Morgunblaðið - 08.08.2001, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN
28 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
Verðdæmi:
King áður kr. 173.800 nú kr. 121.700
Queen áður kr. 127.200 nú kr. 89.00020-30%af öllum rúmum
Sumartilboð
Flogið verður til Frankfurt og ekið þaðan samdægurs (ca 8 tíma
ferðalag) til Prag. Þar verður svo gist næstu 6 nætur. Á næst síð-
asta degi verður ekið áleiðis til Frankfurt með viðkomu í Karlovy
Vary, sem er einn þekktasti og fegursti heilsubaðstaður í Tékklandi.
Gist verður síðustu nóttina í Þýskalandi.
Bjóðum vikuferð til ævintýraborgarinnar við Dóná 16. október.
Flogið með Flugleiðum og SAS um Kaupmannahöfn til Budapest
þar sem dvalið verður næstu vikuna. Meðan á dvöl stendur verða
ýmsar ferðir í boði, s.s. til Szentendre og Dónárbugðunnar og út á
sléttuna miklu.
Guðmundur Jónasson
Ferðaskrifstofa
Borgartúni 34
sími 511 15 15
outgoing@gjtravel.is
Haustferðir til Prag
Haustferð til Búdapest
Bjóðum vikuferðir til
höfuðborgar Tékklands
þann 12. september, 19. september,
26. september og 3. október.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, gisting í tveggja manna herbergi,
morgunverður, allur akstur, skoðunarferð um Prag og íslensk fararstjórn.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 9.000 krónur.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, gisting í tveggja manna herbergi,
morgunverður, akstur milli flugvallar og hótels við komu og brottför,
skoðunarferð um Búdapest og íslensk fararstjórn. Aukagjald fyrir eins
manns herbergi er 12.100 kr.
Verð kr. 68.700.
Verð kr. 75.600.
Ferð á hópbifreiðasýninguna
í Kortrijk í Belgíu.
20. október er fimm daga ferð á
hópbifreiðasýninguna í Kortrijk.
Í GREIN sem Ög-
mundur Jónasson,
þingmaður vinstri
grænna og stjórnarfor-
maður LSR, birtir í
Morgunablaðinu hinn 3.
ágúst sl. fer hann
nokkrum orðum um
gagnrýni mína á afstöðu
hans hvað varðar skoð-
un lífeyrissjóðanna á
Reyðaráli sem fjárfest-
ingarkosti og beinir
jafnframt til mín spurn-
ingu sem mér er ljúft að
svara.
Í greininni viður-
kennir Ögmundur að
honum „hugnist stóriðjuáform ríkis-
stjórnarinnar illa og sé andvígur því
að nota fjármagn lífeyrissjóðanna til
að spilla landi okkar eins og áform eru
uppi um“. Engu síður segir hann að
það séu einungis fjárhagslegir þættir
sem ráði þeirri ákvörðun stjórnarinn-
ar að taka ekki þátt í skoðun á Reyð-
aráli sem fjárfestingarkosti og full-
yrðir að „stjórnarmenn í LSR séu
mjög vel upplýstir um þetta mál og
hafi lagt sig sérstaklega eftir að
kynna sér þær staðreyndir sem
þekktar eru“. Menn hljóta í ljósi þess-
arar yfirlýsingar að spyrja hví í
ósköpunum Ögmundur og aðrir
stjórnarmenn í LSR vilji ekki taka
þátt umræddri athugun á Reyðaráli.
Hafa þeir ekki áhuga á frekari upp-
lýsingum sem geta aðeins orðið til að
bæta ákvarðanatökuna? Ég held að
almenningur hljóti að sjá að hér er um
pólitíska ákvörðun að ræða og spurn-
ingu minni um það
hvort Ögmundur Jónas-
son valdi starfi sínu sem
stjórnarformaður í
LSR hefur á engan hátt
verið svarað.
Hagstætt fyrir
báða aðila
Í greininni talar Ög-
mundur um að ýmsar
mótsagnir sé að finna í
afstöðu Landsvirkjun-
ar. Þannig telur hann að
skilja megi á málflutn-
ingi mínum að „Reyð-
arál muni gefa af sér
mikinn arð og sé væn-
legur fjárfestingarkostur fyrir lífeyr-
issjóði og forsenda þess sé hagstætt
raforkuverð“. Ég hef ekki sagt neitt
sem skilja má í þessa veru. Um þetta
veit Ögmundur áreiðanlega mun
meira enda sat hann kynningarfund
sem Reyðarál hélt með fulltrúum líf-
eyrissjóðanna. Ég hef hins vegar sagt
að mér þyki það ábyrgðarhluti að
hafna svo mikilvægum fjárfestingar-
kosti án rækilegrar skoðunar.
Ég hygg að Ögmundur hafi rétt
fyrir sér þegar hann talar um að raf-
orkuverðið sé hagstætt, enda þarf það
að vera hagstætt fyrir báða aðila til
þess að samningar náist. Það er hins
vegar mikill misskilningur ef hann
ætlar að það sé aðeins raforkuverð
sem ráði staðsetningu álvera. Álfyr-
irtæki geta víða fengið mun lægra raf-
orkuverð, greitt mun lægri laun og
komist af með mun minni umhverf-
iskostnað. Eigi að síður er litið til Ís-
lands sem ákjósanlegrar staðsetning-
ar fyrir álver. Hér höfum við hreina
orku, menntað og traust vinnuafl,
hátt tæknistig, stöðugt stjórnmála-
umhverfi, vestrænt hagkerfi og nánd
við helstu álmarkaði en samanlagt
gefur þetta Íslandi samkeppnisfor-
skot þó svo að einstakir kostnaðarliðir
séu hærri en annars staðar.
12–14% raunarðsemi eigin fjár
Ögmundi fellur greinilega mjög
miður að væntanlegt orkuverð til
Reyðaráls skuli vera trúnaðarmál og
spyr mig hvað ég telji „að það þurfi að
vera til þess að uppfylla loforð stjórn-
valda um að þá aðeins verði ráðist í
þessar framkvæmdir að þær skili
Landsvirkjun nægilegum arði til þess
að lækka raforkuverð til landsmanna
um 20 til 30% á næsta áratug“. Þarna
er raunar ekki um loforð stjórnvalda
að ræða heldur ákvæði í sameignar-
samningi eigenda fyrirtækisins frá
árinu 1996. Þessi fyrirætlun stendur
óhögguð og allar áætlanir Lands-
virkjunar gera ráð fyrir 2–3% raun-
lækkun raforkuverðs til almennings-
veitna á árunum 2001–2010.
Ögmundur má hins vegar ekki
gleyma að stjórnendum Landsvirkj-
unar ber einnig að stuðla að því að
eigendur hafi 5–6% raunarðsemi af
því eigin fé sem bundið er í fyrirtæk-
inu. Ég vil ekki ræða um orkuverðið
sjálft enda er það ekki mikilvægt í
þessari umræðu. Það sem máli skiptir
er að áætlanir gera ráð fyrir að raun-
arðsemi eigin fjár í fjárfestingum
vegna Reyðarálssamninganna verði á
bilinu 12 til 14%. Það er mun hærra
en sú lágmarksarðsemi sem eigendur
gera kröfu um og stuðlar enn frekar
að því að saman geti farið lækkað
orkuverð til almennings og viðunandi
arðsemi fyrir eigendur. Í ljósi þessa
hlýtur að vera enn meiri ástæða til að
Ögmundur Jónasson og stjórn LSR
kynni sér til hlítar hvað Reyðarál get-
ur gert fyrir lífeyrissjóðina og lands-
menn.
Upplýst
afstaða
Stefán
Pétursson
Virkjanir
Mér þykir það ábyrgð-
arhluti, segir Stefán
Pétursson, að hafna svo
mikilvægum fjárfesting-
arkosti án rækilegrar
skoðunar.
Höfundur er fjármálastjóri
Landsvirkjunar.
KALDAR vetrarnæt-
ur geta margar þótt hlý-
legri en mörg þau hryss-
ingslegu orð sem fallið
hafa að undanförnu um
hábjart sumarið vegna
hrapallegra mistaka og
yfirsjónar eins manns
sem nú getur varla ann-
að en beðið réttlætis-
gyðjuna griða.
Yfirsjón og mistök
sem tæplega má rekja til
annars en breyskleika
mega aldrei verða til
þess að mönnum sé út-
skúfað eða reknir í bakið
af rauðum pennum eða
öðrum sem áþekkir eru.
Þeir hafa sjálfsagt sjálfir margar
hildirnar háð á vígvelli siðfræði,
stjórnmála og bókmennta en gera
sér sjálfsagt ekki alltaf grein fyrir
breyskleika sínum og leita sér til
sáluhjálpar að öðrum sem gætu þó
verið verri, slíkt er mannlegt en
jafn slæmt fyrir það.
Siðferði í íslenskum stjórnmálum
hefur löngum þótt undarlegt þó svo
að telja megi að siðferði hér sé
skömminni skárra en í fjölmörgum
ríkjum heims. Hins vegar er það
óljóst hvort við erum að ræða um
siðferði í samanburði við siðferði
yfirleitt á Íslandi eða í samanburði
við önnur lönd, aðra þjóðmenningu
eða framandi kennisetningar. Ekki
er það ljóst hvort við teljum siðferði
í stjórnmálum eiga við um pólitískt
siðferði í ljósi stefnumarkmiða
stjórnmálamanna en telja má full-
víst að fjölmörg stefnumarkmið
hafa farið alvarlega á skjön við al-
mennt velsæmi svo ekki sé dýpra í
árinni tekið. Fáum hefur verið refs-
að fyrir slíka yfirsjón hér á landi
enda sem betur fer komust fáar
þessar tillögur að sökum skynsemi
annarra manna.
Varðandi almennt siðferði
spretta oft upp sjálfskipaðir sér-
fræðingar sem telja sig vera betri
en aðrir menn. Þeir margir gera
sér samt ekki grein fyrir því að allir
eiga að hafa möguleika á að farnast
vel í lífinu en slíkt er háð því að
menn rannsaki líf sitt og leiti svara
við því hvaða líferni leiði til velfarn-
aðar.
Sagt er að sá maður sé dyggð-
ugur sem hefur vit
til að greina á milli
góðs og ills, hug-
rekki til að breyta
rétt og hófsemi til að
hafa skynsamlega
stjórn á löngunum
sínum. Þeir sem
uppfylla þetta upp-
fylla fjórðu höfuð-
dyggð siðfræðinnar,
réttlætið. Mér er til
efs að öllum mönn-
um hafi tekist þetta
þótt þeir hafi margir
reynt að nálgast að
uppfylla þessar
kennisetningar.
Aristóteles sagði að
dyggðugur væri sá maður sem
kynni að bregðast vel við öllum sín-
um aðstæðum og rata meðalhófið
hverju sinni. Tel ég fullvíst að
margar þær túttubyssur sem þeysa
á ritvöllinn á blíðviðrisdögum til að
koma af stað moldviðri kunni ekki
að rata meðalhófið og óvíst um
hvort þeir muni fyrr eða síðar geta
það. Slíkur er breyskleiki þeirra.
Ákvörðun sú sem Árni Johnsen
tók um afsögn sína er skynsamleg
og öðrum til eftirbreytni sem síðar
munu hrasa um vandrataðan veg
meðalhófsins. Þetta gerði Árni eins
og maður og mun axla ábyrgð eins
og höfðingi. Þá er rétt að benda
öðrum, sem eftir sitja, á að binda
skóþveng sinn vel, taka hatt sinn og
staf og rölta í lautarferð í eina alls-
herjar naflaskoðun og varast að
hrasa, bæði í úfnu hrauni stjórn-
mála og á eign hyggjuviti og mann-
legu eðli.
Að vera
breyskur
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Siðferði
Oft spretta upp
sjálfskipaðir sérfræð-
ingar, segir Sveinn
Óskar Sigurðsson, sem
telja sig vera betri
en aðrir menn.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
KUNERT
WELLNESS
Sokkabuxur
Hnésokkar
Ökklasokkar
iðunn
tískuverslun
2. hæð, Kringlunni, sími: 588 1680
v/ Nesveg, Seltjarnarnesi, sími: 561 1680
Sími 555 0455 Sími 564 6440
20%
afsláttur af
barnamyndatökum
í júlí