Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 15 FJÖLDI fólks tók þátt í hátíðar- höldum á fjölskylduskemmtuninni Ein með öllu á Akureyri um versl- unarmannahelgina. Hápunktur há- tíðarinnar fór fram á Akureyrarvell- inum á sunnudagskvöld, þar sem talið er að á fimmta þúsund manns hafi tekið þátt í brekkusöng. Hátíð- inni var svo slitið með glæsilegri flugeldasýningu á vellinum. Bragi Bergmann hjá Fremri kynningarþjónustu, sem hafði um- sjón með hátíðarhöldunum, var ánægður með helgina þótt hann hefði vissulega viljað fá fleira fólk til bæjarins. „Þetta var notaleg og vandræðalaus fjölskylduhelgi. Mér finnst þó standa upp úr hversu margir bæjarbúar tóku virkan þátt í hátíðarhöldunum.“ Bragi sagði mjög fáa hafi gist á tjaldsvæðunum og þá sérstaklega að Hömrum sem hafi verið slæmt þar sem skátar hefðu undirbúið fjöl- breytta dagskrá þar alla helgina. Hins vegar hafi fjöldi fólks verið í orlofsíbúðunum í bænum og hjá vin- um og kunningjum. „Veðurspáin fyrir helgi var nú heldur ekki til að hjálpa okkur en hér var komin blíða á laugardag.“ Rólegt hjá lögreglu Bragi sagði að unglingadansleik- irnir í KA-heimilinu hafi verið vel sóttir sem og dagskrá yfir daginn á Ráðhústorgi. Einnig voru veitinga- hús og skemmtistaðir ágætlega sótt. Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu- þjónn á Akureyri, sagði að fjöl- skylduhátíðin hefði farið vel fram og þá hafi umferðin gengið vel í bæn- um og næsta nágrenni. Hann sagði ekki eitt einasta fíkniefnamál hafa komið upp um helgina og heldur ekki nauðgunarmál. „Frá okkar sjónarhóli var þetta mjög þægileg helgi.“ Akureyringar tóku virkan þátt í fjölskylduhátíðinni Notaleg og vandræða- laus fjölskylduhelgi Morgunblaðið/Kristján Mikill fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í dagskrá á Akureyr- arvellinum á sunnudagskvöld, sem lauk með glæsilegri flug- eldasýningu. SÓPRANSÖNGKONAN Guðrún Ingimarsdóttir og Duo Serenade, sem er skipað Alexander Auer þver- flautuleikara og Heike Matthiesen gítarleikara, koma fram á tónleikum í Deiglunni í kvöld, miðvikudaginn 8. ágúst, kl. 20.30. Á efnisskránni eru spönsk og suð- ur-amerísk sönglög og tangóar eftir Manuel Valls, Joaquin Rodrigo, Fed- erico Garcia Lorca, Jaime Ovalle, Paurillo Barroso, Heitor Villa-Lobos og Astor Piazzolla. Guðrún Ingimarsdóttir stundaði nám í Söngskólanum í Reykjavík, í Lundúnum og í Tónlistarháskólan- um í Stuttgart undir leiðsögn pró- fessors Sylvíu Geszty og lauk þaðan námi árið 1998. Duo Serenade hefur starfað frá 1997 og hefur komið fram víða um Þýskaland og í Japan, svo og í sjón- varpi og útvarpi. Alexander Auer er fæddur í Tran- sylvaníu og hóf þar tónlistarnám ungur að árum. Í Þýskalandi stund- aði hann nám í Mannheim og síðan í Tónlistarháskólanum í Stuttgart. Heike Matthiesen er frá Frank- furt í Þýskalandi og stundaði nám við tónlistarskólann þar í borg. Að námi loknu varð hún nemandi hins heims- fræga gítarleikara Pepes Romero og kom fram á tónleikum með gítar- kvartettinum „Los Romeros“. Sönglög og tangóar á tónleikum í Deiglunni ELDUR kom upp í dráttarvél á bænum Þrastarhóli í Arnarnes- hreppi í Eyjafirði seinni hluta sunnu- dags. Vélin sem stóð úti á túni gjör- eyðilagðist en talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Tilkynning um eldinn barst Slökkviliðinu á Akureyri aðeins fimm mínútum eftir að tilkynning um nauðlendingu flugvélarinnar í Garðsárdal barst. Þangað höfðu allir tiltækir menn verið sendir og því tafðist nokkuð að senda slökkvibíl að Þrastarhóli þar sem kalla þurfti út auka mannskap. Viðar Þorleifsson, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, sagði að lík- lega hefði verið hægt að bjarga ein- hverju af dráttarvélinni ef ekki hefði staðið svona á og menn komist fyrr á staðinn. Dráttarvél eyðilagðist í eldi Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni HÁTT í 40 fræðimenn stunda nú rannsóknir og uppgröft fornra mannvistarleifa á þremur stöðum í Mývatnssveit. Stór hópur er á Hofs- stöðum, þar sem uppgröftur við skálann stóra sem frægur er er langt kominn og rannsóknir nú að færast í fornan kirkjugarð og kirkju frá kaþólskum sið. Í Sveigakoti sunnan Grænavatns fer fram ítarleg rannsókn á fornu bæjarstæði og í Hrísheimum, nokk- uð vestur frá Baldursheimi, er ver- ið að taka fyrstu prufur til þess að hægt sé að átta sig á umfangi mannvistarleifa þar. Minna má á að í Baldursheimslandi varð merkur kumlfundur árið 1860 sem varð- aðalkveikjan að stofnun Forn- gripasafns Íslands. Rannsóknir í Mývatnssveit eru meðal annars svo umfangsmiklar vegna þess að víða sést hér móta fyrir fornum mannvistarleifum þar sem ekki hefur haldist byggð mjög lengi og ekki orðið röskun af seinni tíma búsetu, frekar þá að fokið hafi ofan af og þannig vaknað áhugi á frekari skoðun. Hópurinn, sem að stærstum hluta eru erlendir fræði- menn og nemendur, er undir stjórn Fornleifastofnunar Íslands og verð- ur hann við rannsóknir hér fram yfir miðjan ágúst. Morgunblaðið/BFH Mjöll Snæsdóttir fornleifafræð- ingur við fornar grafir í kirkju- garðinum, fjær er grjót úr undirstöðum kirkjunnar. Grafið í söguna í sveitinni Mývatnssveit ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.