Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 04.10.2001, Síða 4
HÆTTUÁSTANDI var aflýst á Seyðisfirði klukkan sjö í gærmorgun. Hverfi í austurhluta bæjarins hafði þá verið lokað vegna hættu á aur- skriðum í tæplega sólarhring. Ólafur H. Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að mikið hefði dregið úr rigningunni og því hefði verið talið óhætt að aflétta hættuástandi. Tíu íbúðir og nokkur stærstu fyrirtæki bæjarins eru innan svæðisins sem var lokað. Ólafur og jarðfræðingur frá veð- urstofunni könnuðu hlíðarnar fyrir ofan bæinn í gær. Ólafur segir mikla bleytu í hlíðunum og aðstæður víða varasamar. „Við megum ekki við því að fá mikla rigningu á næstu dögum. Það væri mjög slæmt,“ segir Ólafur. Nokkuð rigndi á Seyðisfirði í gær en ekkert í líkingu við úrhellið sem þar hefur verið undanfarna daga. Skemmdir af völdum vatnsveðurs- ins eru litlar og segir Ólafur að bæj- arbúar hafi sloppið ótrúlega vel. Aðspurður hvort hægt sé að grípa til ráðstafana til að lágmarka tjón af völdum vatnavaxta segir hann að slíkt sé mjög erfitt. „Það er samt hugsanlegt á ákveðnum svæðum sem við erum að skoða nánar,“ segir hann. Helsta ráðið sé að hreinsa grjót og jarðveg úr ár- og lækjarfar- vegum til að tryggja að vatnið eigi greiða leið til sjávar en einnig hug- leiði menn aðrar aðgerðir. Vegagerðin ruddi í gær vegi sem lokuðust þegar aurskriður féllu á þá. Hættuástandi aflýst á Seyðisfirði FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÚTFÖR Stefáns Jónssonar, fyrrverandi forseta bæj- arstjórnar Hafnarfjarðar, fór fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Ægir Sigurgeirsson jarðsöng. Kistu hins látna báru úr kirkju, frá vinstri: Þórður Stefánsson, Helga Ragnheiður Stefánsdóttir, Halldór I. Stef- ánsson, Jón Gunnar Stefánsson, Bergur Sigurðsson og Sigurður Hallur Stefánsson. Morgunblaðið/Golli Útför Stefáns Jónssonar Knut Almestad, sem gegnt hefur starfi forstöðumanns ESA, er að láta af því starfi um þessar mundir. Norð- menn hafa lagt mikla áherslu á að Einar Bull, sendiherra Noregs hjá Evrópusambandinu, taki við stöð- unni. Íslendingar hafa bent á að vel komi til greina að Hannes Hafstein sendiherra taki við stöðunni, en óum- deilt er að hann hefur yfirburðaþekk- ingu á ESS-samningnum sem hann átti stóran þátt í að móta á sínum tíma. Norðmenn vilja að Norðmaður taki við stöðunni Um þetta mál var fjallað í Aften- posten í gær. Þar segir m.a.: „Ísland hefur sýnt því áhuga að taka að sér þessa stöðu [stöðu forstöðumanns ESA]. Þetta hefur valdið titringi í norska utanríkisráðuneytinu. Noreg- ur vill fyrir hvern mun koma í veg fyr- ir að útlendingur stýri ESA þar sem yfir 90% af verkefnum hennar varða mál sem varða einvörðungu Noreg.“ Ekki náðist í Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í gær, en frétta- flutningur í norskum fjölmiðlum um málið mun ekki hafa vakið neina kæti í íslenska utanríkisráðuneytinu, sam- kvæmt heimildum blaðsins. Þar líta menn svo á að afstaða Norðmanna til þessarar ráðningar geti orðið til þess að skaða ESA. Það sé alþekkt vinnu- regla í alþjóðlegu samstarfi að þjóðir skiptist á um að gegna forystustörf- um og Norðmenn geti ekki umgeng- ist ESA eins og þeir eigi stofnunina. Forstöðumaður ESA sé talsmaður stofnunarinnar út á við og eigi að gæta hagsmuna allra aðildarþjóð- anna. Áherslu norska utanríkisráðu- neytisins á að Norðmaður gegn stöð- unni megi túlka á þann hátt að þeir líti ekki á stöðu forstöðumanns ESA sem hlutlaust embætti heldur emb- ætti sem eigi að þjóna norskum hags- munum sérstaklega. Einar Bull þykir mjög hæfur mað- ur og utanríkisráðuneyti Íslands hef- ur ekki lýst beinni andstöðu við að hann verði ráðinn. Málið verður rætt á fundi utanríkisráðherra EES-land- anna sem haldinn verður í næstu viku. Ágreiningur um ráðningu forstöðu- manns ESA ÁGREININGUR er milli Íslands og Noregs um ráðningu forstöðu- manns Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Norðmaður hefur gegnt þessu starfi og hefur norska utanríkisráðuneytið lagt áherslu á að annar Norðmaður taki við starfi hans. Íslendingar hafa ekki lýst beinni andstöðu við ráðningu hans en hafa verið óánægðir með vinnu- brögð Norðmanna í málinu og að þeir skuli telja sig eiga stöðuna. AÐGERÐUM á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi hefur verið fækk- að um hundrað á þeim þremur dög- um sem verkfall sjúkraliða hefur staðið yfir, að sögn Önnu Stefáns- dóttur, hjúkrunarforstjóra spítalans. Því fyrsta af þremur þriggja daga verkföllum sem sjúkraliðar hjá ríkinu og tveimur sjálfseignarstofnunum, Grund í Reykjavík og Ási í Hvera- gerði, hafa boðað til lauk á miðnætti. Um 380 sjúkraliðar hverfa aftur til starfa á þeim 20 stofnunum víða um land sem verkfallið náði til. Verkfallið kom hvað verst niður á starfsemi Landspítala – háskóla- sjúkrahúss en auk þeirra um 130 sjúkraliða sem þar lögðu niður vinnu sögðu 96 sjúkraliðar störfum sínum lausum og hættu um mánaðamótin. Vegna uppsagnanna þarf Landspít- alinn að halda þremur og hálfri deild áfram lokaðri en fimm deildum spít- alans; þremur skurðlækningadeild- um, einni barnadeild og einni lyf- lækningadeild, var lokað þegar aðgerðir sjúkraliða hófust aðfaranótt mánudags. „Við munum opna barna- deildina og hluta af einni skurðlækn- ingadeildinni þegar sjúkraliðarnir hverfa aftur til starfa,“ sagði Anna í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Mikið álag Bætti hún því við að uppsagnir sjúkraliðanna hefðu meiri áhrif á starfsemi spítalans til lengri tíma litið en verkfallið og sagðist aðspurð ekki vita hvenær hægt yrði að opna fyrr- greindar deildir að nýju. Hún sagði að mikið álag hefði verið á starfsfólki spítalans í vikunni en nokkuð mikið hefði verið um bráðainnlagnir síðustu daga. „Það hefur því verið mjög mik- ið að gera hjá okkur.“ Anna sagði ennfremur að yrði ekki samið fljót- lega við sjúkraliða þyrfti spítalinn að endurskipuleggja starfsemina enn frekar vegna boðaðra verkfallsað- gerða sjúkraliða. Hafi samningar ekki náðst milli sjúkraliða og ríkisins mun annað þriggja daga verkfall sjúkraliða hefjast hinn 15. okt. nk. Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélags Íslands, seg- ir að enn hafi enginn samningafundur verið boðaður með samninganefnd- um sjúkraliða og ríkisins en Ríkis- sáttasemjari stefni þó að því að halda fund fyrir helgi. Enginn fundur sé hins vegar fyrirhugaður á allra næstu dögum með sjúkraliðum og forsvars- mönnum sjálfseignarstofnana þar sem þeir hafi lýst því yfir að þeir myndu bíða eftir samkomulagi milli sjúkraliða og ríkisins. Kristín segir að mikill einhugur sé meðal sjúkraliða um verkfallsaðgerð- ir og tekur fram að margir þeirra hafi mætt á opið hús sjúkraliða í húsa- kynnum BSRB við Grettisgötu í Reykjavík á meðan á verkfallinu stóð. Sjúkraliðafélagið hefur sett á fót vinnumiðlun fyrir félagsmenn sína. Þriggja daga verkfalli sjúkraliða lauk á miðnætti Þrjár og hálf deild verður áfram lokuð ÁLVERÐ hefur hægt og sígandi farið lækkandi á heimsmarkaði undanfarna mánuði og þegar litið er til meðalverðs á áli fystu níu mánuði þessa árs er það 1.493 dollarar, sem er 74 Bandaríkja- dölum lægra en það var að með- altali í fyrra. Verðið hefur hæst á árinu farið í 1.642 Bandaríkjadali 31. janúar síðastliðinn en fór lægst á mánudaginn var, 1. októ- ber, í 1.330 Bandaríkjadali fyrir tonnið. Hrannar Pétursson, upp- lýsingafulltrúi ÍSAL, sagði að undanfarna mánuði hefði verðþróunin hægt og sígandi ver- ið niður á við. Þó væri vert að benda á að verðlækkanirnar hefðu getað verið enn meiri, en vegna orkuskorts í Bandaríkj- unum væri mjög búið að draga úr framleiðslunni þar og ef ekki hefði komið til þess samdráttar hefði framboð á álmarkaði verið enn meira. Álverðið sveiflukennt Hrannar sagði að verð á áli væri mjög sveiflukennt. Á árinu 1999 hefði verðið til dæmis farið niður fyrir 1.200 Bandaríkjadali í mars það ár og upp fyrir 1.700 dali í desember sama ár. Hrannar sagði að ekki væri að sjá að hryðjuverkin í Bandaríkj- unum hefðu haft áhrif á verðþró- unina á annan hvorn veginn. Hann sagði mjög erfitt að segja fyrir um framtíðina hvað varðar verðþróunina og menn færu mjög varlega hvað það snerti.                           Álverð á niðurleið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.