, óskar eftir tilboðum í við- byggingu við Árbraut 29 á Blönduósi. Verkið felur í sér uppsteypu kjallara og hæðar, gerð þaka, byggingu tengiganga við eldra hús, fullnaðarfrágang viðbygg- ingar að utan sem innan og fastar inn- réttingar. Byggingin er samtals 348 m2. Vettvangsskoðun verður haldin 15. ágúst 2001 kl. 10.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa. Verkinu skal að fullu lokið 1. febrúar 2003. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 15.000 frá og með föstudeginum 10. ágúst 2001 kl. 13.00 á Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur, Tjarnargötu 4, 101 Reykjavík og á Bæjarskrifstofu Blöndu- óss, Húnabraut 6, 540 Blönduósi. Tilboðin verða opnuð á bæjarskrifstofu Blönduóss, Húnabraut 6, Blönduósi, þriðjudaginn 28. ágúst 2001 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Stjórn Heimilisðnaðarsafnsins á Blönduósi F.h. Orkuveitu Reykjavíkur vegna Hitaveitu Þorlákshafnar er óskað eftir tilboðum í lagn- ingu stofnpípu fyrir Grímsnesveitu, frá virkj- unarsvæði í Öndverðarnesi-1 til sundlaugar við Írafoss (Syðri-Brú) í Grímsnes- og Graf- ningshreppi, alls um 11.200 m. Útboðið nær til jarðvinnu og frágangs á pípum ásamt tilheyrandi búnaði s.s. samsetningum, lokum, greiningum o.fl. Pípur eru foreinangrað- ar stálpípur. Helstu magntölur pípuvinnu eru: DN200/315 mm: 9.920 m DN250/400 mm: 1.280 m Helstu magntölur jarðvinnu eru: Skurðgröftur: 8.500 m3 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 8. ágúst 2001 gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 22. ágúst 2001 kl. 11:00, á sama stað. OVR101/1 TILKYNNINGAR Hallsvegur í Reykjavík tveggja akreina vegur frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi. Mat á umhverfisáhrifum — úrskurður Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum. Fallist er á lagningu Hallsvegar, tveggja akreina vegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi eins og framkvæmdinni er lýst í framlögðum gögnum framkvæmdaraðila. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is . Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 12. sept- ember 2001. Skipulagsstofnun. Úthlutun úr Kvikmynda- sjóði Íslands 2002 Kvikmyndasjóður Íslands auglýsir eftir umsóknum um framlög og vilyrði til leik- inna kvikmynda í fullri lengd. Hægt er að sækja um: ● framlag til framleiðslu árið 2002. Fram- leiðslufyrirtæki geta sótt um, sem telja sig geta fullfjármagnað og farið í tökur á kvikmynd árið 2002. ● vilyrði til framleiðslu árið 2003. Fram- leiðslufyrirtæki geta sótt um, sem telja sig þurfa eitt ár til að fullfjármagna kvikmynd. ● framlag til þróunar árið 2002. Fram- leiðslufyrirtæki geta sótt um, ef handrit að kvik- mynd liggur fyrir, en þarfnast frekari þróunar. ● framlag til handritsskrifa árið 2002. Einstaklingar geta sótt um. Ekki tekið á móti fullunnum handritum. Umsóknir skulu berast Kvikmyndasjóði fyrir kl. 16:00, 1. október 2001, á umsókn- areyðublöðum sjóðsins ásamt umbeðnum fylgigögnum. Umsóknir, sem afhentar eru eða póstlagðar eftir að umsóknarfrestur rennur út, eru ekki gildar. Öll umsóknargögn skulu berast í fjórum eintökum. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrif- stofu Kvikmyndasjóðs, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar eru veittar á sama stað. Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Hraunbær, (Hraunbær, Bæjarháls, Bæjarbraut) breyting á deiliskipulagi. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deili- skipulagi reits sem afmarkast af Hraunbæ í suður, Bæjarbraut í vestur, Bæjarhálsi í norður (lóðir á móts við Hraunbæ 102- 120). Tillagan varðar eingöngu lóð C (þ.e. lóð vestan við lóð Skátanna) og gerir ráð fyrir að í stað þess að heimilt verði að reisa heilsugæslu á lóðinni verði heimilt að reisa þar hús undir verslunar- og þjónustustarfsemi. Tillagan felur ekki í sér neina breytingu á byggingarmagni eða lóðarfyrirkomulagi. Til upplýsingar skal þess getið að ný lóð fyrir heilsugæslustöð verður að öllum líkindum afmörkuð vestan Bæjarbrautar. Tillagan liggur frammi í sal Borgar- skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 8. ágúst til 5. september 2001 Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 12. september 2001. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 8. ágúst 2001. Borgarskipulag Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.