Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. JÓN Ólafsson, eigandi Arnarnes- lands í Garðabæ, segir að á næstu vik- um verði einbýlishúsalóðir á landinu boðnar til kaups. Hann segir að fram- boð og eftirspurn muni ráða verði lóð- anna og sömuleiðis muni markaður- inn stjórna því hversu stór hluti landsins verði seldur að þessu sinni. Vonast hann til að framkvæmdir á svæðinu geti hafist strax á næsta ári. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar- stjóri, segir að skipulag bæjarins geri ráð fyrir því að uppbygging á Arn- arneslandi hefjist árið 2005. Hug- myndir um að hefja framkvæmdir fyrir þann tíma séu því ekki í sam- ræmi við það skipulag.  Lóðir boðnar/14 Lóðir á Arnarneslandi bráðlega til sölu VARNARMÁLARÁÐHERRAR Atlantshafsbandalagsins, NATO, komu saman til óformlegs fundar í Brussel í gær til að ræða afleiðingar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum og framtíðarhlutverk bandalagsins í baráttunni gegn hryðjuverkum. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sat fundinn og sagði að honum loknum í samtali við Morgunblaðið að mikill einhugur hefði ríkt og sam- staða komið fram með Bandaríkja- mönnum og þeirra aðgerðum. Það hefði verið sérstakt að upplifa þetta mikla samstöðu á fundi sem þessum. Skýrt hefði komið fram við hvaða óvin væri að etja og að sögn Halldórs mátti í máli varavarnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, Paul Wolfo- witz, og varnarmálaráðherra Rússa, Sergei Ivanov, glöggt heyra að Osama bin Laden og al-Qaida sam- tökin hefðu staðið að árásinni á World Trade Center í New York og Pentagon í Washington hinn 11. september sl. Þeim hefði borið vel saman í sínum málflutningi. Halldór sagðist hafa fengið nauðsynlegar og mikilvægar upplýsingar á þessum fundi. Hann sagði það athyglisvert að Rússar vildu taka þátt í þessu starfi af fullum krafti, enda teldu þeir að þeirra þjóðfélagi stafaði mikil hætta af þessum samtökum. Ivanov hefði sömuleiðis staðfest að mikið magn eiturlyfja hefði verið tekið á landa- mærunum við Afganistan, eiturlyf sem streymdu þaðan til Vesturlanda. „Wolfowitz gerði mjög góða grein fyrir því hver hættan er. Hryðju- verkastarfsemin er mjög umfangs- mikil og hefur verið að grafa um sig í heiminum lengi. Þessi samtök tengj- ast eiturlyfjasölu, vopnasmygli, pen- ingaþvætti og margvíslegri glæpa- starfsemi. Það kom mjög skýrt fram á fundinum að hér er ekki aðeins ver- ið að tala um hernaðaraðgerðir, eins og mest hefur verið í umfjöllun, held- ur fyrst og fremst pólitíska samstöðu sem gengur út á það að einangra þessi öfl. Þetta gengur líka út á sam- vinnu á sviði efnahags- og fjármála, að setja sambærileg lög í heiminum og koma á viðvörunum og vörnum sem geta komið í veg fyrir að slíkt hryðjuverk gerist aftur. Hættan er hins vegar mikil og enginn er óhult- ur,“ sagði Halldór. Þessi vágestur kemur öllum við Aðspurður hvort eitthvað hefði komið fram á fundinum sem tengdist hagsmunum og stöðu Íslands sér- staklega sagði Halldór svo ekki vera, að öðru leyti en því að þarna færi fram barátta sem varðaði alla heims- byggðina. Hér væri um alþjóðlegt vandamál að ræða sem þyrfti að taka á með alþjóðlegum hætti. „Á fundinum var nefnt að á sínum tíma hefði það verið talið ómögulegt að skapa samstöðu um afnám þræla- halds í heiminum sökum efnahags- öngþveitis. Sem betur fór tókst heimsbyggðinni að afnema þá skipun mála og um það tókst samstaða. Þessi vágestur sem hryðjuverka- starfsemin er kemur öllum við í heiminum, hvort sem þeir búa á Ís- landi eða annars staðar. Enginn get- ur setið hjá í því, enda eru allar þjóð- ir heims að keppast við að taka þátt í því. Að sjálfsögðu er það á mismun- andi forsendum og aldrei verða allir sammála um allt. Aðstæður eru mis- munandi í löndum, mismunandi hugsun og hagsmunir, en þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta mál sem snertir okkur öll. Við þurfum að huga að okkar innra öryggi og höfum gert það, meðal annars á Keflavík- urflugvelli. Við höfum í samvinnu við varnarliðið á undanförnum árum verið að æfa viðbrögð við hryðju- verkum. Sumir hafa talið það heldur barnalegt en það sem kemur fyrir aðra getur komið fyrir okkur. Við getum ekki beðið eftir því að glæpa- mennirnir sýni sig á nýjan leik, fara verður á eftir þeim og koma réttlæt- inu yfir þá,“ sagði Halldór. Halldór Ásgrímsson á fundi varnarmálaráðherra NATO í Brussel Einhugur og samstaða um aðgerðir Bandaríkjanna AP Halldór Ásgrímsson í hópi nokkurra fundarmanna í Brussel í gær. Fremstir á myndinni eru George Robertsson, framkvæmdastjóri NATO, og Paul Wolfowitz, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Þeim að baki er varnarmálaráðherra Ítalíu, Antonio Martino. FÆRUSTU myndhöggvarar heims hefðu vart getað unnið betur úr þessum steinum en eitt vatnsfallið á Öldufellsleið hefur gert í áranna rás. Sólin nær líka að kasta skemmtilegri birtu á blautt grjótið. Kötlu í Mýrdalsjökli ber við himin bak við ferðalanginn í bakgrunni. Morgunblaðið/RAX Listaverk á Öldufellsleið BILUNAR varð vart í Boeing 757-vél Flugleiða á leiðinni til grísku eyjarinnar Krítar í gær. Þrýstingur fór af vökvadælu í öðrum mótor vélarinnar en bil- unin var ekki það alvarleg að flugstjórarnir ættu í neinum vandræðum í lendingunni. Þar sem varahlutur var ekki til staðar á Krít varð að senda hann flugleiðis frá Íslandi og fresta brottför um sólarhring. Þeir 208 farþegar sem ætluðu með Flugleiðavélinni heim urðu því strandaglópar og var þeim komið fyrir á hótelum í eina nótt til viðbótar. Varahluturinn átti að komast á leiðarenda í nótt og var ekki reiknað með að langan tíma tæki að koma honum fyrir. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, er von á Krítarförum heim síð- degis í dag. Yfir 200 stranda- glópar á Krít Vélarbilun hjá Flugleiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.