Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 10

Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FORYSTUMENN ríkisstjórnarinn- ar kynntu á fréttamannafundi í gær breytingar sem ákveðið hefur verið að gera í skattamálum fyrirtækja og ein- staklinga, sem koma til framkvæmda á næsta ári og árinu 2003. Hefur m.a. verið ákveðið að eignarskattar fyrir- tækja og einstaklinga lækka, tekju- skattur fyrirtækja er lækkaður, hætt verður skattlagningu húsaleigubóta og stimpilgjald verður lækkað. Þá verða verðbólguleiðréttingar í skatt- skilum og reikningsskilum afnumdar, sem er stórt skref í átt að aðlögun ís- lenska skattkerfisins að skattkerfum annarra ríkja, að sögn ráðherranna. Breytingarnar voru unnar af rík- isfjármálanefnd fjögurra ráðherra, (sem skipuð er formönnum og vara- formönnum stjórnarflokkanna) og hafa verið staðfestar af þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Mun fjár- málaráðherra leggja fram frumvarp í dag um breytingar á lögum um tekju- skatt og eignarskatt og fleiri mál, sem afgreiða á sem lög fyrir áramót. Ráðherrar lögðu áherslu á að með þessum breytingum væri m.a. verið að búa til samkeppnishæfara um- hverfi fyrir atvinnulífið, í því alþjóð- lega umhverfi sem fyrirtækin starfa í. ,,Við viljum ekki missa nýsköpun og tækniiðnað af ýmsu tagi til annarra landa. Við viljum ekki missa fyrirtæki eins og Össur, Marel, Atlanta eða önnur slík úr landi, svo nokkur dæmi sú nefnd. Við viljum frekar fá þau heim sem hafa farið og jafnframt laða til okkar erlend fyrirtæki, sem gætu hugsað sér að setja niður starfsemi sína hér, vegna þess hvernig okkar umhverfi er orðið,“ sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Hann sagði einnig skynsamlegt að grípa til aðgerða af þessu tagi núna út frá sjónarmiði almennrar hagstjórnar. Tekjuskattur fyrirtækja lækkar úr 30% í 18% Aðgerðirnar fela m.a. í sér að tekju- skattur fyrirtækja lækkar úr 30% í 18% um næstu áramót. ,,Þetta mun hafa áhrif á fyrirtækin frá næstu ára- mótum en ekki hafa áhrif í skattlagn- ingunni sjálfri fyrr en á árinu 2003,“ sagði fjármálaráðherra. Eignarskatt- ar fyrirtækja og einstaklinga verða lækkaðir um helming og svokallaður Þjóðarbókhlöðuskattur felldur niður miðað við árslok næsta árs. Þá verða verðbólgureikningsskil afnumin frá næstu áramótum. ,,Til þess að greiða fyrir því að við getum gengið lengra í þessu efni en ella hefði verið er jafnframt ætlunin að hækka tryggingagjald, sem leggst ofan á launagreiðslur atvinnurek- enda, um 0,77% frá 1. janúar 2003, eða ári síðar en tekjuskattsbreytingin tekur gildi. Til viðbótar er einnig ætl- unin að lækka stimpilgjöld frá 1. jan- úar 2003, en það er aðgerð sem snert- ir bæði fyrirtæki og einstaklinga. Hún er ekki alveg útfærð á þessu stigi að öðru leyti en því að við höfum ráð- gert að verja til þess verkefnis um það bil 900 milljónum á árinu 2003. Sér- stök lög gilda um stimpilgjaldið og ég geri ráð fyrir að frumvarp muni koma fram síðar á þessu hausti,“ sagði fjár- málaráðherra. Meðal breytinga sem gerðar verða á sköttum einstaklinga er að skatt- lagning húsaleigubóta verður afnum- in frá næstu áramótum. Áður hafði verið ákveðið að tekjuskattur einstak- linga lækkaði um 0,33% um næstu áramót en eftir er að lögfesta þá breytingu. Ríkisstjórnin hefur einnig ákveðið að frítekjumörk eignarskatts og sérstaks eignarskatts einstaklinga hækki um 20% vegna eigna í lok yf- irstandandi árs til að koma í veg fyrir að hækkun fasteignaskatts leiði til skattahækkunar. Þá er ákveðið að frí- tekjumörk svonefnds hátekjuskatts hækki um 15% vegna tekna á yfir- standandi ári. Fjármálaráðherra sagði erfitt að áætla með nákvæmni hvaða áhrif skattabreytingarnar hefðu á tekjur ríkissjóðs. ,,Það er hreyfanleiki í hag- kerfinu og breytingar af þessu tagi hafa áhrif á hegðun fólks og fyrir- tækja, á fjárfestingar, uppbyggingu og nýsköpun og fleira. Enda er það höfuðmarkmiðið með breytingunum sem snúa að fyrirtækjum að örva at- vinnulífið og búa þannig um hnútana að fyrirtækin geti byggt sig upp, stækkað, veitt meiri atvinnu og greitt hærri laun,“ sagði Geir. Brúttókostnaður skattalækk- ananna áætlaður 7,5 milljarðar Heildarkostnaður (brúttó) við þessar skattalækkanir er áætlaður 7,5 milljarðar á ári en á móti er reikn- að með tekjuaukningu fyrir ríkissjóð þegar fram í sækir vegna aukinnar veltu og umsvifa og er því áætlað að á árinu 2003, þegar áhrif breytinganna verða komin að fullu fram, verði tekjutap ríkissjóðs um 3,5 milljarðar kr. Hefur þá verið tekið tillit til veltu- breytinga og annarra þátta. Að sögn fjármálaráðherra er um varlega áætl- un að ræða og allt eins líklegt að tekjulækkunin verði enn minni og muni snúast í tekjuauka þegar fram í sækir. Brúttóhækkun trygginga- gjaldsins nemur aftur á móti um 2,5 milljörðum og greiða atvinnufyrir- tækin 3⁄4 hluta þess en ríki og sveit- arfélög fjórðung. ,,Ríkissjóður stendur vel og hann hefur efni á svona skattalækkun. Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því að hér er ekki um að ræða skattalækkanir sem nauðsynlega kalla á einhvern niðurskurð annars staðar. Það er alltaf gott að halda vel utan um ríkisútgjöldin og reyna að minnka þau en það er ekki svo í þessu dæmi að það þurfi að tilgreina ná- kvæmlega einhverja liði sem verður að hætta að fjármagna hjá ríkissjóði til að geta staðið undir þessum skatta- lækkunum,“ sagði fjármálaráðherra. Tekjuskattar á fyrirtæki verða lægstir á Íslandi Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að um væri að ræða einhverjar viðamestu breytingar á skattalögum sem átt hefðu sér stað í umhverfi fyr- irtækja og einstaklinga. Hann sagði að eftir að þessar skattalækkanir kæmust til framkvæmda yrðu tekju- skattar á fyrirtæki meðal samkeppn- islanda okkar lægstir á Íslandi. ,,Hugsanlega má segja að Írar muni fara niður fyrir okkur, þeir stefna í 12% tekjuskatt á fyrirtæki, en það skattstig er háð ýmsum takmörkun- um, skilyrðum og fyrirvörum, þannig að ef við miðum við það sem almennt gerist erum við mjög samkeppnis- hæfir hvað þetta varðar,“ sagði Davíð. Gera Ísland samkeppnis- hæfara meðal þjóða Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði að ráðherrar hefðu farið yfir þessi mál í sumar til þess að átta sig á því nýja viðskiptaumhverfi sem íslensk fyrirtæki störfuðu í í heimin- um. ,,Tekjuskattur á fyrirtæki er hér of hár og það hefur verið ákveðið að lækka hann verulega svo Ísland sé samkeppnishæfara en það er. Það hefur líka komið í ljós að eignarskatt- ar eru hér miklu hærri en almennt gerist í heiminum þar sem eignar- skattar á fyrirtæki tíðkast alls ekki. Þess vegna beinist þessi aðgerð fyrst og fremst að því að gera Ísland sam- keppnishæfara. Það er rétti tíminn að gera þetta nú. Það er ákveðinn sam- dráttur í efnahagslífinu og ákveðnar hættur framundan, m.a. á því að við missum frá okkur atvinnulíf úr land- inu. Þess verður líka vart að við náum ekki til okkar nægilega miklu af er- lendum fjárfestingum. Það er allt of lítið um erlendar fjárfestingar hér á landi. Þessar breytingar eru því eink- um gerðar til þess að örva atvinnulíf, skapa fleiri störf og efla hagvöxt í landinu en eins og fram hefur komið er útlitið ekki nægilega bjart að því er það varðar á næstunni. Þess vegna er algjörlega nauðsynlegt að grípa til þessara aðgerða,“ sagði Halldór. Fram kom í máli hans að ráðherrar hefðu verið sammála um að stefna bæri að því að allir eignarskattar yrðu felldir niður, þar sem fjármagns- tekjuskatturinn hefði leyst þá af hólmi. Við núverandi aðstæður væri eðlilegra að leggja skatta á tekjur af eignum og fjármagni fremur en á eignirnar sjálfar. ,,Því eru að sjálf- sögðu takmörk sett hvað ríkissjóður getur gert í einu og það verður að skoða þessar tillögur með hliðsjón af því. Það er ekki ætlunin að skera neitt niður á móti þessu. Það er ekki ætl- unin að skerða velferðarkerfið heldur að auka tekjumöguleika þjóðarinnar og einstaklinganna,“ sagði Halldór. Ekki endanlegur pakki Davíð sagðist taka undir þessi um- mæli Halldórs. ,,Þetta er ekkert end- anlegur pakki en þetta er það sem við sjáum fram á núna að við getum gert. Þetta er góð blanda gagnvart fyrir- tækjum og einstaklingum,“ sagði for- sætisráðherra. Viðamiklar breytingar í skattamálum fyrirtækja og einstaklinga kynntar Eignarskattar og tekjuskattar lækkaðir Morgunblaðið/Ásdís Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra kynntu víðtækar breytingar í skattamálum í Ráðherrabústaðnum. Forystumenn ríkis- stjórnarflokkanna kynntu í gær viðamiklar breytingar í skatta- málum fyrirtækja og einstaklinga, sem hafa að markmiði að efla at- vinnulífið og treysta hag heimilanna. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs muni minnka um 3,5 milljarða vegna skatta- lækkananna. omfr@mbl.is Breytingar á sköttum einstaklinga  Eignarskattar einstaklinga lækka úr 1,2% í 0,6% miðað við árslok 2002.  Sérstakur eignarskattur ein- staklinga (Þjóðarbókhlöðu- skattur) fellur niður miðað við árslok 2002.  Skattlagning húsaleigubóta er afnumin frá og með árinu 2002.  Tekjuskattur einstaklinga lækkar um 0,33% 1. janúar 2002.  Frítekjumörk í sérstökum tekjuskatti einstaklinga (há- tekjuskatti) hækka um 15% vegna tekna á árinu 2001.  Frítekjumörk í eignarskatti og sérstökum eignarskatti ein- staklinga hækka um 20% vegna eigna í árslok 2001 til þess að koma í veg fyrir að hækkun fast- eignamats leiði til hækkunar eignarskatta á næsta ári. Breytingar sem varða atvinnulífið  Tekjuskattur fyrirtækja lækk- ar almennt úr 30% í 18% 1. jan- úar 2002.  Eignarskattur fyrirtækja lækkar úr 1,2% í 0,6% miðað við árslok 2002.  Sérstakur eignarskattur fyr- irtækja (Þjóðarbókhlöðuskattur) fellur niður miðað við árslok 2002.  Verðbólgureikningsskil verða afnumin frá 1. janúar 2002.  Fyrirtækjum verður heimilt að færa bókhald og ársreikninga í erlendri mynt frá 1. janúar 2002.  Tryggingagjald hækkar um 0,77% frá 1. janúar 2003. Að auki verður stimpilgjald lækkað frá 1. janúar 2003, bæði fyrirtækjum og einstaklingum til hagsbóta. Aðgerðir í skattamálum „SAMTÖK atvinnulífsins hafa lagt ríka áherslu á að það þurfi að bæta starfsskilyrði fyrirtækja, ekki síst í ljósi vaxandi al- þjóðavæðingar,“ segir Finnur Geirsson, for- maður Samtaka atvinnulífsins, spurður um sam- þykkt rík- isstjórnarinnar í skattamálum. „Á heildina lit- ið sýnist mér að ríkisstjórnin sé með þessum að- gerðum í skattamálum að koma til móts við okkar sjónarmið og því ber að fagna. Það eru þarna reyndar áform sem eru ekki að- eins ívilnandi heldur íþyngjandi fyrir atvinnulífið,“ segir Finnur og á þar við boðaða hækkun tryggingargjalds um 0,77% frá 1. janúar 2003. „Við þurfum að átta okkur betur á því hvaða þýðingu slíkt hefur þegar upp er staðið.“ Finnur Geirsson „Komið til móts við okkar sjónarmið“ „VIÐ teljum að frekar ætti að beina skattalækkun fyrirtækja að því að ná tökum á verðbólgunni og tryggja stöðugleika,“ sagði Gylfi Arnbjörns- son, fram- kvæmdastjóri ASÍ, en tók fram að hann hefði ekki kynnt sér tillögurnar til hlítar. „Skattalækk- un á fyrirtæki með þessum hætti teljum við ekki vera inn- legg í það. Við teljum að aðrar leiðir séu skynsamlegri til þess að stuðla að frekari og öflugri nýsköpun og nýfjárfestingu held- ur en almenn skattalækkun á tekjuskatti, þannig að við erum mjög andsnúin þeim leiðum sem þarna eru farnar. Við teljum skynsamlegra að einblína á lækk- un vaxta annars vegar og skatta- lækkun sem beint er í þá átt að lækka verðbólgu hins vegar, til dæmis varðandi óbeina skatta sem myndi hjálpa okkur að tak- ast á við verðbólguna.“ Gylfi Arnbjörnsson Aðrar leiðir skyn- samlegri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.