Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 41

Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 41 Sími 562 0200 Erfisdrykkjur við Nýbýlaveg, Kópavogi ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Við þekkjum Trausta heitinn sem góðan dreng og hann var vinur í raun og óhlífinn sjálfum sér. Trausti átti erfiða daga oft um ævina, stundum átti hann í baráttu við Bakkus konung. Okkur skildist upp á það síðasta að Trausti heitinn væri orðinn saddur lífdaga, þó berðist áfram til lokadags. Guð blessi þig Trausti minn. Við viljum þakka þér fyrir þau gengnu spor sem þú áttir hér með okkur. Um leið viljum við votta aðstandend- um hans dýpstu samúð. Oss er treginn Trausti minn að trúa að þú sért látinn Sogin nístir hug og sinn svo er margur grátinn þú ferð til feðra þinna inn þinn er ferðamátinn Gunnar Ó., Jón Karl, Ingimund- ur Valur, Friðrik og Lilja. Nú ertu farinn, Trausti minn. Ég mun sakna gæsku þinnar og bross þíns sem alltaf veitti mér gleði. TRAUSTI SIGURJÓNSSON ✝ Trausti Sigur-jónsson fæddist 21. apríl 1963. Hann lést 9. ágúst síðast- liðinn. Útför Trausta fór fram í kyrrþey. Þannig mun ég alltaf minnast þín. Drottinn sé með þér kæri vinur. Villist ég vinum frá vegmóður einn, köld nóttinn kringum mig, koddi minn steinn, heilög skal heimvon mín. Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. (Þýð. Matt. Joch.) Innilegar samúðar- kveðjur til fjölskyldu og vina. Kveðja, Eva Lind Björnsdóttir. Hann Oddur vinur minn er dáinn. Það er svo skrítið, að það er eins og sumu fólki hafi verið ætlað að kynnast. Ég held að því hafi þannig verið farið með Odd, Helgu og mig. Ég var bara fjögurra ára og var að reyna að hjóla í fyrsta skipti hjálp- arlaust á alvöru hjóli. Oddur og Helga bjuggu í stóra kaupfélags- stjórahúsinu hinum megin við göt- una okkar. Ég hjólaði á grindverkið hjá þeim og óhljóðin í mér ráku Helgu út til að athuga hvað væri að gerast. Eftir að hún setti plástur á sárið, hófst vinskapur okkar. Ég man svo vel eftir því að hafa verið að hoppa niður stigann hjá þeim í Sigtúninu, lengsta stiga sem ég hafði nokkurn tímann séð. ODDUR SIGURBERGSSON ✝ Oddur Sigur-bergsson fæddist á Eyri í Fáskrúðs- firði 19. maí 1917. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Drop- laugarstöðum 14. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 24. ágúst. Líka þegar ég fékk dúkkuna sem Oddur keypti handa mér í út- löndum, dúkku sem var höfðinu hærri en ég. Elsku Oddur, takk fyrir að hafa alltaf verið svona góður við mig og systkini mín, þau Hörpu Hlíf og Kidda. Við munum aldrei gleyma þér. Ég vildi að þú værir enn þá hjá okkur, en þú varst orðinn svo veikur og ég veit að þér líður vel núna á fallega staðnum, þar sem enginn sársauki er til. Elsku Helga mín, þú veist að okk- ur mömmu þykir svo innilega vænt um þig og þú munt alltaf eiga okkur að. Kæra Margrét, Helga Brá og Dagga, ég samhryggist ykkur inni- lega, ég veit hvað hann var ykkur kær. Guð mun gefa ykkur styrk og minningin um góðan mann mun ávallt fylgja okkur. Bless Oddur minn, við sjáumst síðar. Þín litla vinkona, Gunnhildur Björk. ✝ Ásta Benjamíns-son Murray fæddist í Kaup- mannahöfn 16. nóv- ember 1913. Hún lést í Barnevelde í New York-ríki 2. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in María Wendel frá Þingeyri við Dýra- fjörð og Ólafur Benjamínsson, stór- kaupmaður í Reykja- vík, frá Marðareyri í Veiðileysufirði. For- eldrar Maríu voru hjónin Svanfríður Ólafsdóttir Wendel og Friðrik Wendel, faktor á Þingeyri. Foreldrar Ólafs voru hjónin Hansína Elísabet Tómas- dóttir og Benjamín Einarsson á Marðareyri. Ásta átti tvær systur, þær Sonju W.B. de Zorrilla og Rögnu Benjamínsson, en hún lést fjögurra ára að aldri árið 1922. Ásta lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1935 og prófi í lyfja- fræði 1939. Meðan á námi í lyfjafræði stóð og eftir próf starfaði hún í Ingólfsapóteki. Ásta var fyrsta ís- lenska konan til að vinna meistaratitil í tennisleik. Ásta flutti til Bandaríkjanna 1944 og giftist þar Grosvenor Murray verkfræðingi. Hann dvaldi á Íslandi sem hermaður meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð. Börn þeirra eru Thomas Olaf lög- fræðingur, kvæntur Betty Murray, og Margaret Murray Ro- berts, félagsráðgjafi og tónlistar- kennari, gift Laurence Roberts prófessor. Minningarathöfn um Ástu fór fram í Folts Home-kapellunni í Herkimer í New York-ríki í Bandaríkjunum 6. ágúst. Þau hittust fyrst á tennisvelli á Melavellinum í Reykjavík þar sem hann dvaldi meðan á seinni heims- styrjöldinni stóð. Hann klifraði oft upp á þakið á bragganum sínum til að geta horft á tennisleikina. Dag nokkurn var ungur maður frá einu Norðurlandanna að bíða eftir kon- unni sem hann vonaðist til að kvænast. Hann sá bandaríska her- manninn á þakinu og bauð honum að leika við sig tennis. Fljótlega birtist ung og fögur kona, nokkuð hávaxin, á tennisvellinum. Norður- landabúinn horfði vonsvikinn á þegar ástin kviknaði hjá hinum bandaríska hermanni og hinni huggulegu íslensku konu. Þannig hófst ástarsagan þeirra. Hún var fyrsta íslenska konan til að vinna meistaratitil í tenn- isleik, hann var góður alhliða íþróttamaður. Hann bað hennar; að þau skyldu eigast og að brúð- kaupið yrði haldið í Bandaríkjun- um. Hún fékk far með Goðafossi, sem fór frá Íslandi 28. ágúst 1944, með síðustu ferð skipsins, því nas- istar sökktu skipinu við strönd Ís- lands 10. nóvember þegar skipið var að koma heim úr þessari ferð. Þau giftu sig í kapellu hersins í Alabama. Hann náði aldrei að vinna ástina sína í leik á tenn- isvellinum. Þau áttu góða daga í 57 ára hjónabandi, sem stóð allt þar til dauðinn aðskildi þau. Ásta Benja- mínsson Murray lést 2. ágúst síð- astliðinn. Hún fæddist í Kaup- mannahöfn 16. nóvember 1913, dóttir hjónanna Maríu Wendel frá Þingeyri við Dýrafjörð og Ólafs Benjamínssonar stórkaupmanns frá Marðareyri í Veiðileysufirði. Hún ólst upp í Reykjavík, þar sem hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1935 og prófi í lyfjafræði lauk hún árið 1939. Ásta starfaði í Ingólfs- apóteki þar til hún flutti til Banda- ríkjanna. Í Bandaríkjunum helgaði Ásta fjölskyldu sinni allt sitt líf. Hún bjó fjölskyldu sinni fallegt heimili þar sem krakkarnir í nágrenninu gátu notið lífsins í útivist og skáta- leikjum í fallegu umhverfi. Ásta lætur eftir sig eiginmann, Grosvenor Murray. Ást hans og tryggð verður seint ofmetin. Hún lætur einnig eftir sig kæra systur, Sonju W.B. de Zorrilla; son og tengdadóttur, þau Thomas Olaf og Betty Murray; dóttur og tengda- son, Margaret Murray og Laur- ence Roberts; ömmubörnin Daria Roberts Helmer og eiginmann hennar Adam, Sonja Roberts, Kristina Murray og eiginmann hennar Tad Ripley, Patricia Murray Nordwall og eiginmann hennar Mark, Carolyn Murray og langömmubarnið Katie Nordwall. Minningarathöfn um Ástu var haldin í Folts Home-kapellunni við Washingonstræti í bænum Herki- mer í New York-ríki í Bandaríkj- unum mánudaginn 6. ágúst síðast- liðinn. Blessuð sé minning móður minn- ar, Ástu Benjamínsson Murray. Margrét Murray Roberts. ÁSTA BENJAMÍNSSON MURRAY Ég kynntist Jóhanni mjög og átti með hon- um góðar stundir. Kom þar sérstaklega hve hann var traustur maður í hverju máli og þá áttum við samleið á tveim vettvöngum hins daglega lífs. Annar var bindindismálin sem hann fylgdi dyggilega alla ævi og sérstaklega hafði ég ánægju af okk- ar síðustu samfundum er ég heim- sótti hann í sumar á heimili hans, Hólnum, og þá kvað hann það hafa verið sína mestu hamingju að hafa ungur tekið ákvörðun um að forðast áfengi og önnur vímuefni. Það sagði hann mikið gæfuspor. Við áttum líka góða og farsæla samleið í Sjálf- stæðisflokknum, þar sem manndáð- in og baráttan fyrir farsæld sam- félagsins átti sterk ítök og fjölskyldan var í fyrirrúmi. Við átt- um góða stund saman á heimili hans og ræddum þessi mál okkar, hugsjónirnar sem að þeim stóðu, hvað unnist hefði á og hvað hefði farið úrskeiðis. Við vorum sammála um að vímulaust þjóðfélag væri brýn nauðsyn, en eins og þjóðlífið væri í dag þar sem fólkið í landinu hefði orðið fyrir barðinu á eiturefn- unum, væri enn lengra í land með bindindissamt þjóðfélag og nú þyrftu allir þjóðhollir landsmenn að taka til hendinni og stöðva þessa óheillaþróun. Hann sagði m.a.: „Mér líst ekki á þessa þróun en allt- af á að bæta við áfengisverslunum JÓHANN FRIÐFINNSSON ✝ Jóhann Frið-finnsson fæddist í Vestmannaeyjum 3. nóvember 1928. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi í Fossvogi 13. september og fór útför hans fram frá Landakirkju 21. september. og fjölga vínveitinga- húsum og svo hélt ég að engum gæti komið til hugar að berjast fyrir að þessi ófögn- uður ætti eftir að vera seldur innan um alls- konar matvæli í öllum búðum landsins.“ Hann sagði líka að undanlátssemin við allskonar kröfur sem gerðar væru á hendur þjóðfélaginu myndu ekki verða framtíðinni til bóta. Og margt ann- að vorum við sammála um og höfðum ótta af sem væru steinar í götu þjóðarinnar um gró- andi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkisbraut. Það var mér mikill ávinningur að geta átt þessa stund með vini mínum Jó- hanni. Hann hafði virkilega kynnst mörgum viðhorfum í starfi sínu fyr- ir bæinn sinn og eins þjóðina. Jó- hann var maður heilbrigðra lífs- hátta og var ekki óspar á að segja hver væri gæfuleiðin. Kirkjan átti einnig hans hug, það fann ég svo glöggt og „bænirnar hennar mömmu“, eins og við orðuðum það, voru þau leiðarljós sem gáfu far- sæld í lífi hvers manns. Ég vil með þessum orðum þakka Jóhanni góðvini mínum fyrir öll hans hlýju orð og handtök og hið góða viðmót og bros sem hann átti svo ríkulega mikið af. Hann var sannur maður í þess orðs fyllstu merkingu, vildi öllum gott gera. Það var alltaf mikil heiðríkja í kringum hann. Guð blessi hann og varðveiti. Árni Helgason, Stykkishólmi. Jóhann Friðfinnsson var for- stöðumaður Byggðasafnsins í Eyj- um frá árinu 1992 þar til hann lét af því starfi fyrir aldurssakir. Síðustu tvö árin stjórnaði hann sagna- og fræðasetri á heimili sínu á Hólnum í Vestmannaeyjum. Jóhann naut sín í starfi safnvarðar enda fróður um sögu Eyjanna og góður sögumaður. Það var ætíð ánægjulegt að sækja hann heim og var Jóhann rómaður fyrir gestrisni sína og alúðlega framkomu. Jóhann Ásmundsson var safnmaður og vel liðinn meðal sam- starfsmanna í byggða- og minja- söfnum landins. Hann tók til varð- veislu muni í Byggðasafnið í Eyjum, skráði og bjó til sýningar auk þess að taka vel á móti gestum. Jóhann tók árlega þátt í ársfundi ís- lenskra safnmanna, farskólanum. Þar var hann hrókur alls fagnaðar og einstaklega áhugasamur. Jói á Hólnum, eins og við kölluðum hann, hafði einlægan áhuga á starfinu og var stoltur af safninu sínu og sögu Vestmannaeyja. Árið 1997 var hinn árlegi farskóli íslenskra safnmanna haldinn í Vestmannaeyjum og tók Jóhann sérlega vel á móti sam- starfsmönnum sínum frá öllum landshornum. Farskólinn það árið var óvenjulega fjölsóttur og eftir- minnilegur. Jóhann hafði skipulagt glæsilega dagskrá blandaða fróðleik og skemmtun eins og honum einum var lagið. Boðið var upp á fræðslu- erindi, leiðsögn um safnið og skoð- unarferðir um söguslóðir í Eyjum. Hátíð farskólans var svo þegar Jó- hann bauð hinum 60 manna hópi til kvöldverðar á heimili sitt á Hóln- um. Einkenndust móttökurnar af einstakri gestrisni, vinarhug og ör- læti. Það var því sorg og söknuður sem einkenndi þátttakendur í far- skóla íslenskra safnmanna í sept- ember sl. þegar þær fréttir bárust á miðjum farskóla að Jóhann væri látinn. Þar er skarð fyrir skildi. Fyrir hönd samstarfsmanna á Þjóð- minjasafni Íslands og byggða- og minjasöfnum landsins er Jóhanni þakkað fyrir hans hlut í safnastarfi á Íslandi. Hann átti sinn þátt í að varðveita minjar og miðla á áhuga- verðan hátt fróðleik um sögu heimabyggðar sinnar gestum hans til ánægju. Blessuð sé minning Jó- hanns Friðfinnssonar. Margrét Hallgrímsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.