Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hús skáldsins Sigurhæðir - Davíðshús Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri, sími 462 6648 og 860 4966. Net: skald@nett.is Gott næði orðlistamönnum: 1. Tvær skrifstofur í Sigurhæðum: til boða þeim sem sinna vilja hvers konar orðlist í hvetjandi umhverfi. Leigjast gegn vægu gjaldi nokkrar vikur eða mánuði í senn. Umsóknarfrestur vegna afnota á fyrra helmingi ársins 2002 er til 26. október 2001. 2. Listamannsíbúð í Davíðshúsi: - Einkum ætluð þeim er fást við skapandi skrif- er til tímabundinnar dvalar á árinu 2002 gegn greiðslu þjónustu- og tryggingargjalds sem er endurkræft að hluta. Umsóknir þar sem m.a. komi fram: a) stutt kynning á umsækjanda og verkum hans, b) að hverju umsækjandi hyggst vinna, c) æskilegt tímabil og tímaskeið dvalar, sendist forstöðumanni, Erlingi Sigurðarsyni eða menningarfulltrúa, Ingólfi Ármannssyni, fyrir 26. október 2001. Nánari upplýsingar má fá hjá þeim eða í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, sími 460 1000 þess að sækja þessa þjónustu á stof- ur í Reykjavík. Í janúar sl. var bætt við 2 milljónum eininga í pottinn, ein- ungis til sérfræðilækna út í bæ, en sjúkrahúsin fengu ekki sinn hluta af þeim kvóta,“ segir Þorvaldur. „Við höfum velt fyrir okkur að at- huga hvað samkeppnisráð hefur um þetta að segja. Það er alveg gilt sjón- armið og ég veit að fleiri stofnanir eru að velta því fyrir sér. Við hljótum að eiga að sitja við sama borð,“ segir hann. Ekki tekið tillit til breyttra aðstæðna Í skýrslu Ríkisendurskoðunar í sumar kom fram að nokkur stóru sjúkrahúsanna hefðu unnið ferliverk umfram úthlutaðan einingafjölda og fjárveitingar á undanförnum árum. Þorvaldur segir að þegar FSA var gert að taka yfir ferliverk sem TR hafði fjármagnað hafi því fylgt góð orð um að tekið yrði tillit til breyttra aðstæðna s.s. fjölgunar verka og ÞORVALDUR Ingvarsson, lækn- ingaforstjóri Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri, segir sjúkrahúsið ekki njóta sama rekstrarumhverfis til að geta sinnt ferliverkum og sjálf- stætt starfandi læknar. Sjúkrahúsin búi við veika samkeppnisstöðu gagn- vart Tryggingastofnun vegna þessa. Fjárveitingar til sjúkrahúsanna vegna ferliverka miðast við tiltekið magn verkeininga á ári en sérfræð- ingar sem hefja einkarekstur fá út- hlutaða einingakvóta frá Trygginga- stofnun. Geta ekki boðið sambærileg laun Þorvaldur bendir á að illa gangi að fá lækna til starfa nema FSA geti boðið upp á sambærileg laun og standi til boða í Reykjavík þar sem viðkomandi læknir á þess kost að opna stofu út í bær. ,,Ef einingakvót- inn klárast og við þurfum að hætta að sinna þessum verkum þá er um 440 km. veg að fara fyrir sjúklinga til mannfjöldaþróunar. „Þetta hefur ekki orðið raunin. Frá því að FSA tók samningin yfir þá hefur orðið aukning í ferliverkum hér á FSA sem og annars staðar. Á því eru mjög einfaldar skýringar. Starfsemi sjúkrahúsins hefur aukist vegna fjölgunar lækna og breyttrar þjón- ustu,“ segir hann. „Við höfum ekki her sérfræðinga hér út í bæ sem tekur við ef ferliverk á sjúkrahúsinu stöðvast. Við höfum gert áætlanir fram í tímann sem hafa staðist. Ef þeir læknar sem hingað vilja ráðast til starfa nytu sömu kjara og læknar sem vilja vinna fyrir Tryggingastofnun en ekki bara fyrir sjúkrahúsið þá værum við algerlega innan heimilda fjárlaga hvað það varðar,“ segir hann. Þorvaldur bendir á máli sínu til stuðnings að á síðasta ári hófu fjórir nýir sérfræðingar störf hjá FSA. „Þeim fylgdi aukin starfsemi. Tveir nýir sérfræðingar komu í stað lækn- is sem hætti og tók með sér ferli- verkakvóta til Reykjavíkur. Sam- kvæmt samningi Tryggingastofn- unar og sérgreinalækna fengi hver þessara lækna 25.000 einingar ef þeir rækju stofu út í bæ. Einn lyf- læknir og sérfræðingur í smitsjúk- dómum hóf einnig störf hjá okkur og samkvæmt sama samningi þá hefði hann fengið 25.000 einingar frá TR. Fjórði læknirinn hóf störf seint á árinu og hafði lítil áhrif á eininga- fjölda. Ef FSA væri í sama rekstr- arumhverfi og sjálfstætt starfandi læknar hefði FSA fengið úthlutað 75.000 eininga kvóta og verið innan ramma fjárlaga. Á þessu ári hafa fjórir sérfræðingar hafið störf á FSA. Um er að ræða öldrunarlækni, geðlækni, þvagfæraskurðlækni og kvensjúkdómalækni. Ef FSA hefði sama rekstrarumhverfi og sjálfstætt starfandi sérfræðingar þá Hefði FSA fengið úthlutað 100.000 eining- um og við værum enn innan ramma fjárlaga ef rétt væri á málum hald- ið,“ segir hann. Lækningaforstjóri FSA segir stöðu spítalans veika gagnvart TR og sérfræðilæknum Íhuga að leita til samkeppnisráðs VIÐRÆÐUR eru í gangi um mögu- leika á að endurreisa rekstur Skinnaiðnaðar á Akureyri en eins og fram hefur komið var bú félagsins tekið til gjaldþrotaskipta á dögun- um. Í kjölfarið leysti Landsbanki Ís- lands til sín þær eignir sem bankinn átti veð í, auk þess sem félag á veg- um bankans, Skinnaiðnaður – rekstrarfélag, tók við rekstrinum. Ormarr Örlygsson, framkvæmda- stjóri félagsins, sagði að þreifingar væru í gangi um hugsanlega endur- reisn fyrirtækisins í einhverri mynd en að ekkert væri fast í hendi á þess- ari stundu. Hann sagði að tíminn væri knappur og því nauðsynlegt að fá niðurstöðu sem fyrst. Örlygur Hnefill Jónsson hdl. var skipaður skiptastjóri þrotahús Skinnaiðnaðar. Hann sagði að vissu- lega horfðu menn til þess að geta nýtt þessa daga til að endurreisa þarna hluti, væri sú staða í spilunum. „Oft er það nú þannig að þegar svona fyrirtæki rísa upp aftur er það í tölu- vert breyttri og smærri mynd, að minnsta kosti til að byrja með en svo geta þau í framtíðinni stækkað aft- ur.“ Fjölmargir hafa hagsmuna að gæta Örlygur Hnefill sagði erfitt að segja til um hver niðurstaðan yrði í þessum þreifingum. Hins vegar væri ljóst að margir hefðu hagsmuni af því að svona fyrirtæki gengi, við- komandi sveitarfélag, starfsfólk, stéttarfélög, flutningsaðilar, þjón- ustuaðilar, birgjar, sláturleyfishafar og fleiri. Örlygur Hnefill sagði það best fyrir þrotabúið að hægt yrði að koma rekstrinum í gang á ný. Valur Knútsson, formaður atvinnumála- nefndar Akureyrar, sagði að nefndin hefði lýst yfir vilja til að koma að málinu og þá einkum varðandi kost- un á þeirri vinnu sem fram þarf að fara í þessu ferli. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 30 manns en um síðustu mánaðamót voru þar um 120 manns að störfum. Unnið að endurreisn fyrirtækisins Gjaldþrot Skinnaiðn- aðar á Akureyri líkur á því að Vitaðsgjafi hefði verið á þessum slóðum en hann sagði að nú um alllangt skeið hefði viðkomandi land verið kall- að Þrætuhólmi sem gæti bent til þess að reglan sem sett var á 10. öld „Að sitt sumar höfðu hvorir“ hefði fallið niður í aldanna rás. hafði svo skipt verið með landinu að sitt sumar höfðu hvorir.“ En þar er átt við bændur á Hripkelsstöðum og Þverá þar sem nú heitir Rifkelsstaðir og Munka- þverá. Hörður Garðarsson fyrr- verandi bóndi og oddviti á Rif- kelsstöðum taldi mjög miklar KORNRÆKT fer stöðugt vaxandi í Eyjafirði og virðist árviss. Upp- skera á þessu hausti er góð, um 4-5 tonn á hektara af þurrkuðu byggi. Atli Hörður Bjarnason bóndi á Rifkelsstöðum hóf kornrækt á síð- astliðnu vori sem væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema að hann sáði korni sínu þar sem áð- ur er talið að kornakurinn Vitaðs- gjafi hafi verið. Í Víga-Glúmssögu segir: „En þau gæði fylgdu mest Þverárlandi, það var akur, er kallaður var Vitaðsgjafi, því að hann var aldrei ófrær, en honum Korn rækt- að á ný á akrinum Vitaðsgjafa Eyjafjarðarsveit Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Fyrsta þresking á kornakrinum Vitaðsgjafa í þúsund ár. Viðar Garð- arsson er á vélinni, en í baksýn má sjá Rifkelsstaði. Hörður Garðarsson skoðar kornið af Vitaðsgjafa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.