Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 17 KARLAKÓR Akureyrar-Geysir heldur tónleika í Grafarvogskirkju í Reykjavík á laugardag, 29. septem- ber, kl. 16.30. Á efnisskránni eru fjölmörg ís- lensk og erlend verk sem jafnt geta flokkast undir hefðbundna karla- kóratónlist, óperutónlist, „rakara- stofutónlist“ og negrasálma. Ein- söng með kórnum syngja kórfélagarnir Björn Jósef Arnviðar- son og Guðmundur Stefánsson. Stjórnandi kórsins er Erla Þórólfs- dóttir en undirleikari verður Rich- ard Simm. Tónleikar í Graf- arvogskirkju STEYPUSTÖÐ Dalvíkur hefur fest kaup á steypustöð Trévers í Ólafs- firði og voru samningar þess efnis undirritaðir fyrir skömmu. Jafn- framt kaupir Steypustöð Dalvíkur steypubíl og malarhörpu af Tré- veri. Að sögn Óskars Árnasonar, framkvæmdastjóra Steypustöðvar Dalvíkur, er stöðin í Ólafsfirði full- komnari á ýmsan hátt og getur m.a. haldið þíðu efni yfir vetrarmánuðina. Ætlunin er að hún verði flutt til Dalvíkur en af því verður þó sennilega ekki fyrr en næsta sumar. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Steypustöð skipt- ir um eigendur BÍTLALÖG og bassasöngur er á meðal þess sem verður á dagskrá sérstaks Akureyrarkvölds á Broad- way í Reykjavík á föstudagskvöld. Akureyrarkvöldið er sérstök skemmtidagskrá sem borin er uppi af Akureyringum eða fólki sem orðið hefur þekkt á Akureyri. Með- al þeirra sem fram koma eru Þor- valdur Halldórsson, Helena Eyj- ólfsdóttir, félagar úr Karlakór Akureyrar Geysi ásamt einsöngv- aranum Kjartani Smára Höskulds- syni flytjasyrpu af bítlalögum ásamt hljómsveitinni „Einn og sjö- tíu“. Þá verða flutt lög úr revíunni „Allra meina bót“ eftir Jónas og Jón Múla. Kynnir kvöldsins verður Gestur Einar Jónasson. Stjórnandi dag- skrárinnar er Erla Þórólfsdóttir. Akureyrarkvöld á Broadway VETRARSTARF Skákfélags Akur- eyrar er hafið en það hófst með hrað- skákmóti, þar sem Rúnar Sigurpáls- son sigraði og hlaut 9,5 vinninga af 11 mögulegum. Skákfélagið verður með 10 mín- útna mót í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.00. Haustmót félagsins hefst svo nk. sunnudag kl. 14.00. Teflt verður í einum flokki, sjö umferðir eftir monrad-kerfi og verður teflt tvisvar í viku, á sunnudögum og fimmtudögum. Starfsemi Skákfélags Akureyrar fer fram í syðstu stofu í Íþróttahöllinni og er gengið inn að sunnan. Vetrarstarf skák- félagsins hafið ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ STJÓRN Fasteigna Akureyrar- bæjar ræddi um stærð á fyrir- hugaðri íþróttahússbyggingu við Síðuskóla á síðasta fundi sínum. Stjórnin samþykkti að miða bæri stærð byggingarinnar við þarfir skólans. Oddur Helgi Halldórsson, bæj- arfulltrúi og fulltrúi í stjórn Fast- eigna Akureyrarbæjar, lagði fram sérstaka bókun, þar sem m.a. kemur fram það álit hans að íþróttahús við Síðuskóla eigi að vera það stórt að það rúmi lög- legan handboltavöll. Í bókun Odds Helga kemur einnig fram að bæði þurfi að huga að þörfum skólans og íþróttanna þegar byggt verður íþróttahús. Þörfin fyrir hús sem rúma löglegan handboltavöll sé mikil og ekkert svo stórt hús sé utan Glerár. Oddur Helgi sagði það algjört skilyrði af sinni hálfu að húsið nýttist bæði skóla og íþrótta- félögum eins vel og kostur væri. Í samþykkt stjórnar er lagt til að byggt verði rúmgott leikfimi- hús sem jafnframt verði nýtt sem samkomusalur skólans. Skoðað verði sérstaklega hvort mögulegt sé að byggja húsið þannig að stækka megi það síðar. Þá verði í tengslum við framkvæmdina hug- að að mötuneyti fyrir skólann. Íþróttahús Síðuskóla miðist við þarfir skólans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.