Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 24
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN 24 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLA á Spáni hefur hand- tekið sex Alsírbúa sem starfræktu hryðjuverkahóp tengdan Osama bin Laden, sem er grunaður um að hafa staðið fyrir hryðjuverkaárás- unum á Bandaríkin. Innanríkisráð- herra Spánar, Mariano Rajoy, greindi frá þessu í gær. „Handtökurnar eru mikilvægar og búið er að gera Bandaríkja- mönnum grein fyrir þeim,“ sagði Rajoy en Spánverjar eru á meðal þeirra þjóða er taka þátt í alþjóð- legri leit að hryðjuverkamönnum. Mennirnir sex eru félagar í trú- ar- og bardagahópi, GSPC, sem samkvæmt bandarískum skilgrein- ingum er hryðjuverkahópur. Ræðir þar um klofningshóp frá GIA-sam- tökunum, sem eru hin róttækustu sem múslimar starfrækja í Alsír og myrt hafa hundruð manna á und- anliðnum árum. Mennirnir voru handteknir í fyrrinótt og snemma í gærmorgun víðsvegar um Spán. „Hryðjuverkamennirnir höfðu fjárhagsleg tengsl við hóp bin Lad- ens,“ sagði Jose Maria Aznar, for- sætisráðherra Spánar, á blaða- mannafundi. Rajoy sagði mennina sex vera: Mohamed Boualem Khnouni, leiðtoga samtakanna, Mohamed Belaziz, Yassin Seddiki, Hakim Zerzour, Madjid Sahouane og Hocine Khouni. Samtök bin Ladens veittu hópnum fjárhagsleg- an stuðning og hjálpuðu til við þjálfun í búðum í Afganistan, að sögn Rajoy. Tilgangur samtakanna var að komast yfir rafmagns- og fjar- skiptatæki auk tölvubúnaðar til þess að senda til Alsír, að sögn Rajoy, sem bætti við að einnig hefði búnaður verið sendur til Tsjetsjníu. Lagt var hald á fölsuð skilríki, tölvur og búnað til að falsa flug- miða frá Spáni til Alsír og Frakk- lands. Mennirnir sex voru handteknir í Valencia, Murcia og Almeria í suð- austurhluta Spánar, í Huelva í suð- vesturhluta landsins og Navarra í norðurhlutanum. Rannsókn á mál- inu hefur staðið í tvö ár og starfaði lögregla á Spáni með lögregluliði í Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Hollandi og Belgíu. Menn tengdir bin Laden handteknir á Spáni „Mikilvægar handtökur“ segir innanríkisráðherra Spánar Madríd. AFP. ÓTTAST er að flóttafólki í Afgan- istan fjölgi um helming í vetur, eða í 2,2 milljónir, og að mikil hung- ursneyð blossi upp ef fólkinu verð- ur ekki komið til hjálpar, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóð- anna í gær. Tugir þúsunda manna hafa flúið borgir í Afganistan af ótta við að árásir verði gerðar á landið til að hefna árásar hermd- arverkamanna á Bandaríkin 11. september. Fyrir árásina áætluðu Sameinuðu þjóðirnar að 5,5-6 millj- ónir Afgana þyrftu á einhvers kon- ar hjálp að halda en nú er talið að sú tala hækki í 7,5 milljónir, að sögn Stephanie Bunker, talsmanns Sameinuðu þjóðanna í Íslamabad í Pakistan. Áætlað er að 1,1 milljón Afgana hafi flosnað upp vegna borgara- stríðsins og þriggja ára þurrka í Afganistan og nú er talið að flótta- fólkinu fjölgi í 2,2 milljónir í vetur. Óttast farsóttir Allt að 20.000 afganskir flótta- menn eru nú þegar við landamærin að Pakistan við mjög slæmar að- stæður. Yfirvöld í Pakistan hafa ekki vilj- að opna landamærin að Afganistan af öryggisástæðum og embættis- menn Flóttamannahjálpar Samein- uðu þjóðanna (UNHCR) segja að hætta sé á farsóttum meðal flótta- fólksins, sem er þegar illa á sig komið vegna hungurs og vessa- þurrðar. „Við höfum fengið fréttir um að fólk hafi fengið bráða niðurgangs- sótt,“ sagði Rupert Colville, tals- maður Flóttamannahjálparinnar. „Breiðist hún út getur þessi sótt verið mannskæð við þessar aðstæð- ur, einkum meðal barna.“ Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna reyna nú að semja við pak- istönsk stjórnvöld um að hleypa flóttafólkinu yfir landamærin til að hægt verði að koma því til hjálpar. „Þetta er mjög flókið mál fyrir yfirvöld í Pakistan. Þau hafa áhyggjur af öryggi landsins því eins og ástandið er nú eru þetta lík- lega viðkvæmustu landamæri heimsins,“ sagði Colville. „Menn gera sér hins vegar fulla grein fyrir því að neyðin er mikil. Helmingur fólksins við landamærin sefur undir beru lofti og ástandið versnar með hverjum deginum sem líður.“ Landamæraverðir hafa leyft nokkrum þeirra, sem eru verst á sig komnir, að fara yfir landamær- in. Tvær konur ólu börn við landa- mærin í vikunni sem leið og þeim var leyft að fara til Pakistans, fengu þar læknisaðhlynningu og voru síðan sendar aftur yfir landa- mærin. Gert hefur verið ráð fyrir fimm flóttamannabúðum í vesturhluta pakistanska héraðsins Baluchistan fyrir alls 50.000 manns. Starfsmenn hjálparstofnana óttast að búðirnar verði lítið annað en „geymslustað- ir“ undir stjórn hersins. „Þetta verða ekki flóttamanna- búðir í hefðbundnum skilningi,“ sagði einn heimildarmanna AFP. „Þær verða geymslustaðir undir stjórn og eftirliti pakistanskra yf- irvalda sem ákveða hverjum verði hleypt þangað. Helsta ástæðan fyr- ir því að búðirnar verða við landa- mærin er að fólkið verður sent aft- ur til Afganistans eins fljótt og mögulegt er.“ Hjálparstofnunin Oxfam dregur einnig upp dökka mynd af ástandinu. „Grunnvatnið á þessu svæði er 300 m undir yf- irborðinu og líklega ísalt,“ sagði talsmaður stofnunarinnar, Alex Rentom, og bætti við að mjög erfitt yrði að koma þangað búnaði til að bora eftir drykkjarvatni. „Eins og að setja upp búðir á tunglinu“ Landamærasvæðið í Baluchistan er byggt ættflokkum, sem eru þekktir fyrir að vera mjög óvin- veittir aðkomufólki, að sögn Rentoms. „Einn starfsmanna okkar sem fór þangað sagði að þetta væri eins og að setja upp búðir á tungl- inu, en tunglið er líklega örugg- ara.“ Aðstæður afganskra flóttamanna fjarri landamærunum eru ekki betri. Matvælahjálp Sameinuðu þjóð- anna (WFP) hóf á þriðjudag flutn- inga á matvælum til þurrkasvæða í norðurhluta Afganistans, þar sem áætlað er að 300.000 manns verði uppiskroppa með matvæli um helgina. „Við þurfum að tryggja að mat- vælin berist til þeirra sem þurfa á þeim að halda,“ sagði talsmaður Matvælahjálparinnar, Khaled Mansour. Gerðir hafa verið samn- ingar við flutningafyrirtæki í Túrkmenístan og Tadjikistan um að flytja matvæli til norðurhluta Afganistans. Talibanar hafa torveldað störf hjálparstofnana með því að leggja undir sig útibú þeirra í borginni Kandahar í suðurhluta Afganistans og rjúfa fjarskipti flestra starfs- manna Sameinuðu þjóðanna. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skoraði á grannríki Afganistans að taka á móti afgönsku flóttafólki og varaði talibana við því að trufla hjálpar- starfið. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna óskaði í gær eftir fjár- framlögum að andvirði rúmra 25 milljarða króna til að hægt yrði að koma afganska flóttafólkinu til hjálpar. Allt að fjórar milljónir landflótta Afgana eru nú þegar í Pakistan og Íran vegna borgarastríðsins í Afg- anistan. Sameinuðu þjóðirnar vara við mikilli hungursneyð í Afganistan Óttast að flóttafólkinu fjölgi í 2,2 milljónir Íslamabad, Quetta. AFP, AP. Reuters Afgönsk börn í borginni Chaman, skammt frá landamærunum að Pakistan, leita sér skjóls í yfirgefnu neðan- jarðarbyrgi í brennandi sólarhitanum. Chaman er í um 130 km fjarlægð frá Quetta í Pakistan. Vilja að Pakistan opni landamærin NÚ hafa 300 lík fundist í rúst- um World Trade Center í New York. Að sögn lögreglu í borg- inni er 6.437 manns enn sakn- að. Talsmaður lögreglu New York greindi og frá því í gær að tekist hefði að bera kennsl á 232 líkanna. Fjöldi þeirra sem saknað er hefur verið nokkuð á reiki undanliðna daga sökum þess að tölum á listum þeim sem hinir ýmsu aðilar taka saman hefur ekki borið saman. Fimm manns fundust á lífi í rústum World Trade Center kvöldið eftir árás hryðjuverka- mannanna en fleiri hafa ekki fundist þar. 300 lík fundin New York. AFP. „Íslamska sprengjan“ veldur áhyggjum KJARNORKUVOPN Pakistana valda mörgum áhyggjum um þessar mundir þegar Bandaríkjamenn eru að leggja á ráðin um herför inn í Afganistan. Hún gæti kynt undir mikilli ólgu í landinu og martröðin er sú, að bókstafstrúaðir múslimar komist þar til valda. Talið er, að Pakistanar eigi um 30 kjarnaodda og sé hver þeirra nokkru öflugri en sprengjan, sem varpað var á Hiroshima undir lok síðari heims- styrjaldar. Ekki er vitað hvort þeir geta varpað sprengjunum úr flugvél eða skotið þeim með eldflaug en víst þykir, að unnið sé að einhverju slíku. Pakistönsk stjórnvöld segja, að kjarnorkuvopnaáætlanir þeirra séu svar við kjarnorkuógninni frá Ind- landi en ýmsir hópar á þessum slóð- um líta hins vegar á vopnabúrið sem „íslömsku sprengjuna“, sem nota megi til varnar hagsmunum músl- ima yfirleitt. Ivo Daalder, fyrrverandi starfs- maður bandaríska þjóðaröryggis- ráðsins, segir, að kjarnorkuvopna- búr Pakistana sé „martröð“, sem bandarískir ráðamenn verði ávallt að hafa í huga. Hann segir, að ástæða sé til að hafa áhyggjur af kjarnorkuvopnum hvar sem er og allra helst í landi þar sem hálfgert neyðarástand sé næstum daglegt brauð. Almennt er litið svo á, að pakist- anski herinn sé hlynntur Banda- ríkjamönnum en innan hans eru menn, sem finnst sem Bandaríkin hafi ávallt brugðist Pakistan í átök- unum við Indland. Komi til mikillar ólgu í landinu er hugsanlegt, að þessi klofningur komi upp á yfirborðið. Enginn öryggisbúnaður Sérfræðingar telja fullvíst, að pakistönsku kjarnorkuvopnin séu ekki búin þeim öryggjum, sem, til dæmis eru á þeim rússnesku og eiga að koma í veg fyrir, að hver og einn geti notað þau. Þetta er ekki lítið áhyggjuefni og Bruce Blair, for- stöðumaður Miðstöðvar fyrir upp- lýsingar um varnarmál, segir, að það sé einmitt þetta, sem haldi fyrir hon- um vöku á nóttinni. Blair segist viss um, að ríkisstjórn George W. Bush sé þegar búin að ákveða hvað gera skuli falli kjarn- orkusprengjur í hendur ofsatrúar- manna. Ónefndur, bandarískur emb- ættismaður segir hins vegar, að Pakistanher sé mjög öflugur og muni aldrei leyfa slíkt. Það sé því ekki rétt að gera of mikið úr þessum áhyggjum. (Heimild: The Washington Post) Kjarnorkuvopn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.