Morgunblaðið - 12.09.2001, Qupperneq 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKLAR endurbætur hafa verið
gerðar á vefsíðu Verkmenntaskólans
á Akureyri. Vefsíðan er því orðin
mun aðgengilegri en áður og þar er
að finna ferskar fréttir og ýmsar
nytsamar upplýsingar um skólann,
skólastarfið og starfsfólk.
Guðjón Ólafsson, enskukennari og
fyrrum tölvusérfræðingur Mennta-
skólans á Ísafirði, hefur verið ráðinn
í fullt starf hjá VMA en hann var áð-
ur í hlutastarfi, sem fjarkennari við
skólann. Guðjón mun starfa með
Adam Óskarssyni, kerfisstjóra, og
annast ritstjórn og hafa umsjón með
vef skólans en hann vann að endur-
skoðun vefsins í sumar.
Adam sagði að skólinn hefði yfir
að ráða kröftugum vef sem hafi verið
mikið notaður en hins vegar hefði
skólinn ekki haft nægan mannskap
til að sjá um hann fram að þessu.
Hann sagði mikið álag á tölvukerfi
skólans í kringum fjarnámið og að
með nýjum búnaði og auknum mann-
skap opnuðust nýir möguleikar.
Adam sagði að hugmyndir væru uppi
um að nota vefinn meira til kennslu í
dagskóla og þá fækka kennslustund-
um í einhverjum tilfellum.
Rúmlega helmingur
nemenda frá Akureyri
Á vefsíðu skólans kemur m.a. fram
að af þeim 1.060 nemendum sem
skráðir eru í dagskóla í vetur eru 630
frá Akureyri, eða 59%, 134 nemend-
ur koma úr næsta nágrenni Akur-
eyrar, eða um 13%, 108 nemendur
koma úr utanverðum Eyjafirði, eða
10% og 188 nemendur koma utan
Eyjafjarðar, eða 18%. Hlutfallið milli
kynja er körlum í vil, eða 556 karlar
á móti 504 konum.
Vefsíða VMA hefur
verið endurbætt
VEFKENNSLUSETRIÐ Náms-
torg.is hefur verið opnað formlega,
en það er starfrækt af Símenntun
Háskólans á Akureyri. Stefnt er að
því að innan árs verði í boði um 200
mismunandi tölvu- og tölvutengd
námskeið á námstorginu og verður
framboðið aukið enn frekar þegar
fram líða stundir. Þá verður einnig
boðið upp á nám í fleiri greinum.
Fyrirtækið Opnar gáttir hannaði
vefkennslusetrið og umhverfi þess í
samstarfi við símenntunarsvið Há-
skólans á Akureyri á grundvelli
veflausna frá fyrirtækinu NETg.
Námið fer fram um tölvu nem-
andans og tengir hann sig í gegnum
vefvafra, en sérstakur hugbúnaður
stýrir aðgangi að náminu og heldur
utan um framvindu nemandans.
Námsefni er miðlað á margmiðl-
unarformi, þ.e. hljóð, kyrrmyndir,
hreyfimyndir, texta og öll þau form
miðlunar sem Netið styður. Námið
er unnið samkvæmt námsskrá frá
viðkomandi fyrirtæki, s.s. Microsoft
og er aðgangur að kennslunni op-
inn í eitt ár. Í lok námsins geta nem-
endur tekið alþjóðlega viðurkennd
próf með milligöngu Rannsóknar-
stofnunar Háskólans á Akureyri.
Vefbundið nám hefur rutt sér til
rúms og nýtur nú vaxandi vinsælda,
en kannanir hafa sýnt að nemendur
eru mun fljótari að tileinka sér
námsefni þegar lært er með þessum
hætti. Gissur Pétursson forstjóri
Vinnumálastofnunar opnaði náms-
torgið formlega og pantaði fyrsta
námskeiðið við athöfn í Háskól-
anum á Akureyri, en starfsmennta-
ráð veitti styrk til uppbyggingar
þess.
Vefkennslusetrið Námstorg.is opnað
Vefbundið nám nýtur
nú vaxandi vinsælda
Morgunblaðið/Kristján
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, opnaði námstorgið
formlega og nýtur hér aðstoðar Geirs Hólmarssonar frá Opnum gáttum.
BÆNDUR í Eyjafirði hafa flestir
lokið heyskap á þessu sumri eða eru
rétt að ljúka honum þessa dagana.
Að sögn Ólafs Vagnssonar, ráðu-
nautar hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar, eru hey með mesta móti í ár
en þó nokkuð misjöfn að gæðum, eft-
ir nokkuð votviðrasamt sumar.
Þá eru kartöflubændur í firðinum
farnir að kíkja undir og sagði Ólafur
að heilt yfir væri kartöfluuppskera
mjög góð og yfir meðallagi enda
hefði tíðarfarið verið betra til kart-
öfluræktar en heyþurrkunar. Há-
annatíminn í kartöfluupptektinni
stendur fram yfir 20. september.
Ólafur sagði að þeir bændur sem
hefðu verið að reyna þurrka hey
hefðu átt í töluverðum erfiðleikum.
„Það hefur verið afskaplega skúra-
samt á þessu svæði og hey því hrak-
ist þónokkuð.“
Morgunblaðið/Kristján
Rúllibinditæknin hefur komið sér vel fyrir bændur í Eyjafirði í sumar
enda tíðin verið sérlega votviðrasöm.
Hey með mesta móti
en misjöfn að gæðum
HÖFUÐLÚS hefur gert vart við
sig í grunnskólum á Akureyri en
þessa hvimleiða gests hefur orðið
vart á þessum árstíma undanfarin
ár. Höfuðlúsin gerir ekki manna-
mun og bæði börn og fullorðnir
geta fengið þennan óvelkomna gest,
sem þó auðvelt er að losna við.
Í lyfjabúðum fæst efni í hárið
sem drepur bæði lús og nyt en til
að árangur náist þarf að fara ná-
kvæmlega eftir þeim leiðbeiningum
sem fylgja. Lúsin er smá en auðsæ
berum augum.
Besta leiðin til að leita lúsar er að
kemba hárið með lúsakambi sem
fæst í lyfjabúðum. Finnist lús þarf
strax að bera efni í hárið sem vinn-
ur bæði á lús og nyt. Leita þarf þá
tafarlaust að lús á öðru heimilis-
fólki.
Eftir meðferð þarf að kemba hár-
ið daglega í 10-14 daga til að vera
viss um að árangur hafi náðst. Þvo
þarf rúmföt, viðra sængur og kodda
og fatnað í notkun þarf að þvo eða
setja í plastpoka og frysta.
Lúsin
gerir vart
við sig
Glæsieldhús frá A til Ö...
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
D
V
R
07
3
Við sérhæfum okkur
í heildarlausnum fyrir
eldhús og bað.
Innréttingar – Raftæki – Hreinlætistæki
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
- trygging fyrir l
águ
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
Alþjóðleg
ferðamarkaðsfræði
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli Íslands leiðandi skóli fyrir þá, sem
vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu. Ferðamálaskóli Íslands
var fyrstur skóla til að byrja með alþjóðlegt IATA/UFTAA
(Alþjóðasamband flugfélaga) nám, sem er viðurkennt um allan
heim og hlotið hefur miklar vinsældir hér á landi.
Ferðamálaskóli Íslands hefur nú fyrstur skóla fengið samþykki
IATA/UFTAA til að bjóða uppá nýtt námsefni, sem IATA/UFTAA
hefur hleypt af stokkunum og á örugglega eftir að verða hagnýtt
og eftirsótt nám.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
Söluráðar Verðlagning
Markaðsrannsóknir Samkeppni
Markaðsumhverfið Markaðsáæltanir
Markaðshlutun Markaðsvirkni
Arðsemi Sölustjórnun
Árstíðarsveiflur Sölutækni
Dreifing Markmið
Auglýsingar Stefnumótun
Ferðaþjónusta á Íslandi
Námið er alls 300 stundir og kennt verður þrisvar í viku frá
kl. 18.15–22.00.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekið er próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem
áhuga hafa og vilja auka
þekkingu sína á ferðaþjónustu.
Bíldshöfða 18
567 1466
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli Íslands leiðandi skóli
fyrir þá, sem vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu.
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferðamark-
aðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA er,
hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan ferða-
þjónustunnar hvar sem er í heiminum“.
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Bílaleigu Flugleiða/Hertz
Opið frá kl. 8.00-22.00
tl
tí sveiflur
Fulltrúakjör
Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosning-
ar fulltrúa félagsins á 27. þing Alþýðusam-
bands Norðurlands og ársfund Starfsgreina-
sambands Íslands fram að viðhafðri allsherj-
aratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð
A.S.Í. um slíkar kosningar.
Félagið hefur rétt til að senda 46 fulltrúa á þing Alþýðusambands
Norðurlands, sem haldið verður á Illugastöðum í Fnjóskadal dag-
ana 5.-6. október nk.
Á ársfund Starfsgreinasambands Íslands, sem haldinn verður á
Hótel Loftleiðum í Reykjavík dagana 18.-19. október nk., hefur fé-
lagið rétt á að senda 11 fulltrúa.
Framboðslistum eða tillögum til þings AN og ársfundar SGS, þar
sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og
jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipagötu
14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 20.
september nk. Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100
fullgildra félagsmanna.
Akureyri, 11. september 2001.
Stjórn Einingar-Iðju.