Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ UNDIRRITAÐUR varð fyrir því fyrir 31. ágúst 1996, eða fyrir um fimm árum, að slasast illa þegar spreddari gaf sig og hann féll 12 til 15 metra ofan í steypt bryggjugólf í Færeyjum ofan af gámi sem honum hafði verið gert að fara upp á. Fimm árum síðar eru bótamálin ófrágengin. Fimm ára strit Eftir legu á spítala tók við löng sjúkdómslega heima, aðgerðir, þjálf- un, og endurhæfing. Það tók rúmt ár að komast í sæmilegt ástand og var batinn hægur. Mér hefur þó verið bent á að afleiðingar slyssins eru al- varlegar, líkamstjónið verulegt og best væri fyrir mig að hætta til sjós. Ég hef kosið að halda áfram þrátt fyr- ir óþægindin og bent á að þessi óþæg- indi væru smámunir í samanburði við óþægindin sem eru því samfara að glíma við þá sem þiggja laun fyrir að þjónusta tryggingafélög. Hér á ég við lækna og lögfræðinga. Fimm árum eftir slysið sér ekki fyrir endann á málaskakinu. Fyrir hönd skipa- eða tryggingafélagsins fer lögmaður á hinni virtu lögmanns- stofu LOGOS með málið og tveir læknar tóku að sér að endurskoða matsgerð sem áður hafði verið gerð, Atli Þór Ólason og Stefán Carlsson. Annar kunnugur starfsemi lækna- deild Tryggingastofnunar. Lögfræði- stofan fína og læknarnir virðast vera það vígi sem hörfað er í eftir að læknir Tryggingastofnunar ríkisins skilaði sínu mati. Fimmtán metra fall og viðbrögð Samkvæmt marga daga ítarlegri skoðun þess læknis sem tók allt upp á segulband svo að sannreyna mætti lýsingar mínar mat hann afleiðingar slyssins á þessa leið: „1. Höfuðáverki með viðvarandi höfuðverk. 2. Stirðleiki í öxl sem kom fram vegna með- höndlunar á framhand- leggsbroti og afleiðingar áverka þar. 3. Opið framhandleggs- brot á hægri handlim sem fljótlega orsakaði það að úlnliður varð ónýtur… 4. Brot á mjaðmagrind hægra megin sem haft hefur í för með sér skerta hreyfingu… 5. Álagsbundnir verkir í pung. 6. Brot á vinstri framhandlegg …sem telja verður að tengist áverk- anum, eða afleiðingum þess vegna jafnvægisskorts eftir höfuðhögg. 7. Skert hreyfing í hægri olnboga vegna afleiðingar hægra framhand- leggsbrots.“ Þetta eru líkamlegar afleiðingar þess að falla fimmtán metra niður í bryggjugólf í Færeyjum og niður- staða óháðs læknis, sem lá fyrir fyrir tveimur árum, var: Tímabundið 100% atvinnutjón í ár og þriggja mánaða 100% atvinnutjón. Þjáningabætur metnar á 15 mánuði, varanlegur miski 50% og varanleg örorka 50%. Niður- staðan lá fyrir fyrir tveimur árum. 23. desember 1999 barst Eimskipa- félagi Íslands bréf frá fyrirtæki sem kallaði sig þá Counsel Office, Esta- blished 1907, þá til húsa á Suður- landsbraut 4A. Í því bréfi er Eim- skipafélaginu ráðlagt, á ensku, að taka ekki mark á mati sérfræðings Tryggingastofnunar eingöngu heldur fá annað mat og leggur hæstaréttarlögmaður hjá Counsel Office, Established 1907, líka til að átta tíundu hlut- um af bótakröfu minni sé hafnað. Þetta var jólaglaðningur Coun- sel Office til Eimskips 1999. Pakkað í vörnina Þegar niðurstaða þessi lá fyrir virðist eins og tryggingafélag skipafélagsins, eða skipafélagið sjálft, hafi ákveðið að beita sömu taktík og ítalska knattspyrnulandsliðið beitti á niður- lægingarskeiði ítalska boltans, að stilla 11 mönnum upp í vítateiginn til að reyna að ná að jafntefli í hverjum leik. Það gerðist ekkert í málinu fyrr en ég sá mig knúinn til að leggja mál mitt á borðið í Morgunblaðsgrein 22. nóv- ember 2000. Tölvurnar lifnuðu við og tölvupóstskeyti fóru milli manna og var vörnin sú að fá nýtt mat, eins og Counsel Office, Established 1907, hafði lagt til. Sama læknisfræði – önnur niðurstaða Eftir að hafa látið sérfræðing Tryggingastofnunar ríkisins þurr- ausa mig og skoða dögum saman fór lögmaður skipafélagsins fram á að ég mætti í nýtt læknisfræðilegt mat og nú til þeirra heiðursmanna dr. Atla Þórs Ólasonar og Stefáns Carlssonar læknis. 6. febrúar 2001 mætti ég til fundar við tvímenningana. Þeir fé- lagar tóku mér afskaplega vel, töldu óþarft að taka mig upp á segulband, skoðuðu mig og ég var sáttur þegar ég keyrði heim á þriðjudagssíðdegi. Þremur dögum síðar lá matið fyrir. Læknisfræðileg niðurstaða er sú sama og hjá lækni Tryggingastofnunar. Tímabundið atvinnutjón var metið það sama, þjáningabætur svipaðar, varan- legur miski sá sami, en varanleg örorka var hins vegar ekki lengur 50% heldur 25%. Ég ítreka: Varanleg örorka var ekki lengur 50% heldur 25%. Allar læknisfræðilegar lýsingar, mat á líkamstjóninu og afleiðingar eru eins, en hvers vegna þessi niðurstaða varð- andi varanlegu örorkuna? Jú, þeir brugðu sér í gervi félagsvísindamanna, læknarnir tveir. Þetta segi ég vegna þess að niðurstaða þeirra byggist á mati á menntun minni, tekjumöguleikum, áhugamálum eða viljastyrk. Það sem þeir gera að mínum dómi er að klæða almenna niðurstöðu í búning læknis- fræðilegrar sérfræði og það er ég afar ósáttur við. Í áliti læknanna segir til dæmis: „Jóhann er rétthentur. Þá hefur hann kvartað um minnis- og einbeiting- arskort. Hann hefur … unnið sömu vinnu og áður með miklum óþægindum … Þannig hefur hann ekki orðið fyrir tekjutapi. Í landi hefur hann sleppt ýmsum störfum … Jóhann hefur hug- leitt að fara í land … Matsmenn telja það ekki óeðlilegt … óvíst hvenær Jó- hann lætur verða af þessu … hugsan- legt að ýmisskonar lagerstörf hentuðu honum og önnur létt störf … vinnu- framboð fyrir hann væri minna … vinnugeta skert … vegna minni álags- getu svo og minna vinnuframboðs.“ Varanleg örorka er metin 25%.“ LOGOS og orð Guðs Á Vesturlöndum hafa ýmsir hópar, aðrir en beinir umboðsmenn almætt- isins hér á jörðu, þóst standa nærri Guði. Sauðsvartur almúginn segir stundum að læknar séu hálfguðir og ekki er óþekkt að við viljum taka þá í guðatölu sem láta gott af sér leiða. Þessi staða hefur hugsanlega orðið til þess að sumir þeirra blandi saman læknisfræði og hagsmunum þess sem þeir þjóna. Ég fullyrði ekkert en velti fyrir mér möguleikanum til að skýra fyrir mér og reyna að skilja hvernig læknar geta verið læknisfræðilega sammála en orðið svo gjörsamlega ósammála þegar kemur að forsendum sem þarf að leggja til grundvallar fé- bótum mínum. LOGOS er lögfræðistofan sem pantaði nýja matið og kennir sig með nafninu við orð Guðs og visku í góðu samræmi við kenningar Fílóns gamla og þeirra sem síðar færðu rök fyrir því að LOGOS hefði lifnað við með fæðingu frelsarans sjálfs. Það er til umhugsunar fyrir sjó- menn sem slasast hve miklu má kosta til til að koma í veg fyrir að sjómenn og almenningur nái rétti sínum eftir alvarleg slys. Það er líka til umhugs- unar hve langt þeir virðast seilast sem vinna fyrir valdið. Það er líka til um- hugsunar fyrir hluthafa skipafélags- ins hvort félagið græðir á framferði sínu af því að milljónirnar sem það reynir að hafa af mér þarf félagið örugglega að greiða inn á reikning þeirra sem vinna við lögmennsku undir merkjum orðs Guðs. Í þjónustu valdsins Jóhann Páll Símonarson Höfundur er sjómaður í Reykjavík. Slysfarir Fimm árum eftir slysið, segir Jóhann Páll Sím- onarson, sér ekki fyrir endann á málaskakinu. AF HVERJU brugð- ust ráðamenn svo harkalega við úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrif- um Kárahnjúkavirkj- unar? Ég skildi ekki hvernig Landsvirkjun gat talið matið sér í hag. Þeir sem glöddust yfir niðurstöðu Skipulags- stofnunar eiga ekki skilið skæting, enn síð- ur starfsmenn þeirrar stofnunar. Sérfræðing- ar á vegum Landsvirkj- unar mátu umhverfis- áhrifin. Víða er gefið í skyn að röskun á náttúrunni sé óæskileg og vitnað t.d. í lög um nátt- úruvernd, en alls eru 16 svæði á nátt- úruminjaskrá á virkjunarsvæðinu, en þeir gátu ekki sagt hingað og ekki lengra. Sumir telja matið frekar lýs- ingu. Hefðu ekki vísindamenn óháðir Landsvirkjun átt að vinna matið? Um Jökulsá í Fljóts- dal segir: „ … frá Norð- urdal að Eyjabakka- fossi er mikið fossaval og geta aðrar ár á land- inu vart státað af öðru eins enda fellur áin 600 m á 30 km kafla … frá Eyjabökkum niður að Kleif í Fljótsdal eru um 15 fossar allt að 30 m háir.“ Fórnar þú því sem þú státar af? Jökulsá í Dal (Jökla) er búin að sverfa niður öll fossstæði í farvegi sínum. Lítið er unnið með raunhæfar hugmyndir um að virkja Jöklu í eigin farvegi. Þeim möguleika er stillt upp ásamt Fljótsdalsvirkjun með Eyja- bakkalóni, en Eyjabakkar teljast nú mikilvægir á alþjóðavísu og hug- myndinni er hafnað. Kringilsá og Sauðá falla að vestan í Jöklu í fossum og mögnuðum flúðum. Um Kringilsárfoss segir „ … mun hann hverfa endanlega á um hundrað árum þegar aurkeila fyllir gljúfrið smámsaman. Verndargildi fossins, sem er talið nokkuð mikið vegna stærðar hans og fegurðar, mun því rýrna til muna. Það sama á við um Sauðárfoss.“ Um Lagarfljót segir í kaflanum um fuglalíf: „Votlendið á Finnsstaðarnesi er einstakt á héraðsvísu … Finns- staðarnes er á náttúruminjaskrá ásamt Egilsstaðanesi … Úthérað er á skrá yfir alþjóðlega mikilvæg fugla- svæði í Evrópu vegna mikilvægis fyr- ir stofna lóms, flórgoða, grágæsar og kjóa.“ Á þessum svæðum mundi grunnvatnsstaða breytast við fyrir- hugaða virkjun og „tún blotna á nokkrum stöðum“. Dragárnar á svæðinu skila af sér 60–80% af ársrennslinu á tímabilinu maí–ágúst. Ofmetum við ekki vatnsbúskap landsins? Munurinn á rennsli Jöklu sumar og vetur er geysimikill. Hjá Brú á Jökuldal er rennsli Jöklu langtímum saman á vetrum 6 m3 á sek. en um hásumarið 600 m3 á sek. (Sigurjón Rist: 1990, Vatns er þörf, bls.168). Viljum við fórna gróðurvinjum í lægðum á hálendinu undir lón? Eigum við að trúa því að ekkert land í veröld- inni sé eins heppilegt til raforkufram- leiðslu og að við séum því hæfust til að bjarga heiminum? Væri ekki nær að íslensk stjórnvöld uppfylltu skuldbind- ingar sínar gagnvart Sameinuðu þjóð- unum um þróunarhjálp? Mikil ógnun er fólgin í því að flytja fljót og ár úr farvegum sínum. Ekki það eitt að veita Jöklu um 40 km löng göng í Jökulsá í Fljótsdal og marg- falda vatn hennar, heldur líka að ræna margar ár rennsli sínu: Grjótá og Hölkná á að veita í skurðum í Laugará. Þrjú lítil lón myndast vest- an og norðan Nálhúshnjúka. Þessar ár og fossar í Laugará hafa hátt verndargildi. „Gróður á lónstæðum, skurðstæðum, nýjum farvegum neð- an skurða og á námusvæðum mun eyðast eða raskast. Þá liggur Hafurs- árskurður þvert yfir gróskumikið votlendi og spillir því.“ Hafursárveita minnkar verndargildi landsins, en Hafursá er smálækur við rætur Snæ- fells. Laugará á að renna í skurði, þ.e. uppistöðulóni, með fram vegi til Kárahnjúka. Þessi vatnssöfnun gæfi aðeins 2% af orkunni, þar af Hafursá aðeins 0,2%. Hvernig er hægt að treysta þeim, sem ganga svona til verks gegn því smáa, fyrir því stóra? Á Hraununum er ætlunin að veita 6 þverám Kelduár í Ufsarlón, uppi- stöðulón Jökulsár í Fljótsdal, neðan við Eyjabakkafoss. Kelduá á að stífla og mynda 8 km² lón með Folavatn og gróðurinn umhverfis á botninum. Folavatn hefur allhátt verndargildi og er að hluta friðað. Fossar í Kelduá í Suðurdal í Fljótsdal yrðu ekki svip- ur hjá sjón. Mynd í skýrslunni af Stórulækjarfossum í Kelduá (rang- lega sagðir í Jökulsá í Fljótsdal) sýnir að þeir eru einstakir. Það er fátæk þjóð sem hefur ekki efni á að eiga slík djásn. Sumir meta meira listaverk náttúrunnar en „list í orkustöðvum“. Að vega og meta Ég sé ekki að virkjunaráformin séu í samræmi við matið eða umhverfis- stefnu Landsvirkjunar: „Markmið okkar er að nýta sem best auðlindir þjóðarinnar á markvissan og varfær- inn hátt í sátt við umhverfið.“ Hvar sá Landsvirkjun grænt ljós? Vægi hennar er ekki á því hvort 100 fossar hverfa eða breytast á Mið- Austurlandi, ár séu færðar úr farveg- um sínum, tún og varplönd fari undir vatn eða mistur byrgi sýn. Þeir hugsa stórt. Þeir selja nú þegar 2⁄3 af orku sinni til stóriðju. Kárahnjúkavirkjun á að framleiða jafnmikla orku og Búr- fell, Hrauneyjarfoss, Sultartangi og Blanda til samans. Stíflan á aðeins að vera 31 m lægri en Hoover-stíflan mikla í Bandaríkjunum, sem er 221 m á hæð og 373 m á lengd. Lengd stíflna í fyrsta áfanga yrði um 4,8 km en alls 8,4 km. Í stíflurnar færu um 15 þús- und m3 af efni, þar af 12 þúsund m3 af möl og grjóti úr 14 námum, hauga- svæði yrðu 11, göng 78,8 km, skurðir 15 km. Þetta felur í sér töluverða áníðslu á landinu, því að ekki er verið að vinna á eyðisöndum, en ég sé ekki eftir þeim undir vatn, sem getur jafn- vel verið til prýði. Niðurstaða mín er að Landsvirkj- un réttlæti áform sín á því mati, að á heimsvísu séu áhrif breytinga á um- hverfi jökulsánna lítil, aðeins áhrifin á Hafrahvammagljúfur nokkur. Á ís- lenskan mælikvarða er verndargildið hins vegar talið hátt og miðlungs hátt. Óskandi væri að fleiri litu landið sömu augum og Kjarval og tækju of- an fyrir blómum og fuglum. Hann vissi að við höfum ekki öll sömu nátt- úrusýn og sagði: „En ég segi þér satt, steinar eru spakir í landslagi, steinar brosa í landslagi. En það er ekki sama hver gengur framhjá.“ ,,Í sátt við umhverfið“ Bergþóra Sigurðardóttir Umhverfisáhrif Óskandi væri að fleiri litu landið sömu augum og Kjarval, segir Berg- þóra Sigurðardóttir, og tækju ofan fyrir blóm- um og fuglum. Höfundur er læknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.