Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 37 Tískudagar 27.—30. september Komið og sjáið alla fallegu haustlitina frá Gardeur, Marcona, Monari, Echo og Baronia. iðunn tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. Kringlunni, sími 588 1680. Opið í Kringlunni til kl. 21 NÚ VIRÐIST niður- staða endurskoðunar- nefndarinnar um stjórn fiskveiða vera að líta dagsins ljós. Klofn- ingur er í nefndinni, um afgreiðslu málsins, sem við mátti búast. Þó að niðurstaðan eða álit minni hlutans hafi ekki verið birt opinberlega virðist það liggja fyrir. Þar koma fram tveir kostir, annars vegar er það auðlinda- eða veiði- leyfisgjald, en hins veg- ar fyrningarleið. Út- gerðarmenn eru fylgjandi fyrri kostin- um en sjómenn þeim síðari. Ég vil leggja fram sáttatillögu í málinu. Nú er það svo að kvótaút- hlutunin miðast við ákveðna pró- sentu (%) af hverri fisktegund, og út frá því reiknast magn fisks af hverri tegund, sem sérhver kvótahafi má veiða, leiga, selja, veðsetja eða hvað það heitir allt saman. Tillaga mín er sú að fiskveiðiheim- ildirnar séu miðaðar við ákveðið magn en ekki ákveðna prósentu. Þá myndi öll aukning á fiskveiðiheimildum hverrar fisktegundar koma til frjálsra skipta, þá í formi leigugjalda, veiðigjalda eða annars konar skipta. Nú eru margir fiski- stofnar í lágmarki að sögn Hafrannsókna- stofnunar, þrátt fyrir allmikla „friðun“ á síð- ustu 20 árum. Það gæti hugsast að þeir færu að taka við sér. Með þess- ari tillögu gæfist tæki- færi fyrir unga menn að nálgast veiðiheim- ildir á komandi árum. Hver yrðu rökin gegn þessari til- lögu? 1. Útgerðarmenn segðu: ,,Við er- um búnir að sitja að skorti á veiði- heimildum og ættum að njóta þeirr- ar aukningar ef af yrði.“ Því er til að svara. ,,Þeim var í fyrstu úthlutað ákveðnu magni og hafa sniðið sinn stakk eftir því, en ekki eftir hugs- anlegri aukningu.“ 2. Hvað skal gera ef veiðiheimildir minnka enn á milli ára? Hér er ým- islegt athugandi, t.d. 1. Núll-puntur yrði gerður, ef og þegar reglugerð að tillögunni tæki gildi. Þeir, sem fengu skerðingu veiðiheimilda af einhverri tegund, fengju aukningu að núll- punktinum aftur, þegar veiðiheim- ildin ykist aftur. Á meðan mætti bæta þeim upp hugsanlegan skaða, með hugsanlegri aukningu annarra stofna. Þetta mætti hugsa á marga vegu. Eins og ég sagði í upphafi er þetta einungis tillaga sem vert að huga að. Öll þjóðin vill sátt í þessu máli og ekki síst útgerðarmenn, að þeirra sögn. Niðurstaða nefndarinnar virð- ist ekki falla í þann jarðveg eða vera sú sátt sem vonast var eftir. Þess skal getið að tillaga þessi er eigið hugarfóstur og án íhlutunar annarra. Sáttatillaga Ingvi R. Einarsson Fiskveiðistjórnun Fiskveiðiheimildirnar verði miðaðar við ákveð- ið magn, segir Ingvi R. Einarsson, en ekki ákveðna prósentu. Höfundur er skipstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.