Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbarn dagsins: Þú ert gæddur ríkri ábyrgð- artilfinningu, en kannt þó vel að gera að gamni þínu á græskulausan máta. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Menn líta til þín um lausn mála, sem reynast öðrum of- viða. Láttu velgengnina samt ekki stíga þér til höfuðs, en vertu ljúfur og lítillátur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það færi best á því að þú héldir þér til hlés um sinn. Stundum er manni einfald- lega ofaukið og í þeirri stöðu ert þú nú. Taktu því með þol- inmæði. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þegar þú ert í hlutverki gest- gjafans verður þú að sýna þá lipurð og tillitssemi sem dug- ar til að allt gangi snurðu- laust, hvað sem á dynur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Gerðu hreint fyrir þínum dyrum og láttu engan komast upp með að fara rangt með um þína stöðu. Það er sjálf- sagt að fá hlutina skriflega. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er óþarfi að láta það stíga sér til höfuðs, þótt vinnu- félagar þínir séu á einu máli um ágæti þitt og velji þig til forystu. Hógværð er dyggð. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um stöðu þeirra, sem þú hefur treyst. Sýndu skiln- ing á annarra axarsköftum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Reyndu að ráða fram úr mál- um áður en þau verða að vandamálum. Það kostar góða dómgreind og skjót við- brögð og sparar bæði fyrir- höfn og leiðindi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Reyndu ekki að hefjast handa fyrr en þú hefur kynnt þér málið vandlega og velt því fyrir þér frá öllum hlið- um. Fljótfærni reynist dýr- keypt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hagaðu orðum þínum svo að ekkert fari á milli mála hvað þú átt við. Ekkert er eins þreytandi og stöðugur og endalaus misskilningur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Erfið mál kalla á krafta þína bæði heima fyrir og í vinnunni. Reyndu að leysa þau skipulega og án þess að annar staðurinn sé tekinn framyfir hinn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þótt þér finnist hlutirnir at- hyglisverðir er ekki þar með sagt að öðrum finnist svo. Sýndu málstað annarra þann skilning sem þú vilt mæta sjálfur. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér finnist þú standa í ströngu þessa dagana, skaltu ganga glaður til verks, því þegar hríðinni slotar kemur betri tíð með blóm í haga. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT SÆLUDALUR Þögul nóttin þreytir aldrei þá, sem unnast, þá er á svo margt að minnast, mest er sælan þó að finnast. Eilíf sæla er mér hver þinn andardráttur og ýmist þungur, ýmist léttur ástarkoss á varir réttur. Hvítum, mjúkum, heitum, fögrum handleggjunum vil ég heldur vafinn þínum vera en hjá guði mínum. Guð að sök mér gefur ei sem góðum manni, unun þó ég fremsta finni í faðminum á dóttur sinni. Páll Ólafsson. ÞEGAR blindur kemur upp í fimm tíglum suðurs virðist sem samningurinn byggist á því að hjartaásinn liggi á undan hjónunum. Útspilið er spaðadrottning. Norður gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁK96 ♥ KD2 ♦ K73 ♣ ÁK9 Vestur Austur ♠ DG1073 ♠ 542 ♥ 643 ♥ ÁG105 ♦ Á8 ♦ 42 ♣ D87 ♣ G1052 Suður ♠ 8 ♥ 987 ♦ DG10965 ♣ 643 Vestur Norður Austur Suður – 2 grönd Pass 5 tíglar Pass Pass Pass Reyndur spilari er fjótur að sjá kjarna málsins og hugsar sem svo: „Eitt lauf getur farið niður í spaðakóng og ef vestur er að koma út frá DG10 þriðja má byggja upp slag á níuna, en annars verður hjartaásinn að liggja.“ Að svo mæltu drepur hann á spaðaás og spilar tígli á drottninguna. Vestur tekur strax á ásinn og spilar spaðatíu. Sagnhafi tek- ur á kónginn, svo tígulkóng og trompar spaða. Ekki kem- ur gosinn. Þá er að bara að spila hjarta að hjónunum. Nú er austur í sviðsljósinu. Með ÁG10 lítur út fyrir að vera óhætt að taka strax á ás- inn og spila gosanum til baka. En svo einfalt er málið ekki, því þá vaknar önnur nía til lífsins – nían í hjarta. Sagnhafi spilar trompunum til enda og skyndilega verða allar níur hans virkar: Norður ♠ 9 ♥ – ♦ – ♣ ÁK9 Vestur Austur ♠ G ♠ – ♥ – ♥ 10 ♦ – ♦ – ♣ D87 ♣ G105 Suður ♠ – ♥ 9 ♦ G ♣ 64 Þegar tígulgosa er spilað í þessari stöðu neyðast báðir mótherjar til að fækka við sig laufum og það þýðir að þriðja nían – laufnían – verður úr- slitaslagurinn. Dæmigerð tvöföld kastþröng, en óvenju- leg að því leyti að þrjár níur koma við sögu og gegna allar hlutverki hótunarspils. Ekkert verður úr þessari níuþvingun ef austur dúkkar hjartakónginn, en það er ekki einföld vörn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. ágúst, verður áttræð Guð- rún Ingvarsdóttir, Sól- vangsvegi 1, Hafnarfirði. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju, á af- mælisdaginn kl. 20-23. 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. ágúst, verður sjötugur Guðni Gíslason, fyrrver- andi sjómaður, Granaskjóli 23, Reykjavík. 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. ágúst, verður sextugur Jó- hannes Jónsson, Klappar- holti 10, Hafnarfirði. Eigin- kona hans er Þórunn Gísladóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í dag milli kl. 19 og 21 í Veitinga- húsinu Turninum, Firði, Hafnarfirði. 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. ágúst, er áttræð Arnbjörg S. Sigurðardóttir frá Stóra- Kálflæk, nú til heimilis að Geitlandi 12, eiginmaður hennar var Hjörleifur Magnússon. Hún er að heiman. 50ÁRA afmæli. Í dag, 8.ágúst, er fimmtugur Þorsteinn Birgisson, til heimilis í Logafold 100, Reykjavík. Af því tilefni munu Þorsteinn og kona hans Ragnheiður Stein- björnsdóttir, bjóða vinum, félögum og ættingjum til veislu í sal Orkuveitu Reykjavíkur, Eirhöfða 11, Reykjavík, laugardaginn 11. ágúst kl. 20–24. ALLS tóku 23 íslenskir skákmenn þátt í skákhátíð- inni í Pardubice í Tékklandi er lauk fyrir skömmu. Einn þeirra var Sigurbjörn Björnsson (2.297), en hann hafði svart í stöðunni gegn lettneska al- þjóðlega meist- aranum Daniels Fridman (2.562). 23. H1d4! Db6 Einnig var slæmt fyrir svartan að leika 23. ...Bxd4 þar sem eftir 24. Hxd4 Db6 25. Hc4 fær hvítur tvo létta menn fyrir hrók. Í framhaldinu verður svartur manni undir en SKÁK Unsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. hann var ekki á þeim buxun- um að gefast upp og reyndi hvað hann gat til að flækja taflið: 24. Hc4 Dc7 25. Bxc5 b6 26. Ba3 c5 27. e5 b5 28. Hxc5 Da7 29. Rd5 b4 30. Rxb4 Bf5 31. Dc3 Hb5 32. Rc6 Db7 33. Hxb5 Dxb5 34. Bf1 Db6+ 35. Dc5 Dc7 36. Da5 Db7 37. Bxa6 Da8 38. Db6 Be4 39. Kf2 Bf8 40. Hd8 Hxd8 41. Dxd8 Bxc6 42. Dxf8+ og svartur gafst upp. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r Snertilinsur - fyrir hestafólk - 6 linsur í pakka, prófun, meðferðarkennsla, vökvi og box. frá 7.500.- kr. sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945 Síðbuxur Nýir haustlitir Tilboð Barnamyndatökur verð frá kr. 5.000 Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Útsalan í fullum gangi Suðurlandsbraut 52 Bláu húsin við Faxafen sími 568 3919 Smáskór sérverslun með barnaskó ÚTSÖLULOK Útsölunni lýkur á laugardag. Enn meiri verðlækkun. LAUGAVEGI 1 S: 561 7760 Velkomin um borð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.