Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HIN ÁRLEGA Kammertónlistarhá-
tíð á Kirkjubæjarklaustri verður um
helgina, en hátíðin hefur verið haldin
síðastliðin ellefu ár undir forystu
Eddu Erlendsdóttur píanóleikara. Í
ár verða eins og áður þrennir tón-
leikar, á föstudagskvöld, laugardags-
eftirmiðdag og sunnudag, hverjir
með sinni efnisskrá. Verður nú
brugðið út af vananum og munu Egill
Ólafsson og franski bandoneonleik-
arinn Olivier Manoury, auk belgíska
fiðluleikarans Michael Guttman,
leika ásamt hinum íslensku hljóð-
færaleikurum hópsins. „Bandoneon
er uppistöðuhljóðfæri í tangótónlist,“
útskýrir Edda. „Olivier kemur með
sínar útsetningar í þeim stíl. Egill
Ólafsson kemur úr dægurlagageir-
anum og mun flytja sína tónlist, auk
þess sem hann mun syngja klassísk
ljóð og tangó, svo það má segja að við
komum úr þremur áttum og mæt-
umst þarna á Klaustri. Þetta er mjög
spennandi vegna þess að ég held að
þessi fjölbreytni í tónlist muni gefa
okkur öllum sem tökum þátt nýja
orku. Reyndar hefur þessi hópur, ís-
lensku strengjaleikararnir og við
Olivier, leikið saman öðru hverju síð-
an 1992. En við höfum aldrei verið
með söngvara og Egill kemur og
syngur með auk þess sem Michael
Guttman, sem er mjög þekktur fiðlu-
leikari, leggur hópnum lið.“
Vinsæll söngvari og
frábær fiðluleikari
Að sögn Eddu hafa hún og Egill
Ólafsson lengi rætt um hugsanlegt
samstarf. „Fyrir mörgum árum sá ég
Egil syngja engil í Gullna hliðinu og á
Stuðmannaballi seinna um kvöldið.
Ég hef því alltaf vitað hvað hann er
fjölhæfur. Nú kemur hann með sína
reynslu og sína túlkun á þessum
klassísku lögum Schubert og
Brahms en mér fannst hann líka vera
sá söngvari sem gæti helst sungið
tangóinn með okkur,“ segir Edda.
„Svo er það Michael Guttman, sem er
æðislegur fiðluleikari og er talinn
leiðandi í belgíska fiðluskólanum.
Hann heyrði okkur spila tangó á tón-
leikum í Belgíu fyrir nokkrum árum
og varð mjög hrifinn. Við Olivier höf-
um spilað með honum nokkrum sinn-
um, síðast á Hamptons-listahátíðinni
á Long Island fyrr í sumar. Hann
spilar tangó alveg frábærlega vel.“
Tónlistin myndar
brýr milli fólks
Edda segist vonast til að fá nýjan
áheyrendahóp að nokkru leyti á tón-
leikana í ár og að fjölbreytt dagskrá
þeirra muni laða að breiðari hóp en
venjulega sækir viðburði af þessu
tagi. „Ég vonast til að tengja ólíka
áheyrendahópa meira saman. Mér
finnst ríkjandi viðhorf að þessi fari á
svona tónleika og hinn á aðra, en ég
held að tónlist sé einmitt til þess fall-
in að mynda brýr milli fólks. Það er
bara ein tónlist og það er góð tónlist,“
segir hún.
Vinsældir hátíðarinnar hafa verið
þó nokkrar síðan hún hóf göngu sína,
og í ár hafa bændur sem reka ferða-
þjónustu í nágrenni Kirkjubæjar-
klausturs tekið frá nokkur herbergi í
tengslum við hátíðina, en einnig er
hægt að gista í bænum, á hóteli eða í
tjaldi. „Það hefur oft verið sorglegt
að heyra af fólki sem langaði að
koma, en fékk ekki gistingu. Ég býst
við að ferðaþjónustan muni bæta þar
eitthvað úr,“ segir Edda.
Verk frá klassík til
dægurlaga til tangós
Fjölbreytt tónlist er á efnisskrám
tónleikanna um helgina. Á föstudags-
kvöld kl. 21 frumflytur Egill Ólafsson
þrjú sönglög eftir sjálfan sig við ljóð
Nínu Bjarkar. Einnig er á dag-
skránni ítölsk tónlist, Chrisantemi
fyrir strengjakvartett eftir Puccini
og dúettó fyri selló og kontrabassa
eftir Rossini. Lullaby fyrir strengja-
kvartett og tvö sönglög eftir Ger-
swhin og strengjakvartett eftir
Barber eru á dagskrá eftir hlé.
Tónleikar laugardagsins hefjast
kl. 17. Á dagskrá fyrri hluta þeirra
eru tvö sönglög eftir Schubert og
sónata eftir Brahms, en dagskráin
eftir hlé er tileinkuð tangó ýmissa
tónskálda, þar á meðal Astors Piazz-
olla.
Á tónleikum sunnudagsins, sem
hefjast kl. 15, eru Ernste Gesange
eftir Brahms og strengjakvintett
eftri Dvorák, Þá uxu blóm eftir Rík-
arð Örn Pálsson, Ambrosia eftir Egil
Ólafsson auk nokkurra tangóverka,
þar á meðal þrjú lög úr myndinni
Hertu upp hugann eftir Olivier Man-
oury.
Tónleikarnir fara allir fram í
Kirkjuhvoli, félagsheimilinu á
Kirkjubæjarklaustri.
„Það er bara ein tónlist
og það er góð tónlist“
Morgunblaðið/Sverrir
Auður Hafsteinsdóttir, Olivier Manoury, Hávarður Tryggvason, Egill
Ólafsson, Edda Erlendsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Helga Þór-
arinsdóttir. Á myndina vantar Michael Guttman.
BRASILÍSKI rithöfundurinn
Jorge Amado lést seint á mánu-
dagskvöld á sjúkrahúsi í borg-
inni Salvador de Bahia norð-
vestur af Rio de Janeiro, 88 ára
gamall. Jorge Amado heillaði
heimsbyggðina með glaðbeitt-
um og fjörmiklum sögum sín-
um, og enginn brasilískur rit-
höfundur hefur selt bækur
sínar í jafnstórum upplögum
um heim allan og sögur hans
hafa verið þýddar á meira en 50
tungumál.
Jorge Amado fæddist árið
1912 á kakóplantekru í Bahia-
héraði. Hann þakkaði uppeldi
sínu í jesúítaskóla snemmbær-
an áhuga á orðsins list. Fimm-
tán ára gamall varð hann
fréttamaður
við dagblaðið
Diario di Bahia
í Salvador-
borg, en þrem-
ur árum síðar
hélt hann til
Rio de Janeiro
til að reyna sig
við skáld-
sagnaskrif.
Fyrsta saga
hans, Land
karnivalsins, kom út árið 1931,
þegar Amado var 19 ára. Átt-
hagar Amado í Bahia voru
gjarnan sögusvið skáldsagna
hans, og hyldýpið sem skildi að
fátæka og ríka var honum
ótæmandi yrkisefni. Jorge
Amado var ákafur kommúnisti
á yngri árum og fyrstu sögur
hans báru sterkan svip af skoð-
unum hans, þar sem alþýðan og
yfirvöld tókust á í ýmsum
myndum.
Önnur skáldsaga Amado,
Kakó, var gerð upptæk af lög-
reglu Vargas forseta sem var
við völd árin 1930–45 og aftur
1950–54. Á fjórða áratugnum
var Amado langdvölum í fang-
elsi fyrir pólitískar skoðanir
sínar, og Vargas lét brenna
1.700 eintök af sex fyrstu bók-
um skáldsins á aðaltorginu í
Salvador. Árið 1941 fór Jorge
Amado í útlegð til Argentínu. Í
heimsókn til Moskvu árið 1951
voru honum veitt friðarverð-
laun Leníns en ekki liðu nema
örfá ár þar til Amado fór að
gera sér grein fyrir glæpum
Stalíns og 1956 sagði hann skil-
ið við kommúnista. Hann sagð-
ist geta gert meira gagn með
skrifum sínum en með þátttöku
í pólitísku starfi. Hann kvaðst
þó fylgjandi sósíalisma, – en
innan ramma lýðræðisins.
Breytt viðhorf Amado endur-
spegluðust í bókum hans. Per-
sónusköpun hans varð fjöl-
breyttari og einsleitir og ýktir
karakterar stéttskipts sam-
félags milduðust, og kímnin og
lífsgleðin urðu sterkara afl.
Bókin Gabríela, negull og kan-
ill, frá 1958 varð metsölubók, og
sjónvarpsþættir og síðar kvik-
mynd byggð á sögunni, með
þeim Soniu Braga og Marcello
Mastroianni, nutu gríðarlegra
vinsælda. Hver metsölubókin
rak aðra og nafn Amado var
stöðugt nefnt í tengslum við
Nóbelsverðlaunin þótt aldrei
hreppti hann þau. Honum
hlotnaðist hins vegar margvís-
legur annar heiður og vegsauki
á ferli sínum. Sjálfur sagði
hann vinsældir sínar sprottnar
af sömu rótum og vinsældir
uppáhaldshöfunda sinna, Dick-
ens og Marks Twain: „Ég tala
mál fólksins og í sögum mínum
er alþýðan ævinlega sigurveg-
arinn. Af því er ég stoltur. Boð-
skapur minn er von í stað ör-
væntingar.“
Jorge
Amado
látinn
Jorge
Amado
LISTASUMAR hefst á morgun í
Súðavík og stendur yfir helgina.
Fjölbreytt dagskrá er í boði ætluð
allri fjölskyldunni, en þetta er í
þriðja sinn sem Listasumar er haldið
á Súðavík. Er það til komið vegna
samstarfs Félags íslenskra hljómlist-
armanna, sem keypti hús fyrir
félagsmenn sína eftir snjóflóðið árið
1995, Sumarbyggðar, fyrirtækis
sem var stofnað eftir flóðið og leigir
út íbúðir og einbýlishús til almennra
ferðamanna og Súðavíkurhrepps.
Dagskrá Listasumars er fjölbreytt
og ætti öll fjölskyldan að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Á meðal dag-
skrárliða eru mósaík-námskeið ætl-
að konum sem Kjuregej Alexandra
stjórnar, Lego-námskeið ætlað börn-
um og foreldrum undir stjórn Jó-
hanns Breiðfjörð, sem einnig heldur
fyrirlestur um reynsluna að hafa
upplifað að hafa drukknað, djass-
tónleikar Jóhönnu Vigdísar Arn-
ardóttur og hljómsveitar hennar,
bíómyndin Ikingut, tónlistarmessa
með djassívafi og brekkusöngur, svo
nokkuð sé nefnt.
Kjuregej Alexandra, leik- og
myndlistarkona ættuð frá Síberíu
sem hefur verið búsett á Íslandi í 35
ár, heldur mósaík-námskeið ætlað
konum í tengslum við Listasumarið.
„Ég ætla að kenna gerð mósaík-
verka og útiverka,“ segir Kjuregej
Alexandra sem segist hlakka mikið
til að koma vestur. „Ég stefni aðal-
lega að því að kenna konum sem ef
til vill vinna heima og hafa minna
fyrir stafni. En allir eru auðvitað
velkomnir.“
Kjuregej Alexandra hefur kennt
fólki úr ýmsum starfsgreinum gerð
mósaíkverka, s.s. múrurum og
myndlistarmönnum. „Margir halda
að þetta sé mjög einfalt, bara að
líma steinana og svo framvegis, en
öll listsköpun er erfið að vissu leyti
og verður bara til með svita og tár-
um. En fyrir fólk sem hefur tíma til
að stunda þetta er þetta kjörið, því
mósaík er líka hagnýt. Eftir nám-
skeiðið ætti fólk að geta flísalagt eða
skreytt húsið. Margir gera sér ekki
grein fyrir hæfileikum sínum, en
hver manneskja hefur hæfileika sem
geta komið í ljós og ég vona að
mósaíkin geti hjálpað sumum til
þess. Það gefur gleði og sjálfsöryggi
að vita að maður getur.“
Á sunnudag verður opnuð sýning
á verkum nemenda á námskeiðinu.
Notalegur djass
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, leik-
og söngkona, heldur djasstónleika
ásamt hljómsveit á föstudagskvöld.
„Meginuppistaðan er efnisskrá tón-
leika sem við héldum í Borgarleik-
húsinu í vetur,“ segir hún. „Þetta
eru ástarlög sem við höfum djassað
upp, í rólegri kantinum. Hugsunin
er að þarna myndist þægileg
stemmning.“ Með Jóhönnu Vigdísi
leika Óskar Einarsson á píanó, sem
jafnframt hefur séð um útsetningar
ásamt henni, Sigurður Flosason á
saxófón og fleiri hljóðfæri, Birgir
Bragason á bassa og Halldór Gunn-
laugur á trommur. „Þeir eru alveg
frábærir og ef til vill taka þeir ein-
hver lög án mín,“ heldur Jóhanna
Vigdís áfram. „Við erum með eitt-
hvað af lögum eftir Cole Porter,
frönsk lög og ýmislegt fleira. Þau
eru misvel þekkt, sum heyrast sjald-
an en önnur eru vel þekkt.“
Lego fyrir feðga
Jóhann Breiðfjörð heldur nám-
skeið í Lego fyrir börn og foreldra á
Listasumrinu, en heldur einnig fyr-
irlestur um reynsluna að hafa upp-
lifað að hafa drukknað. „Ég starfaði
í fimm ár sem hönnuður og ráðgjafi
fyrir Lego í Danmörku. Á meðan ég
starfaði þar fékk ég 200 kíló af
tæknilegokubbum frá fyrirtækinu
sem ég fékk send til Íslands. Þetta
hef ég svo notað á námskeiðum og
hleypt krökkum í þetta,“ útskýrir
Jóhann. „Í raun er þetta svipuð
hugsun og hjá Kjuregej, að krakk-
arnir læri hvað þau hafa í sér, því oft
fylgja þau bara vinnuleiðbeiningum
í stað þess að skapa sjálf. Þau geta
lært svo mikið um tæknilega virkni
af þessum kubbum og það er það
sem ég hef verið að leiðbeina þeim
með og sýna þeim hvað er mögu-
legt.“ Að sögn Jóhanns er hug-
myndin að foreldri og barn séu sam-
an á námskeiðinu. „Ég hef mjög oft
séð að feðurna klæjar í fingurna að
fá að leika sér með. Námskeiðin
verða þrír tímar í senn og lýkur með
sýningu á sunnudeginum.“
Á föstudagskvöld heldur Jóhann
svo fyrirlestur um þá sérstæðu
reynslu að hafa upplifað drukknun.
„Þegar ég var sextán ára drukknaði
ég og líkaminn lést í þrjár til fimm
mínútur,“ segir hann. „Af ein-
hverjum ástæðum man ég allt sem
gerðist, ég hélt áfram að skynja þó
svo að líkaminn væri látinn. Ég hef
haldið fyrirlestra og sagt vinum og
kunningjum sem hafa ef til vill misst
ástvini frá reynslunni, því ég hef
lært mikið við að vinna úr þessu og
aflað mér þekkingar hvað þetta hafi
verið sem gerðist.“ Jóhann telur að
margir Íslendingar hafi upplifað að
missa ástvini á þennan hátt, ekki síst
á þeim slóðum sem fyrirlesturinn er
haldinn. „Þetta mál tengist öllum.
Margir útiloka að nokkuð svona geti
komið fyrir sig. En með því að horf-
ast í augu við það, kemst maður nær
því að lifa lífinu og lærir að meta það
betur,“ segir Jóhann.
Skráning á námskeiðin fer fram í
síma Sumarbyggðar í Súðavík, 456-
4986 eða 691-4986.
Listasumar í
blóma á Súðavík
Morgunblaðið/Júlíus
Jóhann Breiðfjörð, Kjuregej Alexandra og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.