Morgunblaðið - 12.09.2001, Síða 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 29
Í JÚNÍMÁNUÐI s.l. barst und-
irrituðum tilkynning Fasteigna-
mats ríkisins um nýtt brunabóta-
mat, þ.e. vátryggingarverð íbúð-
arhúss undirritaðs. Það vakti
athygli að Fasteignamatið hafði
lækkað brunabótamat íbúðarhúss-
ins um 42,7%. Húsið sem er byggt
1929 hefur nýlega allt verið end-
urbyggt og við það reistar við-
byggingar. Að þeim framkvæmd-
um loknum var húsið skoðað
rækilega og metið af Húsatrygg-
ingum Reykjavíkurborgar árið
1993.
Þar eð enginn hafði orðið var við
að starfsmenn Fasteignamats
hefðu skoðað eða metið húsið var
Fasteignamatinu send fyrirspurn
um hvaða gögn stofnunin hefði
notað til grundvallar þessu nýja
mati.
Af svari Fasteignamatsins er
ljóst, að stofnunin hefur ekki skoð-
að íbúðarhúsið og ekki tekið mið af
endurmati Húsatrygginga Reykja-
víkurborgar, sem gildandi bruna-
bótamat byggist á. Ákvörðun
stofnunarinnar um nýtt bruna-
bótamat ræðst því ekki af skoðun
eða mati, heldur útreikningi þar
sem ráðandi stærðir eru bygging-
arár, byggingarefni og stærð sam-
kvæmt Landskrá fasteigna.
Af þessu má ljóst vera, að allar
viðbyggingar, breytingar og end-
urbætur á fasteign, sem ekki er
getið í Landskrá fasteigna, koma
ekki fram í útreiknuðu brunabóta-
mati Fasteignamats ríkisins. Held-
ur ekki almennt ástand fasteignar
eða viðhald hennar.
Undirritaður vill því hvetja alla
fasteignaeigendur að skoða vand-
lega tilkynningu Fasteignamatsins
um nýtt brunabótamat, sérstak-
lega þá sem eiga hús sem búið er
að byggja við og endurbæta, og
gera athugasemd við matið fyrir
15. þ.m. til Fasteignamats ríkisins,
ef það nær ekki líklegum kostnaði
við endurbyggingu fasteignarinn-
ar.
Um þessa aðferð Fasteignamats
ríkisins við endurmat á vátrygg-
ingaverði allra fasteigna í landinu,
afskipti stofnunarinnar af réttar-
sambandi vátryggingarfélags og
vátryggjanda og hugsanlega
ábyrgð stofnunarinnar má svo
skrifa aðra blaðagrein.
Nýtt brunabótamat
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Fasteignir
Allir fasteignaeigendur,
segir Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, ættu að
skoða vandlega tilkynn-
ingu Fasteignamatsins
um nýtt brunabótamat.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Nærir
og
mýkir
NÆRINGAROLÍA
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
hú
sg
ög
n
Sérpantanir
Opið virka daga
frá kl. 12-18.
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
hú
sg
ög
n
Sérpantanir
Opið virka daga
frá kl. 12-18.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni