Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 15
Hápunktur haustsins
Sparidagar á Hótel Örk
Fyrir alla eldri borgara
Sparidagarnir hefjast 21. október,
þegar Gunnar Þorláksson skemmtanastjóri
mætir til leiks og stjórnar dagskránni.
Að venju verður í boði fjölbreytt dagskrá, m.a.:
Morgunhreyfing, félagsvist, gönguferðir, bingó
danskennsla, leikjanámskeið,
ferðalag og svo öll tómstundaaðstaða hótelsins, auk
kvöldskemmtana með söng og dansi á hverju kvöldi.
Tvö tímabil eru í boði: 21. okt. -26. okt. 28. okt. - 2. nov.
Verð fyrir manninn er kr. 18.500
Lykill að íslenskri gestrisni.
HÓTEL ÖRK
Sími 483 4700
Innifalið Gisting í fimm nætur, m.v. tvíbýli, morgunverður,
þríréttaður kvöldverður ásamt skemmtidagskrá alla daga.
STARFSHÓPUR borgarstjóra og
lögreglustjórans í Reykjavík sem
fjallað hefur um veitingamál legg-
ur fram ýmsar tillögur til að bæta
veitingahúsamenningu og eftirlit
og draga úr ölvun á almannafæri.
Meðal tillagnanna er að í lögreglu-
samþykkt Reykjavíkur verði lagt
bann við svonefndum einkadansi á
nektarstöðum og sýnendum verði
bannað að fara um meðal áhorf-
enda.
Í áfangaskýrslu um vændi á Ís-
landi og félagslegt umhverfi þess,
sem dómsmálaráðherra lét vinna
og hópurinn vitnar í, kemur fram
að vændi, bæði skipulagt og
óskipulagt, fer fram í tengslum við
marga nektarstaði í borginni. Að
mati hópsins er mikilvægt að grip-
ið verði til aðgerða til að sporna
við þeirri þróun og að eftirlit lög-
reglu með starfsemi nektarstaða
verði auðveldað. Í skýrslu hópsins
segir m.a.: „Starfsemi nektardans-
staða er hins vegar með þeim
hætti að lögreglan á mjög erfitt
með að hafa eftirlit með því sem
þar fer fram. Má þar nefna sem
dæmi svokallaðan einkadans sem
þar er boðið upp á, þar sem áhorf-
andi er einn með einum eða fleiri
sýnendum og því illmögulegt að
hafa eftirlit með því sem þar fer
fram... Hópnum var í erindisbréfi
falið að taka sérstaklega á vændi.
Að mati hópsins er áhrifaríkasta
úrræðið til að sporna við vændi á
næturklúbbum (nektarstöðum) að
draga eins og frekast er kostur úr
beinu samneyti sýnenda og gesta.
Hópurinn leggur því til að í lög-
reglusamþykkt Reykjavíkur verði
lagt bann við einkadansi í næt-
urklúbbum.“ Í tillögum hópsins er
einnig kveðið á um að sýningar á
nektarstöðum verði að fara fram í
nægilega rúmgóðu húsnæði þannig
að gott rými sé á milli sýnenda og
áhorfenda. Leggur hópurinn til að
þar verði miðað við ákveðinn
metrafjölda eða um það bil fjóra
metra.
Alls lagði starfshópurinn fram
30 tillögur til úrbóta. Gera þær ráð
fyrir hertri framkvæmd hvað varð-
ar útgáfu veitingaleyfa og eftirlit
með leyfishöfum og að jafnframt
verði að auka samstarf þeirra aðila
sem koma að málum. Þá telur hóp-
urinn að brýn þörf sé á heildarend-
urskoðun gildandi laga og reglna,
einkum á lögum um veitinga- og
gististaði og áfengislögum.
Meðal tillagna hópsins er að
settur verði á stofn eftirlitshópur í
tilraunaskyni til eins árs sem í
verði lögregluþjónn, heilbrigðis-
fulltrúi, eftirlitsmaður frá eld-
varnaeftirlitinu og einnig verði
leitað eftir aðkomu skattstjórans í
Reykjavík. Hópurinn leggur til að
lögreglan í Reykjavík fari með
stjórn eftirlitshópsins en komi eitt-
hvað fram í eftirliti sem kallar á
aðgerðir viðkomandi stofnana taki
þær við eftirfylgni málsins. Auk
þess ættu viðkomandi stofnanir
eftir sem áður að sinna lögbundnu
eftirlitshlutverki sínu.
Ölvun bönnuð á tilteknum
svæðum í borginni
Hópurinn óskar einnig eftir að
sett verði reglugerð um menntun
dyravarða á skemmtistöðum þar
sem lögreglustjóra verði gert
heimilt að gera það að skilyrði fyr-
ir veitingu áfengisleyfis að allir
eða ákveðið hlutfalla dyravarða á
veitingastað hafi sótt námskeið. Á
slíku námskeiði yrði þá meðal ann-
ars farið yfir gildandi lög og reglur
um starfsemi veitingastaða, hvern-
ig þekkja megi fölsuð skílríki, við-
brögð við óspektum, hvernig
þekkja megi merki um neyslu og
sölu ólöglegra vímuefna og viðeig-
andi viðbrögð við slíku. Þá er bent
á nauðsyn þess að fylgt verði eftir
af meiri festu þeim málum er
varða refsivert athæfi og upp
koma í eftirliti með veitinga-
rekstri.
Þá er lagt til að borgaryfirvöld
banni ölvun og/eða meðferð áfeng-
is á tilteknum tímum á tilteknum
svæðum borgarinnar, sem og að
borgaryfirvöld óski eftir því við
ÁTVR í vínbúðinni Austurstræti
að selja ekki bjór í minni einingum
en sex flaskna/dósa pakkningum.
Vilja banna
einkadans á
nektarstöðum
Miðborg
Gripið til aðgerða á nætur- og
nektarklúbbum borgarinnar