Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#
!
$"%
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Á ÞESSU ári hefur annað slagið í
fjölmiðlum hérlendis verið minnst
á þróun nýrrar tækni í greiðslu-
miðlun vegna notkunar bílastæða.
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
hefur um nokkurra ára skeið
fylgst með þróun slíkra kerfa er-
lendis, og nú er svo komið að til-
raunaverkefnum á þessu sviði hef-
ur verið hleypt af stokkunum í
Svíþjóð og Noregi, þar sem rekst-
ur gjaldskyldra bílastæða er mjög
umfangsmikill.
Hérlendis hafa nokkrir aðilar
sýnt því áhuga að þróa slík kerfi,
en Bílastæðasjóður hefur hingað
til afþakkað öll boð um slíkt sam-
starf. Sú afstaða helgast aðallega
af því að hlutdeild sjóðsins í „bíla-
stæðamarkaðinum“ takmarkast við
um 3 þúsund bílastæði af áætl-
uðum heildarfjölda stæða í
Reykjavík sem er af stærðargráð-
unni 200 þúsund stæði. Almennt
má segja að atvinnugreinin „bíla-
stæðaþjónusta“ á Íslandi sé svo
smá í sniðum að fátækleg rök
standi þess að láta notendur þess-
ara 3 þúsund bílastæða bera þró-
unarkostnaðinn við alveg nýtt
greiðslumiðlunarkerfi sem byggist
á notkun GSM-síma.
Hins vegar er unnið að því að
Bílastæðasjóður taki þátt í þeirri
tækninýjung í greiðslumiðlun sem
þegar er í burðarliðnum á Íslandi,
það er að segja KLINK-verkefni
banka og kortafyrirtækja. Þegar
það kemur til framkvæmda verða
greiðslukort landsmanna búin
tölvukubb sem geymir rafeyri til
nota í sjálfsala og þess háttar, og
tilraunir með það kerfi munu hefj-
ast innan tíðar.
Tekjum Bílastæðasjóðs er öllum
varið til að byggja og reka bíla-
stæði til almenningsnota, og þróun
greiðslumiðlunarkerfa er vissulega
eitthvað sem nauðsynlegt er að
fylgjast með. Þegar reynslan hefur
leitt í ljós hvaða útfærslur af nýj-
ungum, eins og til dæmis GSM-
kerfum, virka best, þá mun Bíla-
stæðasjóður jafnt og aðrir seljend-
ur vöru og þjónustu auðvitað svara
kalli tímans og vera með. Þangað
til teljum við að takmörkuðum
kröftum okkar sé best varið til
verkefna sem lúta að kjarna bíla-
stæðaþjónustunnar, það er fjölgun
bílastæða samfara þróun og upp-
byggingu á miðborgarsvæðinu.
STEFÁN HARALDSSON,
framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur.
Mynt, debet, kredit,
KLINK eða gemsi?
Frá Stefáni Haraldssyni:
ELLERT Schram, forseti ÍSÍ,
hélt því fram nýlega að hann hefði
ekki haft áhrif á lyfjadómstól ÍSÍ
og engin afskipti haft af því hvern-
ig Birgir Guðjónsson læknir starf-
aði við lyfjamál. Í viðtali 20. júlí í
dægurmálaþætti RÚV lýsti Ellert
yfir megnri vanþóknun á því að
Birgir skyldi ekki láta Ellert vita
fyrirfram hvað til stóð áður en
Birgir áfrýjaði lyfjamáli. Hvað olli
vanþóknun Ellerts, mannsins sem
að eigin sögn ætlaði engin afskipti
að hafa af störfum Birgis eða dóm-
stólsins? Til hvers þurfti Ellert þá
að vita fyrirfram að Birgir ætlaði
að áfrýja?
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
ÍSÍ, Sigurður Magnússon, gaf
íþróttadómstól ÍBR fyrirmæli með
bréfi 25. febrúar 1993 um það
hvaða óskráð regla væri í gildi (að
mati Sigurðar) í mótsögn við gild-
andi reglu frá þingi ÍSÍ. Dómstóll-
inn hlýddi fyrirmælum Sigurðar
og dæmdi samkvæmt þeim og
gekk svo langt að vitna í bréf Sig-
urðar í dómnum!
Er það við hæfi að fram-
kvæmdavaldið stjórni dómstól með
þessum hætti? Hvað segði fólk við
því ef forsætisráðherra myndi
senda bréf til dómara og tilkynna
að í gildi væri óskráð regla (að
mati ráðherrans) þótt reglan væri
í mótsögn við gildandi lög frá Al-
þingi? Og hvað ef dómarinn myndi
hlýða og dæma skv. fyrirmælum
ráðherrans og vitna í fyrirmælin í
dómnum? Þá yrðu væntanlega
bæði ráðherrann og dómarinn að
segja af sér.
Öðru máli gegnir um íþrótta-
hreyfinguna, sem Kolbeinn Páls-
son kallaði „mafíu“ þegar hann
hætti hjá ÍBR. Í íþróttahreyfing-
unni sitja menn sem fastast í stöð-
um sínum þrátt fyrir svona athæfi.
Þó náðist loksins sá árangur í
júní sl. að hinn frægi dómstóll ÍBR
var lagður niður ásamt flestum
íþróttadómstólum sérsambanda.
Þeir heyra nú sögunni til eins og
hinn frægi Sigurður Magnússon.
Íþróttahreyfingin er rekin af al-
mannafé. Hún er ekki einkaklúbb-
ur Ellerts Schram eða fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ. Þetta fólk
sem hefur gengið svo langt að
neita að leiðrétta eða ógilda sann-
anlega upplogna íþróttaskýrslu
ætti að segja af sér störfum sem
fyrst svo að aðrir geti tekið við.
Burt með Ellert og svona fólk.
CARL J. EIRÍKSSON,
Skólagerði 47,
Kópavogi.
Framkvæmda-
stjórn ÍSÍ gaf dóm-
stól ÍBR fyrirmæli
Frá Carli J. Eiríkssyni: