Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EFTIR að hafa búið og starf- að í Danmörku varð Ísafjörð- ur fyrir valinu. Þar hefur Pét- ur Tryggvi Hjálmarsson sett upp gullsmíðavinnustofu sína, sem allt eins gæti heitið silf- ursmíðavinnustofa, því hann hefur ekki síður lagt stund á silfursmíði. Pétur er með- limur í danska silfur- smíðahópnum, eini gullsmið- urinn. En af hverju Ísafjörður? „Mér fannst kominn tími til að flytja frá Danmörku þar sem mér fannst ég staðnaður. Ég þekki vel til hér á Ísafirði, kom oft til afa og ömmu, og kann vel við mig hér,“ segir Pétur Tryggvi og bendir á að hann geti í raun setið hvar sem er við iðn- og listgrein sína. „Ég þarf bara að vera nálægt pósthúsi og tolli til að fá hráefni til að vinna úr og senda frá mér hluti og geta verið í fax- og tölvusambandi við umheiminn og þá get ég unnið hvar sem er.“ Vinnustofan á gamla leikvellinum Vinnustofa og húsnæði Pét- urs er á gamalkunnum slóð- um, í gamla skólahúsinu sem kallað er, við Brautarholt sem er inni í firði. „Þetta er leik- völlurinn minn,“ segir hann og kveðst mjög ánægður með aðstöðuna, birtan sé „góð í vinnustofunni og eftir aðeins fáar vikur segist hann kunna vel við sig á þessum gömlu slóðum. Pétur lærði gullsmíði hjá föður sínum, Hjálmari Torfa- syni, var árin 1981 til 1983 við nám í gullsmíðaháskólanum í Danmörku, skoðaði sig um í Þýskalandi til að bera sig saman við það sem þar var að gerast eins og hann orðaði það og setti síðan upp verk- stæði í Reykjavík árið 1985 og í Kaupmannahöfn 1988. Upp- úr því náði silfursmíðin tökum á honum sem hann segir að sé allt annað fag en gullsmíðin. „Þar eru aðferðirnar allt aðrar, verkfærin önnur og svo náttúrlega efnið. Aðalverkfæri silfursmiðsins er hamarinn. Með honum einum smíða ég skálar, kertastjaka og hvaðeina úr silf- urplötu og þannig mótar maður hlutinn með hamrinum einum út frá upphaflegri hugmynd sem ég hef rissað upp áður.“ Pétur segir að hugsa þurfi mjög vandlega fyrstu höggin, um leið og þau lendi á plötunni sé stefnan tekin og hluturinn mótist uppfrá því. Ýmist teyg- ir hann á efninu eða lætur það skreppa saman og að baki liggur það sem hann kallar kerfisbundna nákvæmni. „Ég vinn yfirleitt með tónlist yfir mér því það getur fallið mjög að rytmanum í vinnunni að hafa góða tónlist með, klass- íska eða hvað annað sem hæf- ir viðkomandi verkefni,“ seg- ir Pétur. Fer það síðan eftir því hversu stór eða flókinn hluturinn er hversu mikil vinna liggur að baki, en þó er talið í vikum og mánuðum. Þrjár sýningar framundan Meðal þess sem Pétur hefur smíðað úr silfri eru kross, kertastjakar, kaleikur og pat- ína fyrir Vídalínskirkju í Garðabæ og nú er hann að hefja smíði á hlut sem hann hyggst senda á sýningu í Dan- mörku í nóvember. Í lok þessa mánaðar verða gripir frá honum sýndir í Berlín en þar tekur hann þátt í sýningu með danska silfursmiðahópnum og með honum sýnir hann einnig í nóvember. Þar er skilyrði að sýna nýja hluti og kveðst Pét- ur vera um það bil tilbúinn með hugmynd sem hann hyggst útfæra. Síðan er sýn- ing í bígerð eftir áramótin og verður hún einnig í Þýska- landi. En þótt silfursmíðin taki mikinn tíma hjá Pétri kveðst hann engu að síður hafa lifi- brauð sitt af gullsmíðinni. Pétur hefur umboðsmann í Japan og selur hann þangað ýmsa skartgripi, ekki síst hringa og nælur. Þá kveðst hann einnig geta selt þeim sem koma við á vinnustofunni þar sem alltaf sé eitthvað til af skartgripum. Pétur hefur þróað nýja aðferð við að festa steina við hringa og í Japan er hún nefnd eftir nafni hans. Vörumerki Péturs í Japan er Pétur Iceland sem umboðs- maður hans þar valdi. Flutti vinnustofu sína frá Kaupmannahöfn til Ísafjarðar Kanna eða vasi og koníaksstaup sem Pétur Tryggvi hefur mótað úr silfurplötu. Með hamrinum einum mótar Pétur Tryggvi listgripi úr silfurplötunni. Morgunblaðið/jt Kominn á gamlar slóðir Ísafjörður HIÐ árlega kennaraþing Kennara- félags Suðurlands verður haldið nú 27. og 28. september á Flúðum. Að venju munu grunnskólakennarar af öllu Suðurlandi sækja þingið enda er síðari dagur þess að jafnaði starfs- dagur í skólunum. Milli 250 og 300 kennarar sækja þingið en á síðasta þingi var metaðsókn á kennaraþingið því Kennarafélag Vestmannaeyja tók þá einnig þátt í þinghaldinu. Boðið verður upp á fjölbreytta dag- skrá á þinginu. Á fimmtudeginum verður Guðrún Geirsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, með kynningu á fjöl- greindarkenningum Gardners en á föstudeginum verður boðið upp á úr- val styttri fyrirlestra og kynninga, m.a. frá Námsgagnastofnun. Einnig verður þá boðið upp á svokallaða fag- greinafundi, sem notið hafa mikilla vinsælda. Aðalfundur Kennarafélags Suðurlands verður haldinn á föstu- deginum og verða þar m.a. fluttar til- lögur að lagabreytingum og einnig verður stjórnarkjör þar sem nýr for- maður félagsins verður kjörinn en Jósefína Friðriksdóttir lætur nú af formennsku eftir tveggja ára setu á formannsstól. Þing Kennarafélags Suðurlands á Flúðum Hvolsvöllur AÐALFUNDUR Krabbameins- félags Héraðssvæðis var haldinn á Hallormsstað nýlega. Starfssvæði KH nær yfir Fljótsdalshérað og Borgarfjörð eystri. Samþykkt var á fundinum að efla samstarf krabbameinsfélaganna á Austurlandi og vinna að því að koma á rekstri svæðisskrifstofu KÍ á Austur- landi. Stjórn KH skipa: Þuríður Back- man formaður, Sif Vígþórsdóttir varaformaður, Ingibjörg Árnadóttir ritari, Anna Guðný Árnadóttir gjald- keri, Stefán Þórarinsson meðstjórn- andi. Varamenn: Pétur Heimisson og Hjálmar Jóelsson. Í tengslum við aðalfundinn hélt Styrkur, félag krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra, fræðslu-og samráðsfund. Hildur B. Hilmarsdótt- ir, starfsmaður KÍ, kynnti starf stuðningsfélaganna innan KÍ. Eftir- taldir hafa gefið kost kost á sér sem tengiliðir Styrks á Austurlandi: Sif Vígþórsdóttir, Hallfríður Bjarnadótt- ir, Sveinn Ingimarsson, Helga Magn- úsdóttir og Stefán Þórarinsson. Á fundi Styrks var Hildi Hall- grímsdóttur frá Hrafnabjörgum þökkuð vegleg gjöf til Krabbameins- félags Hérðassvæðis. Stjórn Krabbameinsfélags Héraðssvæðis ásamt starfsmanni KÍ og Hildi Hallgrímsdóttur, sem færði KH veglega peningagjöf. Samstarf krabba- meinsfélaga Hallormsstaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.