Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR ungir karlmenn liggja enn
alvarlega slasaðir á gjörgæsludeild
Landspítalans-háskólasjúkrahúss
eftir kappakstur tveggja bifreiða,
fólksbifreiðar og jeppa, á kvart-
mílubrautinni í Kapelluhrauni í
Hafnarfirði í fyrrakvöld. Annar
mannanna gekkst undir aðgerð í
gær og gekk hún vel að sögn
læknis á vakt en búist er við að
hinn maðurinn þurfi einnig að
gangast undir aðgerð.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Hafnarfirði var bílunum
ekið inn á myrkvaða brautina í
leyfisleysi og þeim ekið á miklum
hraða brautina á enda. Síðan var
þeim snúið við og ekið samsíða á
miklum hraða í hina áttina út að
rásmarkinu. Þar hafi ökumennirn-
ir hins vegar ekki náð að bremsa í
tæka tíð með þeim afleiðingum að
bílarnir þeyttust yfir hæð við enda
brautarinnar og ofan í um tíu
metra djúpa gjótu. Við þetta
kviknaði í bílunum og voru þeir
alelda þegar slökkviliðsmenn bar
að garði um miðnætti. Tók tals-
verðan tíma að slökkva eldinn.
Fólki sem var í bifreið skammt frá
hafði hins vegar tekist að bjarga
ökumönnunum og farþegunum út
úr bílflökunum.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar er
sautján ára, nýbúinn að fá bílpróf.
Hann var einn í bílnum og slapp
lítið meiddur samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins en í jepp-
anum voru auk ökumanns, sem er
átján ára, tveir farþegar; karl og
kona innan við tvítugt. Ökumað-
urinn og annar farþeginn í þeirri
bifreið slösuðust alvarlega og
liggja á gjörgæsludeild en stúlkan
hlaut m.a. rifbeinsbrot.
Engin merki
Kvartmílubrautin er í eigu
Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði
og er hún að sögn Grétars Jóns-
sonar, stjórnarmanns í Kvartmílu-
klúbbnum, samtals um 900 metrar
að lengd. Þar af er um 460 metra
aksturskafli og um 400 metra
bremsukafli. Merkingar sem sýna
m.a. hvar bremsukaflinn tekur við
voru að sögn Grétars málaðar á
brautina í sumar en þar sem
brautin er ekki upplýst hafa öku-
menn bifreiðanna í fyrrakvöld að
því er virðist ekki áttað sig á því
hvar brautin endaði.
Brautin er malbikuð og var að
sögn Grétars lögð fyrir 25 árum.
Hann ítrekar að brautin sé í einka-
eigu og að óviðkomandi sé strang-
lega bannað að aka brautina. Eng-
in merki eru hins vegar við
brautina sem sýna það. Að sögn
Grétars hefur Kvartmíluklúbbnum
reynst erfitt að loka brautinni fyr-
ir óviðkomandi m.a. vegna ann-
arrar umferðar sem þurfi að vera
um svæðið en bendir á að fyrir
nokkrum árum hafi verið sett upp
skilti við brautina sem sýndi að
óviðkomandi væri bannaður að-
gangur að brautinni.
„Það merki var hins vegar eyði-
lagt eins og svo margt annað á
þessu svæði,“ segir hann og bendir
auk þess á að eitt sinn hafi brautin
verið lokuð af með læstu hliði en
að hliðinu hafi verið stolið stuttu
síðar í heilu lagi. „Við höfum því
oftar en einu sinni reynt að loka
svæðinu en það er allt eyðilagt
þarna uppfrá hjá okkur,“ segir
hann. Bætir hann því þó við að
klúbburinn hafi átt í góðu sam-
starfi við lögregluna í Hafnarfirði
við að passa upp á brautina.
Grétar ítrekar hins vegar að í
kjölfar slyssins í fyrrakvöld verði
reynt að loka svæðinu að nýju og
sett upp nýtt skilti sem banni óvið-
komandi aðgang.
Aukinn áhugi á kvartmílu
Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði hefur það komið fyrir að
hún hafi þurft að hafa afskipti af
ökumönnum sem hafi farið í óleyfi
inn á kvartmílubrautina en segir
það þó ekki algengt. „Það hefur
komið fyrir en þó ekki oft,“ að
sögn varðstjóra í lögreglunni.
Hann telur ennfremur aðspurður
ólíklegt að ökumennirnir í fyrra-
kvöld hafi farið í kappakstur á
brautinni vegna áhrifa frá kvik-
myndinni The Fast and The Furi-
ous sem nú er verið að sýna í Bíó-
höllinni. Í myndinni segir frá ungu
fólki sem stundar ólögmætan
kappakstur í skjóli nætur á götum
Los Angeles-borgar.
Grétar Jónsson, stjórnarmaður í
Kvartmíluklúbbnum, segir það
einnig ólíklegt að fyrrnefnd kvik-
mynd hafi hvatt til kappaksturs-
ins. Aðspurður segir hann að fé-
lögum í Kvartmíluklúbbnum hafi
fjölgað mikið síðustu árin en að sú
fjölgun hafi átt sér stað áður en
umrædd mynd var frumsýnd.
Sem dæmi um þá fjölgun sem
átt hefur sér stað í kvartmílu-
keppni bendir Grétar á að fyrir
tveimur árum hafi 20 til 30 manns
keppt í kvartmílu en að síðasta
sumar hafi milli 60 og 70 manns
keppt í kvartmílu. Að sögn Grétars
má m.a. rekja þessa fjölgun til
auglýsingaherferðar klúbbsins síð-
asta vetur en þá var fólk hvatt til
að hætta hraðakstri á götunum en
keppa þess í stað í kvartmílu.
Tveir ungir menn alvarlega slasaðir eftir slys á kvartmílubrautinni í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvartmílubrautin í Kapelluhrauni við Hafnarfjörð. Bílunum var ekið að
rásmarkinu og enduðu þeir í hraungjótunni neðst á myndinni.
Bílarnir
þeyttust
yfir hæð og
ofan í gjótu
Morgunblaðið/Tobbi
Báðir bílarnir gjöreyðilögðust eftir kappaksturinn á
kvartmílubrautinni í Hafnarfirði í fyrrakvöld.
ALÞINGI kemur saman á mánudag,
1. október næstkomandi. Þingsetn-
ing þessa 127. löggjafarþings fer
venju samkvæmt fram að lokinni
guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
Forseti Íslands, ráðherrar og al-
þingismenn ganga fylktu liði til
kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl.
13:25 þar sem séra Gísli Gunnarsson,
sóknarprestur í Glaumbæ, predikar
og þjónar fyrir altari ásamt biskupi
Íslands.
Að guðsþjónustu lokinni er gengið
til þinghússins þar sem forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, set-
ur þingið. Að því loknu tekur aldurs-
forseti þingsins, Páll Pétursson
félagsmálaráðherra, við fundar-
stjórn og stjórnar kjöri forseta Al-
þingis, sem flytur ávarp.
Því næst verða kjörnir varaforset-
ar og kjörið í fastanefndir Alþingis
og til Íslandsdeilda þeirra alþjóða-
samtaka sem Alþingi er aðili að. Að
síðustu verður hlutað um sæti þing-
manna annarra en ráðherra og for-
seta Alþingis.
Setning
Alþingis
1. október
HLAUPIÐ, sem hófst í Súlu og
Núpsvötnum vestast á Skeiðarár-
sandi í Vestur-Skaftafellssýslu, er í
rénun. Heldur dró úr vatnsmagni að-
faranótt miðvikudags og er hlaupinu
að ljúka, samkvæmt upplýsingum
Vegagerðarinnar.
Hlaupið, sem hófst á þriðjudag, er
stærsta hlaup í ánni frá árinu 1986.
Vatnið kom úr Grænalóni við Skeið-
arárjökul. Jarðvísindamenn flugu yf-
ir hlaupið í fyrrakvöld. Að sögn
Magnúsar Tuma Guðmundssonar
jarðeðlisfræðings er ekki talin hætta
á hlaupi úr Grímsvötnum þar sem
ekki varð vart neinnar hreyfingar
þar. „Hlaupið úr Grænalóni hegðar
sér öðruvísi en síðustu hlaup á þessu
svæði. Við höfum í sjálfu sér engar
skýringar á því. Vatn hefur sigið um
fimm metra í lóninu en við vitum
ekki af hverju jarðhitalykt leggur af
vatninu,“ sagði Magnús Tumi.
Hlaupið í rénun
34. LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins verður haldinn í Laugar-
dagshöll 11.-14. október nk. Dagskrá
fundarins verður með hefðbundnu
sniði og hefst klukkan 17.30 fimmtu-
daginn 11. október með ræðu for-
manns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra. Yfir-
skrift landsfundarins verður „Fleiri
tækifæri – farsælla mannlíf“.
Í fréttatilkynningu frá Sjálfstæð-
isflokknum segir að athygli sé vakin
á því að nú liggi fyrir drög að álykt-
unum fundarins sem hægt sé að
nálgast á heimasíðu Sjálfstæðis-
flokksins; www.xd.is. Þar er einnig
hægt að finna greinargerð skipu-
lagsnefndar flokksins, Skipulag og
starfshættir Sjálfstæðisflokksins á
nýrri öld, sem lögð verður fram til
umræðu og afgreiðslu á landsfund-
inum.
Sjálfstæðisflokkurinn
Landsfundur
eftir tvær vikur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
RÚMLEGA 150 skjálftar mældust í
Öxarfirði, skammt vestur af Kópa-
skeri, sl. sólarhring. Samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofunni hef-
ur skjálftavirknin minnkað mikið frá
því í síðustu viku þegar hrinan stóð
sem hæst en enn sér þó ekki fyrir
endann á hrinunni.
Flestir skjálftanna í gær voru á
bilinu 1 til 2 stig á Richter.
Vísindamenn á jarðeðlisstofu Veð-
urstofunnar munu áfram fylgjast
með skjálftavirkninni á svæðinu.
Enn skjálftar
í Öxarfirði