Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG var ekki gamall þegar ég gerði
mér ljóst að það fór ekki eftir gáf-
um hvernig menn komu fram hver
við annan. Glámskyggni hefur
löngum byrgt mönnum sýn. Kurt-
eisi og hlýlegt viðmót er einhver
ódýrasta og minnsta fyrirhöfn í
tjáskiptum sem hugsast getur og
gefur mikið. Virðing og góður hug-
ur til náungans ætti fyrir löngu að
vera orðin mönnum samgróinn eft-
ir alda langa reynslu af hroka og
mannfyrirlitningu. Mönnum lærist
best að níða hver annan niður og
þrífast á að eyðileggja. Þjóðir og
umhverfi eru látin víkja fyrir
hagsmunum fárra og heimskan og
skammsýnin höfð í öndvegi. En
það er ekkert vonlaust því kyndl-
arnir eru meðal okkar með fróð-
leik og tónlist að vopni og þótt við
höfum ekki borið gæfu til að
byggja tónlistarhús búum við að
því sem of fáir sjá, frábæru tón-
listarfólki. Þetta fólk lýsir upp til-
veruna og gerir lífið auðugra. Án
tónlistar væri tómleiki. Öll list er
undirstaða menningar, en tónlistin
veitir mestu hamingjuna og er
eina góða stórveldið því hún er
stórveldi gleðinnar. Á Íslandi er
magnaður og margbreytilegur
hrærigrautur góðs og ills og trón-
ar hugsjónalaust vald víða án
ábyrgðar og yfirfullt af tillitsleysi.
En hvar sem græðgi og henni
tengt siðleysi fer um þjóðarsali
líknar og huggar tónlistin. Hún
lyftir fólki á hærra plan og lætur
því líða vel. Alla tuttugustu öldina
hefur tónlistin verið að lýsa upp
auðinn sem þjóðskáldin, ljóðsnill-
ingarnir með Jónas Hallgrímsson í
fylkingarbrjósti sköpuðu. Tónlistin
á stóran þátt í að ljóð þeirra eru
greypt í þjóðarsálina. Hún færði
ljóðin nær fólkinu og gerði því
kleift að njóta þeirra betur og fá
börnin með. Íslendingar eiga nú
fjölda söngfólks á heimsmæli-
kvarða. Mér er nær að halda að
kórmenning okkar standi ekki á
gömlum merg en hvað sem því líð-
ur er hún nú í frægðarljóma. Það
er ekki aðeins að kórum, ánægju-
legu menningarblómunum hafi
fjölgað, það besta er að stóraukin
þátttaka barna og unglinga er
staðreynd. Uppeldislegt gildi
þessa menningarstarfs er ómetan-
legt. Allir aldurshóparnir kynnast
innlendum og erlendum menning-
ararfi sínum og læra að þekkja
gömlu klassísku meistarana, flest-
ar tegundir tónlistar, ljóð og sögur
í fortíð og nútíð. Í þessari menn-
ingarskál eiga Íslendingar ekkert
smáræði. En það þarf að vísa leið-
ina og þeir eru fleiri sem það gera
en haft hefur verið í hámælum.
Störf þessa fólks fara fram í kyrr-
þey, við erfið skilyrði, án skilnings
og opinbers stuðnings. Í nútíman-
um eigum við Íslendingar marga
tónlistarfrömuði á heimsmæli-
kvarða. Jón Ásgeirsson er ekki
bara gott tónskáld sem víða hefur
sett mark sitt, hann er líka útsetj-
ari á heimsvísu. Stofnun og rekst-
ur Pólýfónkórsins í áratugi var
einstakt afreksverk Ingólfs Guð-
brandssonar. Þorgerður dóttir
hans ber af í kórstjórn, túlkun, ný-
sköpun og er vegvísir í uppeldi
ungmenna. Aðrir snjallir kórstjór-
ar eru Jón Stefánsson, Björgvin Þ.
Valdimarsson og Sigurður Braga-
son. Öll eru þau í heimsklassa.
Björgvin er gott tónskáld eins og
Sigurður sem er auk þess afbragðs
söngvari. Undir þeirra stjórn gáfu
Árnesingakórinn í Reykjavík og
Skagfirska söngsveitin út mjög
góða geisladiska og plötur. Pólý-
fónkórnum fórst meistaralega vel
að gefa út klassísk stórverk og
plöturnar sem Þorgerður og Jón
Stefánsson gerðu með Hamrahlíð-
arkórunum og Kór Langholts-
kirkju eru löngu landsþekktar. Ég
álít að þjóðin eigi betra skilið en
verkum þessa listafólks og því
sjálfu sé ekki sýndur meiri sómi
en verið hefur. Óskandi væri að
sjónvarpið hefði mánaðarlega
þætti um störf þessa fólks, léti
kynna nýju lögin og gæfi þjóðinni
kost á að njóta tónlistar á sem
margbreytilegastan hátt. Kórsöng
má ekki vanta í veisluna. Kóramót,
ég tala nú ekki um barnakóramót-
in, fóru fyrir ofan garð og neðan.
Ég vona að sjónvarps- og hljóð-
varpsstöðvar nái þeim þroska að
hræðast ekki hið kjarngóða ís-
lenska efni sem liggur nánast á
glámbekk. Komi stjórnmálaflokkur
auga á menningar- og uppeldislegt
gildi tónlistarhúss, hvenær sem
það nú verður, mun hann umsvifa-
laust hefja baráttu fyrir byggingu
þess því það verður ásjóna lands
og lýðs og minnisvarði framsýnar
og stórhugs.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
Frá Alberti Jensen:
Kórastörf – söngv-
arar – tónskáld –
tónlistarhús
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.