Morgunblaðið - 27.09.2001, Síða 56
Tvær töfrasýningar í gangi í Reykjavík
ÞAÐ ER EKKI á hverjum
degi sem töframenn á
heimsmælikvarða sýna
listir sínar hér á landi en
nú er aldeilis gósentíð
fyrir þá sem vilja láta
plata sig upp úr skónum.
Tvær veglegar töfra- og
sjónhverfingasýningar
voru frumsýndar í síðustu viku. Finnski ofurhuginn og sjónhverf-
ingamaðurinn Iiro sýndi listir sínar í Loftkastalanum um helgina og
hefur bætt við aukasýningu um þá næstu vegna góðrar aðsóknar. Sýn-
ingarnar verða á föstudag og laugardag kl. 20 en einnig hefur verið
bætt við barnasýningu kl. 15 á laugardag.
Í Broadway er hins vegar boðið upp á alíslenska skemmtidagskrá
með töfrum og ótrúlega glæfralegum sjónhverfingum. Sýningin heitir
PG Magic show og er hinn góðkunni Pétur pókus þar í aðalhlutverki
en sérlegur ráðgjafi hans er frægasti töframaður íslenskrar sam-
tímasögu, Baldur Brjánsson. Frumsýnt var með glæsibrag á fimmtu-
daginn og verða sýningar komandi vikur eða í samræmi við viðtökur.
Næstu sýningar eru í kvöld, fimmtudagskvöld, og á sunnudaginn.
Morgunblaðið/Ásdís
Töframaðurinn Iiro er staddur hér á landi í annað sinn.
Hókus
hér og
pókus
þar
Morgunblaðið/Ásdís
Pétur pókus er aðalstjarnan í PG Magic
show sem er í anda Las Vegas-sýninga.
56 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TILGÁTA Goldbachs hefur verið
mönnum hugleikin frá því á átjándu
öld er Christian Goldbach setti hana
fram í bréfi til vin-
ar síns Leonards
Eulers. Tilgátan
hefur ekki verið
sönnuð og enn er
nokkuð í land með
að finna sönn-
unina, en skáld-
saga Doxiadis
segir frá manni
sem glímt hefur við sönnunina.
Doxiadis var víst undrabarn í
stærðfræði og lagði stund á hana
meðal annars í New York og París, en
sneri sér síðan að ritstörfum. Við það
hefur honum gengið flest í haginn,
skrifað nokkrar skáldsögur sem
þykja góðar, leikstýrt og verið verð-
launaður fyrir kvikmyndir sínar.
Í sögunni af Petrosi frænda segir
Doxiadis frá ungum pilti sem heillast
af leyndarmáli fjölskyldunnar um
Petros frænda, einrænan mann sem
hefur dregið sig í hlé frá skarkala
heimsins og hefur helst ekki samneyti
við annað fólk. Hvernig á því stendur
er vel varðveitt leyndarmál innan fjöl-
skyldunnar en sögumaður, sem er
drengur er sagan hefst, nær á end-
anum sambandi við Petros og fær
hann til að segja sér sögu sína. Í ljós
kemur að Petros hafði undraverða
stærðfræðihæfileika, en kaus að sóa
þeim í leit að sönnun á tilgátu Gold-
bachs. Smám saman tekst drengnum
unga að vinna traust Petrosar og
ákveður í aðdáun sinni að verða
stærðfræðingur. Petros er ekki sátt-
ur við það og leggur fyrir piltinn
lymskulega gildru.
Bók Doxiadis gefur skemmtilega
mynd af heimi æðri stærðfræði og
þeim sérvitringum sem búa í þeim
heimi, margir svo heillaðir af fræð-
unum að þeir geta ekki legur átt sam-
neyti við menn og sumir ganga af
göflunum. Saga Petrosar er vitanlega
ýkt dæmi um hvert fræðin geta leitt
menn, en eigi að síður trúverðug um
margt. Hún er líka býsna vel skrifuð
framan af, en aðdragandi atburðanna
í lokin er ekki sannfærandi og kemur
á óvart hve Doxiadis missir tökin und-
ir það síðasta.
Þess má geta að Faber og Faber-
útgáfan stofnaði verðlaunasjóð um
það leyti sem bókin kom út og býður
milljón sterlingspund þeim sem tekst
að sanna títtnefnda tilgátu.
Uncle Petros and Goldbach’s Con-
jecture eftir Apostolos Doxiadis.
Faber og Faber gefur út 2000. 209
síðna kilja sem kostar 1.995 kr í
Máli og menningu.
Árni Matthíasson
Tilgáta
Goldbachs
Forvitnilegar bækur
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1250 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
kvikmyndir.com
kvikmyndir.is
Þegar þú veist lykilorðið,
geturðu gert allt!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251
strik.is
strik.is
Mögnuð stuðmynd
í nánast alla staði!
kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Vit 258.
Sýnd kl. 8.Enskt. tal. Vit 265.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 268 Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10. B.i. 12. Vit 256
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12. Vit 270
Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense,
Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stór-
kostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Rás 2
Mbl
Radíó X
HK DV
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6Sýnd kl. 10.30.Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10. B. i. 12 ára.
Himnasending i i
Frá leikstjórum
American Pie.
Líf og dauði hef-
ur sínar góðu og
slæmu hliðar.
Með „fyndn-
asta manni“
í Ameríku, Chris
Rock (Lethal Weapon
4, Dogma), Mark Addy
(The Full Monty), Eugene
Levy (American Pie), Regina
King (Jerry Maguire, Enemy
of the State) og Chazz Pal-
menteri (Analyze This).
1/2 Kvikmyndir.com
H.L. Mbl.
H.K. DV
Strik.is
ÓHT Rás 2
TILLSAMMANS
Sýnd kl. 10. B.i.10.
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
Skriðdýrin eru mætt aftur til leiks
Sýnd kl. 6 og 8.
Kvikmyndir.com
Hugleikur
DV
strik.is
Stærsta mynd ársins yfir 50.000
áhorfendur
Steven Spielberg leikstyrir
hér Haley Joel Osment
(Sixth Sense, Pay it
Forward) og Jude Law
(Enemy at the Gates) í
einni stórkostlegustu sögu
og sjónarspili sem sést
hefur á hvíta tjaldinu.
Í leikstjórn
Steven Spielberg
Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919
Sýnd kl.6. Ísl tal
Radíó X
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HK DV
!" # "
!
" $ "%
&! ' "
!
" ( "%