Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 16

Morgunblaðið - 04.10.2001, Page 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Heilsárs orlofshús Upplýsingar gefur Heimir Guðmundsson, byggingaverktaki, 815 Þorlákshöfn, í síma 892 3742. Einstaklingar og starfsmannafélög Erum að framleiða stórglæsileg heilsárs orlofshús í ýmsum stærðum. Sjón er sögu ríkari. EFTIR stórar og miklar fram- kvæmdir bæði innan og utan dyra á félagsheimilinu Múla, var ákveðið að halda nú áfram góð- um verkum og byggja upp skóla- lóð og nýjan leikvöll. Hreppsnefndin leitaði til Héð- ins Björnssonar, garðyrkjumanns á Akureyri, um skipulag og allan frágang. Vélaverkstæði Sigurðar I. Bjarnasonar í Grímsey hefur séð um alla jarðvegsvinnu. Múli, sem hýsir hvorki meira né minna en grunnskólann, félagsheimilið, bókasafnið og heilsugæsluna, er lifandi hús sem iðar af mannlífi allan ársins hring og eru íbúarnir því himinsælir með átakið. Skólalóð og endurbættur leik- völlur er alveg sérstakt gleðiefni í 90 manna byggðarlagi þar sem meðalaldurinn er 31 ár og þar af 25 börn undir 12 ára aldri. Leik- tækin á leikvellinum eru flest ný af nálinni, litrík og traust og keypt hjá Vélaverkstæði Sig- urbergs á Akureyri og Trésmíða- verkstæði Kötlu á Árskógssandi. Héðinn Björnsson sagði að til gamans mætti geta þess að í verkinu hefðu um 1.200–1.500 fermetrar verið þökulagðir, hellulögn væri um 150 fermetrar og um 300 fermetra bílastæði væri nú við Múla. Miðja mannlífs- ins í Grímsey – félagsheimilið og umhverfi þess væri því orðið hið glæsilegasta, öllum til mikillar gleði. Umhverfi félagsheim- ilisins tekur breytingum Morgunblaðið/Kristján Skólabörn í Grímsey á nýja leikvellinum ásamt Þorláki oddvita, Héðni garðyrkjumanni og Arnari, aðstoðarmanni hans. Grímsey sem þessi er haldin hér á landi en hún á sér fyrirmynd í Bretlandi. Eins og nafnið bendir til er hér um að ræða keppni sem byggist á þreki og því að vera í góðu líkamlegu formi. Um er að ræða einstaklings- og liðakeppni og fara keppendur í gegnum tíu æfingar eða þrekraunir í KEPPNIN Þrekmeistarinn verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 7. október og hefst kl. 13. Reiknað er með fjölda keppenda víðs vegar að af landinu en þegar hafa um 60 keppendur skráð sig til leiks. Þetta er í fyrsta skipti sem keppni kapphlaupi við klukkuna. Hingað til lands kemur Neil Francombe sem verður keppnisstjóri á Þrekmeistar- anum. Hann hefur verið keppnis- stjóri í bresku keppnunum undan- farin ár og mun sjá til þess að hún sé haldin samkvæmt sömu stöðlum og tíðkast erlendis. Þrekmeistarinn í Íþróttahöllinni á Akureyri Ný keppnisgrein fyrir þá sem eru í góðu formi STARFSMENN og velunnarar Gamla bæjarins í Laufási hafa undanfarið eins og aðrir lands- menn verið að leggja síðustu hönd á haustverkin. Næsta laugardag, 6. október, kl. 15–17 verður gest- um og gangandi boðið að koma við í Laufási, bragða á uppskerunni og njóta stemmningarinnar sem fylgir þessari hefðbundnu ís- lensku matargerð haustsins. Gestum er boðið að bragða á slátri, sultutaui úr alls konar berj- um, fjallagrasabrauði, rúgbrauði með nýrri kæfu og grasamjólk. Allt verður þetta framreitt í Gamla bænum. Í veitingasalnum verður hægt að kaupa kaffi og lummur og á stéttum úti verður til sölu nýtt grænmeti og e.t.v. eitt- hvað fleira matarkyns. Hægt verður að kynna sér hvernig gera má smyrsl úr jurtum, skoða Gamla bæinn og kirkjuna eða bara njóta haustlitanna í fögru umhverfi. Haustverkin í Gamla bænum í Laufási

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.