Morgunblaðið - 12.09.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.09.2001, Qupperneq 28
BÍLAR 28 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ GENERAL Motors, einn af risunum þremur í Bandaríkjunum, hyggur á mikla sókn í Evr- ópu en undir merkjum félagsins eru nú gam- algróin evrópsk merki eins og Opel og Saab auk þess sem náið samstarf hefur tekist með GM og Fiat, sem er að 20% í eigu GM. Á sam- eiginlegum blaðamannafundi Cadillac og Opel í gær sagði Rick Wagoner, yfirstjórnandi GM- samsteypunnar, að markmið fyrirtækisins, fyrir utan að endurnýja í grundvallaratriðum framleiðslulínurnar, væri að setja á markað bíla sem koma á óvart í hverjum flokki fyrir sig. Til marks um þetta væru Saab 9X-hug- myndabíllinn og Cadillac CTS, sem voru af- hjúpaðir skömmu eftir blaðamannafundinn. Wagoner sagði að Saab myndi kynna til sögunnar a.m.k. einn nýjan hugmynda- eða framleiðslubíl á hverju ári. Það eru reyndar 12 ár liðin síðan Saab kynnti síðast hug- myndabíl. Hugmyndabílar eru almennt til marks um þrótt fyrirtækjanna og hönn- unarstefnu þeirra og boða einatt tæknilegar nýjungar sem skaparar þeirra vilja koma á framfæri. 9X er allt í senn; kúpubakur, lang- bakur og pallbíll. Útlit hans er nýstárlegt og hann er fjórhjóladrifinn með 3ja lítra, V6 vél með forþjöppu. Í máli Wagoner kom fram ásetningur GM um að vinna markað í lúxusbílaflokki í Evrópu með Cadillac CTS. Þetta er bíll sem kemur á markað næsta vor og á að stela viðskiptavin- um frá Mercedes-Benz og BMW. Á næstu 18 mánuðum setur Cadillac á markað fjóra nýja bíla sem eru ætlaðir til sölu um allan heim. Jafnframt kom fram í máli Wagoner að náið samstarf yrði með Cadillac og Saab sem sam- eiginlega er ætlað að rétta stöðu GM í flokki dýrari bíla í Evrópu. Toyota frumsýndi nýjan Corolla sem nú er orðinn óþekkjanlegur frá fyrri gerð. Bíllinn, sem er hannaður í Evrópu, verður strax boð- inn í fimm útfærslum, þ.e. þrennra og fimm dyra hlaðbakur, stallbakur, langbakur og nokkurs konar fjölnotabíll undir heitinu Corolla Verso. Jafnframt var kynnt sportút- færsla af bílnum, þrennra dyra hlaðbaknum sem kallast T Sport og státar sá bíll af 192 hestafla VVTL-I vél. Ford var með heimsfrumsýningu á Fiesta. Bíllinn kemur á markað snemma á næsta ári og verður framleiddur í Köln í Þýskalandi, en einnig í Valencia á Spáni. Fiesta er fyrsti smá- bíllinn af þremur sem Ford kynnir á næsta eina og hálfa ári. VW afhjúpaði gerbreyttan Polo sem er af fjórðu kynslóð. Hann kemur á markað í Evr- ópu um miðjan nóvember og verður fáanlegur með fjórum bensínvélum og þremur dísil- vélum, 55–100 hestafla. Staðalbúnaður verður m.a. ABS-hemlar með hemlunarátaksdreif- ingu. Tvær útfærslur verða í boði, þrennra og fimm dyra. Polo er nú tæpir 3,90 m á lengd, eða rúmum 15 cm lengri en fyrri gerðin, 4,7 cm hærri og 1,8 cm breiðari. Hann er kominn með nýtt „andlit“ í formi kringlóttra fram- lugta. Nýr jeppi frá SsangYong SsangYong frá Kóreu kom fram á sýning- unni undir eigin nafni sem sjálfstæður fram- leiðandi í fyrsta sinn í fjögur ár en fyrirtækið hefur verið undir hatti Daewoo síðan 1997. SsangYong fagnaði þessum tímamótum með því að kynna athyglisverðan jeppa sem kallast Rexton. Hann verður framleiddur samhliða Musso og er nokkru stærri og mun betur bú- inn bíll. Hönnun bílsins hófst fyrir 32 mán- uðum og er hönnunarkostnaðurinn um 100 milljónir bandaríkjadala. Bíllinn er í grund- vallaratriðum með sama vél- og drifbúnaði og Musso en gerólíkur honum í útliti. Allar línur eru ávalar og að innan blandast saman leður, viður og málmur. Yfir 270 öryggisprófanir voru gerðar á Rexton og fékk hann fimm stjörnur í árekstrarprófun NCAP í Evrópu. Bíllinn verður settur á markað næsta sumar. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Ford frumsýndi Fiesta-smábílinn með nýju og gerbreyttu útliti. Lancia Thesis-lúxusbíll í millistærðarflokki var sýndur í fyrsta sinn í Frankfurt. Saab frumsýndi sinn fyrsta hugmyndabíl í 12 ár, Saab 9X. Renault Talismann er framtíðarsýn Renault í hönnun á lúxussportbílum. Ný kynslóð Jeep Cherokee dró að sér athygli gesta utan dyra. Fjöldi nýjunga á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt Margir bílar voru sýndir í fyrsta sinn á IAA, alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt, sem nú stendur yfir. Guð- jón Guðmundsson er á sýningunni, sem dregur til sín meira en milljón gesta. Þar sýna 1.016 bílaframleið- endur og framleiðendur vöru og þjónustu sem tengjast bílum frá 37 þjóðlöndum kynna þar nýjungar sínar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.