Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 1
Samið um
áætlun að
vopnahléi
nýju nálgunar í gær að slakað yrði á
lokunum samgönguæða milli sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna og
Ísraels. „Enginn kom til þessa fund-
ar með léttum huga og allir hafa
ástæðu til að hafa áhyggjur ef þetta
samkomulag kemst til framkvæmda;
en þetta var mikilvægur fundur,“
sagði Peres. Yfirlýst óformleg
vopnahlé hafa þráfaldlega verið
brotin á liðnu ári, og fulltrúar Palest-
ínumanna settu líka fyrirvara við út-
komu fundar gærdagsins.
ÍSRAELSSTJÓRN og palestínska
heimastjórnin sömdu í gær um að
vinna að varanlegu vopnahléi, nærri
réttu ári eftir að nýjasta bylgja
intifada-uppreisnar Palestínumanna
hófst. Þó einkenndist fundur Shim-
onar Peres, utanríkisráðherra Ísr-
aels, og Yassers Arafats, forseta
heimastjórnar Palestínumanna, sem
loks varð af á flugvellinum á Gaza-
svæðinu í gær, af tortryggni á báða
bóga.
Um sama leyti og fundurinn fór
fram kom til vopnaðra átaka í fá-
einna kílómetra fjarlægð frá fund-
arstaðnum, sem enduðu með því að
palestínskur unglingur lá í valnum.
Átökin hófust er bílsprengja sprakk
við ísraelska gæzlustöð nærri flótta-
mannabúðum Palestínumanna í Raf-
ah á Gaza. Þrír hermenn særðust.
Hamas-samtök róttækra Palestínu-
manna gengust við tilræðinu. Ísr-
aelsk jarðýta var í gærkvöldi sögð
hafa stefnt inn í Rafah-búðirnar og
byssur gelt á báða bóga. 23 ára gam-
all Palestínumaður féll og 11 særð-
ust, að sögn lækna.
Bandaríkjastjórn hafði þrýst mjög
á um að af fundinum yrði, en á hon-
um féllust báðir aðilar á að taka aftur
upp formlegt öryggismálasamstarf,
sem lengi hafði legið niðri. Ísr-
aelsstjórn tilkynnti í nafni þessarar
Gaza-flugvelli. AP, AFP.
Reuters
Shimon Peres (t.h.) og Yasser Arafat tókust sem snöggvast í hendur á fundi þeirra á Gaza í gær. „Enginn kom
til þessa fundar með léttum huga,“ sagði Peres, og fulltrúar Palestínumanna tóku í sama streng.
Áfram átök í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir að loks hafi orðið af leiðtogafundi
220. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. SEPTEMBER 2001
BANDARÍKJASTJÓRN upplýsti í
gær bandamenn sína í Atlantshafs-
bandalaginu um þær aðgerðir sem
hún vill grípa til í því skyni að hafa
hendur í hári meintra bakhjarla
hryðjuverkaárásarinnar á New York
og Washington 11. september sl. en
fór ekki formlega fram á beina að-
stoð bandalagsins þrátt fyrir að það
hefði áður lýst yfir vilja til þess að
láta slíka aðstoð í té.
Sergei Ivanov, varnarmálaráð-
herra Rússlands sem NATO-ráð-
herrarnir áttu einnig fund með í höf-
uðstöðvum bandalagsins í Brussel í
gær, sagði Rússa tilbúna að styðja
herferðina gegn hryðjuverkastarf-
semi með ráðum og dáð. Hann lét
þess þó ekki nánar getið í hverju
hjálp Rússa myndi felast, en tók
fram að ekki væri hægt að há þessa
baráttu með hernaði eingöngu.
Fulltrúar Bandaríkjastjórnar
luku í gær tveggja daga viðræðulotu
með pakistönsku herforingjastjórn-
inni í Islamabad. Að sögn eins hers-
höfðingjans voru menn „fullkomlega
sammála“ um leiðir þær sem fara
skyldi til að vinna gegn hryðjuverka-
starfsemi og uppræta „uppeldis-
stöðvar“ hryðjuverkasamtaka Os-
ama bin Ladens í Afganistan.
Ekki var nánar greint frá því hvað
fælist í samkomulagi Bandaríkja-
manna við Pakistanstjórn, en Rashid
Qureshi hershöfðingi, talsmaður
Pervez Musharraf forseta, sagði að
„enginn ágreiningur hefði verið milli
Pakistans og Bandaríkjanna um
hvernig barizt“ skyldi gegn hryðju-
verkum.
Í þeirri trú að á hverri stundu sé
von á árás af hálfu Bandaríkjahers
gerði nokkur þúsund manna múgur í
Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær
áhlaup á yfirgefið sendiráð Banda-
ríkjanna í borginni og eyðilagði þar
það sem hann gat, kveikti í banda-
rískum fánum og hrópaði vígorð
gegn Bandaríkjunum og slagorð til
stuðnings Osama bin Laden.
Pútín segir NATO-aðild
Rússa íhugunarverða
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, gekk svo langt í gær að
lýsa því yfir að „vestræn siðmenning
hefði yfirburði yfir hinn íslamska
heim“. Voru aðrir stjórnmálaleiðtog-
ar á Ítalíu fljótir til að gera lítið úr
þessum orðum forsætisráðherrans;
sögðu að þau hefðu verið bæði móðg-
andi og ekki til þess fallin að leggja
baráttunni gegn hryðjuverkum lið.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta
hússins, tjáði fréttamönnum í gær að
Bush forseti væri mjög ánægður
með þann stuðning sem Pútín Rúss-
landsforseti hefur boðað að Rússar
muni veita í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum. Rússar hafa lagt
blessun sína yfir að Bandaríkjaher
fái að notast við herflugvelli í fyrr-
verandi sovétlýðveldunum í Mið-As-
íu sem næst liggja Afganistan.
Athygli vakti í gær svar sem Pútín
gaf við spurningu blaðamanns í Berl-
ín þar sem hann sagði koma til
greina að Rússar íhuguðu aðild að
NATO. „Allt fer eftir því hvað okkur
er boðið,“ sagði Pútín. „Vesturlönd
hafa enga ástæðu til að taka þennan
möguleika ekki til umræðu.“
Allt flug á vegum flugfélaga í Eist-
landi lagðist af í bili í gær þar sem
þarlend stjórnvöld sáu sér ekki fært
að gangast í ábyrgðir fyrir hryðju-
verkatryggingar flugfélaga. Í hinum
Eystrasaltslöndunum, Lettlandi og
Litháen, stóðu samningaviðræður
enn yfir um slíkar ríkisábyrgðir, en
óvíst var um lyktir. Delta Airlines,
eitt stærsta flugfélag Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær áform um að
fækka starfsfólki um 13.000 manns.
Ráðherrar OPEC-olíuframleiðslu-
ríkjanna voru í gærkvöld sagðir hafa
ákveðið að halda framleiðslunni
óbreyttri fram í nóvember.
Pakistan og Bandaríkin
sammála um aðgerðir
Washington, Brussel, Islamabad. AP, AFP.
Reuters
Tveir talibanahermenn reyna að
rífa niður skjaldarmerki Banda-
ríkjanna á yfirgefnu húsi sendi-
ráðsins í Kabúl í gær. Æstur
múgur kveikti í húsinu.
Árásin/24, 25, 30
Einhugur/baksíða
NÝ 10 og 20 króna mynt var sett í
umferð í Danmörku í gær og kom
strax á útgáfudeginum fram hörð
gagnrýni á nýja vangamynd Dana-
drottningar sem á myntinni er.
Listamaðurinn
Thomas Kluge,
sem sjálfur hefur
málað portrett-
mynd af Mar-
gréti Þórhildi
drottningu, er
þeirrar skoðunar
að vangamyndin á myntinni líkist
þjóðhöfðingjanum alls ekkert –
myndin líkist öllu frekar bandarísk-
um karlleikara.
„Ég tel ekki að þetta líkist henni.
Ég á yfirleitt bágt með að sjá nokk-
ur andlitseinkenni drottningar á
þessu portretti. Í mínum augum lít-
ur neðri hluti andlitsins út eins og á
Mickey Rourke, bandaríska leik-
aranum úr kvikmyndinni 9½ vika.
Ég er ekki myndhöggvari, en ég
held að mér hefði tekizt betur upp,“
hefur Berlingske Tidende eftir
Kluge. Talsmenn danska seðla-
bankans vísa gagnrýninni á bug.
Óánægja
með mynd
drottningar
SAS-flugfélagið hefur tilkynnt
12% samdrátt í framboði á flugleið-
um. Félagið mun segja upp 800–
1.100 starfsmönnum og hækka far-
gjöld um 5% strax 1. október vegna
aukins tryggingakostnaðar.
Hinn 18. september sl. tilkynnti
SAS að nauðsynlegt væri að grípa
til aðgerða til að bæta rekstur fé-
lagsins. „Eftirspurnin hefur dreg-
izt verulega saman í kjölfar hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum og
hefur þetta veruleg áhrif á afkomu-
horfur,“ segir í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Tveimur dögum eftir hryðju-
verkaárásina á New York og
Washington sendi SAS frá sér af-
komuviðvörun þess efnis að búizt
væri við minni hagnaði en áður, en
það var að frátöldum áhrifunum af
árásunum. Eftir því sem fram
kemur á fréttavef norska blaðsins
Dagens Næringsliv er ljóst að þau
áhrif verði einnig umtalsverð þar
sem 5-10% af tekjum SAS koma
frá flugleiðum yfir N-Atlantshaf.
Samdráttur hjá SAS
Stokkhólmi. AP.