Morgunblaðið - 12.09.2001, Side 41

Morgunblaðið - 12.09.2001, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 41 DAGBÓK Árnað heilla 80 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 12. september verður áttræður Ásmundur Guðmundsson, Hamraborg 18, Kópavogi. Eiginkona hans er Sólrún Yngvadóttir. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. ágúst sl. í Akur- eyrarkirkju af sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur Sólveig Þórarinsdóttir og Þor- steinn Frímann Rafnsson. Heimili þeirra er í Reykja- vík. Ljósmynd/Myndrún ehf. STJÖRNUSPÁ MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert gæddur ríkri rétt- lætiskennd og aðrir líta til þín í leit að hugrekki og heiðarleika. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú verður að leggja þig allan fram, því þú getur ekki vænst launa fyrir vinnu þína nema þú leysir verkefni þín vel af hendi. Vertu þolinmóður. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir að láta það eftir þér að leita hugsvölunar í góðri bók, kvikmynd eða tónlist. Best væri að hafa tíma til að njóta alls þessa! Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú þarft á öllum þínum hug- arstyrk að halda í dag. Sýndu sérstaka þolinmæði í sam- skiptum við þína nánustu og mundu að mál hafa fleiri en eina hlið. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú mátt ekki láta deigan síga, heldur sækja fram af fullri djörfung til þess sem þú vilt. Vilji er allt sem þarf og hálfnað er verk, þá hafið er. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þótt þú sért tilbúinn að leggja ýmislegt á þig fyrir peninga, skaltu gæta þess að halda mannorði þínu hreinu. Mundu að margur verður af aurum api. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vertu á tánum gagnvart þeim tækifærum sem þér kunna að opnast. Þótt vissu- lega sé ekki allt jafngott í þeim efnum máttu ekki sitja eftir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að skapa þér meiri tíma með sjálfum þér. Það er gott og blessað að vera vin- sæll, en þú þarft þinn tíma til þess að hlaða batteríin. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Notaðu hvert tækifæri sem þú færð til þess að halda fram þínum málstað. Láttu það ekki draga úr þér kjark- inn, þótt einhverjir séu með efasemdir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þér finnist þú ganga með bráðsnjallar hugmyndir til fjáröflunar, skaltu fara þér hægt og leita ráða hjá ein- hverjum sem þú treystir. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur látið reka á reið- anum varðandi heilsu þína. Nú verður þú að brjóta blað og hefja markvissa uppbygg- ingu sálar og líkama. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þótt vangaveltur um lífið og tilveruna séu skemmtilegar og nauðsynlegar mega þær ekki taka svo mikinn tíma að þér verði ekkert úr verki. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Oft er gott það sem gamlir kveða. Þú ættir að gefa því gaum sem reynsla annarra segir. Þótt hún geti aldrei orðið þín máttu ekki hunsa hana. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ef t i r Frances Drake ÁRIÐ 1957 var haldið mikið stjörnumót í London, þar sem spilin voru sérvalin af Terence Reese. Þetta var sem sagt engin venjuleg keppni og vissu spilarar fyr- irfram að gildrur leyndust við hvert fótmál. Hér er spil úr þessari keppni, þar sem austur var í eldlínunni. Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ G72 ♥ D865 ♦ ÁDG ♣ K52 Austur ♠ Á86 ♥ Á ♦ 98532 ♣ÁD74 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði Pass 3 grönd Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Sagnir eru eðlilegar og út- spilið hjartagosi. Austur fær fyrsta slaginn á hjartaás, en sagnhafi fylgir með smá- spili. Hvernig á nú að verj- ast? Meðal þeirra sem sátu í austur voru Ítalinn d’Alelio, Frakkinn Yallouze og Bandaríkjamaðurinn Goren. Þeir tveir fyrrnefndu leystu þrautina með því að spila laufdrottningu í öðrum slag! Goren féll á prófinu, þótt „heitur“ væri, því hann spil- aði litlu laufi: Norður ♠ G72 ♥ D865 ♦ ÁDG ♣ K52 Vestur Austur ♠ 4 ♠ Á86 ♥ G109732 ♥ Á ♦ 76 ♦ 98532 ♣G863 ♣ÁD74 Suður ♠ KD10953 ♥ K4 ♦ K104 ♣109 Sagnhafi á ekkert svar við laufdrottningunni. Hann tekur með kóng og spilar trompi. Austur gefur einu sinni, tekur svo með ás og spilar laufi undan ásnum á gosa félaga sins. Vestur veit til hvers er ætlast og spilar auðvitað hjarta, sem austur trompar. Einn niður. Þessi vörn er vissulega óvenjuleg, en hins vegar fullkomlega rökrétt. Suður á minnst sexlit í trompi og rauðu kóngana. Sem er nægur efniviður í tíu slagi. Eina vonin er því sú að vest- ur sé með laufgosa og kom- ist inn til að spila hjarta. Vörn Gorens hefði dugað ef vestur hefði átt G10 eða G9 í laufi, en við því var ekki að búast þegar Reese sá um röðunina. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STAÐAN kom upp á Skák- þingi Íslands, landsliðs- flokki, sem lauk fyrir skömmu í Hafnarfirði. Heimamaðurinn, Sigur- björn Björnsson (2297), hafði svart gegn þáverandi Íslandsmeistara, Jóni Vikt- ori Gunnarssyni (2404). 26...Rc3+ 27. Kc1 Re2+! 28. Kb1 Ekki gekk að taka riddarann þar sem eftir það myndi svartur máta. Eftir textaleikinn hverfur hvíta drottning- in úr herbúðum hvíts. Hvítur barðist þó hetju- lega til síðasta blóð- dropa. 28... Rxf4 29. Bxf4 Bc3 30. Rb3 Db4 31. Hhf1 Hf8 32. Bc1 a5 33. Ka2 a4 34. Hxf8+ Dxf8 35. Rd2 De7 36. Rb1 d4 37. Rxc3 Dxe6+ SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 38. Ka1 dxc3 39. Bf5 Db6 40. h5 Kf7 41. Bg6+ Kf6 42. Hf1+ Ke7 43. Ba3+ Kd8 og hvítur gafst upp. Íslands- móti kvenna lauk á sama tíma og landsliðsflokknum. Lokastaðan varð þessi: 1. Guðfríður Lilja Grétarsdótt- ir 4½ v. af 5 mögulegum. 2. Harpa Ingólfsdóttir 4 v. 3. Aldís Rún Lárusdóttir. 4. Anna Björg Þorgrímsdóttir 2½ v. 5. Elsa María Þor- finnsdóttir 1 v. 6. Hallgerð- ur Þorsteinsdóttir 0 v. Hlutavelta Þessar ungu dömur héldu tombólu á Eskifirði til styrktar Krabbameinsfélagi Austfjarða. Þær heita Aldís Arna Ein- arsdóttir, Karen Rut Gísladóttir og Emma Björk Hjálm- ardóttir og afhentu þær 2.002 krónur til félagsins. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudags- blað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík LJÓÐABROT SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Er gigtin fór að jafna um Jón, fannst Jóni komið nóg. Þá nennti hann ekki að lifa lengur, lagði sig – og dó. En af því hann hafði ýmsum verið til ama og jafnvel tjóns, var ekkjan, satt að segja, hrædd um sálina hans Jóns. Hún átti fáa að. Því afréð kerling það að troða henni í tóma skjóðu og tölta svo af stað. Kerling gekk nú lengi, lengi og lagði á reginfjöll. Hún varð bæði að klifra kletta, kafa leir og mjöll. Allt var þetta upp í móti, – sumt ógurlega bratt, þó hélt hún, að það hlyti að skána, en hrasaði og datt. Upp hún aftur stóð, hélt áfram, þreytt og móð. Alltaf komst hún hærra og hærra og himinkrapann óð. – – – Davíð Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.