Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 22

Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 22
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN 22 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HENRY Kissinger, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna (t.v.), skoðaði rústir World Trade Center í gær með Rudolph Giuliani, borgarstjóra New York, sem ræðir hér við blaðamenn. Talið er að 5.582 hafi látið lífið í árásum hryðjuverkamanna á turna World Trade Center 11. september, að sögn bandarískra yfirvalda í gær. 189 biðu bana í árásinni á höf- uðstöðvar varnarmálaráðuneyt- isins í Washington og 44 fórust þegar farþegaþota, sem hryðju- verkamenn rændu, hrapaði í Pennsylvaníu. Talið er því að árás- irnar hafi kostað alls 5.815 manns lífið. Reuters Rústir World Trade Center skoðaðar GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að „veru- legur“ árangur hafi náðst í bar- áttunni gegn hryðjuverkum síðustu tvær vikurnar. Nefn- ir hann sem dæmi, að um 150 hryðju- verkamenn og hugsanlegir samverkamenn þeirra hefðu verið hand- teknir í 25 löndum. Margir Bandaríkjamenn bíða með óþreyju eftir „sjáan- legum“ aðgerðum gegn hryðju- verkamönnum, það er að segja beinum hernaðaraðgerðum, en Bush hefur leitast við að sýna löndum sínum fram á, að bar- áttan sé nú þegar í algleymingi á mörgum vígstöðvum. Bush sagði fyrr í vikunni, að fyrir utan handtökurnar hefðu 27 ríki heimilað Bandaríkja- mönnum afnot af lofthelgi sinni og flugvöllum; meira en 100 ríki hefðu náið samstarf við Banda- ríkin í leyniþjónustumálum; tugmilljarðar ísl. kr., sem tengdust hryðjuverkasamtök- um, hefðu verið frystir og 29.000 bandarískir hermenn væru tilbúnir til átaka. Pakistanskur flugræningi handtekinn „Stundum getum við ekki séð allt, sem er að gerast, á sjón- varpsskjánum en árangurinn af baráttunni er mikill og verður meiri og meiri með degi hverj- um,“ sagði Bush, sem skýrði einnig frá því, að pakistanskur flugræningi, Al Safarini, hefði verið handtekinn. Safarini og félagar hans í Abu Nidal-hryðjuverkasam- tökunum rændu farþegaflugvél í Pakistan 1986 og urðu þá 22 mönnum að bana, þar af tveim- ur Bandaríkjamönnum. Sat hann í 14 ár í fangelsi í Pakistan en var handtekinn er hann losnaði úr því og hefur nú verið fluttur til Bandaríkjanna. Þar verður hann ákærður fyrir morð. Bush um barátt- una gegn hryðju- verkamönnum Mikill árangur hefur náðst Washington. The Washington Post. George W. Bush VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti hefur í för sinni til Brussel ítrekað að Rússar standi þétt við bak Bandaríkjamanna í þeirri baráttu, sem fram- undan er gegn hryðjuverkaógninni. Pútín átti í gær fund með ráðamönnum Evrópusambandsins (ESB) og framkvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) en ummæli hans síðustu daga hafa vakið mikla athygli. Pútín sagði á þriðjudag er hann var í opinberri heimsókn í Belgíu að baráttan gegn starfsemi skipulagðra hryðjuverkasamtaka myndi þá aðeins skila tilætluðum árangri að til kæmi „sameiginlegt framtak alþjóðasamfélagsins“. Voru þessi orð Rússlandsforseta túlkuð sem afdráttarlausasta stuðningsyfirlýsing hans við það hnattræna bandalag gegn hryðjuverkaógninni, sem Banda- ríkjamenn hafa nú forustu um að mynda. Sérstaka athygli vöktu þau orð Pútíns að Rússar væru til- búnir til að „gerbreyta samskiptum sínum við NATO og Evrópusambandið á sviði hermála“. Hann sagði hryðjuverkamenn færa sér í nyt það þjóðfélag, sem hýsti þá. Líkti hann alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi við veiru, „sem lagar sig að lífverunni, sem ber hana“. Pútín sagði að þótt honum væri enn ekki ljóst nákvæmlega hvernig Osama bin Laden, hryðju- verkaforinginn illræmdi, hefði komið að fjölda- morðunum í Bandaríkjunum 11. fyrra mánaðar þyrftu Rússar „ekki á frekari sönnunargögnum að halda“. „Við teljum þetta liggja ljóst fyrir,“ sagði forsetinn. Athygli vöktu ennfremur þau ummæli Vladím- írs Pútíns að gagnrýnivert væri að Sádi-Arabar hefðu afráðið að neita Bandaríkjunum um aðstöðu til að unnt yrði að gera árásir þaðan á stöðvar hryðjuverkamanna í Afganistan. „Hér ræðir ekki um að hermenn séu að undirbúa árásir á múslíma heldur er verið að huga að árásum herafla á hryðjuverkamenn.“ Rússar hafa lýst yfir því að þeir muni ekki taka beinan þátt í þeim hernaðargerðum sem taldar eru yfirvofandi í því skyni að uppræta hryðju- verkaógnina. Þeir hafa hins vegar boðað samvinnu við Bandaríkjamenn og alþjóðabandalagið á fjöl- mörgum sviðum, m.a. með því að rekja fjármagns- flutninga á vegum hryðjuverkasamtaka og vitað er að vestrænir ráðamenn telja mjög mikilvægt að rússneska leyniþjónustan starfi með slíkum stofn- unum á Vesturlöndum. Þá hafa Rússar greitt fyrir því að Bandaríkjamenn og bandalagsþjóðir þeirra fái hernaðarastöðu í fyrrverandi Mið-Asíulýðveld- um Sovétríkjanna. Sagan lögð til hliðar Ráðamenn í Brussel tóku ummælum Pútíns fagnandi. „Margir hafa hrifist af vilja Rússa til að leggja söguna til hliðar og taka fullan þátt í al- þjóðlega bandalaginu gegn hryðjuverkaógninni,“ sagði Chris Patten, framkvæmdastjóri utanríkis- mála hjá Evrópusambandinu, í ræðu á þriðjudag. Líkir hryðjuverkamönn- um við veirusýkingu Vladímír Pútín Rússlands- forseti ítrekar samstöðu með Bandaríkjamönnum Reuters Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Guy Ver- hofstadt, forsætisráðherra Belgíu, á blaða- mannafundi í Brussel í gær. Brussel. AFP. Associated Press. ÝMSIR bandarískir embættis- menn efast um fréttir um, að Osama bin Laden hafi hringt í móður sína og gefið í skyn, að mikil hryðjuverk væru á döfinni. Kom það fram hjá bandarísku fréttasjónvarpsstöðinni CNN. „Við efumst um þetta og finnst það heldur ólíklegt,“ sagði ónafngreindur embættismaður og annar sagði, að þótt ekkert væri útilokað, þá væri rétt að taka fréttinni með fyrirvara. NBC-sjónvarpsstöðin flutti fréttina fyrst og sagði, að bin Laden hefði hringt í móður sína tveimur dögum fyrir hryðju- verkin, 9. september, en New York Times sagði í fyrradag, að hann hefði hringt í hana 10. september eða deginum fyrir hryðjuverkin og sagt, að mikilla tíðinda væri að vænta. Heimildarmenn CNN sögðu, að á síðustu árum hefði verið fylgst með símtölum bin Ladens við móður sína en þá hefði hann notað gervihnattasíma. Hann virtist hafa notað aðrar fjar- skiptaaðferðir að undanförnu. Efast um símtal bin Ladens

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.