Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 9

Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 9 MEÐALFALLÞUNGI dilka í haust er breytilegur eftir land- svæðum en margt bendir til þess að hann verði lægri en í fyrra. Ólafur R. Dýrmundsson, ráðu- nautur hjá Bændasamtökum Ís- lands, segir að hvað vænleika varðar hafi verið um metár að ræða í fyrra. Undanfarin ár hafi meðalvænleiki verið í kringum 15 kg, en hann áréttar að erfitt sé að vera með tölur um meðalfall- þunga lengur vegna þess að farið sé að slátra hluta lambanna á sumrin og slátrun eigi sér auk þess stað fram á veturinn. Eðli- lega séu lömbin almennt léttari á sumrin en þau sem fara um þetta leyti og spurning sé hvað lömbin, sem geymd séu fram á veturinn, þyngist mikið. Hins vegar hafi meðalfallþunginn í landinu hækk- að eftir því sem fénu hafi fækkað, því þá sé rýmra í högum auk þess sem framfarir hafi orðið í kynbótum og ræktun. Hermann Árnason, sláturhús- stjóri Sláturfélags Suðurlands á Selfossi, segir að það stefni í að um 100.000 lömbum verði slátrað þar í haust, en að loknum átta dögum í hefðbundinni sláturtíð sé búið að slátra um 16.000 lömbum og meðalfallþunginn sé um 14,7 kg. Hann sé ívið minni en í fyrra og muni mest um að dilkar frá Vesturlandi séu léttari. „Ætli muni ekki um hálfu kílói miðað við í fyrra,“ segir hann. Nokkur munur Búið að slátra um 25.000 lömb- um hjá Sölufélagi A-Húnvetninga á Blönduósi en þar er slátrað um 1.700 til 1.800 lömbum á dag og gert ráð fyrir að slátra allt að 65.000 lömbum í haust. Gísli Garðarsson, sláturhússtjóri, segir að til þessa sé meðalfallþunginn um 15 til rúmlega 16 kg, en slátr- að hafi verið frá Vestfjörðum og Ströndum og því séu tölurnar í hærra lagi. Sölufélagið hafi ekki slátrað frá þessum svæðum áður og hafi því ekki samanburð á milli ára, en flestir innleggjendur segi að dilkarnir séu léttari en í fyrra. Munurinn sé jafnvel eitt til eitt og hálft kg. Hjá Fjallalambi hf. á Kópa- skeri er búið að slátra um 11.000 fjár af um 30.000 og er fallþung- inn um 15,5 kg, að sögn Garðars Eggertssonar, framkvæmda- stjóra. Hann segir útlit fyrir að fallþunginn verði í góðu meðal- lagi, þó staðan sé misjöfn milli bæja, fyrst og fremst vegna hretsins í vor og misjafnrar að- stöðu. Nokkrir bæir séu með vænni dilka en í fyrra og svo séu aðrir með lakari nú, en hafa beri í huga að lömbin hafi verið mjög væn á liðnu ári. Meðalfallþungi dilka lægri en í fyrra ÞORSTEINN Ingólfsson sendi- herra flutti á þriðjudag ræðu á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna en hann er fastafulltrúi Íslands hjá þeim. Í ræðunni lýsti hann meðal annars yfir stuðningi Íslands við við- brögð Bandaríkjanna vegna hryðju- verkanna 11. september síðastliðinn. Þá lagði hann áherslu á rétt ríkja til sjálfsvarnar samkvæmt stofnsátt- mála Sameinuðu þjóðanna og fagn- aði þeirri alþjóðlegu samstöðu sem myndast hefur í baráttunni gegn hryðjuverkum í heiminum. „Hryðju- verk eru með engu móti réttlætan- leg, heldur ávallt óviðunandi ofbeld- isverk,“ sagði hann. Benti hann á að baráttan gegn hryðjuverkum ætti að verða forgangsmál Sameinuðu þjóð- anna í nánustu framtíð og að beita þyrfti öllum tiltækum ráðum til að vinna gegn þessari ógn við saklausa borgara og frið og stöðugleika í heiminum. Barátta gegn hryðjuverk- um í forgang ÁRLEGA kannar Gallup hvort landsmenn séu hlynntir eða andvígir aðskilnaði ríkis og kirkju og hafa litl- ar breytingar orðið þar á síðan 1998. Í nýlegri könnun Gallup kemur fram að rúmlega 34% eru hlynnt aðskiln- aði, tæplega 13% eru hvorki hlynnt né andvíg og 34% eru andvíg aðskiln- aðinum. Stuðningur við aðskilnað ríkis og kirkju minnkar með aldrin- um og eru höfuðborgarbúar hlynnt- ari aðskilnaði en þeir sem búa úti á landi. Eldra fólk and- vígt aðskilnaði ♦ ♦ ♦ Vorum að taka upp meira af stökum jökkum                ÓÐINSGATA 7 562-8448 HITASETTIR SEMILÍUSTEINAR 4 STÆRÐIR 8 LITIR ÞOLA ÞVOTT Á 60°C FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Kringlunni — s. 568 1822 Kringlunni - sími 581 2300 VANDAÐAR YFIRHAFNIR FYRIR DÖMUR OG HERRA Þýskir vetrarjakkar Laugavegi 84, sími 551 0756 Þökkum frábærar viðtökur Ítölsk barnafataverslun Laugavegi 53, s. 552 3737 Vorum að taka upp nýja sendingu af frábærum fötum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.